Dagur - 08.03.1996, Qupperneq 15
IÞROTTIR
Föstudagur 8. mars 1996 - DAGUR - 15
FROSTI EIÐSSON
Karfa - Úrslitakeppni úrvalsdeildar:
Tindastóll ógnaöi íslands-
meisturunum framan af
- en mátti síöan sætta sig viö stórt tap í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni
Pétur Guðmundsson og félagar í
Tindastóli máttu þola tap í fyrstu
viðureign sinni gegn Njarðvík. Hér
▼ er Pétur í baráttu gegn Þórs-
urum fyrr í vetur. Mynd: BG
Tindastóll lék sinn fyrsta leik í úr-
slitakeppni á íslandsmóti og stóðu
í íslandsmeisturum Njarðvíkur í
fyrri hálfleiknum. í síðari hálf-
leiknum, réði liðið ekki við mik-
inn hraða Njarðvíkinga og ótrú-
legum tilþrifum Teits Orlygssonar
sem skoraði 36 stig í leiknum sem
Iyktaði með öruggum sigri Njarð-
víkur, 102:80. Liðin mætast aftur
á Sauðárkróki á morgun.
Leikur liðanna var í góðu jafn-
vægi lengst af fyrri háifleiknum.
Fimm mínútna kafli um miðbik
hans reyndist Tindastólsmönnum
dýr, heimamenn settu þá niður þrett-
án stig gegn tveimur stigum gest-
anna og komust í 31:19. Tindastóls-
menn tóku þó kipp í lokin, minnk-
uðu muninn í fjögur stig, en ævin-
týraleg þriggja stiga karfa Teits Ör-
lygssonar rataði síðan ofan í á loka-
sekúndum hálfleiksins.
í síðari hálfleiknum sigu meistar-
amir hægt og bítandi framúr. Tinda-
stólsmenn urðu á dýrkeypt mistök í
sóknarleiknum, misstu boltann fjór-
um sinnum á fyrstu mínútunum
hálfleiksins og náðu síðan einungis
að skora sex stig á fyrstu sex mínút-
unum. Auk þess átti Teitur Örlygs-
son stóran þátt í því að í sundur
skildi með liðunum. Hann var ótrú-
legur, úti um allan völl, bæði í sókn
og vöm. Skoraði hreint stórkostleg-
ar körfur og gerði svo að segja eng-
inn mistök. Eftir að Njarðvíkingar
náðu sautján stiga forskoti, 79:62,
þegar sjö mínútur voru til leiksloka
var staða gestanna svo að segja von-
laus. Njarðvíkingar skiptu vara-
mönnum sínum inná, sem skiluðu
hlutverki sínu vel, keyrðu upp hrað-
ann að nýju og örþreyttir Tinda-
stólsmenn máttu síns lítils gegn
þeim.
Teitur Örlygsson var maður
leiksins, en einnig sýndi Rondey
Robinson góðan vamarleik. Njarðv-
íkurliðið tefldi fram þremur bak-
vörður, mest allan síðari hálfleikinn
og náðu því markmiði sínu að
stjóma hraða leiksins.
í liði Tindastóls var Torrey John
mjög sterkur, sérstaklega í fyrri
hálfleik og skoraði þá sextán stig.
Pétur Guðmundsson, sýndi mikla
baráttu, bæði í sókn og vöm. Einnig
stóð Hinrik Gunnarsson, sig vel, þó
sérstaklega í vöminni þar sem hann
hafði gætur á Rondey Robinson.
Hann var hins vegar nokkuð mis-
tækur í færum sínum. EG/fe
Njarðvík-
Tindastóll
102:80
fþróttahúsið í Njarðvík (Ljóna-
gryfjan), 8-liða úrslitakeppni
úrvalsdeildarinnar í körfu-
knattleik.
Gangur leiksins: 8:9, 18:17, 31:19,
40:29, (45:38), 58:44, 71:55, 82:65,
92:79, 102:80.
Stig Njarðvíkur: Teitur Örlygsson
36, Rondey Robinson 15, Jóhannes
Rristbjömsson 13, Friðrik Ragnars-
son 12, Sverrir Sverrisson 11, Krist-
inn Einarsson 10.
Þriggja stiga körfur: 6.
Stig Tindastóls: Torrey John 26,
Pétur Guðmundsson 18, Hinrik
Gunnarsson 15, Ómar Sigmarsson
13, Amar Kárason 5.
Þriggja stiga körfur: 9.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og
Leifur Garðarsson gerðu mikið af
mistökum.. Frekar hallaði á Tinda-
stól.
Áhorfendur: 350.
Hvað sögðu þeir eftir leikinn?
Reyndum allt
„Ég var ánægður með fyrri hálfleik-
inn. Þeir náðu þar sjö stiga mun í lok-
in, með ævintýralegri þriggja stiga
körfu frá Teiti. Við reyndum að hægja
á Njarðvíkingum, okkur tókst það á
kafla. En þegar við misstum þá í
fimmtán stig í síðari hálfleik, var þetta
svo að segja vonlaust," sagði Páll
Kolbeinsson, þjálfari Tindastóls.
„Ég reyndi allt, breytti um vöm, en
þeir settu bara nýju menn inná sem
hittu vel, Það verður náttúrulega allt
annað að spila á heimavelli, með alla
áhorfendur á sínu bandi.“
Ekki tilbúnir
„Þetta var mjög erfiður leikur og við
vorum bara alls ekki tilbúnir. Þetta er
fyrsti leikur okkur í úrslitakeppni og
það er erfitt að byrja gegn núverandi
meisturum, hér í ljónagryfjunni. En
við ætlum að vinna þá heima, með
þúsund manns, sem styðja við bakið á
okkur,“ sagði Hinrik Gunnarsson, fyr-
irliði Tindastóls.
Gefur ekki rétta mynd
„í fyrsta leik mótsins, gegn Tindastóls
vorum við með nýjan þjálfara, sem
var að reyna nýja hluti. Það tekur allt-
af tíma að læra á mannskapinn. Við
höfum verið á góðri siglingu, enda
höfum við ekki tapað leik síðan í nóv-
ember,“ sagði Teitur Örlygsson, úr
Njarðvík sem var besti maður vallar-
ins.
„Við náðum góðu forskoti í síðari
hálfleik og í stað þess að hanga á því,
ákváðum við að gefa allt sem við
höfðum. Tindastólsmenn tóku virki-
lega á og tuttugu stiga munur í lokin,
gefur ekki rétta mynd af getu liðanna.
Leikurinn fyrir norðan verður brjál-
æði.“
Kraftlyftingar:
Ágætur árangur
á íslandsmótum
Heiðar Sigurhjartarson, úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar, setti íslandsmet í
hnébeyju í drengjaflokki þegar hann lyfti 180 kg í hnébeygju. Hér sést hann
í metlyftu sinni.
íslandsmót unglinga og öldunga í
kraftlyftingum fóru fram um síð-
ustu helgi í Kraflyftingasal í
Reykjavík. Norðlendingar fjöl-
menntu á mótið og áttu ellefu kepp-
endur af 24, þar af komu tíu þeirra
frá Akureyri.
Ágætur árangur náðist á mótinu,
nær allir keppendur í unglingaflokkn-
um bættu árangur sinn en aðeins eitt
met féll á mótinu. Það var Heiðar Sig-
urhjartarson frá Akureyri, sem á sínu
fyrsta móti setti drengjamet í hné-
beygju, með því að lyfta 180 kg. Hann
reyndi við 100 kg í bekkpressunni og
192,5 í réttstöðulyftu, sem
hvorutveggja eru íslandsmet og var
ekki langt frá því. Heiðar verður því
að teljast líklegur til að bæta metin á
næsta móti, sem er Akureyrarmótið,
sem haldið verður í maí.
Svavar Einarsson frá Reykjavík
varð stigahæsti keppandi mótsins, en
hann lyfti 630 kg í 100 kg flokknum.
Flosi Jónsson frá Akureyri náði best-
um árangri öldunga, lyfti 700 kg sam-
tals. Annars var árangur í einstökum
flokkum unglinga þessi. Fyrst er sam-
anlögð þyng í kílóum og þá árangur í
hnébeygju, bekkpressu og réttstöðu-
lyftu.
- 75 kg flokkur:
1. ísleifur Ámason, Egilst. 447,5
(Hnéb 135 - bekk 140 - réttst. 175)
2. Halldór B. Halldórsson, A 420
(Hnéb 150 - bekk. 105 - réttst. 165)
3. Erlingur Örlygsson, A 352,5
(Hnéb 135 - bekk 80 - réttst. 137,5)
- 82,5 kg flokkur:
1. Sigtryggur Símonarson, A 500
(Hnéb. 210 - bekk. 90 - réttst. 200
2. Sæmundur Hildimúndarson, Reykj-
av 480
(Hnéb. 180 - bekk. 120 - réttst. 180
3. Amþór Örlygsson, A 395
(Hnéb. 150 - bekk. 90 - réttst. 155)
- 90 kg flokkur:
Helgi Guðnason, R 545
(Hnéb. 205 - bekk. 135 - réttst. 205)
Olafur Pálsson, Egilst. 442,5
(Hnéb. 145 - bekk 115 - réttst. 182,5)
Jóhann Jóhannsson, A 435
(Hnéb. 165 - bekk. 110 - réttst. 160
-100 kg flokkur:
Svavar Einarsson, R 630
240 hnéb. - 140 bekk - 250 réttst.)
Ólafur Eyjólfsson, R 500
(Hnéb. 150 - bekk. 120 - réttst. 230
Sigurður Áki Sigurðsson, A 377,5
(Hnéb 150 - 72,5 bekk -155 réttst.)
110 kg flokkur:
Heiðar Sigurhjartarson, A 445
(Hnéb. 180 - 90 bekk -175 réttst.)
Þorbjörn Þorbjömsson, Húsav. 405
(Hnéb. 155 - bekk. 115 - réttst. 135)
Öldungaflokkur:
Flosi Jónsson frá Akureyri náði góð-
um árangri í 110 kg flokki öldunga.
Hann varð stigahæsti keppandinn í
öldungaflokknum, lyfti 700 kg sam-
tals. Hann reif upp 265 kg hnébeyju,
lyfti 170 kg á bekknum og fór upp
með 265 kg í réttstöðulyftu.
Karfa - Úrslitakeppni:
Haukar sigruðu
Haukar sigmðu ÍR í spennandi
leik liðanna í íþróttahúsinu við
Strandgötu. Lokatölur urðu 71:69.
Liðin mætast aftur á morgun á
heimavelli ÍR.
Handbolti:
Fýrsti leikur
KA og Selfoss
Fyrsti leikur KA og Selfoss í úr-
slitakeppninni í handknattleik fer
fram í KA-heimilinu á sunnudags-
kvöld. Leikurinn hefst klukkan
20. Það lið sem fyrr sigrar í tveim-
ur leikjum kemst áfram, en önnur
viðureign liðanna fer frarn á Sel-
fossi á þriðjudagskvöld. Ef liðin
þurfa þriðja leik, fer hann fram á
Akureyri n.k. fimmtudagskvöld.
Allan Johnson
með liði SA
Skautafélag Reykjavíkur og
Skautafélag Akureyrar mætast í
fyrsta leik sínum í úrslitakeppni
liðanna um íslandsmeistaratitilinn
í íshokkí. Leikurinn á að fara fram
á skautasvellinu í Reykjavík, ann-
að kvöld, vegna ófullnægjandi
vallaraðstæðna á Akureyri. SA-
menn hafa kallað á Allan Johnson,
Vestur-íslending til að leika með
liðinu. Johnson er reyndur mark-
vörður, en kann jafnframt ýmis-
legt fyrir sér sem útispilari.
Skíðaganga:
Bikarmót
Ákveðið hefur verið að halda Bik-
ar- og punktamót í skíðagöngu á
Akureyri um helgina. Þátttakend-
ur verða frá Akureyri, ísafirði,
Siglufirði og Ólafsfirði.
Keppt verður í hefðbundinni
göngu á Bikarmótinu á laugardag
og hefst keppnin klukkan 11. A
sunnudaginn fer fram punktamót
Þórs, þar sem gengin er boðganga
með frjálsri aðferð og hefst mótið
klukkan 11.
Vélsleðamót
Kappakstursklúbbur Akureyrar
mun í samvinnu við vélsleðamenn
í Ólafsfirði efna til snow-cross-
móts í Syðri-Árdal í Ólafsfírði á
morgun. Keppt verður í flokkum
undir þúsund rúmsentimetra
(óvanir) og yfir (vanir). Skráningar
eru í síma 461-2062 og 463-1440.
Keppendum ber að mæta klukkan
12:30 með sleða sína til skoðun en
keppni hefst klukkan 14.
Móti aflýst
Fyrirhuguðu innanhússmóti 30 ára
og eldri, sem halda átti í íþrótta-
höllinni á Akureyri um næstu
helgi hefur verið aflýst vegna þátt-
tökuleysis.
Hamar
félagsheimili Þórs:
MARSTILBOÐ
Nýjar perur í ljósabekkjunum
Frábært verð:
Stakur tími fyrir kl. 14.00 kr. 250,-
Eftir kl. 14.00 kr. 350,-
Þórsarar, mætið í morgunkaffi
á föstudögum kl. 09.00
Hamar
sími 461 2080