Dagur - 16.02.1996, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 16. febrúar 1996
„Gaman að fylgjast með hvemíg tekst að reka
sjávarútvegsfyrirtæki í þremur sveitarfélögum“
- segir Atli Viðar Jónsson, framleiðslustjóri Fiskiðjunnar-Skagfirðings hf.
Við sameiningu Fiskiðjunnar-
Skagflrðings hf. (FISK) og
Hraðfrystihúss Grundarfjarðar
hf. (HG) um sl. áramót undir
nafni þess fyrrnefnda varð FISK
eitt öflugasta fiskvinnslu- og út-
gerðarfyrirtæki landsins með
þrjú fiskvinnsluhús í þremur
sveitarfélögum, fimm ísfisktog-
ara og einn frystitogara með
samtals um 10.500 tonna þorsk-
ígildiskvóta. FISK átti um ára-
mótin um 85% hlut í HG og því
var sameining fyrirtækjanna
rökrétt afleiðing auk þess að
vera hagkvæm frá mörgum
sjónarmiðum, m.a. verður afla-
miðlun milli fiskvinnsluhúsa og
allur rekstur hagkvæmari. Atli
Viðar Jónsson var fram-
kvæmdastjóri HG fram að sam-
einingunni en tók við starfi
framleiðslustjóra FISK um ára-
mót og verður því tíður gestur á
næstu mánuðum á þeim þjóð-
vegum sem tengja Grundarfjörð
og Sauðárkrók saman, eða um
270 km leið. Hann mun búa á
Grundarfirði fram til vors en þá
flytjast búferlum til Sauðár-
króks.
Miklar og gagngerar endurbæt-
ur fara nú fram á húsnæði og
tækjakosti rækjuverksmiðjunnar
til þess að uppfylla ströngustu
kröfur erlendra kaupenda hvað
varðar gæði og hreinlæti og er
áformað að þeim breytingum
verði lokið um miðjan marsmán-
uð. Kostnaður við þann áfanga
sem þá verður tekinn í notkun
liggur á bilinu 20 til 25 milljónir
króna en þessar breytingar miða
einnig að því að aðskilja rækju-
vinnsluna frá bolfiskvinnslunni og
endumýja lausfrysti og taka auk
þess í notkun nýjan og fullkominn
lausfrysti, sem er alíslensk smíði.
Á aíla veggi verksmiðjunnar
verða sett veggefni sem er mun
auðveldara að þrífa. Einnig verður
soðin rækja aðskilin frá ósoðinni
rækju sem er hluti af því að upp-
fylla og aðlaga verksmiðjuna að
ströngustu kröfum kaupenda. Atli
Viðar segir að samstarf sé við
heimabáta um hráefnisöflun og
fyrirtækið eigi 30% hlut í bát sem
heiti Farsæll SH-30 og er gerður
út frá Grundarfirði. Utgerð Far-
sæls er að endumýja bátakostinn
um þessar mundir; selja bátinn og
kaupa í hans stað Klæng frá Þor-
lákshöfn, sem áður var gerður út
frá Vopnafirði og hét þá Eyvindur
Vopni. Hann verður afhentur í
febrúarmánuði. Til fróðleiks má
geta þess að Eyvindur Vopni var
seldur frá Vopnafirði þegar Tangi
hf. keypti nýtt skip í hans stað, og
það frá Fiskiðjunni-Skagfirðingi
hf. Auk þess hefur verið gott sam-
starf við útgerð Haukabergs, 100
tonna báts, sem gerður er út frá
Grundarfirði. Sú skel sem Farsæll
og Haukaberg hafa veitt hefur ver-
ið unnin hjá HG, en rækju sem
unnin er í Grundarfirði hafa bát-
arnir fyrst og fremst fengið í
Kolluál, vestur af Snæfellsnesi, og
eru gæði hennar mjög mikil.
Kvótastýring og
útgerðarstjórn á
Sauðárkróki
I Grundarfirði hafa auk HG verið
rekin tvö önnur frystihús; Soffan-
ías Cecilsson hf. er með rækju- og
bolfiskvinnslu og útgerðarfélagið
Guðmundur Runólfsson hf. rekur
frystihús. Það á togarann Runólf
SH-135. Þessi þrjú fyrirtæki eru
stærstu atvinnurekendumir í
Grundarfirði.
„Það er óhjákvæmilegt við
þessa sameiningu að það verði
einhverjar breytingar á starfs-
mannahaldi hér í Grundarfirði.
Meginhluti bókhaldsins og fleira
flyst norður þó launaútreikningur
verði áfram hér en hér verður allt-
af til staðar ákveðin þjónusta
vegna fjarlægðarinnar við Sauðár-
krók en samskiptin verða aukin
með nýrri samskiptatækni.
Vinnsluferlið breytist, það verður
meira um sérhæfingu. Kvótastýr-
ing og útgerðarstjóm verður norð-
ur á Sauðárkróki en togaramir
tveir, Klakkur og Drangur, verða
áfram gerðir út frá Gmndarfirði.
Við erum vel í sveit settir hér
gagnvart góðum fiskimiðum og
emm í nábýli við góðan fiskmark-
að, Fiskmarkað Breiðafjarðar hf„
sem stofnaður var árið 1992. Um
fjarskiptamarkað er að ræða sem
er fyrst og fremst með starfsemi
sína í Stykkishólmi, Ólafsvík, Rifi
og Arnarstapa auk Grundarfjarðar.
Það verður mjög gaman að
fylgjast með því í framtíðinni
hvemig okkur tekst að skipuleggja
starfsemi sjávarútvegsfyrirtækis
sem er rekið í þremur sveitarfé-
lögum í tveimur landshlutum. Hér
er mjög gott starfslið sem ég
treysti fullkomlega og þannig er
því einnig farið fyrir norðan þann-
ig að ég kvíði ekki framhaldinu.
Það er auðvitað mín von að starf-
semin hér verði ekki nein aukabú-
grein hjá Fiskiðjunni-Skagfirð-
ingi, heldur hafi báðir hag af sam-
einingunni. Ástæða þess að ég er
þátttakandi í þessu er sú að ég hef
fulla trú á þessu og þeir fyrir norð-
an hafa fullkomlega staðið við allt
það sem þeir hafa sagt.
Til þess að ná góðum rekstri
hér þurfti að fara í töluverðan
samdrátt, en það var mjög góð
Fiski iandað í Grundarfirði, sem að hluta til var unninn á Norðurlandi. Fjær stendur Hraðfrystihús Grundarfjarð-
ar, nú eitt af þremur húsum Fiskiðjunnar-Skagfirðings hf.
Er sameining Hraðfrystihúss Grundarfjarðar og
Fiskiðjunnar-Skagfirðings heillaspor fyrir byggðarlagið?
Nokkrir Grundfirðingar voru
teknir tali og spurðir álits á því
hvemig þeim fyndist að eitt
stærsta fyrirtæki bæjarfélagsins,
Hraðfrystihús Grundarfjarðar
hf., væri orðið í meirahlutaeigu
Fiskiðjunnar-Skagfirðings hf. og
sameinað norðlenska útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækinu og
hvort sú þróun hafi komið þeim á
óvart?
Albert Porvaldsson:
„Ég hef nú eiginlega ekki tekið
eftir því ennþá og ég held að fólk
sé sátt við þessa þróun mála. Þetta
eykur atvinnuöryggi þeirra sem
vinna hjá fyrirtækinu en þetta er
ekki mikið rætt þar sem ég vinn.
En það verður vonandi gott að
starfa með Norðlendingunum."
Örn Arnason:
„Ég er Grundfirðingur en er að
fara burtu í skóla. Ég stórefa að
þetta sé gott mál fyrir Grundfirð-
inga. Nú eiga þeir á Sauðárkróki
fyrirtækið og geta farið með kvót-
ann í burtu ef þeim sýnist svo því
þeir áttu orðið meira en 80% hlut í
því. Það óttast margir þá þróun,
ekki síst fiskverkunarfólk og þeir
sem eru á sjónum. Það hefði verið
betri lausn ef fiskvinnslufyrirtækin
í Grundarfirði hefðu verið samein-
uð, t.d. Hraðfrysihús Grundarfjarð-
ttr og Soffanias Cecilsson, þótt ég
Albert Þorvaldsson.
Örn Árnason.
sé efins um að þeir hefðu gengið í
eina sæng. Forsvarsmenn Hrað-
frystihúsins hefðu einnig átt að
reyna fyrst að sameinast öðrum út-
gerðum hér á norðanverðu Snæ-
fellsnesi."
Jófríður Friðgeirsdóttir:
„Mér finnst fólk vera hálf-
smeykt en ég vona að það sé
ástæðulaus kvíði. Það óttast að tog-
aramir fari í burtu seinna."
Arni Halldórsson:
„Það var nauðsynlegt að fá nýtt
blóð og fjárstreymi inn í fyrirtækið,
en ég óttast ekki að Skagfirðingar
taki togarana og kvótann norður og
segi bless meðan reksturinn gengur
vel hjá þeim. Þeir hafa til þess öll
völd en þeir eru byrjaðir að byggja
upp og stækka rækjuverksmiðjuna
og það gera varla þeir sem ætla að
flytja í burtu af staðnum. Það á svo
að byrja rækjuvinnslu í mars.“
Sigurjón Jónsson:
„Þetta skiptir ekki neinu máli og
ef eithvað er þá tryggir þessi breyt-
ing betur atvinnu hér í Grundar-
firði. Þeir hjá Fiskiðjunni-Skagfirð-
ingi áttu meirihluta í fyrirtækinu
áður og svo eru þeir að endur-
byggja rækjuverksmiðjuna. Þetta
var eina sóknarfærið sem við átt-
um, því sameining fyrirtækja hér á
Snæfellsnesi kom ekki til greina að
mínu áliti.“
Jófríður Friðgeirsdóttir.
Sigurjón Jónsson.