Dagur - 08.03.1996, Qupperneq 13
Föstudagur 8. mars 1996 - DAGUR - 13
Messur Messur Samkomur
1 Akureyrarkirkja.
_£J I Laugardagur 9. mars.
I II |l| Hádegistónleikar í Akur-
..lllllll eyrarkirkju kl. 12.
Woifgang Trezch, tónlist-
arkennari í Mývatnssveit við orgelið.
Létt máltíð í Safnaðarheimili eftir tón-
leikana.
Sunnudagur 10. mars.
Sunnudagaskóiinn kl. 11. Munið
kirkjubflana!
Hátíðarmessa í lok kirkjuviku kl.
14.00.
Sr. Guðmundur Guðmundsson, hér-
aðsprestur prédikar. Prestar kirkjunnar
og Valgerður Valgarðsdóttir, djákni,
þjóna fyrir altari. Tónlist: Kór Akur-
eyrarkirkju, Björg Þórhallsdóttir, Ey-
rún Unnarsdóttir, Sólbjörg Bjömsdótt-
ir, Þómý Haraldsdóttir og Dóróthea
Dagný Tómasdóttir. Organisti: Bjöm
Steinar Sólbergsson.
Mánudagur 11. mars.
Leiksýning í kirkjunni kl. 20.30.
Heimur Guðríðar. Síðasta heimsókn
Guðríðar Símonardóttur í kirkju Hall-
gríms. Höfundur og leikstjóri: Stein-
unn Jóhannesdóttir. Aðgöngumiðar
seldir við kirkjudyr.
Laufássprestakall.
ífeSAJ Kirkjuskóli nk. laugardag
' 9. mars kl. 11 í Svalbarðs-
kirkju og kl. 13 í Greni-
víkurkirkju.
Kyrrðar- og bænastund í Grenivíkur-
kirkju sunnudaginn 10. mars kl. 21.
Sóknarprestur.
Bægisárkirkja.
Guðsþjónusta verður í kirkjunni nk.
sunnudag 10. mars kl. 14. Sr. Sigurður
Guðmundsson biskup predikar og
þjónar fyrir altari.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson._______
Bakkakirkja.
Guðsþjónusta verður í kirkjunni nk.
sunnudag 10. mars kl. 14. Sr. Sigurður
Guðmundsson biskuð predikar og
þjónar fyrir altari.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
Dalvíkurkirkja.
Barnastarfið verður á Dalbæ sunnu-
daginn 10. mars kl. 14.
Ungir og gamlir eiga stund saman.
Athugið breyttan stað og tíma.
Sóknarprestur.
Húsavíkurkirkja.
Sunnudagaskóli í Miðhvammi kl.
KFUM & KFUK,
; Sunnuhlíð.
Föstud. 8. mars kl. 20.30.
Unglingasamkoma. Lof-
gjörð og bæn. Allt ungt fólk velkomið!
Sunnud. 10. mars kl. 20.30. Almenn
samkoma. Ræðumaður er Víðir Bene-
diktsson.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Tipparar!
Getraunakvöld í Hamri
á föstudagskvöldum
frá kl. 20.00.
Málin rædd og spáð í spilin
Alltaf heitt á könnunni.
Munið að getraunanúmer
Þórs er 603.
Glerárkirkja.
Laugardagur 9. mars.
Biblíulestur og bæna-
stund verður í kirkjunni
kl. 13.
Þátttakendur fá afhent stuðningsefni
sér að kostnaðarlausu.
Allir velkomnir.
Sunnudagur 10. mars.
Guðsþjónusta verður á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu kl. 10.
Barnasamkoma verður í kirkjunni kl.
11. Foreldrar eru hvattir til að mæta
með bömum sínum.
Messa verður kl. 14.
Ath. Bamagæsla verður í kirkjunni
meðan messað er. Undir sálmi við
predikun verða bömin leidd inn í safn-
aðarsalinn þar sem þeim verða sagðar
sögur, sungið með þeim og beðið.
Fundur æskulýðsfélagsins er kl. 20.
Sóknarprestur.
Opið hús
Opið hús í Hafnarstræti
90, laugardaginn 9. mars
kl. 11-12 f.h.
Komið og ræðið bæjarmálin.
Heitt á könnunni.
Framsóknarfélag Akureyrar,
10.30.
Guðsþjónusta í Húsavíkurkirkju kl. 14.
Fermingarböm aðstoða. Vænst er þátt-
töku fermingarbama og foreldra
þeirra.
Fjölmennum.
Sóknarprestur.
Takið eftir
^ Guðspekifélagið á 'Akur-
eyri.
Fundur verður haldinn
sunnudaginn 10. mars nk.
kl. 16 að Glerárgötu 32.
Efni fundarins verður: Hugleiðing um
liti - erindi í þýðingu Ólafar Friðriks-
dóttur.
Tónlist, bækur um andleg efni, um-
ræður.
Kaffi í lok fundar.
Fundurinn er opinn öllum og aðgangur
ókeypis.
Stjórnin.___________________
Hornbrekka Ólafsfirði.
Minningarkort Minningarsjóðs til
styrktar elliheimilinu að Hombrekku
fæst í Bókvali og Valbergi, Ólafsfirði.
Minningarspjöld fyrir samband ís-
lenskra kristniboðsfélaga fást hjá
Pedró.
Hamar, félagsheimili Þórs
víð Skarðshlíð.
Simi 461 2080.
fflBÐDflBSINS3462 1840)
\____________if_________y
Heilsugæslustöðin
í Mývatnssveit:
Opinn dagur
Á laugardaginn býður starfsfólk
heilsugæslustöðvarinnar og
sjúkrahússins á Húasavík alla vel-
komna á Heilsugæslustöðina í
Mývatnssveit. Þar verður kynning
á starfsemi þessara stofnana og
boðið upp á ókeypis blóðfitu- og
blóðþrýstingsmælingu og svo að
sjálfsögðu kaffi. Við þetta tilefni
munu Mývetningar afhenda
heilsugæslustöðinni gjafír. Allir
sem áhuga hafa eru velkomnir á
heilsugæslustöðina í Mývatnssveit
milli klukkan eitt og fjögur á laug-
ardaginn. KLJ
Næturvörður
Óskum að ráða starfskraft til næturvörslu 1 nótt í
viku aðfaranótt sunnudags og í afleysingar.
Upplýsingar gefur veitingastjóri Haukur Tryggvason í
síma 462 2200.
Starf blaðamanns
á Húsavík
Dagbiaðið Dagur óskar að ráða blaðamann frá 1.
maí næstkomandi á skrifstofu blaðsins á Húsavík.
í verkahring hans er fyrst og fremst dagleg frétta- og
greinaskrif af málefnum á Húsavík og í Þingeyjarsýsl-
um.
Skilyrði er að umsækjendur sýni fram á haldgóða þekk-
ingu á íslensku máli og hafi staðþekkingu í Þingeyjar-
sýslum.
Umsóknarfrestur er til 22. mars næstkomandi.
Upplýsingar um vinnutíma og starfskjör veita ritstjórar
Dags, Óskar Þór Halldórsson og Jóhann Ólafur Hall-
dórsson í síma ritstjórnar á Akureyri, 462 4222.
Hestamenn!
Látum ekki aka á okkur
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR
r
DACSKRA FJOLMIÐLA
SJÓNVARFIÐ
17.00 Fiéttir.
17.02 Lelðarljós. (Guiding Light)
Bandariskur myndaflokkur. Þýðandi:
Reynir Harðarson.
17.57 Táknmálsfréttir.
18.05 Brimaborgarsöngvaramir. (Los
4 musicos de Bremen) Spænskur teikni-
myndaflokkur um hana, kött, hund og
asna sem ákveða að taka þátt í tónlist-
arkeppni í Brimaborg og lenda í ótal æv-
intýrum. Þýðandi: Sonja Diego. Leik-
raddir: Ingvar E. Sigurðsson, Margrét
Vilhjálmsdóttir og Valur Freyr Einars-
son.
18.30 Fjör á fjölbraut. (Heartbreak
High) Ástralskur myndaflokkur sem
gerist meðal unglinga í framhaldsskóla.
Þýðandi: Kristmann Eiðsson.
19.30 Dagsijós.
20.00 Fréttir og veður.
20.40 Dagsljós.
21.10 Happ í hendi. Spurninga- og
skafmiðaleikur með þátttöku gesta í
sjónvarpssal. Þrír keppendur eigast við
í spurningaleik í hverjum þætti og geta
unnið til glæsilegra verðlauna. Þættimir
eru gerðir í samvinnu við Happaþrennu
Háskóla íslands. Umsjónarmaður er
Hemmi Gunn og honum til aðstoðar
Unnur Steinsson. Stjórn upptöku: Egifl
Eðvarðsson.
22.05 Sumartiskan. Fyrri þáttur Katrin
Pálsdóttir bregður upp myndum fré
sýningum tískuhúsanna í Paris og segir
frá nýjungum í sumartískunni. Dag-
skrárgerð: Agnar Logi Axelsson.
22.30 Perry Mason og mafíuforing-
inn. (Perry Mason: The Case of the
Maligned Mobster) Bandarisk saka-
málamynd frá 1991 þar sem lögmaður-
inn Perry Mason tekur að sér að verja
fyrrverandi mafíuforingja sem er sakað-
ur um að hafa myrt eiginkonu sína.
Leikstjóri: Ron Satlof. Aðalhlutverk:
Raymond Burr, Barbara Hale, William R.
Moses og Paul Anka. Þýðandi: Guðni
Kolbeinsson.
00.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
STÖÐ2
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Glady-fjölskyidan.
13.10 Lisa i Undralandi.
13.35 Ási einkaspæjari.
14.00 Konungur bæðarinnar. (King of
The Hill) Mynd um ungan dreng sem
verður að taka á öllu sem hann á til að
komast af við heldur kuldalegar aðstæð-
ur í kreppunni miklu við upphaf fjórða
áratugarins. Bönnuð börnum.
15.35 Ellen.
16.00 Fréttir.
16.05 Taka 2.
16.35 Glæstar vonir.
17.00 Könguióarmaðurinn.
17.30 Eruð þið myrkfælin?.
18.00 Fréttir.
18.05 Nágrannar.
18.30 Sjónvarpsmarkaðurinn.
19.0019§20.
20.00 Suður á bóginn. (Due South).
21.00 Tuttugu dalir. (Twenty Bucks)
Gamansöm mynd með óvenjulegum
söguþræði. Um hendur hverra fer snjáð-
ur 20 dala seðifl á fáeinum dögum? Æv-
intýrin sem þessi aumi seðill lendir í eru
með ólíkindum.
22.35 Viilingurinn. (The Wild One)
Viflingurinn Johnny þvælist um Banda-
rikin ásamt félögum slnum. Það verður
uppi fótur og fit hvar sem þeir koma því
þessi náungar eru hinir mestu vand-
ræðagripir.
00.05 Á hálum ís. (Cutting Edge) Róm-
antísk gamanmynd um tvo gjörólika og
þrjóska íþróttamenn, karl. og konu, sem
stefna að þvf að fá gullverðlaun fyrir list-
hlaup á skautum á Ólympíuleikunum.
01.50 Dagskrárlok.
RÁS1
6.45 Veðurfregnir. 6.50 Bæn: Séra Sig-
urður Jónsson prédikar. 7.00 Fréttir -
Morgunþáttur Rásar 1. - Edward Frede-
riksen. 7.30 Fréttayfirht. 8.00 Fréttir. „Á
níunda tímanum", Rás 1, Rás 2 og
Fréttastofa Útvarps. 8.10 Hér og nú.
8.30 Fréttayfiilit. 8.31 Pistill. 8.35 Morg-
unþáttur Rásar 1 heldur áfram. 8.50
Ljóð dagsins. (Endurflutt kl. 18.45 í
dag). 9.00 Fréttir. 9.03 „Ég man þá tíð”.
Þáttur Hermanns Ragnars Stefánsson-
ar. 9.50 Morgunleikfimi með Halldóru
Björnsdóttur. 10.00 Fréttir. 10.03 Veður-
fregnir. 10.15 Sagnaslóð. Frásagnir af
atburðum, smáum sem stórum. Glugg-
að í ritaðar heimildir og rætt við fólk.
(Frá Akureyri). 11.00 Fréttir. 11.03 Sam-
félagið í nærmynd. Umsjón: Ásgeir Egg-
ertsson og Sigriður Amardóttir. 12.00
Fréttayfirlit á hádegi. 12.01 Að utan.
(Endurflutt úr Hér og nú frá morgni).
12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregn-
ir. 12.50 Auðlindin. Þáttur um sjávarút-
vegsmál. 12.57 Dánarfregnir og auglýs-
ingar. 13.05 Hádegisleikiit Útvarpsleik-
hússins, í skjóli myrkurs eftir Frederick
Knott. Þýðandi: Loftur Guðmundsson.
Leikstjóri: Rúrik Haraldsson. Lokaþátt-
ur. Leikendur: Anna Kristín Arngrims-
dóttir, Helgi Skúlason, Lilja Þórisdóttir,
Flosi Ólafsson, Guðjón Ingi Sigurðsson
og Klemenz Jónsson. (Áður flutt 1976).
13.20 Spurt og spjaflað. Keppnislið eldri
borgara úr nágrannabyggðalögum. höf-
uðborgarinnar keppa. Umsjón: Helgi
Seljan og Signrn Bjömsdóttir. Dómari:
Barði Friðriksson. 14.00 Fréttir. 14.03
Útvarpssagan, Hundurinn eftir Kerstin
Ekman. Jónína Guðmundsdóttir les 7.
lestur þýðingar sinnar. 14.30 Menning
og mannlif i New York. 3. þáttur af fjór-
um. Umsjón: Hallfriður Þórarinsdóttir.
15.00 Fréttir. 15.03 Léttskvetta. Um-
sjón: Svanhildur Jakobsdóttir. 15.53
Dagbók. 16.00 Fréttir. 16.05 Fimm
fjórðu. Djassþáttur í umsjá Lönu Kol-
brúnar Eddudóttur. (Einnig útvarpað að
loknum fréttum á miðnætti). 17.00
Fréttir. 17.03 Þjóðarþel - Landnám ís-
lendinga í Vesturheimi. Umsjón: Anna
Margrét Sigurðardóttir og Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir. 17.30 Allrahanda. Þor-
valdur Halldórsson, EUý Vilhjálms,
Ragnar Bjarnason og Ómar Ragnarsson
syngja sjómannalög. Vilhjálmur VU-
hjálmsson og Þorvaldur HaUdórsson
syngja með hljómsveit Inghnars Eydal.
17.52 Umferðarráð. 18.00 Fréttir. 18.03
Frá Alþingi. Umsjón: Valgerður Jó-
hannsdóttir. 18.20 KvUtsjá. Umsjón:
HaUdóra Friðjónsdóttir. 18.45 Ljóð
dagsins. (Áður á dagskrá i morgun).
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar og
veðurfregnir. 19.40 Bakvið GuUfoss.
Menningarþáttur barnanna í umsjón
Hörpu Arnardóttur og Erhngs Jóhann-
essonar. (Endurflutt á Rás 2 á laugar-
dagsmorgnum). 20.10 Hljóðritasafnið.
20.40 Komdu nú að kveðast á. Rabb-
þáttur með ljóðrænu ívafi. Kristján
Hreinsson skáld fær gesti og gangandi
tU að spreyta sig á því að botna stökur.
(Áður á dagskrá sl. miðvikudag). 21.30
PáUna með prikið. Þáttur Önnu PáUnu
Árnadóttur. (Áður á dagskrá sl. þriðju-
dag). 22.00 Fréttir. 22.10 Veðurfregnir.
22.15 Lestur Passíusálma. GisU Jónsson
les 29. sálm. 22.30 Þjóðarþel - Landnám
íslendinga í Vesturheúni. Umsjón: Anna
Margrét Sigurðardóttir og Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir. (Áður á dagskrá fyrr í
dag). 23.00 Kvöldgestir. Þáttur Jónasar
Jónassonar. 24.00 Fréttir. 00.10 FUnm
fjórðu. Djassþáttur í umsjá Lönu Kol-
brúnar Eddudóttur. (Enduriekinn þátt-
ur frá síðdegi). 01.00 Nætunitvaip á
Tuttugu dalir
Stöð 2 sýnir í kvöld kl.
20.45 kvikmyndina Tutt-
ugu dali eða Twenty
Bucks. Snjáðum pen-
ingaseðli er fylgt eftir og
lendir hann í ýmsum æv-
intýrum, ef svo má að
orði komast. Aðalhlut-
verk leika Linda Hunt,
Christopher Lloyd og
Steve Buscemi.
Happ í hendi
Hemmi Gunn verður á
sínum stað í dagskrá
sjónvarpsins í kvöld að
loknu Dagsljósi með
getraunaþáttinn Happ í
hendi þar sem fólk tek-
ur þátt í spurningaleik
og á möguleika á að
vinna sér inn dágóða
peningaupphæð.
samtengdum rásum til morguns. Veður-
spá.
RÁS 2
6.00 Fiéttir. 6.05 Morgunútvarpið. 6.45
Veðurfiegnir. 7.00 Fréttir - Morgunút-
varpið - Leifur Hauksson og Bjöm Þór
Sigbjörnsson. 7.30 Fréttayfirht. 8.00
Fréttir. „Á níunda tímanum" með Rás 1
og Fréttastofu Útvarps: 8.10 Hér og nú.
8.30 Fréttayfirlit. 8.31 Pistifl. 8.35
Morgunútvarpið heldur áfram. 9.03
Lísuhófl. Umsjón: Lísa Pálsdóttir. 12.00
Fréttayfbht og veður. 12.20 Hádegis-
fréttir. 12.45 Hvítir máfar. Umsjón:
Gestur Einar Jónasson. 14.03 Brot úr
degi. Umsjón: Eva Ásrún Albertsdóttir.
16.00 Fréttir. 16.05 Dagskrá: Dægur-
málaútvarp og fréttir. Starfsmenn dæg-
urmálaútvarpsins og fréttaritaiar heima
og erlendis rekja stór og smá mál dags-
ins. 17.00 Fréttir - Ekki fréttir: Haukur
Hauksson Ðytur. - Dagskrá heldur
áfram. 18.00 Fréttir. 18.03 Þjóðarsálin -
Þjóðfundur í beinni útsendingu. Síminn
er 568 60 90.19.00 Kvöldfréttir. 19.30
Ekki fréttir endurfluttar. 19.32 Milh
steins og sleggju. 20.00 Sjónvarpsfrétt-
ir. 20.30 Nýjasta nýtt. Umsjón: Andrea
Jónsdóttir. 22.00 Fréttir. 22.10 Nætur-
vakt Rásar 2. Umsjón: Ævar Öm Jós-
epsson. 24.00 Fróttir. 00.10 Næturvakt
Rásar 2 til kl. 02.00. Umsjón: Ævar Öm
Jósepsson. 01.00 Veðurspá. Næturtónar
á samtengdum rásum til morguns:
02.00 Fréttir. Næturtónar. 04.30 Veður-
fregnii. 05.00 Fréttir og fréttir af veðri,
færð og flugsamgöngum. 06.00 Fréttir
og fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum. 06.05 Morgunútvaip.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2. Út-
vaip Norðuriands kl. 8.10-8.30 og 18.35-
19.00. Útvarp Austurlands kl. 8.10-8.30
og kl. 18.35-19.00. Svæðisútvarp Vest-
fjarðakl. 18.35-19.00.