Dagur - 08.11.1995, Blaðsíða 10

Dagur - 08.11.1995, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 8. nóvember 1995 DACDVELJA Stjörnuspá eftir Athenu Lee Mlbvikudagur 8. nóvember Vatnsberi (20. jan.-18. feb.) ) Sjálfselska hefur mikil áhrif á gerð- ir fólks og það kemur þér í opna skjöldu. Viðskipti og skemmtanir skipa meiri sess en venjulega. Happatölur 10, 23 og 30. Fiskar (19. feb.-20. mars) ) Allar tafir á skipulögðu starfi eða öðrum verkefnum eru senn á enda. Þú hagnast óvænt á einhverju og sérð viö þeim sem reyna að plata þig. Dagurinn krefst mikils og ef þú byrjar ekki snemma af krafti tekst þér aldrei að halda í vib klukkuna. Fólk leitar til þín eftir hjálp en láttu ekki trampa á þér! (fit? Naut 'N \£*^ (20. april-20. mai) J Dagur vonarinnar í fjármálum. Samskiptin eru eitthvað stíf og þig skortir meiri upplýsingar. Horfur eru á glebskap í kvöld. (/évjk Tvíburar ^ \^J\J\ (21. maí-20. júni) J Hib skrifaða orð gæti misskilist heiftarlega og nú er þörf á mikilli nákvæmni. í heildina er betra ab mæta fólki augliti til auglitis, þá fer ekkert á milli mála. Krabbi 'N (21. júní-22. júli) J Sambönd ganga vel og aðstæöur góðar fyrir hópvinnu. Umhverfið er rólegt í kringum þig og meiri tími vinnst til að koma verkefnum frá sem hafa hvílt á þér lengi. (<máfi4ón 'N \JTX 'lv (23. júli-22. ágúst) J Ef þú tekur meiri þátt í að skipuleggja málin bætir það heimilislífið til muna, og dagurinn gæti endað mun betur en hann byrjabi. Happatölur 3,18 og 31. (jtf Meyja N l (23. ágúst-22. sept.) J Þú lendir í þröngri aðstöbu í ákveðnu máli en svo fara hjólin að snúast hægt þér í hag. Þér berst hjálp úr óvæntri átt og upplýsing- ar berast hrabar. (23. sept.-22. okt.) Þetta er kannski ekki besti dagur- inn til samkeppni. En þú nærð ab njóta þín með gömlum vinum sem þú hefur ekki séb lengi. (Sporödreki^) (25. okt.-21. nóv.) J Fólk fer ab sýna á sér leyndar hlið- ar og þab er ekki beint aðlaðandi í fyrstu. Það væri gott að ganga frá lausum endum núna því ann- ríki er framundan. (Bogmaður A X (22. nóv.-21. des.) J Þú býbur litla fingur og fólk heimtar alla hendina, lýsandi fyrir daginn í dag. Farðu varlega og láttu abra hjálpa sér sjálfum. (■m&' Steingeit 'N \Ia71 (22. des-19. jan.) J Það væri sniðugt að byrja daginn snemma, Ijúka skylduverkefnum og næla sér í meiri tíma seinni part dagsins. Þú gætir stofnað til mikilvægs sambands. Á léttu nótunum Þetta þarftu ab vita! Lödustuldur „Góða kvöldib," sagbi röddin í símanum. „Er þetta á lögreglustöðinni?" „Já, þab er víst." „Ég ætla ab tilkynna bílstuld." „Og hvert er nafnib?" „Lada." Afmælisbarn dagsins Orbtakib Leggja e-b í lægb Merkir að dylja eitthvað, draga .fjöður yfir eitthvað. Orðtakið er kunnugt frá 16. öld. Orðtakib er hugsaö á sama hátt og „leggja í lág". Miklar breytingar eru yfirvofandi, einna helst í samskiptum þínum vib fólk. Abstæður fá þig til ab breyta vibhorfum þínum til ýmissa hluta og þú öölast meira frelsi í ákvarðanatöku og athöfnum. Fé- lagslífib er stöbugt ab mestu leyti, líkt og einkalífið, en þú lendir í einstakri abstöbu í persónulegu sambandi þínu um mitt árið. Frjósemi Frjósamasti Kenyabúinn er sagb- ur vera Arsantus Akuku Ogwella (fæddur 1919). Hann hefur kvænst og skilið samtals 126 sinnum. Á hverjum morgni safn- ast öll börn hans saman hjá hon- um, 497 ab tölu og elstu synirnir með 2-6 eiginkonur hver. Spakmælib Kyrrðin Kyrrðin er stund bænarinnar - raunar er hún sjálf bæn. (i. Andric) • Krossgátuúrlausn frá Moskvu Vib Dagsmenn getum ekki annaö en glaðst yfir því þegar vib fá- um spurnir af því ab blaöið sé lesib í fjar- lægum heims- hlutum. Enn eina stabfesting- una á þessu fengum vib í fyrra- dag þegar í gegnum faxib kom úrlausn á helgarkrossgátu blabsins nr. 404. Sendandi var María E. Ingvadóttir til heimilis ab Khlebnyi Per 28, Moskvu Rússlandi. María mun starfa í sendirábi íslands í Moskvu og hefur m.a. verib Akureyringum styrk stob varbandi hugsanleg vibskipti þeirra vib abila í sjáv- arútvegi í Murmansk. • Regína og Þorsteinn Regína Thor- arensen, ötull fréttaritari DV á Selfossi og Gjögri, hefur hlutina á hreinu, ekki síst ef um er ab ræba Þor- stein Pálsson, sjávarútvegsráð- herra. í „frétt" í DV sl. þribju- dag kemur fram hjá Regínu ab hún sé vel sátt vib Þorstein sem forseta. Orbrétt segir frú Regína: „Til þess ber ab líta að Þorsteinn er fallegur maður og myndi sjálfsagt ná kjöri ef um fegurbarsamkeppni væri ab ræba. Sjálf myndi ég hiklaust kjósa Þorstein sem forseta því þá mun hann engu rába eins og alþjób veit. Hans hlutskipti yrbi ab samþykkja og skrifa undir þab sem ríkisstjórnin bibur um hverju sinni. Þar væri Þorsteinn á réttri hillu í sínu jarbneska lífi." Urvals bókari Eftirfarandi spaugsaga er fengin úr Fréttabréfi Ör- yrkjabanda- lagsins: „Stórkaup- maburinn þurfti ab rába til sín bókhaldara og fjölmargir sóttu. Hann spurbi alla afar einfaldrar spurningar sem sé hvab tveir plús tveir væru mik- ib. Menn voru ab vonum fljótir ab svara rétt utan einn sem hugsabi málib vel og sagbi svo: „Þab fer nú eftir ýmsu." Hann var vitanlega rábinn. • Orgelið í topplagi ------------- Og ab lokum annar úr sama blaði: A: „Hvernig \ stób á því, ab þú hættir ab ^7 syngja í kirkj- unni?" _____________ B: „jú, sjábu til, mig vantabi einn sunnudag, en eftir messu lýsti fjöldi kirkju- gesta ánægju sinni yfir því, ab nú loksins væri þó búib ab gera vib orgelib." Umsjón: Óskar Þór Halldórsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.