Dagur - 15.03.1996, Qupperneq 1
Tvöfaldurl. vinningur
79. árg.
Akureyri, föstudagur 15. mars 1996
53. tölublað
Tímamót í menntun leikskólakennara á íslandi:
Námsbraut stofnuö við
Háskólann á Akureyri
- námið samþætt námi grunnskólakennara
Menntamálaráðuneytið hefur
heimilað Háskólanum á
Akureyri að stofnsetja náms-
braut í leikskólakennslu við
kennaradeild háskólans. Námið
í leikskólakennslu er þriggja ára
nám, eða 90 einingar, og lýkur
með B. Ed. prófgráðu.
Hér er um merkan áfanga að
ræða í íslenskri skólasögu, þar
sem þetta er í fyrsta skipti sem
nám fyrir leikskólakennara er
formlega skipulagt á háskólastigi
og samþætt eftir því sem kostur
er, námi grunnskólakennara.
Námið er talið mikilvægur þáttur í
að efla starfsemi Háskólans á Ak-
ureyri og kennaradeild hans.
Kennsla á námsbraut í leikskóla-
kennslu mun hefjast strax á næstu
haustönn, þ.e. næsta haust, enda
þörfin brýn því mikill hörgull er á
menntuðum leikskólakennurum,
ekki síst á landsbyggðinni.
Skipaður hefur verið starfshóp-
ur til að vinna að námslýsingu og
gera tillögur að inntöku nemenda
á leikskólabraut. Formaður er dr.
Ingólfur Á. Jóhannesson, lektor í
kennaradeild, en aðrir nefndar-
menn Guðrún Alda Harðardóttir,
formaður Félags íslenskra leik-
skólakennara, og Trausti Þor-
steinsson, fræðslustjóri Norður-
landsumdæmis eystra, en starfs-
maður Anna Þóra Baldursdóttir,
lektor. GG
Hjóla sem
á sumar-
degi
í stað þess að krakkarnir renni
sér á sleðum eða snjóþotum,
hafa reiðhjólin verið dregin fram
úr hjólageymslunum. Þessi ungu
hjólreiðamenn voru að hjóla upp
Háuhlíð á Akureyri þegar ljós-
myndara Dags bar að í gær.
óþh/Mynd:BG
Kæru vegna lostugrar myndbirtingar á Internetinu vísað frá:
Ríkissaksóknari segir engin
rök til frekari rannsóknar
Rannsókn á kæru vegna
myndbirtingar á Internetinu
er tengist ákæru ríkissaksókn-
ara á hendur manni sem hlaut
30 daga skilorðsbundinn fang-
elsisdóm fyrir kynferðisafbrot
gagnvart 18 ára pilti í septem-
bermánuði sl., hefur verið vísað
frá þar sem rannsókn Ríkissak-
sóknara leiddi ekki til neinnar
niðurstöðu. Dæmdi á að hafa
með lostugu athæfí sært blygð-
unarsemi piltsins og sýnt honum
kynferðislega áreitni og tengist
myndbirtingin því athæfí.
Frumrannsókn fór fram af
hálfu Rannsóknarlögreglunnar á
Akureyri og kom Rannsóknarlög-
regla ríkisins einnig að þeirri
rannsókn, sem m.a. beindist að
þvf að finna út hver hefði komið
umræddri mynd inn á Intemetið.
Að lokinni rannsókn var málið
sent Ríkissaksóknara, sem síðan
felldi það niður, þar sem ekki
tókst að finna þann sem hlut átti
að máli. í bréfi Ríkissaksóknara til
sýslumannsembættisins á Akur-
eyri segir m.a.:
„Ljóst er að allnokkur vinna
hefur verið lögð í rannsókn þessa
máls en jafnframt virðist ljóst að
litlar líkur em á að takist að upp-
lýsa málið. Að svo vöxnu máli
þykja ekki efni til að mæla fyrir
um frekari rannsókn en komi eitt-
hvað það fram sem þætti geta orð-
ið til frekari upplýsinga um hina
Leikklúbbur Framhaldsskól-
ans á Húsavík, Piramus og
Þispa, sýndi á árshátíð skólans
nýverið skopstælingu á sjón-
varpsþættinum „Þeytingur“ við
miklar vinsældir, svo miklar að
ákveðið hefur verið að sýna leik-
inn fyrir almenning, en dagsetn-
ing þeirrar sýningar er enn
óákveðin, þó líklega strax eftir
páska.
Alls taka um 15 nemendur þátt
í uppfærslu á „Þeytingi" Fram-
haldsskólans á Húsavík, en hlut-
verk stjómandans, Gests Einars
Jónassonar, leikur Kristján Þór
Magnússon og ferst það listavel úr
hendi. „Þeytingur“ Ríkissjón-
varpsins fer sem kunnugt er þvers
meintu, ólöglegu dreifingu, ber að
taka málið til rannsóknar eftir því
sem efnisþættir standa þá til.“ GG
og kruss um landið en í uppfærslu
nemenda Framhaldsskólans á
Húsavík er hann látinn gerast á
Hesteyri. Hvort það er Hesteyri í
Jökulfjörðum við ísafjarðardjúp
skal ósagt látið. Höfundur leik-
verksins er Oddur Bjami Þorkels-
son frá Hvoli í Aðaldal en Borgar
Garðarsson á Akureyri útsetti tón-
listina sem flutt er, en það eru
þekkt lög við íslenska texta Odds
Bjama Þorkelssonar. Margrét
Sverrisdóttir, talsmaður Piramusar
og Þispu, segir að til tals hafi
komið á bjóða Gesti Einari á sýn-
inguna ef það sé þorandi því gert
sé góðlátlegt grín að honum. Nafn
leikklúbbsins er fengið úr verkum
Williams Shakespieres. GG
„Þeytingur"
á Hesteyri
- skopstæling sjónvarpsþáttar flutt af
nemendum Framhaldsskólans á Húsavík
Lágheiðin opin
Starfsmenn Vegagerðarinn-
ar á Sauðárkróki luku síð-
degis í gær við að opna Lág-
heiðina, veginn milli Óiafs-
Qarðar og Fljóta. Sjaldgæft er
að heiðin sé opnuð svo
snemma árs en alls ekki eins-
dæmi, að sögn Gísla Felixson-
ar, rekstrarstjóra Vegagerðar-
innar á Króknum.
Snjór á heiðinni var að hans
sögn minni en oft er í vor-
mokstri en engu að síður tók
þrjá daga að opna veginn. Helg-
ast það af því að harðfenni var
mikið. Opna átti heiðina með
blásara en frá þvt varð að hverfa
og notast við stórar hjólaskófl-
ur. „Meginhlutinn af þessum
snjó hefur fallið í októberbyln-
um eða Flateyrarveðrinu og
liann var geysilega erfiður,"
sagði Gísli.
Heiðin er nú fær öllum bílum
en mikil svell eru á háheiðinni og
eins í Heiðarhallinu. Þá segir
Gísli frost hafa lyft veginum á
nokkmm stöðum og ekki ólíklegt
að setja þurfi þungatakmarkanir
ef hlýtt verður áfram. HA
Marauö jörö um allt Norðurland:
„Andrésarmenn
hvergi smeykir"
Nei, við erum hvergi
smeykir við snjóleysi og
unnið er að undirbúningi
áfram af fullum krafti,“ sagði
Gísli Kr. Lórenzson, formaður
framkvæmdanefndar Andrés-
ar andarleikanna í skíða-
íþróttum barna og unglinga,
sem verða á Akureyri í lok
apríl.
Búist er við 800 til 900 kepp-
endum og koma þeir allir úr
yngstu aldursflokkunum.
„Við höfum áður sé marauða
jörð, en aldrei hefur komið til
þess að fresta hafi þurft leikun-
um eða aflýsa þeim. Þess vegna
höldum við okkar striki,“ sagði
Gísli.
„Mér sýnst þetta ætla að falla
um sjálft sig, að svo komnu
máli,“ sagði Hallgrímur Halls-
son hjá skíðadeild Völsungs, en
skíðamót var fyrirhugað á
Húsavík um páskana. Marauð
jörð er nú á Húsavík og skíða-
iðkun er Húsvíkingum nú fjarri
í hugsun. -sbs.