Dagur - 08.11.1995, Page 8

Dagur - 08.11.1995, Page 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 8. nóvember 1995 Gætum skapað skilvirkari og ódýrarí stjómsýslu - segir Þórgnýr Dýrfjörð um verkefnið um reynslusveitarfélagið Akureyri Þórgnýr Dýrfjörð hefur umsjón nieð verkefninu uni reynslusveitarfélög fyr- ir hönd Akureyrarbaejar. „Hér ætlum við að veita betri og skilvirkari þjón- ustu en var og þess eiga bæjarbúar að verða varir,“ segir hann í viðtalinu meðal annars. Mynd: sbs Unt þessar mundir er unnið að því hjá Akureyrarbæ að koma af stað ýmsum verkefnum, sem bærinn tekst á hendur sem eitt af reynslusveitarfélögunum í landinu. Með nýjum áherslum í sveitarstjórnarmálum hefur nokkrum sveitarfélögum í öllum landshlutum verið gefinn kostur á að taka rekstur nokkurra málatlokka að sér, í stað þess að þeir séu reknir á vegum ríkisins. Með meiri nálægð við íbúana er talið að megi spara talsverða fjármuni og einnig binda ntenn vonir við að meiri samræming í stjórnsýslustarfi náist með þessu fyrirkomulagi. Dagur ræddi við Þórgný Dýrfjörð um þessi mál, en hann hefur umsjón með verkefninu um reynslusveitarfé- lögin fyrir hönd framkvæmda- nefndar á vegum Akureyrar- bæjar. Lög um reynslusveitarfélög tóku gildi á síðasta ári, en aðdrag- andi málsins er lengri. Umræða um reynslusveitarfélög kom upp nieðal annars í tengslum við átak til sameiningar sveitarfélaga haustið 1993. Talið er nauðsynlegt að sveitarfélög stækki og verði fjölmennari svo þau geti tekið við auknum verkefnum, - en í því ein- mitt felst verkefnið um reynslu- sveitarfélögin. Er nú, vegna þessa verkefnis, verið að skoða hugsan- legar breytingar í öldrunarmálum á Akureyri, sem og atvinnumál- um, byggingarmálum, stjómsýslu, málefnum fatlaðra, menningar- málurn og skipulagsmálum. Skilvirkari stjórnsýsla Þórgnýr Dýrfjörð segir að í stjórn- kerfi Akureyrarbæjar sé nú unnið að breyttum áherslum. Samningur við rikisvaldið um reynslusveitar- félög kveður meðal annars á um breytingar á stjómsýslu bæjarins og að henni er jafnframt unnið að frumkvæði bæjaryfirvalda sjálfra. Fyrir skemmstu var farið af stað með átakið „Auður - nám í starfi" og hafa bæjarfulltrúar og starfs- menn í öllum lykilstöðum hjá bænum setið námskeið og komið með margar hugmyndir sem miða eiga að meiri skilvirkni í bæjar- kerfiinu og meiri upplýsinga- streymi til bæjarbúa. Þórgnýr segir að þeir sem leiti til bæjarskrifstofunnar við Geisla- götu í dag viti ekki alltaf svo aug- Ijóslega hvar þeir fái úrlausn mála sinna og fari jafnvel um allt húsið og stundum milli stofnana vítt og breitt um bæinn. Frá Heródesi til Píatusar. Nú séu þó uppi hug- myndir um að breyta ráðhúsi bæj- arins þannig að á fyrstu hæð, þar sem var slökkvistöð, verði komið á fót upplýsingamiðstöð Akureyr- arbæjar. Þórgnýr segir að einn stað vanti þar sem fólk geti fengið allar upplýsingar um hvert það eigi að snúa sér í hinum ýmsu málum. Starfsfólk upplýsinga- þjónustu þessarar verði að fá þjálfun í því að leiðbeina fólki um kerfið; og þetta segir hann að geti orðið mikilvægur liður í bættri þjónustu og tengslum við bæjar- búa. Stofnanarýmum fækkað Nú er langt komin gerð samnings milli Akureyrarbæjar og heil- brigðisráðuneytisins um að bærinn taki að sér alla þjónustu við aldr- aða í bænum, sem ekki er á veg- um FSA. Þetta fyrirkomulag segir Þórgnýr að eigi að gera kleift að auka og bæta þjónustuna og gera hana jafnframt hagkvæmari. Inni í samningnum, einsog hann lítur út núna, eru ákvæði um að heima- hjúkrun verði aukin með kvöld- og helgarþjónustu, svo dæmi sé nefnt. Málið verður kynnt fyrir starfsfólki öldrunarþjónustu Akur- eyrarbæjar á næstu dögum og því boðið að koma með athugasemdir í byggingarmálum hafa for- svarsmenn Akureyrarbæjar þær hugmyndir að auka sjálfstæði byggingarfulltrúa og embættis hans. Að útgáfa byggingarleyfa verði í hans höndum, en ekki byggingar- og skipulagsnefndar. Nefndin verði þó áfram til og þangað megi áfrýja ákvörðunum byggingarfulltrúa. Hugmyndir eru um breytt fyrirkomulag skipulags- mála í reynslusveitarfélaginu Ak- ureyri; að aukið vald væri fengið heim í hérað í ákvarðanatöku í þessum málaflokki. I dag þarf um- hverfisráðuneyti og Skipulag ríks- ins að vera umsagnaraðilar um hvert stig hvers einstaks máls sem til meðferðar er. Það segir Þór- gnýr eðlilega vera mjög tafsamt - og hægt sé að einfalda ferlið. Óformlegar hugmyndir Hvað varðar málefni fatlaðra eru á borðinu þær hugmyndir að Akur- eyrarbær taki að sér umsjón og yfirstjóm þeirra mála fyrir allt Eyjafjarðarsvæðið. Á Húsavík yrði þó ef til vill staðsett skrif- stofa, sem hefði með sömu mál að gera og væri hugsanlega útibú frá skólaskrifstofu Norðurlands eystra. Sem stendur eru þetta að- eins óformlegar hugmyndir, en samningaviðræður hafa strandað á því að félagsmálaráðuneytið hefur ekki treyst sér að tryggja þau fjár- framlög sem Akureyrarbær telur nauðsynleg vegna þessa. Hugmyndir um húsnæðismál eru af sama meiði; að Akureyring- ar geti sótt alla þjónustu í húsnæð- ismálum á einn stað hjá bænum, í stað þess að þurfa í sumum tilfell- um að leita til til Húsnæðisstofn- unar ríkisins í Reykjavík. Akureyrarbær vill breyta fyrir- komulagi í samskiptum ríkisvalds við menningarstofnanir Norður- lands. í dag fá Listasafnið á Akur- eyri, Sinfóníuhljómsveit Norður- lands, Amtsbókasafnið á Akureyri og Leikfélag Akureyrar fjárveit- ingar í gegnum menntamálaráðu- neyti og sækja þangað ýmsa þjón- ustu. Hugmyndir í tengslum við reynslusveitarfélagið eru hins veg- ar þær að þessar fjárveitingar komi beint til Akureyrarbæjar, sem aftur útdeili þeim innan hér- aðs m.a. til nefndra aðila. Þetta segir Þórgnýr að ætti að vera mjög skilvirkt fyrirkomulag. Atvinnulausir athugi forn- minjar Þá vill Akureyrarbær fá styrk frá ríkisvaldinu til að láta koma á minjavörslu og rannsóknum á hin- um foma verslunarstað, Gásum við Eyjafjörð. Með þeim hætti fléttast menningarmál og atvinnu- mál saman, því meiningin er sú að þarna fengju atvinnulausir vinnu við verkefni sem ekki er í sam- keppni við neitt annað á vinnu- markaði. Þarna eru jafnframt uppi hugmyndir um að bæta þjónustu við atvinnulausa og gera hana markvissari. Það fengist með því að fá nákvæmari vitneskju um at- vinnuleysisskrána og samsetningu hennar. Skráin verður könnuð á næstunni í samvinnu við Trygg- ingastofnun ríkisins. Þórgnýr Dýrfjörð segir að á næstu vikum muni mál þau sem tengjast reynslusveitarfélaginu skýrast hratt. Málið sé að komast á skrið. „Eg á von á því að bæjar- búar finni mjög fyrir þessum breytingum. Hér ætlum við að veita betri og skilvirkari þjónustu en var og þess eiga bæjarbúar að verða varir,“ sagði Þórgnýr Dýr- fjörð. Hann segir að það sem lúti að fjárhagslegum samskiptum rík- isvalds og sveitarfélaga í þessum málum sé að peningum verði veitt beint til sveitarfélaganna frá rík- inu svo þau geti tekist á við ný verkefni. Ekki verði um að ræða að til dæmis útsvarsprósenta verði hækkuð eða skattheima aukin al- mennt. -sbs. Húsavík: Kjördæmisþing Framsóknarmanna - „þátttaka í umræðum breið og góð,“ segir Guðlaug Björnsdóttir „Kjördæmisþingið hófst með þagnarstund til að votta Flat- eyringum samúð og þeim sem lentu í þessum hörmunguin fyr- ir vestan,“ sagði Guðlaug Björnsdóttir, fráfarandi for- maður stjórnar Kjördæmissam- bands Framsóknarmanna í Norðurlandi eystra. Kjördæmis- þingið var sett á Hótel Húsavík sl. föstudagskvöld. Páll Pétursson, félagsmálaráð- herra, hélt ræðu í upphafi þings- ins. Miklar og almennar umræður voru að erindi hans loknu og gerðu menn góðan róm að máli ráðherrans, að sögn Guðlaugar: „Menn sögðust finna að þessi málaflokkur væri í mjög góðum höndum,“ sagði Guðlaug. Hún sagði þátttöku í þinginu hafa verið breiða og góða en mætingu í með- allagi, en slíkt væri víst ekki óal- gengt á fyrsta þingi eftir kosning- ar. „Það var samþykkt að stofna sveitarstjórnarráð í kjördæminu og lögum breytt þannig að sveitar- stjórnarráðið yrði lögmætur aðili að kjördæmissambandinu með fimm fulltrúa á þing, ásamt laun- þegaráði kjördæmisins sem stofn- að var í fyrra,“ sagði Guðlaug. Ávörp gesta fluttu: Egill Heið- ar Gíslason, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, Guðjón Ól- afur Jónsson frá Sambandi ungra framsóknarmanna og Kristjana Bergsdóttir frá Landssambandi framsóknarkvenna. Sagði Guð- laug að Kristjana hafi rætt um jafnréttismál og sérstakan kvenna- banka, en lánamál til kvenna í at- vinnureksti var mjög til umræðu á þingi LFK á dögunum. Ur stjórn gengu Guðlaug og Vigfús Sigurðsson samkvæmt reglum um endurkjör og Daníel Ámason sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. í stað þeirra vom kjör- in: Anna Sigrún Mikaelsdóttir, Hilmar Guðmundsson og Einar Sveinn Ólafsson. Endurkjörin voru: Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Guðmundur Bjarnason, landbúnaðar og uinhverfisráðherra, í þungum þönkum á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra, sem haldið var á Húsavík um sl. helgi Erlingur Teitsson, Sigurbjörg Jónsdóttir og Anný Larsdóttir. Stjómin hefur ekki skipt með sér verkum. I miðstjórn voru kjörin: Guð- laug Björnsdóttir, Jakob Björns- son, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Ari Teitsson og Ingunn St. Svav- arsdóttir. Og frá félögum yngri; Guðný Jóhannesdóttir, Amfríður Aðalsteinsdóttir og Þröstur Frið- finnsson. „Ég var ánægð með þingið og það gekk mjög vel. Það hefði þó mátt vera fjölmennara," sagði Guðlaug Bjömsdóttir. IM

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.