Dagur - 01.02.1996, Síða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 1. febrúar 1996
MINNINO
Útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
LOVÍSU SIGURGEIRSDÓTTUR,
Melgötu 3 (áður Sælandi)
Grenivík,
fer fram frá Grenivíkurkirkju föstudaginn 2. febrúar kl. 13.30.
Örn Árnason, Sveina Sigurjónsdóttir,
Guðjón Ágúst Árnason, Kristín Jónasdóttir,
Guðný Árnadóttir, Torolv Noreng,
Gísli Árnason, Soffía Daðadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
JÓFRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
Stafni, Reykjadal,
lést að heimili sínu 24. janúar.
Útförin fer fram frá Einarsstaðakirkju laugardaginn
3. febrúar kl. 14.
María Kristín Helgadóttir, Hallur Jósepsson,
Ólöf Helgadóttir,
Ingibjörg Helgadóttir,
Ásgerður Helgadóttir, Jón Hannesson,
Guðrún Helgadóttir, Gunnar Jakobsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
lést á Fjórðungssjúkrahúsínu á Akureyri 30. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðrún B. Jóhannesdóttir,
Helga G. Ásgeirsdóttir, Guðmundur Guðmundsson,
Guðrún V. Ásgeirsdóttir, Ásgeir Sigurðsson,
Jóhanna S. Ásgeirsdóttir, Hörður Geirsson,
Aðalheiður Á. Ásgeirsdóttir, Hjörleifur Árnason,
Páll G. Ásgeirsson, Helle L. Pedersen,
Auður S. Ásgeirsdóttir, Viðar Sigmundsson
og barnabörn.
FRIÐGEIR JÓNSSON,
Ystafelli,
sem lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík 29. janúar sl., verður jarð-
settur frá Þóroddsstaðarkirkju laugardaginn 3. febrúar kl. 14.
Klara Haraldsdóttir og systkini hins látna.
Sambýlismaður minn og faðir okkar,
JÓN STEINBERG FRIÐFINNSSON,
bóndi,
Spónsgerði, Hörgárdaf,
sem andaðist 28. janúar, verður jarðsunginn frá Möðruvalla-
kirkju í Hörgárdal laugardaginn 3. febrúar kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásta Ferdinandsdóttir,
Hjörtur Steinbergsson,
Sverrir Steinbergsson,
Haukur Steinbergsson,
Atli Steinbergsson.
Þórariim Þórarinsson
fyrrum bóndi í Vogum í Kelduhverfí
Fæddur 22. janúar 1911 - Dáinn 26. desember 1995
Þann 26. desember síðastliðinn
lést á sjúkrahúsinu á Húsavík, Þór-
arinn Þórarinsson, fyrrum bóndi í
Vogum í Kelduhverfi, eftir stutta
sjúkdómslegu. Jarðarför hans fór
fram frá Garðskirkju í Kelduhverfi
3. janúar 1996, að viðstöddu fjöl-
menni.
Þórarinn var fæddur að Grásíðu
í Kelduhverfi 22. janúar 1911.
Foreldrar hans voru Þórarinn Þór-
arinsson bóndi þar og Sigurrós
Sigurgeirsdóttir, seinni kona hans.
Þórarinn í Vogum var 5. maður í
samfelldri niðjaröð, með þessu
nafni, frá Þórami Pálssyni yngri á
Víkingavatni, sem allir áttu heima
þama við vatnið. Afkomendur Páls
Arngrímssonar á Víkingavatni eru
fjölmargir vítt um land, ekki síst
hér um sveitir. Geta má þess að
amma Þórarins í Vogum í föðurætt
var einnig út af Páli á Víkingavatni
og líka langamma, Björg Sveins-
dóttir í Kílakoti.
Sigurrós var dóttir Sigurgeirs
Sigurðssonar, sem kallaður var
hinn sterki, og var bóndi á Smjör-
hóli, Meiðavöllum og síðast í
Hrauntanga á Öxarfjarðarheiði.
Kona Sigurgeirs og móðir Sigur-
rósar var Kristbjörg Þórarinsdóttir
frá Vestara-Landi í Öxarfirði, Ein-
arssonar í Klifshaga, Hrólfssonar,
Runólfssonar í Hafrafellstungu. En
kona Runólfs í Hafrafellstungu var
Björg Amgrímsdóttir, systir Páls á
Víkingavatni.
Ekki verða ættir Þórarins í
Vogum raktar frekar hér, en að
honum stóðu sterkir ættstofnar og
margt af dugnaðarfólki, ekki síst
faðir hans sem var mikill fram-
kvæmdabóndi.
Þegar Þórainn í Vogum var á
fimmta árinu dó faðir hans frá
þrem ungum bömum og einu
ófæddu. Auk þess átti hann þrjár
dætur frá fyrra hjónabandi. Ein
þeirra mun þá hafa verið flutt til
Vesturheims. Hinar, sem vom tví-
burar, ólust upp á Grásíðu til full-
orðinsára þar til þær fluttu til Dan-
merkur og áttu þar lengi heima, en
síðast í Reykjavík.
Þrátt fyrir þetta áfall hélt ekkjan
áfram búskap á Grásíðu með að-
stoð ráðsmanna og einhverri að-
stoð frændliðs. Það voru líka brátt
komin sex böm í heimilið og
þurfti því mikinn kjark og dugnað
til að halda þeim hópi saman og
sjá öllum farborða. En Sigurrós á
Grásíðu var mikil hetjukona og
tókst að koma bömum sínum vel
til manns. Auk þess tók hún síðar
tvö stálpuð fósturbörn. Var það
ávallt hennar hugsun að vera meira
veitandi en þiggjandi og það held
ég að henni hafi tekist. Hún lést
snögglega 10. júní 1939, 61 árs að
aldri og varð öllum harmdauði.
Börn hennar voru, auk Þórar-
ins: Kristbjörg Guðrún, f. 21. janú-
ar 1913, d. 26. maí 1948, gift
Steingrími Bjömssyni, Ytri-
Tungu, Tjörnesi. Þau eignuðust
einn son. Þorbjörg, f. 28. maí
1914, d. 22. febrúar 1994, hjúkr-
unarkona, gift Kristjáni Bender rit-
höfundi, sem nú er látinn. Þau
eignuðust 3 dætur. Þorgeir Einar,
f. 12. desember 1915, bóndi á Grá-
síðu, giftur Ragnheiði Ólafsdóttur
frá Fjöllum. Þau eiga 3 syni.
Þórarinn var elstur af sínum al-
systkinum og kom snemma í hans
hlut að verða heimilinu að liði við
ýmis störf. Vandist hann snemma
mikilli vinnu og var alla sína ævi
mikill eljumaður sem slapp varla
verk úr hendi. Hann var léttleika-
maður, verklaginn og ótrúlega þol-
inn og afkastamikill við vinnu.
Hann var mikið snyrtimenni í allri
umgengni, hirti skepnur sínar vel
og má segja að hann hafi verið bú-
hagur maður.
Þórarinn gekk í bamaskóla
sveitarinnar þegar hann hafði aldur
til. Var það farskóli sem stóð í tvo
til þijá mánuði á vetri hverjum.
Auk þess var hann vetrarpart í
unglingaskóla í Lundi í Öxarfirði
og einn vetur í Laugaskóla í
Reykjadal. Hann var vel gefinn og
átti létt með nám. Sérstaklega lá
allt opið fyrir honum sem laut að
stærðfræði. Þetta nám nýttist hon-
um vel á lífsleiðinni og tók hann
að sér ýmis vandasöm störf fyrir
sveit sína og sýslu.
Þórarinn kvæntist 30. júní 1934
mikilhæfri konu, Jöhönnu Har-
aldsdóttur frá Austurgörðum, f. 3.
júlí 1900. Foreldrar hennar voru
Haraldur Ásmundsson bóndi Aust-
urgörðum og Sigríður Sigfúsdóttir
kona hans. Haraldur var fjórði ætt-
liður frá Jóni Jónssyni ríka í Ási
og Sigríður þriðji ættliður frá Gott-
skálk Pálssyni á Fjöllum, svo eitt-
hvað sé nefnt af þeirra ættfólki.
Þórarinn og Jóhanna reistu ný-
býlið Voga á hálfu landi Grásíðu
1937. Allt frá grunni að kalla,
bæði að húsum og ræktun. Var
slíkt mikið átak og kostaði óhemju
vinnu og eljusemi. Þarna ráku þau
blandaðan búskap, allt til ársins
1980. En seinni árin ásamt og með
sonum sínum. Þau eignuðust fjóra
syni sem eru: Þórarinn, bóndi
Vogum, f. 16. apríl 1935, kvæntur
Maríu Pálsdóttur frá Hofi í Hjalta-
dal og eiga þau 5 böm. Haraldur
Bjöm, f. 15. apríl 1937, d. 13.
ágúst 1990, smiður, Húsavík,
kvæntur Ásdísi Kristjánsdóttur frá
Klambraseli og eignuðust þau 2
syni. Sigurður Svavar, f. 18. apríl
1939, forstjóri Húsavík, kvæntur
Hafdísi Jósteinsdóttur frá Húsavík
og eiga þau 4 börn. Guðmundur,
bóndi Vogum, f. 5. janúar 1946,
ókvæntur og bamlaus.
Búskapur þeirra Vogahjóna var
ekki stór í sniðum til að byrja með
en óx með ámnum eins og algengt
var hjá nýbýlingum. Húsfreyjan
var lærð saumakona og tók að sér
verk sem gáfu eitthvað í aðra hönd
og Þórarinn vann utan heimilis
tíma og tíma, eftir því sem aðstæð-
ur leyfðu. Hann lenti snemma inn í
félagsmálastörf en þar var enga
tekjulind að hafa, heldur var litið á
þetta sem þjónustu við sveitina og
héraðið. Þetta tók þó allt sinn tíma
frá bústörfunum.
Byrjunin var hjá ungmennafé-
lagshreyfingunni, þar var hann í
stjóm og nokkur vor við sund-
kennslu í Litlá við Krossdal. Sat
lengi í skattanefnd sveitarinnar og
síðan á skattstofu á Húsavík. End-
urskoðandi fjölmargra reikninga
um langt skeið, þ.á.m. reikninga
K.N.Þ. á Kópaskeri. Sat í stjóm
Búnaðarfélags Keldhverfinga í 35
ár. Lengi meðhjálpari við Garðs-
kirkju og safnaðarfulltrúi og þátt-
takandi í kirkjukór. Formaður
Kirkjukórasambands N.-Þing. um
skeið og Ræktunarsambands N,-
Þing. Þá var hann lengi í áfengis-
vamanefnd og kjörstjóm. Mætti
svo lengi telja, þó að hér verði lát-
ið staðar numið. Öll félagsmála-
störf innti Þórarinn af hendi með
mikilli alúð og samviskusemi,
enda stakur reglumaður á öllum
sviðum.
Árið 1981 fluttu þau Þórarinn
og Jóhanna í dvalarheimili aldr-
aðra, Hvamm á Húsavík, og áttu
þar heima til dauðadags. En Jó-
hanna lést 28. apríl 1983 eftir
nokkra vanheilsu.
Þórarinn lærði bókband eftir að
hann flutti í Hvamm en vann jafn-
framt því á skattstofunni á Húsa-
vík í nokkur ár. Eftir það helgaði
hann krafta sína mest bókbandi og
var afkastamaður við það sem ann-
að og vandvirkur. Auk þess að-
stoðaði hann dvalarfólk í Hvammi
við ýmislegt, s.s skattframtöl.
Hér heíúr í stuttu máli verið
rakið lífshlaup Þórarins í Vogum.
Nú er hann horfinn til æðri heima.
Hann lifði langan ævidag á bylt-
ingartímum. Hann lagði víða
gjörfa hönd á plóginn til framfara
og heilla þessari sveit. Var ávallt
reiðubúinn að leggja góðum mál-
um lið og innti öll sín verk af
hendi með stakri prýði.
Ég á þessum frænda og fóst-
bróður mikið að þakka og á
eingöngu góðar minningar frá
okkar samstarfi sem var all mikið,
ekki síst í félagsmálum.
Blessuð sé minning hans.
Sigurður Jónsson.
Bridgefélag Akureyrar:
Sveit Antons með forystu
Sveit Antons Haraldssonar er
komin með 40 stiga forskot í
sveitakeppni Bridgefélags Akur-
eyrar. Spilaðar voru 9. og 10.
umferð síðastliðinn þriðjudag.
Þegar fjórar umferðir eru eftir í
keppninni er staðan þessi:
1. Sveit Antons Haraldssonar
211 stig
2. Sveit Ævars Ármannssonar
171 stig
3. Sveit Ormarrs Snæbjörnssonar
157 stig
4. Sveit Hauks Harðarsonar
156 stig.
Næstu tvær umferðir verða
spilaðar þriðjudaginn 6. febrúar.
Sunnudagsbridge var spilaður
þann 28. janúar og þar var Anton
Haraldsson líka sigursæll. Hann
og Sigurbjörn Haraldsson höfðu
sigur með 148 stig, í öðru sæti
urðu Sverrir Haraldsson og Reynir
Helgason með 144 stig, í 3.-5.
sæti Hreiðar Örlygsson og Örlyg-
ur Örlygsson, Frímann Stefánsson
og Sigurður Erlingsson, Armann
Helgason og Sveinbjöm Sigurðs-
son. Öll pörin fengu 142 stig.
Spilað er öll sunnudagskvöld
hjá Bridgefélagi Akureyrar í
Hamri og er allt spilafólk velkom-
ið. Spilamennska hefst kl. 19.30.