Dagur - 17.10.1995, Side 3
Þriðjudagur 17. október 1995 - DAGUR - 3
Lttndsfuntiur JU&ý&ubanclcilcigsins
Margrét Frímannsdóttir bar sigurorð af Steingrími J. Sigfússyni í formannskjöri í Alþýðubandalaginu:
„ Alþýðu bandalagið er móður-
skip á vinstri vængnunf
- segir Margrét Frímannsdóttir, nýkjörin formaður
Með allnokkrum meirihluta
sigraði Margrét Frímannsdóttir
Steingrím J. Sigfússon í for-
mannskjöri í Alþýðubandalag-
inu, en úrslit þess efnis voru
kunngerð á landsfundi flokksins
sem haldinn var um helgina.
Margrét Frímannsdóttir sagði í
samtali við Dag í gær að á
næstu vikum færu af stað við-
ræður um samstarf flokka á
vinstri vængnum þá t.d. með
sameiginlegum tillöguflutningi á
Alþingi. „En það verður ekki
mitt fyrsta verk að leggja Al-
þýðubandalagið niður, enda lít
ég svo á að það verði alltaf
ákveðið móðurskip í hugmynda-
fræði íslenskra vinstri flokka.
Okkar stefna byggist á jöfnuði
og réttlæti,“ sagði Margrét í
samtali við Dag.
Margrét Frímannsdóttir segir
að kosningar þessar séu dæmi um
hvemig Alþýðubandalagið vilji í
raun standa að jafnréttismálum.
Að karl og kona takist á og það á
fullkomlega sama grundvelli. „Ég
er mjög ánægð,“ sagði Margrét
„Lengst af reiknaði ég með því
að sigra í þessu formannskjöri.
Gaf auðvitað kost á mér með því
hugarfari að bera sigur úr býtum.
Hins vegar er þetta ákveðinn léttir,
að standa utan forystusveitar
flokksins. Nú hef ég meiri tíma til
að sinna minni fjölskyldu og mín-
um hugðarefnum í stjómmálum
Margrét Frímannsdóttir.
sem eru atvinnu- og byggðamál
sem og öryggis- og friðarmál. í
þessu svari felst þá líka að ég mun
nú hafa aukinn tíma til að sinna
mínu kjördæmi. Með þessu er ég
þó ekki að segja að nú á gamals
aldri í pólitík ætli ég að leggjast í
fyrirgreiðslu,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, þingmaður Alþýðu-
bandalags á Norðurlandi eystra.
Steingrímur segir að ósigur þessi
sé sér persónulega tilefni til endur-
mats á sínu eigin stjómmálastarfi.
Hann geti nú endurskipulagt störf
sín og um frjálst höfuð strokið; en
Steingrímur J. Sigfússon.
sé ekki endalaust bundinn af mála-
miðlunum og samkomulagsgerð-
um, sem forystumenn stjómmála-
flokka séu bundnir af.
Um sameiningu félagshyggju-
afla í landinu segir Steingrímur að
enn séu margar djúpar gjár í mál-
efnum sem óbrúaðar séu. Hann
bendir þó á að úti á landsbyggð-
inni sé landslagið í stjómmálum
annað en á Reykjavíkursvæðinu
og skoðanir manna í Alþýðuflokki
og Alþýðubandalagi úti um land
ekki ósvipaðar. Þessa tvo stjóm-
málaflokka segir Steingrímur í
Anna Kristín Gunnarsdóttir á Sauðárkróki:
„Hef miklar væntingar"
„Ég hef miklar væntingar til
hins nýja formanns Alþýdu-
bandalagsins. Þetta markar
tímamót og ég vænti þess að
Margrét geti leitt góða sam-
vinnu meðal þeirra sem skipað
hafa sér í raðir flokksins. Það
var góður andi meðal allra með-
an á kosningabaráttunni stóð -
og að halda því starfi áfram er
sjálfsagt,“ sagði Anna Kristín
Gunnarsdóttir, kennari á Sauð-
árkróki, en hún skipaði sér í
hóp einna dyggustu stuðnings-
manna Margrétar Frímanns-
dóttur í formannskjörinu.
Að mati Önnu Kristínar er
Anna Kristín Gunnarsdóttir.
sjálfsagt mál að reyna að sam-
eina krafta fslensks félags-
hyggjufólks eða stuðla að sam-
starfi þess. Til slíks fékk hin
nýja flokksforysta fullt umboð
landsfundar.
„Það kom fram í ntáli Ólafs
Ragnars á landsfundinum að
óbreytt ástand í íslenskum
stjómmálum væri í raun að færa
Sjálfstæðisflokknum áfram lykil-
inn að Stjómarráðinusagði
Anna Kristín. Hún sagði þó jafn-
framt að sameining tslenskra
stjómmálaflokka væri snúið mál,
línumar í flokkunum væru þver-
pólitískar og í þeim er kenna sig
við einstaklingshyggju væru
miklir félagshyggjumenn - og
aftur öfugt. -sbs.
Sigríður Stefánsdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri:
„Ég studdi Steingrím"
„Það er alveg ljóst að ég studdi
Steingrím Jóhann, en bæði
hann og Margréti tel ég valda
því verkefni sem staða for-
manns er,“ sagði Sigríður Stef-
ánsdóttir, bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins á Akureyri.
Sigríður segist hvergi fara
leynt með að hún hafi stutt
Steingrím í fomiannskjörinu og
það hafi allflestir Norðlendingar
einnig gert. Hún vill þó ekki
Sigríður Stefánsdóttir.
meina að niðurstaða kosning-
anna séu sér vonbrigði, „en alltaf
vill maður að kosningar fari eins
og maður sjálfur kýs,“ sagði Sig-
ríður.
Um samvinnu - eða samein-
ingu hinna svonefndu félags-
hyggjuflokka segir hún það vera
gott mál, enda hafi umboð til
könnunar á þeim möguleika ver-
ið samþykkt nær samhljóða af
fulltrúum á landsfundi. -sbs.
raun vera þá einu „... sem taki því
að tala um.“ Þá hafi stjórn Þjóð-
vaka sent hálfgildings inntöku-
beiðni í Alþýðubandalagið inn á
landsfundinn.
Margrét Frímannsdóttir segir
að í öllu tali um sameiningu eða
samstarf stjórnmálaflokka muni
hún hafa að leiðarljósi það sem
hér að framan segir; að Alþýðu-
bandlagið sé móðurskip á vinstri
vængnum. „Það verður ekki mitt
fyrsta verk og aldrei það sem ég
stefni að, að leggja flokkinn nið-
ur,“ sagði Margrét.
Félögum í Alþýðubandalaginu
á Norðurlandi eystra fjölgaði tals-
vert í baráttunni um formannssæt-
ið - og það má um margt túlka
sem stuðning við Steingrím. Hið
sama gerðist á Suðurlandi en
Sunnlendingar stóðu þétt að baki
Margréti í formannskjörinu.
Steingrímur segist sjálfur hafa
fundið góðan stuðning í kosninga-
baráttunni - og jafnframt frá
mörgum öðrum í kjördæminu,
sem bindi trúss sitt við aðra
flokka. Þann stuðning segir Stein-
grímur að sér hafi þótt vænt um -
og við þetta fólk vilji hann segja;
að í formannskjörinu hafi enginn
tapað, allra síst hann. -sbs.
. Trusf
COMPUTER PRODUCTS
BQI
Vönduð tölva
á góðu verði
sem hentarvel í námið
486 DX2/80 MHz
850 MB diskur-8 MB minni
Geisladrif, 4x - 240 UJ hátalarar
LUindouus 95
Verðkr. m.900stgr.
tClvutæki
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
Suzuki Vitora V6
Eðaljeppi
með V6 álmótor
Laufsásgötu 9, Akureyri, sími 462 6300
Eldisfiskur - fiskeldisstöð
Úr þrotabúi Svarthamars hf., Haukamýrargili við
Húsavík eru til sölu ca. 420.000 bleikjuseiði.
Nánari stærðarflokkun:
1-6 grömm 280.000
30-100 grömm 30.000
90-150 grömm 70.000
200-300 grömm 30.000
400-500 grömm 10.000
600 grömm 1.500
Ef áhugi er fyrir áframhaldandi rekstri fiskeldisstöðvar-
innar á staðnum er vakin athygli á því að stöðin er í
eigu Framkvæmdasjóðs íslands hf.
Tilboðsfrestur er til kl. 13.00 fimmtudaginn 19. október
nk.
Nánari upplýsingar veitir skiptastjóri þrotabúsins,
Ólafur Birgir Árnason, hrl.,
Lögmannsstofu Akureyrar hf.,
Geislagötu 5, 600 Akureyri,
sími 462 4606, fax 462 4745.