Dagur - 15.02.1996, Side 16
Samgonguráðherra um endurskoðun
vegaáætlunar:
Niðurskuröur
á Norðurlandi
Samkvæmt endurskoðaðri
vegaáætlun verða framlög til
vegamála á þessu ári skert um
800 milljónir króna,“ segir Hall-
dór Blöndal, samgönguráðherra,
í samtali við Dag, en fyrr í vik-
unni lagði hann fram á Alþingi
endurskoðaða vegaáætlun, sem
nú er til umræðu.
Vegaframkvæmdir, sem unnið
er að, skiptast í tvo flokka. Annars
vegar almennar framkvæmdir, en
þær verða samkvæmt áætluninni
skomar niður um 18% í Norður-
landskjördæmi eystra, frá því sem
áformað var í upphaflegri gerð
vegaáætlunar. Hins vegar er um
að ræða sérstakt framkvæmda-
átak, sem hófst á síðasta ári, þar
sem unnið er í samræmi við
íbúafjölda í hverju kjördæmi. Þar
kemur niðurskurður nokkuð hart
niður á Norðurlandi eystra, sem er
fjölmennasta landbyggðarkjör-
dæmið.
„Það sem við gemm er að
fresta framkvæmd þessa átaks úr
fjórum árum í fimm, eða allt til
ársins 1999. Framkvæmdir áttu að
vinnast á fjórum árum fyrir tekjur
sem komu inn á fimm árum. Það
sem við gerum hins vegar er að
fresta framkvæmdum fyrir 350
millj. kr. í eitt ár, eða til 1999,
þegar allar tekjur eru komnar
inn,“ sagði samgönguráðherra.
Að sögn ráðherrans hafa enn
engar ákvarðanir verið teknar um
hvaða vegaframkvæmdum á
Norðurlandi eystra verður frestað.
Það mál verður rætt á sameigin-
legum fundi þingmanna kjördæm-
isins, sem verður í næstu viku.
Þá standa vonir manna til þess
að hægt verði að hefjast handa um
breikkun Akureyrarflugvallar á
þessu ári, en sú framkvæmd er
orðin aðkallandi. Samkvæmt flug-
málaáætlun var gert ráð fyrir veru-
legum niðurskurði í framkvæmd-
um við flugvöllinn á Akureyri og
til flugmála almennt. Að sögn
Halldórs Blöndal hafa tekjur flug-
málayfirvalda af flugvallarskött-
um hins vegar aukist á síðustu ár-
um með sívaxandi ferðamanna-
straumi til landsins, þannig að
niðurskurðar í þessum málaflokki
verður minni en sýnt þótti. -sbs.
Fjárhagsáætlun Þórshafnarhrepps:
Eignabreytingar
ískoðun
Aætlaðar skatttekjur Þórs-
hafnarhrepps á þessu ári
eru áætlaðar 61,2 millj. kr. sam-
kvæmt tekjuhlið ijárhagsáætl-
unar hreppsins, sem þegar ligg-
ur fyrir. Félags- og fræðslumál,
auk yfirstjórnar sveitarfélagsins,
verða stærstu útgjaldaliðirnir,
að sögn Reinhards Reynissonar
sveitarstjóra.
Endanleg útgjaldáhlið fjárhags-
áætlunar liggur enn ekki fyrir, en
búast má við að svo verði í kring-
um mánaðamót og hún þá endan-
lega afgreidd. Reinhard sveitar-
stjóri segir að búist sé við að 65 til
70% tekna fari til reksturs mála-
flokka, en annað geti þá farið í
fjárfestingar og framkvæmdir. Þó
sé ljóst að grynnka verði eitthvað
á skuldum sveitarsjóðs, sem eru
umtalsverðar og tilkomnar meðal
annars vegna hlutafjárkaupa og
framkvæmda af ýmsum toga. Því
sé nú verið að skoða hugmyndir
Q VEÐRIÐ
Veðurstofan spáir austan-
eða norðaustanátt á Norð-
urlandi í dag. Vestantil verð-
ur allhvasst en annars hæg-
ari vindur. Búast má við
snjókomu eða éljagangi og
1-5 stiga frosti. Undir kvöld
snýst vindur til suðvestlægr-
ar áttar og hlýnar. Framan
af degi á morgun verður
vestanátt en síðan stíf
norðanátt með snjókomu.
um ýmsar eignabreytingar, en
með þeim hætti sé hægt að losa
um fjármuni sem illa nýtast. -sbs.
Fjárhagsáætlun
Ólafsfjarðarbæjar
samþykkt:
Lítið um
framkvæmdir
Fjárhagsáætlun Ólafsfjarð-
arbæjar var samþykkt við
síðari umræðu á bæjarstjórn-
arfundi sl. þriðjudag. Hverf-
andi breytingar urðu á henni
milli umræðna, að sögn Hálf-
dáns Kristjánssonar, bæjar-
stjóra, eða innan við 2 millj-
ónir.
„Þetta var einn styttsti fund-
ur sern ég hef setið. Fjárhags-
áætlunin rúllaði í gegn þannig
að ekki voru nú átökin um
hana,“ sagði Hálfdán. Hann
segir lítið verða um fram-
kvæmdir á þessu ári á vegum
bæjarins að undanskyldum
nokkrum viðhaldsverkefnum,
en ekkert standi upp úr. Einn
stærsti liðurinn er að endur-
nýja þarf tölvubúnað á bæjar-
skrifstofunum vegna þess að
ekki er Iengur hægt að fá þjón-
ustu á það kerfi sem notað er,
en annars er áætlunin mjög
hefðbundin, segir bæjarstjóri.
HA
f augnsímasambandi!
Einar Reynis, rafeindavirkjameistari hjá Pósti og síma, kynnti í gær á Akureyri hið nýja Samnet P&S
sem hleypt var formlega af stokkunum í gær. Þar líkti hann netinu við byltingu í símamálum því nýja
netið gefur m.a. möguleika á tengingum á fleiri en einum síma á hverri línu, til muna auknum flutnings-
hraða gagna, myndsímum, hraðvirkari faxsendingum og fleiru. Sem dæmi er á Samnetinu hægt að tengja
síma, fax og tölvu inn á eina símalínu.
A myndinni hér að ofan sést skjár á einkatölvu sem við er tengdur sími og kvikmyndavél og í stærri glugg-
anum sést viðmælandi Einars í Múlastöð P&S í Reykjavík en á minni myndinni sjást fundarmenn á kynning-
unni á Akureyri. Þannig geta viðmælendur á Samnetinu, að því gefnu að þeir hafi viðhlýtandi búnað á báðum
endum, horfst í augu á tölvuskjánum rneðan þeir talast við. JÓH/Mynd:
s
t:
I
|i
\\
' 20-60%
Qts/áttur
UTSALA
á húsgögnum
Tausófasett, borðstofusett, leðursófasett, eldhúsborð,
eldhússtólar, skópasamstæður, sófaborð, smóborð, einnig
mikið úrval af alls konar húsgögnum ó fróbæru verði.
Dæmi um verð: Verð áður Verð nú
Sófaborð .... 33.700,- 10.000,-
Hillusamstæða, svört króm .... 43.600,- 21.800,-
Borðstofusett, hvítt .... 87.500,- 49.000,-
Borðstofusett, svart .... 1 11.300,- 59.000,-
Eldhússtólar, beyki .... 8.400,- 6.000,-
Hvíldarstólar, leður .... 38.800,- 29.000,-
Tausófasett 3+1+1 grænt .... 166.470,- 89.000,-
Tausófasett 3+1 + 1 beige .... 127.700,- 79.000,-
Leðursófasett 3+1 + 1 svart .... 198.700,- 139.000,-
Leðurhornsófi 3+H+2 koniak .... ... 136.700,- 98.000,-
Einnig tilboðsverð á hornsófum.
Tauhornsófar, 6 sæta. Verð kr. 69.500,- 72.900,- og 84.900,-
Leðurhornsófar, 6 sæta. Verð kr. 124.900,- margir litir.
Útsalan stendur aðeins fram að helgi
örubær
Tryggvabraut B4
BOH Ahuregri
úsgagnaverslun sími 4BB i4ia aogreioslur
Visa og Euro
mnmmmmmmmmimnmmmmmmnmmimmmmmwmnmtmmmmmmimnnmuffiumummmm.
§
jii