Dagur - 02.11.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 2. nóvember 1995
FRÉTTIR
Akureyri:
Nokkur dæmi um hús og fram
kvæmdir án tilskilinna leyfa
Allar byggingaframkvæmdir eru
háðar leyfum byggingamefnda
viðkomandi sveitarfélaga og
breytir engu hvort um nýfram-
kvæmdir eða breytingar er að
ræða, t.d. nýja gerð glugga
o.s.frv. Þess eru þó dæmi að
ýmsir hafí ekki hirt um að afla
sér þessara leyfa. Þar er bæði
um að ræða byggingar sem ekki
er ætlað að standa til frambúðar
og eins hefur fólk ekki áttað sig
á því að leyfi þarf til breytinga
eða viðbygginga við eldri hús
Þegar búið er í húsi sem ekki
hefur fengið samþykki byggingar-
nefndar tapar bæjarsjóður t.d. fast-
eignagjöldum en í stað þess á að
sækja um tímabundna stöðuheim-
ild. Dæmi um þetta er við Frosta-
götu, en þar hefur staðið sumarhús
í alllangan tíma og í því verið bú-
ið, sem ekki er í samræmi við Iög
og reglur. Jón Geir Agústsson,
byggingarfulltrúi, segir að bæjar-
lögmaður hafi verið beðinn að
hlutast til um að ekki yrði búið í
húsinu eftir að byggingarnefnd
var tjáð um málavöxtu.
Baldur Dýrfjörð, bæjarlögmað-
ur, segir að rætt hafi verið við eig-
anda sumarhússins fyrir allnokkru
síðan og þá hafi staðið til að flytja
það á sumarbústaðalóð handan
ijarðarins en af því hafi ekki orð-
ið.
Annað dæmi er að við Ægis-
götu hefur gámur verið grafinn
niður og að honum mokað og tyrft
eins og um varanlega staðsetningu
hans sé að ræða. Auk þess stendur
gámurinn að hluta utan við lóðar-
o
(0
Toshiba 29” Super-C3
O
co
z
* íslenskt textavarp
* S-VHS inngangur
* Útgangar f/aukahátalara
* Allar skipanir birtast á skjá
* 16:9 bíómynd
* Surround hljómur
* 2 scarttengi
* Útgangur f/heymartól
* Einföld fjarstýring
Kr. 126.900 staðgreitt
mörkin. Gámurinn hefur verið
notaður sem vinnuskúr en á að
víkja samkvæmt upplýsingum
byggingarfulltrúa, sem þó segist
ekki vera bjartsýnn á að það gerist
fyrir veturinn, en næsta vor fari
hann, að öðrum kosti verði hann
fjarlægður.
Þriðja tilvikið er bygging sum-
arhúss við íbúðarhús inni í miðju
íbúðarhverfi, sem dæmi eru um á
Akureyri. Byggingarfulltrúi segir
að ef tilvist sumarhúss valdi ná-
grönnum ónæði komi til kasta
byggingamefndar Akureyrarbæj-
ar. GG
Bann við solu
rússnesks Smugu
þorsks til íslands
hefur áhrif
Töluverðar vonir eru bundnar
við það að samkomulag náist á
viðræðufundi íslendinga, Norð-
manna og Rússa um veiðar í
Barentshafi síðar í þessum mán-
uði. Með samningi munu mögu-
leikar íslendinga á kaupum á
þorski veiddum af Rússum í Bar-
entshafi aukast til muna. T.d.
hefur Fiskmiðlun Norðurlands
hf. á Dalvík reynt að ná sam-
komulagi að undanfömu um
landanir hérlendis en án árang-
urs.
Ásgeir Amgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmiðlunar Norð-
urlands hf., segir að rússneskir út-
gerðarmenn hætti ekki á það að
selja Islendingum þorsk til vinnslu,
viðurlögin við viðskiptabanni á
fisksölu til Islendinga vegna „arð-
ráns“ togara þeirra í Barentshafi
séu mjög ströng, m.a. talað
um
Flugleiðir í
góðum gír
Flugleiðir högnuðust um 951
milljón króna fyrstu átta
mánuði ársins, að því er fram
kemur í frétt frá Flugleiðum.
Afkoman fyrstu átta mánuði
ársins hefur batnað um 412
milljónir króna milli ára.
Meginástæður batnandi af-
komu eru ijölgun farþega og
hagnaður af flugvélasölu.
Hagnaður af reglulegri
starfsemi Flugleiða fyrstu átta
mánuðina, þ.e.a.s. rekstri og
fjármagnsgjöldum, var 579
milljónir króna, en var á sama
tímabili í fyrra 463 milljónir
króna.
Hagnaður af sölu Boeing
vélar var 325 milljónir króna
og á sinn þátt í bættri afkomu
Flugleiða. óþh
kvótasviptingu í Barentshafi.
Sala á saltfiski til Ítalíu hefur
gengið mjög vel en skilaverð hefur
lækkað að undanfömu vegna
fallandi gengis ítölsku lírunnar. Af-
skipun hefur gengið vel og ekki
hefur komið til neinnar umtals-
verðrar birgðasöfnunar en á Eyja-
fjarðarsvæðinu vom framleidd um
200 tonn á þessu vori. Nokkrar
kvartanir hafa borist frá ítölum
vegna lélegra gæða og em leiddar
líkur að því að ástæðan sé of mikl-
ar stillur í veðrinu á Norðurlandi á
sl. vori. Ekki hefur þó komið til
endursendingar á Ítalíuskreið.
„Þeir saltfiskverkendur sem
hafa keypt hráefni á fiskmörkuðun-
um hafa þurft að borga nokkuð hátt
verð og þurfa því að hafa nokkuð
hraðar afsetningar til þess að geta
staðið í skilum með greiðslu á hrá-
efninu. Mjög vel hefur gengið á
þessu ári að selja skreiðarhausa til
Nígeríu en einnig hefur verið selt
smávegis af skreið. Öll framleiðsl-
an hefur selst jöfnum höndum og
það hefur verið skortur á hráefni. A
þessu ári hefur Fiskmiðlunin sent
210 gáma af skreiðarhausum til
Nígeríu sem eru tæp þijú þúsund
tonn,“ sagði Ásgeir Ámgrímsson.
Vegna ótíðar hefur lítið aflast af
þorski að undanfömu og því ekki
verið verkaðir hausar á Nígeríu-
markað en með línutvöföldun
standa vonir til að hægt verði að
sinna Nígeríumarkaðnum betur. En
til þess þarf tíðin að batna. GG
Urskurðar-
nefndir verði
stofnaðar í mál-
efnum neytenda
Vilhjálmur Ingi Ámason,
varaþingmaður Þjóðvaka á
Norðurlandi eystra, og sam-
flokksmaður hans, Ágúst
Einarsson, hafa lagt fram á
Alþingi tillögu til þingsálykt-
unar um að stofna úrskurð-
amefndir í málefnum neyt-
enda.
Tillagan hljóðar svo:
Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að koma á fót
tveimur úrskurðamefndum í
málefnum neytenda. Annars
vegar nefnd sem fjalli um
ágreiningsmál neytenda og op-
inberra þjónustufyrirtækja;
nefndin verði skipuð þremur
fulltrúum, einum tilnefndum af
viðskiptaráðherra, öðrum til-
nefndum af Neytendasamtök-
unum og þeim þriðja tilnefnd-
um af því opinbera þjónustu-
fyrirtæki sem mál varðar
hverju sinni. Hins vegar nefnd
sem fjalli um ágreiningsmál
neytenda og sjálfstætt starfandi
séifræðinga; nefndin verði
skipuð þremur fulltrúum, ein-
um tilnefndum af viðskiptaráð-
herra, öðrum tilnefnduin af
Neytendasamtökunum og
þeim þriðja tilnefndum af því
fagfélagi sérfræðinga sem mál
varðar hverju sinni. óþh
Vilhjálmur Ingi
spyr Finn
Þá hefur Vilhjámur Ingi
Árnason, varaþingmaður
Þjóðvaka á Norðurlandi
eystra, lagt fram á Alþingi
fyrirspurn til Finns Ingólfs-
sonar, viðskiptaráðherra, um
eftirlit með viðskiptum
bankastofnana.
Fyrirspurnin er tvíþætt:
1. Hvernig er háttað eftirliti
viðskiptíiráðuneytisins með
framkvæmd laga um við-
skiptabanka og hver er verka-
skipting þess og bankaeftirlits-
ins í því sambandi?
2. Hefur ráðuneytið rann-
sakað eða hlutast til um rann-
sókn bankaeftirlitsins á við-
skiptum íslandsbanka hf. við
fyrirtækið A. Finnsson hf. á
Ákureyri með tilliti til þess
hvort um er að ræða brot á lög-
um um viðskiptabanka? Sé svo
ekki, mun þá ráðuneytið rann-
saka eða hlutast til um að við-
skipti bankans og fyrirtækisins
verði rannsökuð? óþh
Varað við flóði kinda-
kjöts á niðursettu verði
I bókun sem Félagsráð Svínarækt-
arfélags íslands samþykkti 27.
október sl. er varað við afleiðing-
um þess, fyrir aðrar kjötfram-
leiðslugreinar, „að láta verulegt
magn kindakjöts á niðursettu verði
flæða yfir viðkvæman kjötmarkað
og bendir á að svínabændur hafa
ávallt borið fulla ábyrgð á fram-
leiðslu sinni og lagt sig fram um
að láta neytendur njóta þess árang-
urs sem áunnist hefur á liðnum ár-
um, án þess að seilast á sama tíma
í vasa skattgreiðenda." óþh
Nötaffþu þeáSan tíma
íttÖ
5
Greifinn