Dagur - 01.02.1996, Side 1
Venjulegir og demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Vesturfarasafnið a Hofsósi:
Viðbrögð hvar-
vetna góð
Undirbúningur Vesturfara-
safnsins á Hofsósi er í full-
um gangi. Nú er frágengið að
frú Vigdís Finnbogadóttir mun
opna safnið þann 6. júlí í sumar.
Eins og frá var greint í Degi í
gær hefur Sigluíjarðarbær keypt
hlutabréf í safninu fyrir 200 þús-
und krónur og fleiri aðilar hafa
verið að koma að málinu.
„Þetta er auðvitað afar sérstakt
mál því það er inn í samstarfs-
verkefni 11 þjóða og alveg nýr
þáttur í sögu þjóðarinnar sem tek-
inn er fyrir. Mönnum finnst tími
til kominn að við tengjum þetta
þjóðarbrot aftur við gamla landið
og við á íslandi tökum í þá útréttu
hönd sem þama er búin að vera
áratugum saman,“ segir Valgeir
Þorvaldsson á Vatni, sem unnið
hefur að undirbúningi.
Hann segist hvarvetna verða
var við jákvæð viðbrögð í garð
safnsins. „Ég var einmitt að fá
bréf frá Háskólanum á Akureyri,
þar sem menn lýsa sig reiðubúna
að taka að sér ábyrgð og rann-
sóknir á ættfræðiþættinum,“ segir
Valgeir. Hann nefnir einnig til
sögunnar öflug fyrirtæki á Akur-
eyri. „Það sem er einnig mjög
stórt atriði er að íslensk stjónvöld
hafa tekið þetta upp á sína arma,
hafa sýnt þessu góðan stuðning og
hjálpað okkur með verkefnið."
Varðandi viðbrögð vestanhafs
segir Valgeir þau vera mjög góð.
Nú er útlit fyrir að flugfélagið
Canada 3000 hefji flug frá Winni-
peg til Evrópu með viðkomu í
Keflavík, allt að 8 sinnum í viku
hverri, og það gæti skipt afar
miklu máli varðandi möguleika
Vestur-Islendinga að heimsækja
Island. „Þetta er alger bylting á
ferðamöguleikum ef þetta gengur
eftir,“ sagði Valgeir. Éinnig verða
Flugleiðir með beint flug til Hali-
fax en þangað er reyndar talsvert
löng leið frá mestu Islendinga-
byggðunum í Kanada.
Safnið er nú þegar farið að taka
á sig endanlega mynd. Byggða-
safn Skagfirðinga og Minjasafnið
á Akureyri sjá um uppsetningu á
sýningunni í húsinu og eru þegar
byrjuð á því verki. HA
Kaup NFO-Gruppen a Miklalaxi:
Riftunarkrafa tekin
fýrir 7. febrúar
Riftunarkrafa skiptastjóra
þrotabús Miklalax hf. í
Fljótum á hendur kaupendum
þrotabúsins, NFO-Gruppen í
Lofoten í Noregi, var tekin fyrir
í Héraðsdómi Reykjavíkur ný-
verið en hún var þingfest 28.
september 1995
Riftunar er krafist vegna van-
efnda norska fyrirtækisins á kaup-
samningi, sem hljóðaði upp á 25
milljónir króna og átti útborgun að
vera 5 milljónir króna en aðeins
hefur verið innt af hendi greiðsla
að upphæð 2 milljónir króna og
ekki gengið frá skuldabréfum til
Byggðastofnunar vegna eftir-
stöðvanna, 20 milljónum króna.
Beðið var greinargerðar verj-
anda NFO-Gruppen, sem barst í
lok síðasta árs og var reynd sátta-
meðferð hjá Héraðsdómi Reykja-
víkur. Frestað var að taka endan-
lega afstöðu til þess, og verður
málið tekið fyrir að nýju 7. febrú-
ar nk.
Kristján Olafsson hrl., sem er
skiptastjóri, segir að rætt hafi ver-
ið um að losa norska fyrirtækið
frá samningnum án þess að dómur
gengi í málinu og er verjandi
NFO-Gruppen að kanna það mál
frekar. Þó er ekki líklegt að Norð-
mennirnir samþykki að samingur-
inn gangi til baka nema annar að-
ili eða fyrirtæki komi í staðinn.
Ekki er um mjög mikið magn að
laxi að ræða í ræktun í kvíunum í
Miklavatni og stefnt að því að
slátra laxinum á vori komanda.
GG
Hann Helgi Héðinsson, trillukarl á Húsavík, var
eitthvað að bjástra við sel um borð í trillunni
sinni þegar ljósmyndari Dags labbaði eftir
bryggjunni á Húsavík í gær. Veðrið hefur ekki
verið að angra trillukarlana að undanförnu, síður
en svo, en eins og fram hefur komið í fréttum
fer hins vegar nýjasta reglugerðin um enn frekari
takmarkanir á sókn smábáta, verulega fyrir
bijóstið á trillukörlunum. Krókabátar mega hefja
veiðar í dag. Óþh/Mynd: BG
- reiknað með þrem til fjórum síldarsýningum á viku
Eg reikna með að síldarsöltunarsýningar verði haldn-
ar hér á Siglufirði þrisvar til fjórum sinnum í viku,
allt næsta sumar. Þrjár ferðaskrifstofur hafa pantað sýn-
ingar, sem eru vinsælar meðal erlendra ferðamanna sem
koma hingað til lands. Við höfum orð nokkurra farar-
stjóra fyrir því að ferðamönnum sem þeir voru með hafi
þótt tvennt eftirminnilegast í íslandsferð sinni; síldar-
söltun á Siglufirði og að koma að Jökulsárlóni á Breiða-
merkursandi,“ sagði Björn Valdimarsson, bæjarstjóri á
Siglufirði, í samtali við Dag.
Mikill fjöldi ferðamanna hefur komið til Siglufjarðar síð-
ustu sumur og sótt söltunarsýningar sem félagar í Leikfélagi
Siglufjarðar færa upp, þar á meðal nokkrir leikfélagar sem
voru þátttakendur í hinu eina og sanna sílarævintýri forðum
tíð. „Við bjuggumst fyrst í stað við því að sýningar þessar
myndu helst höfða til Islendinga; svo sem þeirra sem voru á
síld forðum daga. En þetta hefur vakið áhuga fleiri, meðal
annars erlendra ferðamanna," sagði Bjöm.
Síldardagskráin byrjar á myndasýningu, þar sem sýnt er
og sagt hvaða áhrif sfldin hafi á þjóðarbúskapinn og einnig
er málið í samhengi við viðskipti íslands við aðrar þjóðir.
Síðan er Sfldarminjasafnið skoðað og endað á söltunarsýn-
ingu, þar sem áhorfendum er boðið að borða vel smurt rúg-
brauð með síld. „Þetta er heilmikil upplifun fyrir ferðamenn
og þeim finnst þeir komast í nána snertingu við sögu þjóð-
arinnar,“ sagði Bjöm Valdimarsson. Hann sagði hins vegar
að enn hefði ekki verið ákveðið hvort um verslunarmanna-
helgina í ár yrði staðið að hátíð á borð við Síldarævintýrið.
„Við höfum staðið fyrir þeirri hátíð fimm ár í röð og nú er
spuming hvað menn treysta sér í að gera. Hátíðin hefur að
stóm leyti verið skipulögð af bæjaryfirvöldum, en við hefð-
um viljað sjá fleiri koma að framkvæmdinni. Það eru skipt-
ar skoðanir um hvað gera skuli.“
Það eru ferðaskrifstofumar Úrval Útsýn, Samvinnuferð-
ir-Landsýn og Guðmundur Jónasson, sem hafa pantað síld-
arsýningar í sumar. Þá hefur ferðaskrifstofan ísland - Safarí
einnig verið í sambandi við Siglfirðinga, en hún hyggst í
auknum mæli bjóða uppá gönguferðir um Tröllaskaga, þar á
meðal í Héðinsfjörð. -sbs.