Dagur - 08.03.1996, Blaðsíða 7
Föstudagur 8. mars 1996 - DAGUR - 7
HRISALUNDUR
- fyrir þig!
Ódýrara en þig grunar
Norðlenskir dagar
Kynningcir
föstudag 8. mars kl. 15-19.30
Kjarnafæði:
Hvítlaukspylsur kr. 529 kg
Kartöflusalat kr. 418 kg
Brauðgerð KEA og
Mjólkursamlag KEA:
Eðalbrauð kr. 98
Braggi kr. 249
KjallaraboIIur ni/osti kr. 24
Heilhveiti soðið brauð kr. 78
Óðalsostur kr. 598 kg
Gráðuostur 100 gr kr. 89 stk.
Gráðuostur 200 gr kr. 178 stk.
Kynningar
laugardag 9. mars frá kl. 13-17
Skuggi:
Lakkrísborðar kr. 194 pk.
Myntukoddar kr. 89 pk.
VlLKO:
Pönnukökudeig kr. 149 pk.
Súkkulaði vöffludeig kr. 149 pk
Vöffludeig kr. 149 pk.
Sana bláberjasulta kr. 168
Eyjafjarðardeild ferðaklúbbsins 4x4 efnir til Jeppadags fjölskyldunnar á sunnudag:
Náttúrufegurðin á Þeistareykjum skoðuð í ár
- hvatt til þáttöku allra jeppaeigenda, jafnt á breyttum sem óbreyttum bílum
Eyjafjarðardeild ferðaklúbbsins
4x4 stendur á sunnudag fyrir
Jeppadegi fjölskyldunnar í annað
sinn. Klúbburinn hleypti þessari
nýbreytni af stokkunum fyrir réttu
ári og var þá farið á fallegum
sunnudegi í langri halarófu jeppa
inn á Barkárdal og í Baugasel, þar
sem voru veitingar og brugðið á
leik. Jafnframt þessu uppfræddu
félagar í ferðaklúbbnum þá sem
voru á óbreyttum bflum um mögu-
leika bílanna og þá list að hleypa
lofti úr dekkjum og fá þannig
meira flot til að keyra í snjó.
Þannig var sameinuð skemmti- og
fræðsluferð. Sama verður gert í ár
en stefnan tekin austur á bóginn
og ekinn Þeistareykjahringurinn
en þar er nægur snjór og einstök
náttúrufegurð á þessum árstíma.
Sigurkarl Aðalsteinsson, for-
maður Eyjafjarðardeildar ferða-
klúbbsins 4x4, segir að mjög vel
hafi til tekist í fyrra. „Við fengum
þá einstakt veður og einstakt færi
þannig að það gátu allir bílar
keyrt. Þá fylgdu litlu bflamir fylli-
lega þeim stærri eftir,“ segir Sig-
urkarl um jeppadaginn í fyrra.
„Við viljum ná til þeirra sem
eru á óbreyttu bílunum til að
kenna þeim hvemig á að hleypa úr
dekkjum og hvaða þýðingu það
getur haft. Það kemur mörgum á
óvart hversu miklu þetta getur
breytt í akstri í snjó og hálku og
það á líka við um akstur á fólks-
bílum. Þó er ekki algengt að menn
fari mikið út í að hleypa úr á þeim
en við jeppamennimir erum fljótir
að minnka loftið í dekkjunum
þegar fer að snjóa.“
- Þola öll dekk að það sé
hleypt úr þeim?
„Já, að vissu marki. Eðlilega er
það þekkingarleysi sem veldur því
hversu lítið menn gera af þessu en
það er ótrúlegt hve gripið gjör-
breytist við það að mýkja dekkin.
Öll dekk þola að hleypa eitthvað
úr en bestu dekkin þola að það sé
hleypt mikið úr þeim og keyrt.
Þetta eru fræði sem við viljum
koma að hjá sem flestum en annar
megin tilgangur með Jeppadegi
fjölskyldunnar er að fá fólk með
okkur út í náttúruna til að njóta
þess sem landið hefur uppá að
bjóða þegar það er í sínum feg-
ursta vetrarbúningi."
Lagt verður upp frá Esso-Nest-
inu við Leiruveg á Akureyri
stundvíslega kl. 10 á sunnudags-
morgun og ítrekar Sigurpáll að
ferðin er öllum opin. Síðan verður
ekið sem leið liggur austur í Þing-
eyjarsýslu, inn á Kísilveginn og
þaðan á Þeistareykjaleið. Þangað
er um 80 kflómetra leið frá Akur-
eyri og síðan tekur við 30 kfló-
metra akstur á snjó. Sigurkarl seg-
ir að þetta sé gífurlega falleg leið
og áhrifamikil fjallasýn. „Já, þetta
er mikið fjallasvæði með góðu út-
sýni og mikilli fjallakyrrð þó svo
að þetta sé í raun stutt frá byggð.
Við fórum á dögunum til að skoða
aðstæður og þama er nægur snjór
en við komum til með að fylgja
vegstæðinu en taka okkur góð hlé
í akstrinum og leyfa krökkunum
að njóta sín. Þess vegna vil ég
skora á fólk að taka snjóþoturnar
og sleðana með og jafnvel skíðin
fyrir þá sem vilja láta bflana draga
sig.“
A miðri leið verður stoppað í
upphituðum skála og þar verða
veitingar í boði Ferðaklúbbsins
4x4. Þar verður boðið upp á heitt
kakó og brauð og Frissa Fríska
fyrir bömin.
Á síðasta hluta leiðarinnar
verður ekið gegnum Meyjarskarð
og þaðan niður á Húsavík og sá
hluti leiðarinnar segir Sigurkarl að
sé ekki síst fallegur. Utsýnið yfir
Skjálfandaflóann láti engan mann
ósnortinn í fallegu veðri og raunar
sé ekki hægt að gera upp á milli
hvort fegurðin sé meiri að sumri
eða vetri. „Þessi leið hefur því upp
á allt að bjóða fyrir Jeppadag fjöl-
skyldunnar og fólk á ekki að setja
það fyrir sig þó spölkomsakstur
verði á staðinn. Leiðin á ekki að
vera erfið en ef einhverja þarf að
skilja eftir þá tökum við fólkið yf-
ir í betur búnu bflana þannig að
allir komist með. En ég geri ekki
ráð fyrir öðru en færið verði gott.“
Sigurkarl reiknar með að hóp-
urinn verði kominn niður á Húsa-
vík milli fjögur og fimm á sunnu-
daginn og þaðan liggur leiðin
heim til Akureyrar.
Stuðningsaðilar Jeppadags fjöl-
skyldunnar eru Kaupfélag Eyfirð-
inga, Höldur og dagblaðið Dagur.
JÓH
•xr-:..-
LOTT#
VINNINGSTÖLUR |
MIÐVIKUDAGINN | 00-03. 199b
BÓNUSTÖLUR
ooo
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
J b 6 af 6 4 14.574.000
0 5 af 6 C.. + bónus
3. 6»16
4. 4 af 6
r- 3 af 6 O. + bónus t*3
Samtals: 58.296.000
Heildarvinningsupphœð:
58.296.000
Á íslandi:
0
Upplýsingar um vinningstöiur fást einnig i sfmsvara
568-1511 eða Graonu númerí 800-6511 og I toxtavarpi
á siðu 453.
Frá jeppadeginum á Barkárdal í fyrra. Hér eru gestir að gæða sér á veitingunum, sem félagar í Eyjafjaröardeild
Ferðaklúbbs 4x4 buðu upp á.
Jeppamenn lenda stundum í
bilunum í ferðum sínum og
ekki alltaf við bestu aðstæöur. Hér
er skafrenningur og kuldi en einu
ökutækinu er samt kippt í lag.
Það var mikill flokkur sem tók þátt
í Jeppadegi fjölskyldunnar í fyrra
og hér má sjá bílaröðina. Þá þurfti
A ekki að kvarta yfir snjóleysi,
^ ólíkt því sem nú er.
LfTTÍ
VINNINGSTOLUR „
MIÐVIKUDAGINN | 0O,03. 1996
AÐALTÖLUR
BÓNUSTÖLUR
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
J . 6 af 6 1 80.660.000
0 5 af 6 C-. *bónus 1 484.880
3. 6*16 1 380.980
4. 4 8f 6 300 2.020
j- 3 af 6 O. + bónus 1.174 220
Samtals: 1.477 82.390.140
Hoildarvinningsupphœð:
82.390.140
Á Islandí:
1.730.140
Upplýsingar um vinningstölur fást elnnig I slmsvara
568-1511 eða Grænu númeri 800-6511 og i textavarpl
ásiöu 453.