Dagur - 01.02.1996, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 1. febrúar 1996
FRÉTTIR
Um 90% heimilislækna í landinu sögðu upp störfum í gær:
Okkur finnst að stjórn-
völd hafi brugðist
- segir Sigurður Halldórsson, heilsugæslulæknir á Kópaskeri
Heimilislæknar í landinu vilja
skýrar línur um verkaskiptingu
þeirra og sérfræðilækna. Þetta
eru í sem stystu máli skilaboð
heimilislækna til stjórnvalda í
tengslum við uppsagnir 127
heimilislækna í gær, sem eru um
90% heimilislækna í landinu.
Uppsagnafrestur er þrír mánuð-
ir.
Heimilislæknar benda á að í
gildandi lögum og reglugerðum sé
gert ráð fyrir verkaskiptingu sér-
greina læknisfræðinnar innan jafnt
sem utan sjúkrahúsanna. Þeir
segja að þetta sé almennt virt úti á
landsbyggðinni en ekki á höfuð-
borgarsvæðinu. Heilsugæslulækn-
ar vekja jafnframt athygli á að sér-
menntun heilsugæslulækna taki til
frumþjónustu við sjúklinga á
vöktum allan sólarhringinn, vitj-
ana, mæðra- og ungbarnaverndar
o.s.frv. Þeir segja að þetta skipu-
lag eigi mjög í vök að verjast á
höfuðborgarsvæðinu, þar sem
stefni í stjómlausa samkeppni
heimilislækna og annarra sérfræð-
inga um verkefni fmmþjónustunn-
ar og því sé nauðsynlegt að fá það
skýrt fram hjá stjómvöldum hvort
þau leggi blessun sína yfir þessa
þróun. I þessu sambandi er vitnað
til nýlegrar bamalæknamóttöku í
Reykjavík, sem sérfræðilæknar
standi að með samþykkti heil-
brigðisráðuneytis og Trygginga-
stofnunar. Stofnun hennar segja
heilsugæslulæknar að hafi verið
komið sem fyllti mælinn.
I samtölum við Sigurð Hall-
dórsson, heilsugæslulækni á
Kópaskeri, og Hjálmar Freysteins-
Unnið hefur verið að því að setja
rækjuvinnslulínu í togarann
Siglfirðing SI-150 í Slippstöð-
inni-Odda hf. á Akureyri. Gunn-
ar Júlíusson, skipstjóri og einn
eiganda Siglfirðings hf., segir
ástæðu þessara breytinga þá
helsta að hagkvæmara sé nú að
gera út á rækju en bolfisk-
vinnslu.
Auk þess er Siglfirðingur hf.
orðinn hluthafi í rækjuverksmiðj-
unni Pólum hf. á Siglufirði, en
hlutur Siglfirðings hf. er um 35%.
Iðnaðarrækjan af Siglfirðingi SI
fer því til vinnslu hjá Pólum hf.
Kostnaður við þessar breytingar er
ekki fjarri 20 milljónum króna.
Tæki og vélar sem tengjast bol-
fiskfrystingunni voru tekin í land
en hægt verður að setja þau um
borð með litlum fyrirvara ef skip-
ið verður t.d. sent á þorskveiðar í
Smuguna. Gunnar Júlíusson segir
son, heilsugæslulækni á Akureyri,
í gær kom greinilega fram að
ástand þessara mála úti á lands-
byggðinni sé víðast hvar viðun-
andi, þau vandamál sem heimilis-
læknar séu að vekja athygli á með
aðgerðum sínum, séu fyrst og
fremst til staðar í höfuðborginni.
Skipulag eða skipulagsleysi
Sigurður segir að á þessar aðgerð-
ir beri ekki að líta sem stríð milli
heimilislækna og sérfræðilækna.
Aðgerðir heimilislækna beinist að
stjómvöldum, þeirra sé að svara
þeirri spumingu hvort hér á landi
eigi að ríkja skipulag eða skipu-
lagsleysi í heilbrigðisþjónustunni.
„Okkur finnst að stjórnvöld hafi
brugðist. Það eru í gildi lög og
reglur um þetta, en eftirlit með því
að þeim sé framfylgt er af skorn-
um skammti. Auk þess finna
heimilislæknar á höfuðborgar-
svæðinu til þess að mörkin milli
þeirra verksviðs og sérfræðilækna
séu alltaf að verða óskýrari."
Ekki bara mál heimilis-
lækna í höfuðborginni
Sigurður segir það rétt að séð frá
bæjardyrum heilsugæslulækna sé
þetta fyrst og fremst vandamál í
Reykjavík, en fyrirkomulagið sé í
lagi víðast úti á landi.
En af hverju segja þá heilsu-
gæslulæknar úti á landi einnig upp
störfum? Sigurður segir eðlilegt
að spurt sé. Óbeint komi þetta
ófremdarástand í höfuðborginni
einnig illa við heilsugæslulækna
úti á landi. „Ég tel að heilsugæslu-
læknar fari margir út á land með
inni í myndinni að senda Siglfirð-
ing SI til rækjuveiða á Flæmska
hattinn verði eitthvað þangað að
sækja.
Siglir SI-250, hinn togari Sigl-
firðings hf., var nýverið í slipp á
Akureyri og er verið að útbúa
það fyrir augum að geta, ef þeir
verða þreyttir á gífurlegu vinnu-
álagi og bindingu, snúið aftur í
þéttbýlið. Það er nokkuð öruggt
að menn muni ekki fara til starfa
úti í dreifbýlinu ef þeir eiga ekki
einhverja von í mannsæmandi
starfsaðstöðu í þéttbýlinu síðar.“
Ekki samúðaraðgerð
Hjálmar Freysteinsson bætir í
þessu sambandi við að nauðsyn-
legt sé að fá skýra verkaskiptingu
heimilislækna og sérfræðinga, að
öðrum kosti sé hætta á að ungir
læknar hætti að líta á framhalds-
nám í heilsugæslulækningum sem
Eyþing, samband sveitarfélaga í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslum,
hefur lýst vanþóknun á því sem
hún kallar yfirgang Háskóla fs-
lands vegna menntunar í sjávar-
útvegsfræðum og matvæla-
vinnslu á Akureyri.
Stjóm Eyþings ályktaði eftir-
farandi:
„Stjóm Eyþings lýsir áhyggjum
sínum yfir þeim yfirgangi, sem
birtist í baráttu Háskóla íslands
gegn uppbyggingu og þróun Há-
skólans á Akureyri, þvert á yfir-
lýsta stefnu stjómvalda. Stjóm
Eyþings vill benda á hina geysi-
fjölbreyttu sjávarútvegsstarfsemi
hann til loðnufrystingar en Gunn-
ar segist vongóður um að hún
muni vara í allt að sex vikur. Síð-
an fari Siglir á karfaveiðar á
Reykjaneshrygg, en á þeim veið-
um var hann áður en farið var í
slipp. GG
vænlegan kost. „Ég lít ekki á upp-
sagnir okkar úti á landi sem sam-
úðaraðgerð. Við heilsugæslulækn-
ar utan höfuðborgarsvæðisins lít-
um svo á að sterk heilsugæsla í
Reykjavík sé mikils virði fyrir
okkur líka.“
- En hvað þarf til þess að að
heimilislæknar dragi uppsagnir
sínar til baka?
„Það þarf að tryggja skýrar
reglur milli heimilislækna og sér-
fræðinga og jafnframt verði tryggt
að þær verði virtar, þannig að
verksvið okkar verði klárt, en ekki
einhver afgangsstærð," sagði
Hjálmar Freysteinsson. óþh
sem er á Akureyri og Norðurlandi
öllu. Hér er fjöldi öflugra fyrir-
tækja í veiðum og vinnslu, í fram-
leiðslu á tækjum og búnaði og hér
er ein öflugasta skipasmiðja
landsins. í slíku umhverfi er kjör-
ið að skapa aðstöðu fyrir sjávarút-
vegsskóla Sameinuðu þjóðanna
við hlið Háskólans á Akureyri.
Stjóm Eyþings beinir því til fyrir-
tækja á svæðinu að beita sér af
fullum þunga með sveitarfélögun-
um í baráttunni fyrir eflingu Há-
skólans á Akureyri á sviði sjávar-
útvegs og matvælavinnslu. Enn-
fremur skorar stjómin á ríkisstjóm
Islands að halda fast um mótaða
stefnu um uppbyggingu Háskól-
ans á Akureyri á þessu sviði.“
Einar Njálsson, bæjarstjóri á
Húsavík og formaður Eyþings,
segir að ályktunin verði send rík-
isstjórninni, þingmönnum kjör-
dæmisins, Háskólanum á Akur-
eyri og fyrirtækjum á félagssvæði
Eyþings. Samkvæmt lögum er
sjávarútvegsdeildin ein af fjórum
deildum Háskólans á Akureyri og
Alþingi hefur samþykkt þings-
ályktunartillögu um uppbyggingu
og eflingu Háskólans á Akureyri á
þessu sviði. Sömuleiðis hefur rík-
isstjórnin gert samþykkt um þörf-
ina á því að efla matvælaiðnaðinn
á Eyjafjarðarsvæðinu. Einar segir
það ljóst að Háskólinn á Akureyri
hafi sinnt sínu hlutverki með
miklum ágætum og megi þar sér-
staklega nefna samstarf hans við
rannsóknarstofnanir á sviði sjávar-
útvegs og matvælagreina auk
samstarfs við fyrirtæki í greininni.
Einar segir það mjög alvarlegt mál
ef reynt verði að stemma stigu við
þróun og eflingu Háskólans á Ak-
ureyri á þessu sviði. M.a. hafi
Rannsóknastofnum fiskiðnaðarins
og Reykjavikurborg verið að beita
sér fyrir eflingu Háskóla íslands á
sviði sjávarútvegsfræða og segir
Einar Njálsson að því eigi Norð-
lendingar mjög undir högg að
sækja í þessu máli þrátt fyrir þá
staðreynd að Háskólinn á Akur-
eyri sé í „lífrænna" sambandi við
fyrirtæki og atvinnulífið á þessu
sviði. GG
Siglufjörður:
Gífurlegur
rækjuafli
„Ég held að við höfum aldrei
fengið annan eins mánuð í
rækjunni. Hún er þokkalega
góð og stór, eða undir 200 stk
í kg sem er betra en við höf-
um oftast verið að sjá á þess-
um árstíma,“ segir Jón Sig-
urpáll Salvarsson, verkstjóri
hjá rækjuverksmiðjunni Pól-
um hf. á Siglufirði.
Sigurpáll segir að kaup
Siglfirðings hf. á þriðjungi
hlutabréfa í verksmiðjunni
styrki reksturinn mjög mikið,
ef af þeim verði, en samingar
vegna kaupanna hafa enn ekki
verið undirritaðir. í annan tog-
ara Siglfirðings hf., Siglfirðing
SI, hefur verið sett vinnslulína
fyrir rækju og fer öll iðnaðar-
rækja af skipinu til vinnslu hjá
Pólum hf.
Samingar standa yfir milli
Póla hf. og Útgerðarfélags Ak-
ureyringa hf. um kaup á togar-
anum Svalbak EA-302, sem
legið hefur undanfama mánuði
við bryggju á Akureyri, kvóta-
laus. Engir samningar hafa
verið undirskrifaðir og hafa
forsvarsmenn Útgerðarfélags
Akureyringa hf. einnig átt við-
ræður við aðra aðila sem sýnt
hafa kaupum á togaranum
áhuga. Líklegt er talið að mál-
in skýrist á allra næstu dögum.
Ef af sölu á Svalbaki verður
mun hann halda til rækjuveiða
í Flæmska hattinn við Ný-
fundnland og iðnaðarrækjan af
honum koma tii landsins í
gámum til vinnslu hjá Pólum
hf. á Siglufirði sem styrkja
myndi hráefnisstöðu verk-
smiðjunnar enn frekar. GG
Óvíst
hvort gert
verður við
Mainze
Þýski togarinn Mainze, sem
eldur varð nýlega laus í, ligg-
ur enn við bryggju í Cuxha-
ven og er beðið skýrslu trygg-
ingafélags um skemmdir á
skipinu sem eru verulegar,
það er jafnvel talið ónýtt.
Mainze er í eigu Deutsche Fi-
schfang Union (DFFU), sem
Samherji hf. keypti um 50%
hlut í á sl. ári.
Tveir stjómenda og eigenda
Samherja hf. héldu til Þýska-
lands til að kanna aðstæður og
segir Þorsteinn Már Baldvins-
son, framkvæmdastjóri, að
málið sé nú algjörlega í hönd-
um tryggingafélags og hann
búist ekki við skýrslu þaðan
fyrr en eftir þrjár vikur í fyrsta
lagi.
„Skipið er mjög illa farið.
Þessi bruni breytir töluverðu í
okkar áætlunum um veiðiferli
þýsku skipanna,“ sagði Þor-
steinn Már Baldvinsson.
Rækjutogarinn Oddeyrin
EA-210 hefur legið við
bryggju á Akureyri en rækju-
aflinn hefur verið mjög góður
undanfarnar vikur og því hefur
útgerðin þurft að stilla saman
veiðar og vinnslu. Oddeyrin
fer á veiðar í næstu viku. SÍcip-
stjóri hennar er Willard Helga-
son. GG
Siglfirðingi SI-150 breytt í rækjufrystiskip:
Hagkvæmara að gera
út á rækju en bolfisk
- segir Gunnar Júlíusson hjá Siglfirðingi hf.
Unnið hefur verið að því að setja rækjuvinnslulínu í Siglfirðing. Þessi mynd
var tekin á Akureyri. Mynd: Þorgeir Baldursson.
Norðurland kjörið fyrir
sjávarútvegsháskóla