Dagur - 15.02.1996, Síða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 15. febrúar 1996
MANNLÍF
Á fundi með Þing-
eyskum ITC félögum
Blaðamaður Dags brá sér fyrir
skömmu á fund tveggja ITC
deilda í Þingeyjarsýslu. Það var
ITC deildin Fluga sem hélt fund-
inn en gestir voru félagar úr ITC
deildinni Hnotu, fundurinn var
haldinn í félagsheimilinu Sólvangi
á Tjörnesi. En hvað er þetta ITC?
ITC sendur fyrir International
training in communication, sem á
íslensku hefur verið nefnt þjálfun í
samskiptum. Um er að ræða alþjóð-
legan félagsskap sem þjálfar félaga
sína í ræðumennsku, félagsmálum
og samskiptum.
í upphafi voru samtökin
eingöngu ætluð konum en nú hefur
orðið breyting á og standa dyr ITC
deildanna um land allt körlum opn-
ar. Karlar munu þó vera í miklum
minni hluta í samtökunum hér á
landi enn sem komið er.
Hér á landi starfa 18 ITC deildir,
en á Norðurlandi starfa deildimar
Storð á Akureyri og í nágrenni,
Hnota á Þórshöfn og í sveitunum í
kring og Fluga, en félagar í Flug-
unni búa í Mývatnssveit, Aðaldal,
Reykjahverfi, á Húsavík og á Tjör-
nesi.
Af deildarfundi á
alheimsþing
ITC deildir halda fundi hálfsmánað-
arlega en auk þess er nokkur starf-
semi á landsvísu og gefst því félög-
um í deildunum tækifæri til að
kynnast fólki hvaðan æfa að af land-
inu.
Einnig sækja íslenskir ITC félag-
ar þing og fundi erlendis og er nú á
döfinni hjá nokkrum einstaklingum
í Flugu að sækja Alheimsþing ITC,
sem haldið verður í Skotlandi í sum-
ar. Þeir sem starfa innan vélbanda
ITC eru á öllum aldri og koma af
öllum sviðum þjóðlífsins.
Hæfnismat
En víkjum nú að fundinum í Sól-
vangi. Það var forseti ITC Flugu,
Hólmfríður Pétursdóttir í Víðihlíð í
Mývatnssveit, sem setti fundinn en
stef fundarins var „Aðgát skal höfð í
nærveru sálar.“
ITC fundir eru formlegir fundir
með fast ákveðinni dagskrá sem
miðar að því að þjálfa félaga í
hverskyns fundarsköpum og félags-
málum. Flutt eru lengri og skemmri
erindi og ávörp. Framlag hvers
frummælanda er metið sérstaklega
eftir ákveðnu hæfnismati honum og
öðrum til lærdóms og leiðbeiningar.
Starfið allt miðar að því að byggja
upp félagana í deildunum, auka
sjálfstraust þeirra og gefa þeim
tækifæri til að þjálfa eigin hæfileika.
Alþjóðlegar námseiningar
A fundinum var meðal annars
fjallað um svo kallað AP kerfi, sem
er alþjóðlegt námskerfi innan ITC
metið til eininga á svipaðan hátt og
nám í framhalds- eða háskólum.
Víða erlendis eru þessar einingar úr
AP kerfinu ITC metnar til starfs eða
náms á við einingar úr hefðbundnu
skólanámi.
Aginn skilar árangri
Á fundinn í Sólvangi mættu nokkrar
konur úr ITC deildinni Hnotu, sem
starfar á Þórshöfn og í nágrenni.
Þessir ITC félagar lögðu á sig
þriggja klukkustunda akstur til að
mæta á fundinn og töldu sig hafa
mikið upp úr krafsinu. ITC Hnota er
ung deild, aðeins þriggja ára.
Forseti Hnotu er Bjamey Sús-
anna Hermundardóttir, fjárbóndi í
Tunguseli. Bjarney hefur starfað
með Hnotu frá upphafi en deildin er
þriggja ára gömul. Hún sagði að
ITC félagsskapurinn hefði gefið sér
ótrúlega mikið og raunar væri þetta
eins og hver annar skóli. „Ég hef
lært mikið í skipulagningu bæðið að
skipuleggja tímann og ýmiskonar
starfsemi og öðlast aukinn kjark
bæði til að taka til máls fyrir framan
fullan sal af fólki og líka almennt í
mannlegum samskiptum. I félags-
skapnum ríkir mikill agi og því
verður allt starf markvissara og ár-
angursríkara en ella,“ sagði Bjamey
Súsanna. KLJ
Á ITC fundum eru ekki eingöngu alvarleg viðfangsefni enda verið að þjálfa
rnannleg samskipti og sannarlega nauðsynlegt að kunna að slá á létta
strengi. Hér eru fundargestir í léttum snjóskófluleik við undileik fjörugs
rokklags og leysti uppátækið mikla kátínu úr læðingi. Hér er það Sigrún
Ingvarsdóttir, sem rekur tískuvöruverslunina ESAR á Húsavík, sem nær
taki á skóflunni.
Hólmfríður Pétursdóttir í Víðihlíð í Mývatnssveit hefur komið víða við í fé-
lagsmálum síns héraðs í gegnum tíðina. Hér ávarpar hún fundinn sem for-
seti ITC. Þess má geta að innan ITC heldur enginn nokkru embætti lengur
en eitt ár og því fá allir félagar hverrar deildar tækifæri til að takast á við
þau margvíslegur störf sem fylgja félagsskap sem þessum.
Bjarney Súsanna Hermundardóttir, fjárbóndi í Tunguseli, og Ásta Laufey
Þórarinsdóttir, læknaritari og bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, starfa í
ITC Hnotu. Hnotukonur búa á Þórshöfn og í sveitunum þar í kring.
Guðrún Sigurðardóttir, kennari við
Hafralækjarskóla, er fyrsti varafor-
seti ITC Flugu. Hér er hún að út-
hluta verkefnum fyrir næsta fund
Flugunnar, sem haldinn verður í
Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir kenn-
ari, myndlistarmaður og tegerðar-
kona á Sandi í Aðaldal ávarpaði
ITC félaga í upphafí fundar.
Nýtt innlegg í listalífið á Akureyri:
Gallerí + opnar á laugardaginn
Nýtt listagallerí verður opnað á
Akureyri næstkomandi laugar-
dag í Brekkugötu 35 á Akureyri.
Hjónin Pálína Guðmundsdóttir
og Joris Jóhannes Rademaker
reka galleríið, sem hlotið hefur
nafnið Gallerí +. Galleríið er í
þremur litlum herbergjum í
kjallaranum en gengið er inn að
sunnanverðu. Lítil lofthæð er í
galleríinu, aðeins um 2 metrar,
ekki síst í dyragáttum og krefst
það þess að galleríið verði rekið
sem heimilisgallerí og gestir
þurfa því að hringja upp á við
innganginn á þeim tímum sem
galleríið er opið, laugardaga og
sunnudag frá kl. 14 til 18.
Pálína og Jóhannes eru bæði
myndlistarmenntuð í Hollandi en
fluttu þaðan til Akureyrar árið
1991. Þeim hefur fundist vanta á
Akureyri vettvang fyrir ný list-
form og tilraunir í listum og er
Gallerí + ætlað að þjóna því hlut-
verki. Galleríið verður ekki hefð-
bundið sölugallerí heldur staður
þar sem reynt verður að teygja á
landamærum listarinnar í leit að
nýjum landvinningum.
Samkvæmt upplýsingum þeirra
á Gallerí +, líkt og Listasafnið í
Reykjavík og Slunkaríki á ísafirði
að vera vettvangur listsköpunar,
sem vekur áhorfandann til um-
hugsunar og umræðu. „Öllum
þeim sem fylgt hafa þróun í
myndlist síðustu áratugi er ljóst að
málverkið sem slíkt hefur tapað
forystuhlutverki sínu og önnur
listform rutt sér til rúms, eins og
innsetningar, myndbönd, hljóð-
verk/skúlptúr, gjömingar, bækur
(sem listform), veggmálningar,
„ready mades“, Ijósmyndir o.m.fl.
Ný listform bjóða upp á ótæmandi
tilbrigði í tjáskiptum lista-
manns/Jistaverks og njótanda þess
eða áhorfanda. En þær samræður
og miðlun á upplifunum og skynj-
unum hlýtur að vera megininntak
allrar listsköpunar," segja eigend-
ur Gallerí +.
Gallerí + er ætlað að vera vett-
vangur fyrir yngri listamenn og
framsækna og/eða þá listamenn
(sem geta verið eldri) sem brjóta
nýtt land undir listina. Húsakynni
gallerísins setja því ákveðnar
skorður (lítil lofthæð og skortur á
dagsbirtu gerir það síður fallið til
hefðbundinna málverkasýninga),
en vonast er til að listamenn nýti
sér rýmið í verkum sýnum. Reynt
verður að fá erlenda listamenn til
að sýna og einnig verður reynt að
fylgja vissum listamönnum í þró-
un þeirra og gefa þeim kost á að
koma reglulega og sýna. Sýning-
araðstaðan er listamönnum að
kostnaðarlausu. Galleríið býður
upp á fleiri möguleika í sýningar-
haldi t.d. á ýmiskonar hönnun,
tísku, húsagerðarlist, skartgripum,
ljóðlist, ritlist og auðvitað málara-
list.
Fyrstur ríður Hlynur Hallsson á
vaðið með sýningu í Gallerí +.
Sýning hans ber yfirskriftina „þrjú
herbergi" og verður jafnframt
opnunarsýning gallerísins. Hún
verður opnuð næstkomandi laug-
ardag kl. 14. Á eftir sýningu
Hlyns kemur Eygló Harðardóttir,
þá Gunnar Straumland og síðar á
árinu eru Þorvaldur Þorsteinsson
og Joris Rademaker bókaðir. Hver
sýning stendur yfir fjórar helgar
og er galleríið opið á laugardögum
og sunnudögum milli kl. 14 og 18.
Lokað er á virkum dögum. JÓH
Páiína Guömundsdóttir, ásamt syni
sínum í hinu nýja galleríi sem opn-
að verður um næstu helgi. Hlynur
Hallsson verður fyrsti listamaður-
inn til að sýna þar og nefnist sýning
hans „þrjú herbergi“. Mynd: BG