Dagur - 08.03.1996, Page 2
2 - DAGUR - Föstudagur 8. mars 1996
FRÉTTIR
Erindi Ásprents/POB frestaö á bæjarráösfundi:
Fleiri svipuð erindi borist
Eins og frá var greint í Degi í
gær lá fyrir bæjarráðsfundi á
Akureyri erindi frá Ás-
prenti/POB hf. á Akureyri þess
efnis að Akureyrarbær keypti
húsnæði áfast prentsmiðju fyr-
irtækisins þar sem rekin er
bflasala. Bærinn myndi síðan
leigja það Ásprenti/POB.
Erindið var rætt á fundi bæj-
arráðs í gær en ekki afgreitt.
Bæjarráðsmaður sem rætt var
við sagðist búast við að það
verði gert á næsta fundi. Erindi
Ásprents/POB er ekki það eina
sinnar tegundar sem bæjaryfir-
völdum hefur borist síðustu
daga. Þannig staðfesti Einar
Ámason í prentsmiðjunni Al-
prent að hann hefði einnig sent
bæjarráði erindi um svipað efni
og Ásprent/POB. HA
Sinubruni í mars
Þessi einmunatíð sem leikið
hefur við landsmenn getur haft
sína annmarka. Um kvöldmat-
arleytið á miðvikudag var
slökkviliðið á Akureyri hvatt
út á svæðið milli Dalsgerðis og
Hamragerðis en þar höfðu
börn kveikt sinueld.
Ein slökkvibifreið var send á
staðinn og var ráðið niðurlögum
eldsins með svokölluðum norna-
kústum. Tveir árekstrar urðu á
Akureyri í gær. Annar var óveru-'
iegur, en hinn sem var á homi
Þórunnarstræti og Þingvalla-
strætis, var nokkru harðari og
þurfti að fjarlægja báða bílana
með kranabifreið. Enginn slasað-
ist í árekstrinum. GG
Föstudagskvöldið 8. MARS
KL. 21.00.
Hagyrð-
INGAKVÖLD
Stjórnandi: Birgir Sveinbjörnsson
Hagyrðingar: Halldór Blöndal,
Hákon Aðalsteinsson,
Hjálmar Freysteinsson,
Ósk Þorkelsdóttir og
Stefán Vilhjálmsson.
AUGARDAGSKVÖLDIÐ 9. MARS
Dekurmatseðill
ALLA HELGINA
HUMAR & HÖRPUSKEL í KAMPAVtNSRJÓMA
ÁSTRlÐU- OG BLÁBERJAKRAP
RÓSMARIN- OG HVÍTLAUKSKRYDDAÐ LAMBAINNLÆRl
MEÐ PORTVÍNSSÓSU
Grand Marnierís Á APFELSÍNUGRUNNI
Verðkr. 2.700,-
Hljómsveitin
Ð AN 3
&
LEIKUR FYRIR DANSI
sími A 6 2 2200
Framkvæmdir viö gatnagerð og fráveitu á Akureyri:
Framkvæmdaáætlun gatnagerð-
ar og fráveitu fyrir árið 1996 var
afgreidd á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar sl. þriðjudag. Gert er
ráð fyrir 68 milljónum til gatna-
gerðar, 45 milljónum til fráveitu
og 5 milljónum til bifreiðastæða,
sem kostað er af bifreiðastæða-
sjóði.
Af gatnaframkvæmdum fara
17,9 milljónir í endurbyggingu
gatna. Þar er um að ræða efsta og
neðsta hluta Strandgötunnar, þ.e.
frá Hjalteyrargötu að Hríseyjar-
götu og frá Glerárgötu að Lundar-
götu. Skipt verður um jarðveg,
gatan endurbyggð og gengið frá
stéttum. Þá verður gerð breyting á
Geislagötu, fyrir vestan verslunina
Augsýn og norður að Búnaðar-
banka. Er það í samræmi við nýtt
miðbæjarskipulag. „Síðan er þessi
frægi kafli á Smáragötunni norðan
við bæjarskrifstofumar, sem við
vorum famir að óttast að myndi
lenda á náttúruminjaskrá. Hann
verður malbikaður og gengið frá
honum,“ sagði Gunnar Jóhannes-
son, deildarverkfræðingur hjá Ak-
ureyrarbæ.
I nýbyggingum á að gera nýja
aðkomu að Kjötiðnaðarstöð KEA
en það er þó háð því að samningar
náist um kaup á lóðum, að sögn
Gunnars. „Síðan á að fara að und-
irbúa næstu áfanga í Giljahverfi
og í þetta fara 12 milljónir," sagði
Gunnar. Götur sem verða malbik-
aðar eru Snægil, Vesturgil, Vætta-
gil, Vörðugil og Mýrarvegur vest-
an við VMA. I það fara 7,7 millj-
ónir.
Að auki má telja ýmis smærri
verk svo sem gangstéttar og stíga.
Af því er talsvert í Giljahverfi.
Haldið verður áfram með hellu-
lögn við Strandgötu í framhaldi af
því sem gert var í fyrra. Einnig er
meiningin að leggja reiðleið með-
fram golfvellinum að Súluvegi og
fleira. I þetta og margar aðrar
smærri framkvæmdir fara samtals
28,1 milljón. I umferðaröryggis-
mál fara 2,3 milljónir og er því
ráðstafað af skipulagsnefnd. Sam-
tals gera þetta 68 milljónir sem
fyrr segir.
I fráveitur fara 45 milljónir og
er stærsti liðurinn að klára dælu-
stöð við Torfunefsbryggju og
leggja lagnir að henni bæði úr
suðri og norðri. í þetta fara 33
milljónir. Að sögn Gunnars verður
Glerárgatan að stórum hluta und-
irlögð vegna þessara framkvæmda
sem mun skerða mjög umferðar-
möguleika. Framkvæmdir hefjast
innan tíðar og meiningin að þeim
verði lokið fyrir miðjan júní. Af
fráveituframkvæmdum má einnig
nefna framkvæmdir á Oddeyrar-
tanga, breytingar á lagnakerfi í
Aðalstræti o.fl.
Þá eru ótaldar framkvæmdir
við bílastæði og þar á að ganga frá
bílastæðum vestan við nýfram-
kvæmdina við Geislagötu og
koma þar upp gjaldskyldu. Einnig
verða gerð nokkur stæði í Smára-
götu og fleira mætti telja. HA
Sveitarstjórnarmenn ræöa yfirfærslu grunnskólans á fundi:
Samkomulagsdrög til afgreiðslu
Um helgina verður í Borgarnesi
haldinn fulltrúaráðsfundur
Sambands íslenskra sveitarfé-
laga. Á fundinum eiga sæti 45
fulltrúar, sem kosnir eru á
landsþingi úr öllum kjördæmum
landsins. Aðalefni fundarins
verður umQöllun og afgreiðsla á
samkomulagi ríkis- og sveitarfé-
laga um kostnaðar- og tekjutil-
Dóms- og kirkjumálaráðherra
hefur sett sr. Bolla Gústavsson,
vígslubiskup á Hólum, til að
fara með biskupsvald til úr-
lausnar ágreiningi sem upp er
kominn í Langholtssókn í
Reykjavík.
Þetta er gert samkvæmt 6. gr.
stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og í
færslu vegna flutnings grunn-
skólakostnaðar frá ríki til sveit-
arfélaga. Á fundinum gæti því
ráðist hvort af flutningi grunn-
skólans verður því felli fundur-
inn þau samkomulagsdrög sem
fyrir liggja er málið væntanlega
úr sögunni að sinni.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
formaður Sambands íslenskra
tilskipun ráðherra segir að vígslu-
biskupi sé falið að taka fyrirliggj-
andi ágreiningsefni í málinu til
sjálfstæðrar meðferðar og taka
síðan ákvörðun um lausn málsins.
Biskup íslands, hr. Ólafur Skúla-
son, hefur ákveðið að víkja sæti
við úrlausn á ágreiningi þeim sem
uppi er í sókninni. GG
sveitarfélaga, sagðist telja sam-
komulagsdrögin vel ásættanleg
fyrir sveitarfélögin í landinu. „Ég
held að þau séu rekstri grunnskól-
ans til hagsbóta og þeim áformum
sem uppi eru að einsetja skólana í
landinu. Ég held að sveitarfélögin
hafi náð ágætum árangri í þessum
viðræðum,“ sagði Vilhjálmur.
Verði samkomulagið samþykkt
er lokið einu stærsta málinu sem
þarf að leysa svo tilfærsla grunn-
skólans verði að veruleika. En
þrátt fyrir það eru fleiri ljón á veg-
inum. „Ég tei afar mikilvægt að
það náist sátt í þeirri deilu sem
uppi er milli opinberra starfs-
manna og fjármáiaráðherra út af
þeim frumvörpum sem fjallað hef-
ur verið um að undanfömu. Þau
tengjast að vísu ekki beint yfir-
færslu grunnskólans en hafa samt
áhrif. Við hins vegar ráðum ekki
ferðinni í því máli,“ sagði Vil-
hjálmur. HA
Langholtsdeilan:
Sr. Bolli úrskurðar
Nýkomib:
Dömudraktir, pils,
kjólar og blússur á
hreint hlægilegu verhi
HRÍSALUNDUR ■fyrir þig!