Dagur - 02.11.1995, Blaðsíða 1

Dagur - 02.11.1995, Blaðsíða 1
 Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Verðstnð er i fullum gangi milli verslana á lambakjöti. KEA Nettó, þar sem þessi mynd var tekin, býður kflóið á 244 krónur, sama verði og Bónus í Reykjavík, og í Hagkaup og kjörmarkaði KEA við Hrísalund var kflóið boð- ið á 289 krónur. Mynd: bg. Kjötútsalan í fullum gangi: Bíðum ekki eftir úrskurði Félagsdóms - segir Valdimar Guðmannsson, formaður AN Verkamannasamband Islands (VMSÍ) samþykkti á nýaf- stöðnu þingi sínu að skora á launanefnd ASÍ og aðildarfélög sín að segja upp gildandi kjara- samningum fyrir 1. desember nk. þannig að samningar verði lausir um næsta áramót. Viðlíka samþykkt var gerð á þingi Al- þýðusambands Norðurlands í haust. Valdimar Guðmannsson, formaður Alþýðusambands Norðurlands og formaður Verkalýðsfélags Austur- Hún- vetninga, segir VMSÍ telja að forsendur samninganna séu brostnar en eðlilegra sé að launanefnd ASÍ taka af skarið í þeim efnum. Valdimar segist ekki trúa öðru en að öll stéttarfélögin muni segja samningunum upp þannig að þeir séu lausir frá næstu áramótum. Verkalýðsfélögin hafi haldið því fram að setjast þyrfti sem fyrst að samningaborðinu og reyna að leysa þær deilur sem upp hafa komið, þ.e. hvort forsendur núver- andi samninga séu brostnar en það sé einróma álit forsvarsmanna að- ildarfélaga Verkamannasambands íslands. „Það er augljóst að eftir að verkalýðsfélögin skrifuðu undir samninga í febrúarmánuði sl. hefur verið tekin upp önnur stefna af fulltrúum ríkisins í þeim samning- um sem þeir stóðu að eftir það, m.a. meiri launahækkanir, og síðan kemur þessi kjaradómur fyrir þing- menn og aðra í sjálftökuliðinu. Síðast en ekki síst kemur svo fram fjárlagafrumvarp ríkisstjómarinnar nú í haust, en út úr því lesum við það að ekki eigi að standa við ýmsa liði kjarasamningsins, m.a. yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem stuðlaði að því að aðildar vinnu- markaðarins náðu sáttum. Þar vort ákvæði um að að tryggja atvinnu stigið og bæta atvinnuástandið oy þetta er einnig samdráttarifumvar] hvað varðar framkvæmdir hins op inbera. Það sem fyllti mælinn von þessi sérstöku skattalög sem þing menn settu sér til handa, þar sem þeir einir landsmanna njóti ákveð- inna skattfríðinda," sagði Valdimar Guðmannsson. Valdimar segir verkalýðsfélög- in ekki ætla að bíða eftir úrskurði Félagsdóms vegna uppsagnar Verkalýðsfélagsins Baldurs á ísa- firði á kjarasamningum en vissu- lega kunni sá úrskurður að hafa einhver áhrif. Boðaðir verða fé- lagsfundir og má búast við vegna skamms tíma að félagsfundir sam- þykki verkfallsboðun en veiti ekkj stjóm og trúnaðarmannaráði heimild til verkfallsboðunar eins og algengara hefur verið. GG Enn finnast lifandi og dauöar ær í A-Hún: Ráðunautur telur erfitt Leysir eng- an vanda - segir sláturhússtjóri KEA Mikil viðbrögð hafa orðið við lambakjötsútsölunni sem nú er í gangi, en þar er ársgam- alt lambakjöt boðið á verulega lægra verði en verið hefur. Hafa afurðastöðvar ekki undan að af- greiða kjötið í búðir. Alls á að selja 600 tonn á þessu lægra verði og er hámarksverð 349 krónur á kíló. Verðið fór fljót- lega niður í 289 kr., t.d. í Hag- kaup, og lægsta verð í gær var 244 krónur í KEA Nettó. Er það sama verð og var í Bónus. Heild- söluverð á kjötinu er 271 króna fyrir utan virðisaukaskatt og því er ljóst að verslanir eru að borga verulega með kjötinu þar sem verðið er lægst. Þórhalla Þórhallsdóttir, versl- unarstjóri í Hagkaup á Akureyri, segir viðtökur viðskiptavina hafa verið frábærar. Kjötið seldist upp á sunnudagskvöldið en á mánu- dagskvöld kom meira. Verðið í Hagkaup hefur verið 289 krónur á kfló. Sama verð er í boði í stór- markaði KEA í Hrísalundi. Þar fengust einnig þær upplýsingar að rífandi sala hefði verið í útsölu- kjötinu, allt frá byrjun. Lægsta verðið á Akureyri í gær var sem fyrr segir í KEA Nettó, 244 krón- ur á kfló, og var svo sannarlega handagangur í öskjunni þegar við- skiptavinir voru að tryggja sér hagstæð matarinnkaup. Að sögn Öla Valdimarssonar, sláturhússtjóra hjá KEA, hefst engan veginn undan að saga niður og afgreiða kjötið í búðir. Hann segist ekki hafa trú á að þessi út- sala nú leysti einhvern vanda. „Þetta er orðinn alger skn'paleikur og varla hægt að kalla þetta versl- unarmáta. Það verður kannski engin sala í nýja kjötinu fram að áramótum. Það er ekki verið að leysa neinn vanda, heldur aðeins fresta honum eða ýta honum á undan sér. Það er engin lausn á þessu máli nema koma einhverju verlegu magni út af markaðinum. Það eitt gæti leyst vandann en þessi útsala mun ekki gera það,“ sagði Óli. HA Stillt en bjart veður réði ríkjum á Akureyri í gær með 5 stiga hita og næstu daga má búast við áframhaldandi hlýindum. Bátarnir í Sandgerðisbótinni, sem sjást á myndinni, spegluð- ust fagurlega í haffletinum í gær og líkur eru á einhverju framhaldi blíðviðrisins. Þó kólnar í dag í hægri norðlægri átt með smá slydduéli en síð- an verða hlýindi og suðlægar áttir allt til mánudags og að mestu úrkomulaust en kaldi, sem er um 5 vindstig. GG/Mynd: BG að meta heildartjónið að er Ijóst að bara í Austur-Húnavatnssýslu hross í snjóflóði úr Langadalsfjalli og fregnir hafa mt hafa drepist í það minnsta 5-600 fjár, en á þessari stundu er mjög erfitt að segja til um hversu mikið heildartjónið er. Síðast í dag bár- ust mér fregnir af því að fundist hefðu tvær kindur í Svartárdal, önnur lifandi en hin dauð,“ sagði Jón Sigurðsson, ráðunautur hjá Búnaðar- sambandi Austur-Húnavatnssýslu á Blönduósi, í gær. Jón sagði að í fyrstu hafi sér virst sem lágsveitir í vesturhluta sýslunnar hafi farið verst út úr norðan áhlaupinu í síðustu viku, „en það er komið á dag- inn að tjónið er meira og minna um allt hérað.“ Jón sagði að rnesta tjónið sem hann vissi um á einum bæ væri á Sölvabakka, en þar drápust um 80 kindur. Eins og fram hefur komið drápust mörg borist um tvo kálfa sem drápust í veðurhamnum í síðustu viku. Engum blöðum er um það að fletta að veðurofs- inn á þessum slóðum var meiri en menn á miðjum aldri muna, í það minnsta á þessum árstíma. „í þau tuttugu ár sem ég hef starfað hér hefur ekki gert slíkt áhlaup. Það er með þetta eins og slysin, að menn sögðu sem svo að svona lagað gæti ekki gerst hér. En menn hafa nú komist að raun um að slíka veðurspá ber að taka alvarlega í framtíðinni. Ég hef eftir henni Helgu á Móbergi að fyrir um 70 árum hafi fallið snjóflóð af þeirri stærð sent nú féll úr Langadalstjalli og grandaði fjölda hrossa. Af þessu má ráða að þessi veðurhamur og aðstæður allar voru mjög sérstakar,“ sagði Jón Sigurðsson. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.