Dagur - 02.11.1995, Side 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 2. nóvember 1995
Sigurjón og Anna ásamt dætrum
sínum. Þær eru frá vinstri talið og í
aldursröö; Guðlaug Bára, Sigur-
björg og Ragna Valdís. Fremst er
tíkin Hringja, sem fylgdi með í
kaupunum á jörðinni.
Myndir: Sigurður Bogi
íbúð í blokk í Grafarvogshverfi
í Reykavík og einn innsti bær í
Eyjafirði. Andstæður. En þetta
má sameina og einmitt samein-
ing er tískuorðið í dag. Fyrir
tveimur árum ttuttust úr Graf-
arvoginum og að bænum Leyn-
ingi í Eyjafjarðarsveit ung hjón
úr Reykjavík, sem lengi hafði
dreymt um að hefja búskap í
sveit. Þau hafa ekki orðið fyrir
vonbrigðum. Segja muninn á
búsetu á þessum tveimur stöð-
um helst vera þann að fólki I
sveitinni standi ekki á sama um
náunga sinn. í Reykavík þekki
fólk varla sína allra næstu ná-
granna og hver hugsi fyrst og
síöast um sinn eigin hag.
Fáum dögum fyrir jól 1992
settust að í Leyningi í Eyjafjarðar-
sveit hjónin Sigurjón Haraldsson
og Anna Rúnarsdóttir. „Hugur
okkar beggja hafði alltaf staðið til
sveitabúskapar. Við vorum með
hesta í Reykjavík og ég var í sveit
hjá afa mínum þegar ég var
stelpa,“ sagði Anna Rúnarsdóttir,
húsfreyja í Leyningi, þegar blaða-
„Eigum góða nágranna“
- rætt við Sigurjón og Önnu, bændur í Leyningi í Eyjafirði
en hættu alltaf við. í október 1992
fóru þau svo norður í Eyjafjörð og
skoðuðu jörðina Leyning sem var
föl. Úr varð að þau keyptu hana á
17,5 millj. kr. og búskap þar hófu
þau þann 19. desember það ár.
Sigurjón starfaði við blikk-
smíðar í Reykjavík áður en hann
hóf sveitabúskap og Anna var
heimavinnandi húsmóðir. „Nei,
við höfum enga búfræðiþekkingu.
En við höfum lært af reynslunni
og þetta blessast einhvem veginn.
Síðan eigum við svo góða ná-
granna. Ef einhverjar upplýsingar
vantar þá flettir maður þeim upp í
bókum og finni maður þær ekki
em nágrannar manns tilbúnir að
hjálpa okkur með með allt sem í
þeirra valdi stendur. Svona hugar-
far nágrannanna þekkti ég ekki í
Reykavík," segir Sigurjón.
Maður ræður sér sjálfur
Þau hjón búa með 20 kýr og um
100 fjár. Afkomuna segja þau
þokkalega, en taka þó fram að
þegar ráðist er í þá fjárfestingu að
kaupa bújörð sé nauðsynlegt að
geta greitt út í hönd að minnsta
kosti helming kaupverðs. Það
megi enga óþarfa áhættu taka. Það
sé næg áhætta að fara í viðfangs-
efni, eins og búskap, sem maður
þekki ekki fyrir, þó ekki sé pen-
ingalegri áhættu bætt við.
„Hvað starfið sjálft varðar
finnst mér mesta breytingin vera
sú að maður ræður sér sjálfur og
vinnur hjá sjálfum sér. Þetta er
Ifka rólegt umhverfi þótt starfið sé
fjarri því rólegt. Það er alltaf nóg
að gera,“ segir Sigurjón. Hann og
Anna segja jafnframt að umhverfi
þetta henti vel til bamauppeldis,
en þau hjón eiga þrjár ungar dæt-
ur, sem eru sjö, sex og fjögurra
ára.
„Nei, það er ekkert til trafala
að vera hér á vetrum þó oft sé
snjóþungt. Maður fær þá bara far
með einhverjum þurfi maður til
Akureyrar. Annars er þetta allt í
góðu og okkur líður hér vel. Það
er kannski mest um vert og stend-
ur eftir hve mörgu góðu fólki við
höfum kynnst hér. Það er okkur
ofarlega í huga,“ segja þau Sigur-
jón Haraldsson og Anna Rúnars-
dóttir, bændur í Leyningi í Eyja-
fjarðarsveit. -sbs.
maður ræddi við hana og Sigur-
jón.
Rætur í Húnaþingi
Sigurjón tekur í sama streng og
eiginkona hans. Hann á ættir að
rekja í Blöndudal, að Litladal og
Eldjámsstöðum, en dvaldist þar
þó aldrei sem strákur. Systir Sig-
urjóns er Birgitta Halldórsdóttir,
skáldkona á Syðri - Löngumýri í
Blöndudal, og hjá henni höfðu
hann og Anna, sem jafnframt er
Húnvetningur, löngum afdrep á
ferðum sínum um landið, þegar
þau leituðu logandi ljósi að bú-
jörð. Þau þræddu Norðurland,
Dali og Suðurland og sáu nokkrar
spennandi jarðir. Voru nær því
komin að kaupa í nokkur skipti,
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 462 3565
Leyningur í Eyjafjarðarsveit. Bæjarnafn merkir það að eitthvað sé í hvarfi
bak við háa hóla og það á sannarlega vel við á þessum stað, því bærinn sést
ekki frá þjóðveginum þótt vegalendin sé ekki mikil.
PFAFF
Lila
Pfaff saumavél?
Viöserðamenn frá Pfaff veröa á staönum
og gera viö eöa yfirfara saumavélina þína
föstudaginn 3. nóvember og laugardaginn
4. nóvember.
Pfaff saumavélar í öllum
veröflokkum.
Opið föstudag frá kl. 9-18
Laugardag frá 10-14.