Dagur - 09.11.1995, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 12. október 1995
MINNINÚ
000UIT1NN
Fimmtudagur
GUNNAR TRYGGVASON OG
SIGRÚN SIF
sjá um lifandi tónlist
Húsiö opnað kl. 20.00
Föstudagur
DÚETTINN PAR-ÍS
flytur lifandi tónlist
Húsiö opnaö kl. 21.00
Laugardagur
DÚETTINN PAR-ÍS
flytur lifandi tónlist
Húsið opnað kl. 21.00
Aldurstakmark 20 ára
Snyrtilegur klæðnaður.
OOOUITINN
STRANDGÖTU 53
(cða meðan birgðir endast)
1/2 lambaskrokkur 239 kr. kg
WWmaÉmá^s&^mam^c
Kynnum pizzur frá Ding Dong
Coke-superdósin frá Vífilfelli 59 kr.
Kýrhakk 495 kr. kg
Kýrsnitsel 799 kr. kg
Efösiíw&£gsJi$totám£c 0g ttiiBaík-
Frá Nýja Bautabúrinu: Úrbeinaður frampartur 879 kr. kg
laugaird&gs- og suimudagstálboð:
Grillaður kjúklingur m/frönskum 719 kr.
ISIIauiinbollg
Frá miðvikudegi til miðvikudags.
fftóá
Fiskibúðingur 499 kr. kg
Lambasaltkjöt 499 kr. kg
ffisá Mjöæassás?®#.:
Kjötfars frosið 327 kr. kg
Hversdagsskinka 598 kr. kg
Fs3í Wf*3ms$t£jj£n$> Ms;.
Kryddbiti 299 kr. stk.
Kjarnabrauð 79 kr. stk.
Munið fríu heimsendingarþjónustum alla virka daga kl. 11 og 16.
SÍMI 261 2933 - FAX 461 2936
Sigurður Gústaf Kjartansson
Fæddur 18. mars 1922 - Dáinn 23. október 1995
Sigurður Gústaf Kjartansson
fæddist 18. mars 1922 að
Grímsstöðum á Fjöllum. Hann
var sonur hjónanna Kjartans
Kristjánssonar og Salóme Sig-
urðardóttur. Gústaf giftist eftir-
lifandi eiginkonu sinni Karólínu
Björgu Gunnarsdóttur frá Auð-
bjargarstöðum í Kelduhverfi 26.
ágúst 1944 og eignuðust þau 5
börn. Börn þeirra eru:
Kjartan f. 26. mars 1945,
ókvæntur, býr á Birnunesi.
Gunnar f. 6. nóvember 1947
giftur Laufeyju Sveinsdóttur f.
6. desember 1951, búsett á Ak-
ureyri, og eiga þau 3 börn; Sig-
urð Örn f. 24. maí 1972, Krist-
ján Val f. 6. júní 1973 og Kar-
enu Björgu f. 9.september 1980.
Emelía f. 8. febrúar 1951 gift
Sigurði Ananíassyni f. 24. maí
1950, búsett á Egilsstöðum,
þeirra börn eru Arna Hrönn f.
26. júlí 1971, hennar maki er
Gunnar F. Rúnarsson f. 11.
febrúar 1967, þau eiga Elmar
Aron f. 9. nóvember 1993, þau
eru búsett í Keflavík, og Brynj-
ar Sigurður f. 4. júlí 1973, býr á
Egilsstöðum.
Rúnar f. 28. janúar 1958, maki
Laufey Guðjónsdóttir f. 18.
mars 1961, börn þeirra eru
Hildur f. 23. desember 1980, d.
30. desember 1980, Hákon f. 6.
janúar 1982 og Hafþór f. 28.
júní 1988, þau er búsett á Akur-
eyri.
Arnar f. 2. nóvember 1964,
ókvæntur, býr á Birnunesi.
Mig langar í fáum orðum að
minnast tengdaföður míns Gústafs
Kjartanssonar er lést að heimili
sínu mánudaginn 23. október.
Gústaf var búinn að vera heilsulít-
ill nokkuð lengi, en aldrei kvartaði
hann eða vildi ræða um veikindi
sín, hann eyddi alltaf slíku tali eða
sló því upp í glens. Gústaf var
ekki sú manngerð er bar tilfinn-
ingar sínar á torg, en stutt var í
gamansemina og léttleikann ef því
var að skipta. Ég veit ekki til þess
að tengdafaðir minn hafi látið
styggðaryrði falla um nokkum
mann, hann var einstakt ljúf-
menni, kurteis og lítillátur. Gústaf
hugsaði fyrst og síðast um fjöl-
skyldu sína, að henni liði vel og
þar væru allir hlutir í lagi. Það lýs-
ir því Gústaf vel að morguninn
sem hann lést hafði hann hellt
uppá kaffikönnuna eins og hann
var vanur svo að rjúkandi kaffi-
sopinn yrði til áður en heimilis-
fólkið færi til verka, en fáum mín-
útum síðar var hann látinn. Hans
líðan vék fyrir umhyggju um sína
nánustu.
Ég man enn í dag eftir okkar
fyrsta samtali þegar ég bláókunn-
ugur strákurinn kom í fyrsta sinn í
Brimnes. Þeirri hlýju og góð-
mennsku sem ég fann þá og alla
tíð síðan frá þér gleymi ég aldrei.
Gestrisni og hjálpsemi hefur alla
tíð einkennt tengdaforeldra mína
og voru þau hjónin samhent í því,
eins og svo mörgu öðru og skipti
þá ekki máli hvort það vom böm-
in úr nágrenninu eða fullorðnir
sem áttu í hlut. Bamabömin hafa
öll mikið sótt í sveitina og nærver-
una við afa sinn og ömmu, þar
sem þau fengu ótakmarkaða vænt-
umþykju og hlýju. Meðan okkar
böm voru yngri dvöldu þau þar
stundum part úr sumri og komu
þaðan hraust og sæl til baka. Oft
hefðum við viljað vera nær ykkur
og getað skroppið oftar í sveitina,
en fjarlægðin hefur gert slíka
skreppitúra ómögulega.
Gústaf og Karólína byggðu upp
á Brimnesi af miklum dugnaði og
myndarskap og er þar rekið mynd-
arlegt bú í dag, sem synimir Kjart-
an og Amar hafa nú tekið við að
mestu. Gústaf gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum um dagana í
sveitinni, einnig vann hann mikið
utan heimilis með búskapnum, var
þá oft langur vinnudagur og ekki
alltaf spurt hvað tíma leið. Gústaf
var mjög traustur og lagtækur
maður og var því oft til hans leit-
að, þar af leiðandi mæddu bústörf-
in oft meira á herðum Karólínu.
Þetta getur aldrei orðið tæm-
andi upptalning á störfum Gústafs
um dagana enda ekki ætlunin,
heldur fátækleg orð um góðan
mann. Nú ert þú kæri tengdafaðir
fallinn frá okkur en minningin um
yndislegan afa, föður og tengda-
föður lifir áfram í hjörtum okkar.
Hverfögur dyggð í fari manns
erfyrst afrótum kœrleikans.
Afkœrleik sprottin auðmýkt er,
við aðra vœgð og góðvild hver
ogfriðsemd hrein og hógvœrt geð
og hjartaprýði stilling með.
(H. Hálfd.)
Mér finnst þessar ljóðlínur lýsa
vel hjartaþeli þínu, og vil ég fá að
þakka þér innilega fyrir kynnin og
allt það sem þú hefur veitt mér og
fjölskyldu minni í gegnum árin.
Karólína, böm og bamaböm,
Drottinn mun sefa sorg ykkar og
gefa ykkur styrk á þessari sorgar-
stundu.
Sigurður Ananíasson.
Arnfríður Smáradóttir
Fædd 28. júlí 1969 - Dáin 31. október 1995
Elsku frænka mín. Það var sem
heimurinn hryndi yfir mig og tím-
inn stæði í stað um stund, þegar
pabbi þinn hringdi og tilkynnti
mér andlát þitt. Mig langar til að
minnast þín í fáeinum orðum. Það
er margs að minnast og upp í huga
minn koma minningar, svo ótal
margar. Ég man eftir þér, litlum
fjömgum ljósálfi heima í sveitinni
á Króksstöðum. Alltaf lífleg,
snögg í tilsvörum og ég man stóru
spyrjandi augun þín. Hesta-
mennska var þér í blóð borin og
þú hafðir einstakt lag á hestum.
í UMFERÐINNI
ERU ALLIR
í SAMA LIÐI
yUMFERÐAR
RÁÐ
Ekki varstu há í loftinu þegar þú
fórst að ríða út á Blakki, þeim
mikla gæðingi sem gat verið svo
kenjóttur við okkur hin á heimil-
inu. Ykkar samskipti vom frá
upphafi sérstök og falleg. Þið
Blakkur áttuð ykkar ævintýri sam-
an og erfið fannst þér sú stund
þegar það þurfti að lóga þessum
vini þínum. Þú varst líka ung farin
að temja trippin á Króksstöðum
og hafðir yndi af að kljást við þau.
Síðan kom að því að þú flyttir
suður en tengslin milli okkar héld-
ust alltaf góð og ég sá þig breytast
úr unglingi í fallega unga stúlku.
Glæsileg varst þú, ung kona með
stúdentshúfuna þína, með þinn
bjarta svip sem einkenndi þig. Ég
sé fyrir mér þetta sérkennilega
kímnisbros þitt sem fékk mig allt-
af til að brosa líka og reyna að spá
í hvað væri nú að brjótast uni í
kollinum þínum. Ég heyri fyrir
mér glettnislegan hlátur þinn sem
var svo sérstakur. Ekki varstu
gömul þegar þú byrjaðir að leita
svara við spurningum lífsins. Oft-
ast var stórt spurt en fátt um svör.
Þú hófst nám í sálfræði við H.í. en
fannst fljótt að fyrir þig var þetta
svo staðlað og vantaði meiri til-
finningu svo þú tókst þér frí frá
námi, eignaðist stuttu síðar
skemmtilegu börnin þín sem þú
barst svo mikla umhyggju fyrir.
En þó þú værir orðin heimavinn-
andi húsmóðir þá varst þú síles-
andi alls kyns fróðleik um mann-
legt eðli og andleg málefni. Það
var því ætíð gaman og sérstakt að
koma í heimsókn á Njálsgötuna.
Það var sko ekkert rabbað um
hversdagsleikann, heldur um til-
veruna og tilgang lífsins, reynt að
leita svara. Þó var spjallið svo
laust við alla yfirborðskennd og
hátíðleik og oft hlegið dátt. Alltaf
í aðra röndina að leika þér og sjá
það spaugilega í tilverunni.
Þú, elsku Adda mín, varst stór-
brotinn persónuleiki, greind og
svo óútreiknanleg. Þú varst mjög
yndisleg manneskja sem nú er sárt
saknað af ástvinum. En allar þess-
ar fallegu minningar. Yndislegu
börnin þín, Ríkey og Smári Aðal-
steinn eru Ijós í tilverunni. Ég
kveð þig nú á blaði, hjartans vina
mín en minning þín mun lifa í
hjarta mínu.
Ég votta öllum ástvinum sam-
úð og bið almættið að styrkja okk-
ur í sorg okkar.
Vor œvi stuttrar stundar
er stefnd til Drottins fundar,
að heyra lífs og liðins dóm.
En mannsins sonar mildi
skal máttug standa’ ígildi.
Hún boðast oss í engils róm.
(Einar Benediktsson.)
Guðrún Ragna
Aðalsteinsdóttir.