Dagur - 02.11.1995, Síða 11

Dagur - 02.11.1995, Síða 11
IÞROTTIR Fimmtudagur 2. nóvember - DAGUR - 11 FROSTI EIÐSSON Frábært! Geir Sveinsson var fyrirliði íslenaka landsliðsins í 100. skipti í leiknum gegn Rússum í gærkvöldi þegar liðið vann einn sinn glæstasta sigur frá upphafi. Rússamir skoruðu ivö fyrslu mörk- in í síðari hálfleiknum, en Dagur Sig- urðsson og Valdimar Grímsson svör- uðu um hæl og í stöðunni 11:15 tók ís- lenska liðið gríðarlegan kipp, skoraði fimm mörk í röð og breytti stöðunni í 16:13 á fimm og hálfri mínútu. Þar hjálpaðist að góð markvarsla og frá- bær vamarleikur. íslenska liðið fékk síðan tvö góð færi til að auka forskotið í fjögur mörk en án árangurs. Þess í stað svöruðu Rússarnir með tveimur mörkum og minnkuðu muninn í eitt mark. Júlíus Jónasson skoraði átjánda markið þegar fiinnt mínútur voru til leiksloka, Rússamir minnkuðu muninn en Geir svaraði um hæl með marki af línunni þegar tæpar tvær mínutur vom til leiksloka. Tvö mörk var of stór biti á einni á hálfri mínútu fyrir Rússanna og Valdimar innsiglaði glæsilegan sig- ur með marki þegar tæp mínúta var til leiksloka. Allt liðið var að spila frábæra vöm. Sóknarleikurinn var oft mistækur, sér- staklega í fyrri hálfleiknum en það munaði mikið um sex mörk frá þeim Geir og Júlíusi í síðari hálfleiknum. Guðmundur Hrafnkelsson varði ágæt- lega í síðari hálfleiknum, tók þá átta skot. Handknattleikur - Dregiö í 16-liöa úrslit bikarsins: Góðir möguleikar hjá norðan- liðunum að komast áfram Alfreð. Sævar. Frábær varnarleikur skóp eftir- minnilegan sigur íslands á Rússum í leik liðanna í Kaplakrikanum í gær- kvöldi. Það segir sína sögu að Rúss- nesku liðinu tókst aðeins að skora átján mörk gegn íslenska liðinu sem uppskar óvæntan en sanngjarnan sigur 20:18. Rússamir byrjuðu betur, komust strax í 3:1 og áhorfendur fóru að búa sig undir að gestimir tækju völdin. Það varð aldrei, íslenska liðið jafnaði 3:3 og síðan var jafnt á flestum tölum til leikhlés en þá var staðan var 8:9 gest- unum í hag, eftir að síðustu sjö mínút- umar höfðu verið markalausar. Þrjú til fjögur hraðaupphlaup fóm í súginn hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleiknum en mistök Rússanna og dómaraparsins frá Luxemborg héldu íslenska liðinu inn í leiknunt. Hvað sögðu þeir? Þorbjörn Jensson: Dagskipun: Sigur „Dagskipunin var sigur og við ætluð- um að gefa okkur alla í leikinn og ég er sérstaklega ánægður með vömina, og hvemig menn hjálpuðust að. Við töluðum um það fyrir leik að allt mót- læti sem þeir lentu í væri okkur í hag,“ sagði Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálf- ari eftir sigurinn gegn Rússum. „Þessi sigur heldur okkur inn í riðl- inum og setur um leið pressu á Rúss- ana að vinna Rúmena. Með tapinu í kvöld þá verða þeir að vinna Rúmena, sigur hjá þeim í kvöld hefði gert það að verkum að þeir hefði inátt tapa báð- um leikjunum gegn Rúmenum." Júlíus Jónasson: Seldum okkur dýrt „Við trúðum því að þetta væri hægt, annars hefði þetta aldrei gengið. Við seldum okkur dýrt - og þetta hafðist," sagði Júlíus Jónasson. „Við komum þeim á óvart með því að spila vömina framarlega, þeir eru ekki vanir því kontið sé svona vel út á móti þeirn. Við gerðurn samt mikið af mistökum í fyrri hálfleiknum, en heppnin var með okkur, þeir gerðu líka mistök og við vorum inni í leikn- um allan tímann. Þetta voru mjög dýr- mæt stig og mörkin skipta líka máli.“ Staðan Staðan er þessi í 4. riðlinum í Evr- ópukeppni landsliða í handknatt- leik: Rússland 3 2 0 1 80:64 4 ísland 3 2 0 1 63:62 4 Rúmenía 2 1 01 44:43 2 Pólland 2 0 0 2 44:62 0 Pólland mætir Rúmenum í kvöld og á föstudaginn verða tveir leikir í riðlinum. Rússar leika þá gegn Islandi í Moskvu og Rúmenar taka á móti Pólverjum. Bikarmeistarar KA leika gegn ÍH í Hafnarfirði í sextán liða úrslitum bikarkeppninnar í handknattleik en dregið var í leikhléi á leik ís- lands og Rússa í gærkvöldi. Þórs- arar fengu einnig útileik, liðið mætir Breiðablik en Völsungar leika heima gegn B-liði Aftureld- ingar. Stórleikur umferðarinnar verð- ur líklega viðureign Vals og FH að Hlíðarenda, svo framarlega sem að Valsmenn leggi Isfirðinga að velli í eina leiknum sem ólokið er í 32-liða úrslitunum. Dæmi sem við eigum að klára „Þetta er dæmi sem við eigum að klára," sagði Alfreð Gíslason, þjálfari KA sem mætir ÍH í Hafn- arfirði. „Eg er mjög sáttur við að fá IH og ég reikna með því að við komumst áfram, þó vissulega eigi maður aldrei að segja neitt um slíkt fyrirfram." Þjálfarinn sagðist hafa haft sterka tilfinningu um að KA mundi fá Val á heimavelli í þessari umferð. Þetta er þriðja árið í röð sent KA lendir á móti Hafnarfjarðar- liðinu í bikarnum. „Við virðumst fá þá á hverju ári, við unnurn nokkuð örugglega í fyrra en ári áður lentum við í miklum vand- ræðum með þá og fórum með leikinn í framlengingu,“ sagði Al- freð sem sagði að KA mundi reyna að semja við ÍH-liðið að leika fyrir norðan. Góðir móguleikar „Miðað við leik okkar gegn Blik- um um daginn, sýnist mér að við ættum að eiga góða möguleika," sagði Sævar Arnason, þjálfari og leikmaður Þórs sem mætir Breiða- blik í Kópavogi. Liðin mættust á Akureyri, fyrir tíu dögum og þá unnu Þórsarar níu marka sigur. „Það er vissulega mun erfiðara að fá útileik, Blikarnir eru með marga góða leikmenn þannig að þetta verður langt frá því að vera auðvelt. Ef við leikum svipaðan vamarleik og í leiknum gegn þeim Magnús Ingi. hér fyrir norðan þá eigum við að hafa þá,“ sagði Þórsþjálfarinn. Óskaliðið var KA „Óskaliðið var KA, en við erum þokkalega ánægðir með dráttinn og ætlum okkur að komast áfram í keppninni," sagði Magnús Ingi Eggertsson þjálfari og leikmaður Völsunga sem mæta B-liði Aftur- eldingar á Húsavík. Við vonuðumst eftir því að eitt- hvert stóru liðanna norður en ég er mjög sáttur við að fá B-lið frekar en lið í 2. deildinni eins og ÍH,“ sagði Magnús. „Möguleikarnir hljóta að vera góðir fyrir okkur, við eigum að spila við þá síðar í þessum mánuði í B- liðakeppninni en við unnum þá nokkuð örugg- lega í fyrri leiknum fyrir sunnan. Við getum því ekki annað en ver- ið bjartsýnir." Kvennakvöld í KA-heimilinu nk. föstudagskvöld: Agoðinn til styrktar handknatt- leiksliði ÍBA í 1. deild kvenna Kvennakvöld til styrktar hand- knattleiksliði íþróttbandalags Akureyrar (ÍBA) verður haldið í KA-heimilinu nk. föstudags- kvöld, 3. nóvember og þar geta því skemmt sér saman konur úr báðum íþróttafélögunum, KA og Þór, og af öllum stærðum og gerðum, kitlað skopskynið og slípað söngröddina. Húsið verður opnað klukkan átta og verður Ingibjörg Magnús- dóttir, blaðamaður á Degi, veislu- stjóri. Ræðumaður kvöldsins verð- ur sóknarprestur Eyjafjarðarsveit- ar, sr. Hannes Öm Blandon, sem væntanlega les konum pistilinn; haldin verður tískusýning og fá all- ar konurnar glaðning auk þess sem fleiri tugir vinninga verða í happ- drætti sem dregið verður í urn kvöldið. Skráning er í KA-heimil- inu og í Hamri, félagsheimili Þórs, fyrir miðvikudagskvöld. GG Eftirtalin lið mætast í 16-liða úr- slitunum í Bikarkeppni HSÍ: Grútta B- Víkingur BÍ/Valur-FH HK-Fram ÍBV-Víkingur B Selfoss-Afturelding Breiðablik-Þór ÍH-KA Völsungur-Afturelding B Víkingur B fær heimaleik gegn ÍBV þar sem Reykjavíkurliðið leikur í lægri deild. ísland- R.tssland 10:18 Kaplakriki. Evrópukeppni landsliða í hand- knattleik. Gangur leiksins: 1:3, 3:3, 3:5, 7:6, 8:9, 8:11, 11:13, 16:13, 17:16,20:18. Mörk Islands: Valdimar Grímsson 9/5, Júlí- us Jónasson 3. Geir SvG.;: jn 3, Dagur Sig- Gunnar Beinteinsson 2, Patrekur Jóhannesson 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 14/1. Mörk Rússlands: Oleg Kudinov 8/6, Lev Voronin 3, Alexei Demidov 2, Sergei Por- goleov 2, Stanisl Kulinchenko 2, Dmitri Torgovanov 1. Dómarar: Jos Nigra og Jean-M. Spartz frá Luxemborg. Voru mjög slakir. Áhorfendur: 1740. Knattspyrna: Lazorik fer til Leifturs Slóvakíumaðurinn Ratislav Lazorik skrifaði í gær undir tveggja ára samning við 1. deildarlið Leifturs í knatt- spyrnu. Ljúst er að leikmað- urinn, sem kemur frá Breiða- blik, kemur til með að styrkja Ólafsfjarðarliðið mik- ið en hann var fjórði marka- hæsti leikmaður 1. deildar- innar á síðasta keppnistíma- bili með ellefu mörk. Lazorik, sem er 22 ára gam- all framherji, lék með Kosice í heimalandi sínu áður en hann gekk til liðs við Blika og hann ntun leika í deildinni í heima- landinu í vetur en konia til Ól- afsfjarðar í apríl. Lazorik er þriðji leikmaðurinn sem kemur til liðs við Leiftur á stuttum tíma, Auðun Helgason og Daði Dervic hafa þegar skrifað und- ir samninga við félagið. Leiftur niun ekki endumýja samning sinn við Nebojsa Zor- avic. annan scrbneska leik- ntann liðsins á sl. keppnistíma- bili. Ratislav Lazorik. Hamar félagsheimili Þórs: Líkamsrækt og tækjasalur Ljósabekkir Vatnsgufubað Nuddpottur Salir til leigu Beinar útsendingar Getraunaþjónusta Haitiar sími 461 2080

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.