Dagur - 15.03.1996, Blaðsíða 6

Dagur - 15.03.1996, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 15. mars 1996 Háskólanemar sýna söngleik Á árshátíð Háskólans á Akureyri annað kvöld, laugardagskvöld, í Sjallanum, frumsýna 20 háskóla- nemar söngleik undir leikstjóm Aðalsteins Bergdals. Söngleikur- inn fjallar um ungan sveitapilt úr Hörgárdal, sem bregður sér til Reykjavíkur (í draumi) og lendir þar í ýmsum ævintýrum. synmgui Listasafni Kópavogs Sólveig Baldursdóttir, mynd- höggvari á Akureyri, opnar höggmyndasýningu í Listasafni Kópavogs, Gerðasafni, á morg- un, laugardag, kl. 16. Sólveig stundaði nám á lista- sviði Fjölbrautaskólans í Breið- holti 1978-1980, Myndlista- og handíðaskólans 1980-1982 og í höggmyndadeildinni við Kunst- akademiel í Odense í Dan- mörku 1983-1987. Sólveig bjó og starfaði í Carrara á Ítalíu á árunum 1990-1994. Hún hefur tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis en þetta er hennar fyrsta einkasýning á ís- landi. Flest verkin eru unnin í marmara. Sýningin stendur yfir frá 16. mars til 8. apríl og er op- in alla daga nema mánudaga frá kl. 12 til 18. Sólveig Buldursdóttir á vinnustofu sinni á Akureyri, en hér er hún að vinna verk fyrir Höldur hf. Saumastofan í kvöld Leikdeild Ungmennafélags Skriðuhrepps sýnir í kvöld kl. 20.30 Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjóm Aðalsteins Bergdals. Sýningin í kvöld er sú sjötta í röðinni og hefur verið upp- selt á allar sýningar til þessa og uppfærslan fengið ágætis viðtök- ur. Miðapantanir í símaum 4626793 og 4626794 á milli 17 og 20. Tónleikar og námskeið á Húsavík Um helgina, á morgun laugardag og á sunnudag, efnir Tónlistarskóli Húsavíkur til námskeiðs þar sem lögð verður áhersla á hreyfingu í söng og verður áhersla lögð á negrasálma. Bæði verður á nám- skeiðinu söngfólk og einnig trommuleikarar. Leiðbeinandi verður Orville Pennant, sem kemur frá Kramhúsinu í Reykjavík. Afrakstur námskeiðisins verður fluttur á tónleikum á sal Borgar- hólsskóla á Húsavík nk. sunnudag, 17. mars, kl. 16. Þar koma fram Stúlknakór Húsavíkur, Bama- og unglingakór Akureyrarkirkju, Bamakór Borgarhólsskóla og jass- kórinn NA-12 auk hljómsveitar. Gospeltónleikar í Glerárkirkju Gospeltónleikar verða haldnir í Glerárkirkju á Akureyri á morgun, laugardaginn 16. mars, og hefjast þeir kl. 21. Tónleikamir em liður í Gospel-helgi, sem ungu fólki úr ýmsum söfnuðum og æskulýðsfé- Íögum á Akureyri og Reykjavík hefur verið boðið til. Búist er við um 60 þátttakendum sem mynda stóran kór og æfa skemmtilega gospeltónlist og árangurinn gefst Norðlendingum kostur á að heyra á tónleikunum. Með kómum syngja góðir einsöngvarar og undirleik annast færir hljóðfæraleikarar. Enn er möguleiki fyrir ungt fólk sem vill vera með að skrá þátttöku sína í síma 4624406, þar sem allar nán- ari upplýsingar fást. Aðgangur á tónleikana í Glerárkirkju er ókeyp- is. Gönguferð á Þorvaldsdal Á morgun, laugardag, stendur Ferðafélag Akureyrar fyrir göngu- ferð í Þorvaldsdaí. Lagt verður af stað kl. 8. Skráning fer fram á skrifstofunni í dag, föstudag, kl. 17.30-19. Síminn er 4622720. Deiglunni kl. 10.30 í fyrramálið, laugardag. Guðmundur Hálfdánar- son, dósent, nefnir fyrirlestur sinn; „Hvað er það sem gerir íslendinga að þjóð? - nokkrar hugleiðingar um uppruna og eðli þjóðemis“. Guðmundur Hálfdánarson hefur verið framarlega í gagnrýnni um- ræðu um hina svokölluðu „þjóð- ernislegu söguskoðun íslendinga". Eftir fundinn verða almennar umræður um efni fyrirlestursins. „Sumar á Sýrlandi“ í Freyvangi Annað kvöld, laugardagskvöld, kl. 21, frumsýnir Freyvangsleikhúsið Sumar á Sýrlandi, blandað söng- verk með uppákomum. Verkið er byggt á samnefndri plötu Stuð- manna, sem út kom á áttunda ára- tugnum og náði miklum vinsæld- um flestra aldurshópa. Mikið er sungið í sýningunni, sem Skúli Gautason leikstýrir, en söguþráðurinn er að öllu leyti unninn af flytjendunum undir stjórn Skúla. I grófum dráttum má segja að þarna sé á ferðinni brot af þroskasögu ungs manns, Andrés- ar, sem er að stíga út í lífið og til- veruna, skemmtanalífið og kvennaleitina. Andrés lendir, ásamt félögum sínum, í margvís- legum hremmingum og upplifun- um, sem hann skilur misvel, enda nokkuð óþroskaður að sumu leyti. Sýningin einkennist af hraða, söng-, lita- og leikgleði og gaman- samtölum. Uppistaðan í leikhópn- um er nýstofnaður kór Frey vangs- leikhússins undir stjóm Karls Ol- geirssonar, sem hefur veg og vanda af þjálfun söngfólksins. Undirleik í sýningunni annast hljómsveitin Damaskus. Sýningar á Sumri á Sýrlandi eru fyrirhugaðar næstu helgar, föstudags- og Iaugardagskvöldum kl. 21, í Freyvangi. Einnig verður boðið upp á sérstakar sýningar fyrir skóla. Alhliða veitingasala verður líkt og síðasta vetur, í gamla kvennaskólanum á Lauga- landi, fyrir og eftir sýningar, í samráði við rekstraraðila í Hótel Vin. Allar upplýsingar og pantanir vegna kvöldverðar er að fá í síma 4631333, Blómaskálanum Vín. Miðapantanir og upplýsingar um sýningar Freyvangsleikhússins er að fá í símum 4631196 og 4631395. Nánar verður fjallað um sýn- ingu Freyvangsleikhússins á „Sumar á Sýrlandi" í Degi á morgun. Fyrirlestur um söguskoðun íslendinga Sagnfræðingafélag Akureyrar gengst fyrir opnum fyrirlestri í Kurlakórinn Hreimur í Suður-Þingeyjarsýslu. Hreimur í Laugarborg Karlakórinn Hreimur í Suður- Þingeyjarsýslu heldur söng- skemmtun í Laugarborg í Eyja- fjarðarsveit í kvöld, föstudag, kl. 20.30 og verður þar boðið upp á skemmtilega og létta söngskrá. Kórinn verður svo með söngskemmtun í félags- heimilinu Skúlagarði í Keldu- hverfi miðvikudagskvöldið 20. mars og loks í Ýdölum í Aðal- dal laugardagskvöldið 30. mars. Stjórnandi er Robert Faulkner. í Ýdölum munu auk karla- kórsins þeir Rangárbræður, Baldvin og Baldur Baldurssyn- ir, syngja saman dúetta og ein- söng hver í sínu lagi, hagyrð- ingar munu mæta og skemmta gestum, boðið verður upp munnhörpuleik og harmoniku- leik og einnig mun bamakór Hafralækjarskóla syngja nokkur lög. Karlakórinn Hreimur stefnir síðan að tónleikum á Blönduósi og í Skagafirði laugardaginn 13. aprfl og að hefðbundnum vortónleikum á Húsavík og í Ýdölum í Aðaldal í maímánuði. Þessi mynd var tekin á einni af sýningum LD á „Ég ætla út í kvöld“ í Ungó á Dalvík. Hér tekur Kristjana Arngrímsdóttir, ein fjórmenning- anna í Tjarnarkvartettinum, lagið við undirleik þriggja hljóðfæraleikara. Leikfélag Dalvíkur sýnir í Deiglunni í kvöld Leikfélag Dalvíkur frumsýndi f Ungó á Dalvík í janúar sl. söngvasýninguna „Ég ætla út í kvöld", þar sem tvinnað er sam- an í tveggja klukkustunda sýn- ingu fjölmörgum tónlistaratrið- um, þar sem við sögu koma þekkt lög af ýmsum toga sem fólk ætti að þekkja. Ellefu manns koma fram í sýningunni og skiptast þátttakendurnir í alls tíu hljómsveitir og sönghópa. Þessi sýning LD hefur feng- ið afbragðs góðar viðtökur jafnt áhorfenda sem gagnrýnenda og hafa sýningarnar orðið mun fleiri en gert var ráð l'yrir í upp- hafi. Nú hyggjast félagar í LD gefa Akureyringum kost að njóta þessarar dagskrár og verð- ur hún í Deiglunni í Grófargili í kvöld kl. 20.30.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.