Dagur - 01.02.1996, Qupperneq 5
BÆKUR
Fimmtudagur 1. febrúar 1996 - DAGUR - 5
Daglegt brauð
í mínu ungdæmi lærði ég þá mál-
venju að brauð væri einungis það
brauð sem við smyrjum, gróft eða
fínt. Hjá mér var franskbrauð í
mestu uppáhaldi, normalbrauð
mat ég minnst. Kökur voru ekki
brauð, nema þá vínarbrauð. Þegar
ég kom hingað norður kynntist ég
því að orðið brauð er einnig notað
um sætabrauð, allur bakstur er
kallaður brauð, kaffibrauð. í Fað-
irvorinu, sem ég reyndar kunni
áður en ég fluttist norður, kynntist
ég hins vegar yfirfærðri merkingu
orðsins, daglegt brauð var hlut-
gervingur fyrir alla Ifkamiega
fæðu sem ég þurfti. I þessari utan-
bókarlærðu bæn bað ég Guð (og
bið enn) um að sjá fyrir mínum
líkamlegu þörfum, og get ég svo
sannarlega staðfest að fyrir þeim
hefur hann séð.
Þegar ég svo skyggndist nánar í
Biblíuna komst ég að því að Guð
leggur áherslu á það að maðurinn
Iifir ekki á brauði einu saman. Oft
en vitnað í þetta, en orðin eru tek-
in úr frásögninni af því þegar
Jesús fór út í eyðimörkina og fast-
aði þar í fjörutfu sólarhringa.
Djöfullinn kom og freistaði Jesú,
sem væntanlega var orðinn hungr-
aður, og sagði honum að breyta
steinunum í brauð úr því að hann
væri almáttugur. Þá svaraði Jesús:
„Maðurinn lifir ekki á brauði einu
saman, heldur á sérhverju orði,
sem fram gengur af Guðs munni.“
Þarna kemur fram að við eigum
svo sannarlega að borða verald-
legt brauð, en til þess að halda lífi
eilíflega verðum við einnig að
innbyrða orð Guðs, sem er í Biblí-
unni. A sama hátt og við neytum
okkar veraldlega brauðs daglega
þurfum við einnig að taka inn
andlegu fæðuna daglega.
Þessar línur skrifa ég vegna
þess að mig langar nú að afloknu
jólabókaflóðinu að vekja athygli á
nýútkominni bók, sem ekki hefur
farið mikið fyrir. Hún nefnist
„Daglegt brauð“ og efni hennar
eru stuttar kristilegar húgleiðingar
fyrir hvern dag ársins. I bókinni er
hið andlega brauð Biblíunnar, orð-
ið „sem fram gengur af Guðs
munni", framreitt rnjög aðgengi-
lega í stuttum köflum, ein síða
fyrir hvern dag. Þetta er því upp-
lögð lesning fyrir hvern þann sem
vill uppbyggjast daglega en hefur
ekki dug í sér til að leggjast yfir
lestur Biblíunnar. Auðvitað er
Biblían kjarnafæðan, rúgbrauðið
holla, sem allir ættu að lesa. En
mörgum reynist það erfitt, finnst
efnið tormelt og því er gott að fá
þessa kjammiklu fæðu fínunna
þannig að hún verði aðgengilegri
og meira aðlaðandi, líkt og fransk-
brauðið eða jafnvel vínarbrauðið.
Ekki svo að skilja að í þessari ný-
útkomnu bók hafi nokkuð verið
slegið af boðskap Biblíunnar eða
hann þynntur og gerður bitlaus.
Ritningarstaðurinn í upphafi hug-
leiðingar dagsins í dag, þegar
þetta er skrifað, fjallar einmitt um
orðið, Guðs orð, og er úr Hebrea-
bréfinu: „Orð Guðs er lifandi og
kröftugt og beittara hverju tví-
eggjuðu sverði og smýgur inn í
innstu fylgsni sálar og anda, liða-
móta og mergjar. Það dæmir
hugsanir og hugrenningar hjart-
ans.“ Ahrif orðsins eru tviþætt,
það dæmir og það frelsar. Þessi
boðskapur kemst vel til skila í
umræddri bók.
Fáum treysti ég betur til að fara
rétt með fagnaðarerindið og koma
því rétt og vel til skila en höfund-
inum, norska guðfræðiprófessom-
um Carl Fredrik Wislöff. Svo vill
til að fyrir 30 árum naut ég leið-
sagnar annarar bókar hans sem
nefnist „Jeg vet pá hvem jeg tror“
eða Eg veita á hvem ég trúi. Hana
las ég gaumgæfilega og komst að
raun um að þar er boðskapur
Biblíunnar rétt kynntur. Viljir þú
neyta andlegrar fæðu daglega og
kynnast boðskapnum skaltu nálg-
ast bókina „Daglegt brauð“ eftir
Carl Fredrik Wislöff. Ein blaðsíða
er helguð hverjunt mánaðardegi
Fyrst er ritningarstaður úr Biblí-
unni og síðan kemur stutt en hnit-
miðuð hugleiðing höfundarins.
Textinn fer vel í höndum þýðand-
ans, Benedikts Amkelssonar, og
bókin er smekkleg í alla staði.
Blaðsíðutalið er rúmlega daga-
fjöldi ársins og útgefandi er bóka-
útgáfan Salt. Einu hættu bókarinn-
ar tel ég vera þá að hún kunni við
mikla noktun að losna úr bandi.
Bjarni E. Guðleifsson.
KVIKMYNDIR
Morgan Freeinan og Brad Pitt í hlutverkum sínuin í Seven.
Á slóðum morðingja
Gáfu til Rauða krossíns
Þessir ungu herramenn á Akureyri, sem hér sjást, héldu á dögunum
hlutaveltu og gáfu þá peninga sem söfnuðust til deildar Rauða krossins
á Akureyri, alls 3.374 kr. A myndinni eru Styrmir Erlingsson, Almar
Erlingsson og lengt til hægri Magnús Helgi Jakobsson. Mynd: -sbs.
Borgarbíó: Seven
Leikstjóri: David Fincher
Aðalhlutverk: Morgan Freeman, Brad
Pitt, Gwyneth Paltrow, Kevin Spacey.
Græðgi, ágimd, leti, öfund, reiði,
hroki, losti.
Dauðasyndirnar sjö, rauði þráð-
urinn í myndinni Seven, sem Borg-
arbíó sýnir þessa dagana. Dregin er
upp raunveruleg mynd af skugga-
hlið stórborganna þar sem tveir lög-
reglumenn standa ráðalausir og
slegnir óhug gagnvart snargeðveik-
um morðingja, sem vill sýna mann-
kyninu hversu sjúkt það er orðið, án
þess náttúrulega að gera sér grein
fyrir sfnum eigin sjúkleika. Dauða-
syndimar sjö eru hans fyrirmynd og
hvert morð táknar hverja þessara
synda.
Það er farið að síga á seinni hlut-
ann hjá lögreglumanninum snjalla
William Somerset og hann ákveður
að hætta störfum. Þegar hann fær
síðasta málið í hendur verður hon-
um fljótlega ljóst að það eigi eftir
að draga langan dilk á eftir sér og
nokkur bið verði á því að komast á
eftirlaun. David Mills (Brad Pitt)
kemur fljótt til sögunnar sem að-
stoðarmaður Somerset, ungur og ör
og telur sig hafa nokkra reynslu í
morðmálum. En annað kemur á
daginn. Þeir félagar fá nú í samein-
ingu að kynnast glænýrri hlið á
morðmáli, ógeðfelldari en þá nokk-
urn tíma óraði fyrir. Upp úr því
hefst örvæntingarfull leit að morð-
ingjanum og slóðin er blóði drifin.
Það vekur athygli hversu mynd-
in er dökk og drungaleg í heildina
og passar því vel við innihald henn-
ar. Lögreglumennirnir virka litlir og
vanmáttugir þegar þeir paufast í
rigningu milli hárra, skítugra og
yftrþyrmandi veggja háhýsanna,
eltandi brjálaðan morðingja. Músík-
in undirstrikar enn betur óhugnað-
inn og skilningsleysið á því hve
vonska ntanna getur gengið langt.
Leikur aðalpersónanna er átakalítill
og skyggir því ekki á aðalinntak
myndarinnar, eins og það á að vera
í þessu tilviki. Hér er fyrst og
fremst lögð áhersla á að velta fyrir
sér illsku eins manns og hvernig að-
ferðir lians við að myrða fómar-
lömbin eru úthugsaðar. Og vægast
sagt vekja þær hjá manni hroll. Ym-
islegt í myndinni minnir stundum á
Silence of the Lamhs, nema hvað
morðinginn þar var sýnilegur mest
allan tímann. Hér verða áhorfendur
aðeins varir við áhrifamikla nálægð
hans sem oft er enn kröftugra. Hér
er á ferðinni stórgóð, spennandi og
mögnuð mynd, sem aðdáendur sál-
arþrillera ættu alls ekki að sleppa.
EJ
Munið söfnun Lions
fyrir endurhœfingarlaug í Kristnesi
Söfnunarreikningur í Sparisjóði
Glœsibœjarhrepps á Akureyri
nr. 1170-05-40 18 98
\i i.i t a 10 3'sOH1 5i o ro o íi
mm fi fi9vj ÍO Smjp
Skóverslun M.H. Lyngdal,
Hafnarstrætj 103, sími 462 3399