Dagur - 07.11.1995, Blaðsíða 1

Dagur - 07.11.1995, Blaðsíða 1
78. árg. Akureyri, þriðjudagur 7. nóvember 1995 214. tölublað STUTT- FRAKKAR IMf kr. 15.900,- HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 462 3599 Tilefnislaus líkamsárás á 13 ára dreng á Akureyri: Haldið föstum og ein- hverju blásið í nef hans Sá óhuggulegi atburður gerist á Akureyri sl. föstudagskvöld að ráðist var á 13 ára dreng, sem var að hjóla heim til sín, honum skellt af hjólinu og haldið föst- um meðan óþekktu efni var úð- að í nef hans. Þarna voru á ferð- inni tveir strákar á að giska 17- 19 ára og var árásin með öllu til- efnislaus. Drengurinn, sem á var ráðist, komst við illan leik heim til sín og hringt var í lækni sem tók þegar í stað ákvörðun um að senda drengin á sjúkrahús. Hann hefur nú náð sér að mestu, en er mjög brugðið, að sögn móður hans, sem ekki vill láta nafns síns getið. Það var um kl. 18.30 á föstu- dagskvöldið sem drengurinn var á leið heim til sín á hjóli. Leið hans lá um Skarðshlíðina og m.a. um opna svæðið milli Esso-nestisins og fjölbýlishússins númer 24-28 við Skarðshlíð. Þegar hann hjólaði framhjá runnum sem þama eru stukku fram tveir strákar sem hrintu honum af hjólinu. Annar hélt honum síðan meðan hinn blés einhverju upp í nef hans. „Við vit- um ekkert hvað var í þessu, hvort það var tóbak eða eitthvað meira. Þetta skapaði hins vegar mjög mikla vanlíðan. Honum leið svo illa að hann gat ekki hjólað heim Siglflrðingar sýndu fundi sl. föstudag um bættar samgöngur við kaupstaðinn mikinn áhuga. Á fundinn mætti milli 50 og 60 manns og urðu líf- legar umræður um samgöngu- mál framtíðarinnar. Framsögu- menn voru Þorsteinn Jóhannes- son, verkfræðingur, og Bjöm Valdimarsson, bæjarstjóri, en fundarstjóri Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður. Mesta umfjöllun fékk saman- burður á hagkvæmni þess annars vegar að leggja veg yfir Lágheiði og hins vegar að gera göng milli Siglufjarðar og Olafsfjarðar um Héðinsfjörð og Víkurdal og má segja að þessi umræða hafi verið þungamiðja fundarins. Fyrri möguleikinn er áætlaður kosta um 600 milljónir króna en vega- og og þegar hann kom, þá bankaði hann á dyrnar í stað þess að ganga inn eins og hann er vanur. Eg kall- aði á lækni og hann sagði að líðan stráksins væri þannig að það veitti ekkert af því að senda hann á sjúkrahúsið," sagði móðir drengs- ins. Strákana tvo hafði hann aldrei séð áður, en þeir voru dökkklædd- ir með dökkar prjónahúfur. Engin orðaskipti áttu sér stað. Atvikið hefur verið kært til lög- reglu og að sögn móður drengsins hefur þetta fengið mjög á hann og honum var t.d. ekki vel við að fara í skólann í gærmorgun. HA gangagerð um Héðinsfjörð um 2 milljarða króna. I fundarlok skráðu allflestir sig í áhugamanna- hóp um bættar samgöngur við Siglufjörð. Flestir þeirra sem tjáðu sig á fundinum voru hlynntari vegarlagningu og gangagerð um Héðinsfjörð og Víkurdal en einnig var mikill áhugi á því að gerðar yrðu ljárhagslegar hagkvæmnisat- huganir á valkostum og einnig á félagslegu áhrifin af gangagerð, en fjarlægðin til Ólafsfjarðar, og þá um leið á Eyjafjarðarsvæðið, mundi styttast mjög. Forsvars- menn áhugamannahópsins, Skarp- héðinn Guðmundsson, kennari, og Hjörtur Hartarson, félagsmála- stjóri, munu væntanlega boða til næsta fundar, sem verður þá stofnfundur þar sem kosin verður stjórn. GG Krossanesmálið: Líkur á að þrjú til- boð berist Engar formlegar viðræður munu enn hafa farið fram um hugsanleg kaup fóður- verksmiðjunnar Laxár hf. á Krossanesverksmiðjunni, en forsvarsmenn hennar haí'a sýnt áhuga á því að kaupa verksmiðjuna og sameina rekstur verksmiðjanna tveggja út í Krossanesi. Krossanesverksmiðjan var rek- in með 10 milljón króna hagn- aði fyrstu sex mánuði ársins, en engin loðna hefur borist síðan á sl. sumri og því líklegt að einhver taprekstur verði á henni allt árið 1995. Vonir standa þó til að einhver loðna berist verksmiðjunni nú þegar loðna er farin að veiðast að nýju og ef veiðisvæðið færist austur með Norðurlandi. Oddur Halldórsson, eigandi Blikkrásar hf. og varabæjar- fulltrúi Framsóknarflokksins, er í forsvari fyrir hópi tjárfesta sem sýnt hafa áhuga á því að kaupa Krossanesverksmiðjuna. Oddur segist þó ekki sjálfur vera stór aðili í þessum hópi, en lfklega verði hann með ef af kaupum verði. Oddur segir hópinn hafa ákveðið að fara fram á viðræður við bæjaryfir- völd um kaup á verksmiðjunni, en hann segist ekki vera viss um að þær viðræður leiði til þeirrar niðurstöðu að verk- siniðjan verði seld þeim. Við- ræðumar fari fram í síðasta lagi í lok næstu viku. Engar tímasetningar eru settar frarn, m.a. ekki gert að skilyrði að eigendaskipti verði um næstu áramót verði af kaupum. Auk Laxár hf. og þess hóps sem Oddur Halldórsson er í forsvari fyrir hefur Þórarinn Kristjánsson, framkvæmda- stjóri Gúmmívinnslunnar hf., gert tilboð í Krossanesverk- smiðjuna ásamt fleiri aðilum, sem ekki hafa verið nafn- greindir. GG Bygginganefnd um Kaupvangsstræfi 1: Hert ákvæði um byggingarhraða Bygginganefnd Akureyrarbæjar hefur samþykkt að herða ákvæði um byggingarhraða hússins Kaupvangsstræti 1, sem Ljósmyndavörur hf. í Reykjavík standa að. í bókun bygginganefndar kemur fram að lóðin Kaupvangsstræti 1 hafi fyrst verið veitt Ljósmyndavörum hf. 10. júlí 1990 og síðan end- urveitt 4. febrúar 1992. Þá segir að byggingaframkvæmdir hafi dreg- ist verulega á langinn og hafi af þeim sökum verið viðræður í gangi og eftirrekstur við lóðarhafa. I því sambandi hafi m.a. verið gert sam- komulag við lóðarhafa um lok tiltekinna byggingaráfanga fyrir tiltek- inn tíma sem ekki hafi verið staðið við. í samræmi við byggingarlög og í ljósi þess að byggingafram- kvæmdir við umrætt hús hafi stöðvast um lengri eða skemmri tíma, hefur bygginganefnd samþykkt eftirfarandi hert ákvæði um bygging- arhraða: „Húsið skal vera orðið fokhelt og lóð grófjöfnuð og hreins- uð eigi síðar en 1. desember nk. Þá skal húsið glerjað og fullfrágeng- ið að utan og lóð fullfrágengin eigi síðaren 15. júní 1996. Verði ekki orðið við skilyrðum þessum áskilur bygginganefnd sér rétt til þess að leggja dagsektir á lóðarhafa í samræmi við ákvæði byggingarlaga." óþh/Mynd: BG Sinfóníuhljómsveit Noröurlands og Karlakórinn Hreimur: Um 750 áheyrendur um helgina Samgangnafundur á Siglufirði: Jarðgangahug- myndin fékk góðan hljómgrunn Leikfélag Akureyrar: Leikhússtjórastaðan verður auglýst aftur Sex sóttu um stöðu leikhús- stjóra Leikfélags Akureyrar. Umsækjendur eru: Halldór E. Laxness, Jakob S. Jónsson, Jón Júlíusson, Skúli Gautason, Sunna Borg og Trausti Ólafsson. I frétt frá leikhúsráði LA segir að þar sem formaður LA og og leikhúsráðs, Sunna Borg, hafi reynst meðal umsækjenda og slrkt ekki legið fyrir fyrr, en umsóknar- frestur var útrunninn, hafi leikhús- ráð ákveðið að auglýsa stöðuna að nýju. Það sé gert til þess að tryggja að jafnræði ríki milli um- sækjenda. Þá kemur fram í til- kynningu frá leikhúsráði að upp- lýsingar varðandi stöðuna verði veittar af nýjum fulltrúum í leik- húsráði. óþh Mjög góð aðsókn var að tón- leikum Sinfóníuhljómsveit- ar Norðurlands og Karlakórsins Hreims ásamt Baldvin Kr. Bald- vinssyni á Laugum í Reykjadal sl. laugardagskvöld og Iþrótta- skemmunni á Akureyri sl. sunnudag. Nærri lætur að um 300 manns hafi sótt tónleikana á Laugum og skotið er á að tónleikagestir á Ak- ureyri hafi verið um 450. Tónlistargagnrýnandi blaðsins fjallar um tónleikana f blaðinu á morgun, miðvikudag. Meðfylgjandi mynd var tekin í Iþróttaskemmunni sl. sunnudag og er Guðmundur Óli Gunnarsson inni og karlakórsmönnum. hér að stjórna Sinfóníuhljómsveit- óþh/Mynd: BC

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.