Dagur


Dagur - 13.10.1995, Qupperneq 11

Dagur - 13.10.1995, Qupperneq 11
MINNIN Cm Föstudagur 13. október 1995 - DAGUR - 11 Rósa Kristín Jónsdóttir Fædd 12. maí 1933 - Dáin 6. október 1995 Rósa Kristín Jónsdóttir fæddist á Akureyri 12. maí 1933. Hún lést að heimili sínu, Víðilundi 4 f. á Akureyri föstudaginn 6. október sl. Foreldrar hennar voru Sigríður Kristinsdóttir, fædd 23. september 1908 á Ker- hóli í Saurbæjarhreppi og Jón Gunnar Vilmundarson, vél- stjóri, fæddur 24. mars 1898 á Arnareyri í Hvalvatnsfirði, d. 13. ágúst 1939. Systur Rósu eru Sigurjóna, f. 3. desember 1936 og Sóley f. 8. júlí 1950. Rósa giftist þann 31. maí 1952 eftirlifandi manni sínum Sigurði Indriðasyni, f. 4. desember 1930. Börn þeirra eru: 1) Steinunn f. 29. september 1954. Maki hennar er Arni Bjarnason, búsett á Akureyri og eiga þau þrjú börn. 2) Jón Gunnar Sigurðsson f. 12. júlí 1958. Maki hans er Sigrún Sigurgeirsdóttir, búsett í Reykjavík og eiga þau tvo syni. 3. Sigurður Unnsteinn Sigurðs- son, f. 30. mars 1963. Maki hans er Þórdís Jónsdóttir, búsett á Akureyri og eiga þau tvö börn. Utför Rósu Kristínar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. Þegar mér barst sú fregn að hún Rósa tengdamóðir mín hefði kvatt þetta tilverustig fóru um hugann óteljandi fjöldi minninga um þá viðburði sem hæst hafa borið í lífi mínu undanfama áratugi. Fyrstu viðbrögðin við andláti hennar eru margþætt, þótt hæst beri sorg og söknuður þá er einnig ofarlega í huga þakklæti fyrir allt sem hún veitti mér og einnig léttir vegna þess að erfiðu stríði við illvígan sjúkdóm er lokið. Okkar kynni hófust þegar Steina einkadóttir hennar og ég ákváðunt að rugla reitum okkar saman. í upphafi var ég hálf upp- burðarlítill gagnvart þessari stóru og myndarlegu konu sem mældi mig út með velferð dótturinnar í huga, en það var sannarlega það sem stóð hjarta hennar næst. Ekki leið á löngu þar til við urðum dús og höfum verið það alla tíð síðan. Ógleymanleg er minningin um þá innilegu gleði og hamingju sem ríkti hjá ykkur hjónum þegar fyrsta bamabamið kom í heiminn. Þannig hefur það verið með hverju baminu sem bæst hefur í hópinn. Ekki var gleðin ntinni þegar loks fyrir rúmum fjórum ár- unt bættust við tvær yndislegar stúlkur í fríðan drengjahóp sem fyrir var. Ekki get ég ímyndað mér að samband rnilli ömmu og barns geti verið innilegra en það sem verið hefur milli Rósu litlu dóttur okkar og Rósu ömntu. Söknuðurinn er því sár hjá litlu ömmustelpunni og vafalaust erfitt fyrir hana að skilja hvers vegna bún amma þurfti svo snemma að fara til Guðs. Upp í hugann koma jólin öll sem við áttum saman, þar sem þú varst löngum í aðalhlutverki. Samverustundimar í sumarbú- staðnum ykkar sem þú fékkst allt of skamman tíma til að njóta. Hugur minn hvarflar til Sigga tengdaföður míns, sem af óbilandi staðfestu hefur vakinn og sofinn stutt konu sína í veikindum henn- ar. Einnig vil ég nefna hana Siggu mína. Aldraða móður sem nú horfir á eftir dóttur sinni. Nonni, Siddi, Sóley, Jóna og fjölskyld- umar, að okkur er nú harmur kveðinn. Sá harmur mun þjappa okkur enn betur saman og snúast í gleði góðra minninga um konu sem var okkur öllum svo kær. Það er erfitt að vera fjarri fjöl- skyldu sinni norður í dumbshafi þegar sorgin knýr dyra og geta ekki fylgt tengdamömmu síðasta spölinn. Eg er samt viss um að þið styðjið og styrkið hvert annað og hugur minn verður hjá ykkur. Eg kvaddi þig Rósa á spítalanum áður en ég fór á sjóinn. Við vissum bæði að líklega sæjumst við ekki oftar í þessu lífi, en þú sagðir svo undurrólega að við hittumst þá bara í því næsta og vona ég að svo verði. Oftar en tölu verður á komið baðst þú mig að spila Spönsku augun á hljóðfærið. Avallt er ég spila það í framtíðinni mun ég hugsa til þín, því það er lagið okk- ar. Þakka þér fyrir allt og allt. Guð geymi þig. Arni Bjarnason. Við fráfall Rósu frænku vakna ótal minningar sem okkur syst- kinin langar að minnast og þakka. Frá fyrstu tíð höfum við átt sam- leið með Rósu vegna frændskapar en móðir Rósu, Sigríður, er systir Daníels föður okkar. Hún bjó þeg- ar við munum fyrst eftir í Lundar- götu 1 á Akureyri og þar bjuggu með henni Rósa amma okkar og Sveinbjörg föðursystir ásamt með dætrum Siggu. Aðalsteinn föðurbróðir okkar bjó einnig á Akureyri og mikill samgangur var milli þessa fólks alls. Systkinin 4 frá Kerhóli í Sölvadal eru nú látin nema Sigríð- ur, sem nú syrgir Rósu dóttur sína 87 ára gömul. Við sendum henni okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Sigga frænka varð ung ekkja og bjuggu þessar rnæðgur saman í Lundargötu. Þama var gestkvæmt og öllum vel tekið, þótt efnin væru ekki mikil. Gjarnan var tekið í spil, farið í leiki og sungið eins og títt var í þá daga. Þessar minn- ingar eru okkur dýrmætar. Rósa frænka giftist ung Sigurði Indriðasyni frá Skógum í Fnjóska- dal, miklum ágætismanni og traustum. Heimilli þeirra stóð lengst að Grenivöllum 30 á Akur- eyri og þangað var gott að koma. Heintili þeirra bar vitni ráðdeild og ntyndarskap sem þau hjón voru samhent um. Ábyrgðartilfinning Sigga og nákvæmni vakti jákvætt andsvar í fari Rósu og saman mynduðu þau heimili sem var máttarstólpi í fjölskyldum þeirra. Unga fólkið í kringum þau fékk góða fyrirmynd í þeim, sem það hefur augljóslega tekið mið af. Við systkinin eigum margar góðar minningar frá heimsóknum til þeirra á Grenivelli 30. Þar var oft glatt á hjalla og margt spjallað. Rósa var glaðleg í viðmóti og einkar hressileg og sá gjaman spaugilegar hliðar á hlutunum og sló þá á lær sér og hló dátt. Hún gat vel gert grín að sjálfri sér ekki síður en öðrum. Hún var gjörvileg kona og bar sig vel og það var eft- ir henni tekið, þar sem hún fór. Rósa var hamingjukona í einkalífi sínu og var sér vel með- vitandi um það og lét það í Ijós í orðunt og verkum. Hún átti góðan og samhentan lífsförunaut og börnin þeirra 3 bera foreldrum sínum gott vitni. I fyrrahaust hittumst við Rósa hér í Reykjavík. Hún var þá búin að ganga í gegnunt erfiða sjúk- dómsraun, en var full bjartsýni og vonar og einnig þakklæti til þeirra sem stutt höfðu hana í baráttunni, ekki síst góðu hjúkrunarfólki á Akureyri. I sumar dró svo ský fyr- ir sólu er sjúkdómurinn tók sig ujtp og ekki varð við neitt ráðið. Ástvinir hennar önnuðust hana og vöktu yfir henni þar til yfir lauk og hún dó á heimili sínu umkringd þeim. Að leiðarlokum þökkum við Rósu samfylgdina og allt það góða sem með henni var gefið, ekki síst hve notaleg hún var við foreldra okkar alla tíð. Við send- um ástvinum hennar öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við kveðjum hana með erindi sem faðir okkar orti í minningu móður sinnar og nöfnu Rósu. Farðu sœl til friðarheima fjarri þraut, með hreinan skjöld. Bjartan, nýjan hústað áttu bak við hulin dauðans tjöld. Sœlir eru hjartahreinir, herrann Jesú mœlir slíkt. Dyggum eftir dagsverk unnið drottinn fagnar kœrleiksríkt. (Úr ljóðabókinni Orðsins glíma eftir Daníel Kristinsson). Blessuð sé minning Rósu frænku. Maggi, Halla og Auður. Elsku vinkona. Þú hefur nú verið kölluð burt frá ættingjum þínum og vinum, langt fyrir aldur fram, til æðri starfa hjá Drottni. Sárt er að sakna, en margs er þó að minnast. Þegar við vinkonumar sátum saman og spjölluðum yfir kaffi- bollunum í „Grenó“, allar á fyrstu búskaparárunum. Margt var rætt og mikið hlegið. Eða þegar við komum saman á kvöldin með prjónana og töluðum um börnin okkar, lífið og tilver- una. Fyrir kom að okkur greindi á, vorum ekki sammála um hlutina, þá gátu á stundum orðið snörp orðaskipti eins og alltaf getur hent ungt og skapmikið fólk. En vinátt- an og væntumþykjan var það mik- il, að við vorum ekki í rónni fyrr en við höfðuin rétt út sáttahönd og faðmast. Þá varð allt gott á ný. Eins munurn við, hvað þú varst fljót að bregðast við, með blómum og vinarhug ef eitthvað kont upp á, hvort heldur var í sorg eða gleði. Bömin okkar léku sér saman og þar mynduðust vináttubönd sem aldrei gleymast. I áranna rás urðu samverustundimar færri, bömin uxu úr grasi og við fómm aftur að vinna utan heimilisins, en alltaf var vináttan jafn góð og undir niðri, söknuðum við gömlu góðu stundanna. Elsku vina! Þú átt góðan og ástríkan eiginmann, böm, tengda- böm, móður og systur sem öll voru samhent um að létta þér bar- áttuna á erfiðum stundum. Þeim sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Vonandi auðnast okkur að taka upp þráðinn á öðru tilverustigi, þar sem þrautir og þjáningar eru víðs fjarri. Guð geymi þig kæra vina og hvíl þú í friði. Elsa og Gústa. Elsku Rósa frænka mín, nú ert þú farin í ferðalagið langa og ert laus við erfið veikindi. Það er skrýtið til þess að hugsa að þú sért farin en minningin unt þig ntun ávallt lifa í hjörtum okkar og við vitum að við munum hittast aftur. Alltaf mætti okkur hlýhugur þegar við komum í heimsókn til þín og Sigga og kornuð þið alltaf fram við okkur eins og við værunt bamaböm ykkar. Þú skilur eftir þig skarð í fjölskyldunni okkar sem erfitt verður að fylla og fjöl- skylduboðin verða tómleg án þín. Missir Sigga og okkar allra er mikill og söknuðurinn sár á stundu sem þessari. Megi góður Guð blessa minningu þína elsku frænka. Farþú ífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst jni með Guði Guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem) Halldór, Kristinn, Sigríður og Davíð. Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1991 3. flokki 1991 1. flokki 1992 2. flokki 1992 1. flokki 1993 3. flokki 1993 1. flokki 1994 Innlausnardagur 15. október 1995. 1. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.527.209 kr. 152.721 kr. 15.272 kr. 3. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 1.358.922 kr. 500.000 kr. 679.461 kr. 100.000 kr. 135.892 kr. 10.000 kr. 13.589 kr. 1. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 6.692.157 kr. 1.000.000 kr. 1.338.431 kr. 100.000 kr. 133.843 kr. 10.000 kr. 13.384 kr. 2. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 6.587.133 kr. 1.000.000 kr. 1.317.427 kr. 100.000 kr. 131.743 kr. 10.000 kr. 13.174 kr. 1. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 6.066.408 kr. 1.000.000 kr. 1.213.282 kr. 100.000 kr. 121.328 kr. 10.000 kr. 12.133 kr. 3. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 5.675.943 kr. 1.000.000 kr. 1.135.189 kr. 100.000 kr. 113.519 kr. 10.000 kr. 11.352 kr. 1. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 5.577.108 kr. 1.000.000 kr. 1.115.422 kr. 100.000 kr. 111.542 kr. 10.000 kr. 11.154 kr. Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. HÚSMÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFADEILD • SUOURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 569 6900

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.