Dagur


Dagur - 15.03.1996, Qupperneq 2

Dagur - 15.03.1996, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 15. mars 1996 FRÉTTIR Skotið fyrst og spurt svo - segir Jónas Vigfússon, sveitarstjóri í Hrísey, um uppsögn sína Eins og fram kom í Degi í gær hefur hreppsnefnd Hríseyjar- hrepps sagt upp launasamningi við Jónas Vigfússon sveitar- stjóra. Segist Jónas ekki geta metið málið á annan veg en þann að honum hafi verið sagt upp störfum og mun hann hætta þann 10. maí nk. Rök- semdir hreppsnefndar eru þær að kostnaður við yfirstjórn sveitarfélagsins sé of hár en hann nemur um 6 milljónum. „Það kemur á hverju ári upp umræða um að kostnaður við yfirstjóm sé of hár. I samanburði við tekjur eða fjölda íbúa er þessi tala há en ef þú berð þetta saman við þann flókna og viðamikla rekstur sem þessi yfirstjóm á að stjóma er þetta ekki hátt. Vanda- málið er fyrst og fremst hvað sveitarfélagið er lítið,“ sagði Jón- as. Þetta er annað kjörtímabilið sem hann er sveitarstjóri í Hrfsey og eftir síðustu kosningar var samstaða unr að hann yrði áfram. „Ég setti fram ákveðnar launa- kröfur. Það var gengið að þeim og hreppsnefnd vissi að ég var tilbúinn að taka þetta að mér fyr- ir þessi laun en ekki önnur. Sá ráðningarsamningur var sam- þykktur og í mínum huga hefur ekkert breyst síðan. Forsendur eru allar þær sömu og af þeirri ástæðu ekki tilefni til að lækka launin," sagði Jónas. Aðspurður um laun sín sagði hann þau svip- uð og hann myndi hafa á verk- fræðistofu á Akureyri, en hann er menntaður verkfræðingur. A hreppsnefndarfundi sl. þriðjudag bókaði Þómnn B. Am- órsdóttir, oddviti, að hún biðjist afsökunar fh. hreppsnefndar að launasamningi við sveitarstjóra skuli hafa verið sagt upp frá 21. febrúar í stað mánaðamóta eins og sveitarstjórnarlög kveða á um. Jónas Vigfússon. Narfi Björgvinsson, varaoddviti, var einnig með bókun þar sem sem hann segir uppsögnina gerða með vitund allra aðalmanna í hreppsnefnd. Orðrétt segir: „Minni ég á forsögu þessa, þ.e. fund sem sveitarstjóri átti með oddvita og varaoddvita seint í desembér en þar voru hafnar við- ræður í þessa átt sem e.t.v. má segja að hafi aldrei verið lokið við og má segja að uppsögn þessi kalli á lok þeirra viðræðna. Þegar því væri lokið væri hægt að taka ákvörðun um það hvort segja ætti sveitarstjóra upp störf- um. Harma ég hve mál þetta er langt gengið án viðræðna og skora á aðila þess að líta í eigin barm og leita sátta þeirra sem all- ir geta sætt sig við.“ Undir þetta tekur Jónas. „Það má kannski segja að það hafi verið skotið fyrst og spurt svo,“ sagði hann. Narfi kom með tillögu um samninganefnd sem ræða myndi við sveitarstjóra og var það sam- þykkt. Að sögn Jónasar er fyrir- hugaður fundur í næstu viku. HA Blóma- gámurinn losaður Eins og komið hefur fram mun Blómaval í Reykjavík opna versl- un í Glerhúsinu svokallaða á Ak- ureyri og er stefnt að opnuninni laugardaginn 23. mars nk. Glerhúsið hefur um hríð staðið autt, en nú er að færast í það líf og í gær þegar ljósmyndari Dags átti þarna leið hjá, var verið að losa gám frá Hollandi með blóm- um og pálmum. Að sögn fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins verð- ur Blómaval með allt húsið. Hluti af því verður tekinn undir veitingasölu, en í bróðurparti hússins verða seld blóm og ýms- ar vörur sem tengjast blómarækt auk gjafavöru. Sápubúðin, sem verið hefur í Krónunni, verður að sögn framkvæmdastjórans, lögð niður en Blómaval selur þær vör- ur í Glerhúsinu sem Sápubúðin hefur verið með á boðstólum. óþh Rekstur KEA á síöasta ári: Hvergi gengið alveg nógu vel - segir stjórnarformaður KEA Sakar Kaupfélag Skagfiröinga fyrir meinta misnotkun á vörumerki í ferskgrasframleiöslu: Lögbannskrafa tekin fyrir Kaupfélag Eyfirðinga var rekið með 44 milljóna króna tapi á ár- inu 1995 en heildarvelta KEA og dótturfyrirtækja þess var 9,4 milljarðar króna; tekjur 8,8 milljarðar króna og rekstrar- gjöld 8,7 milljarðar króna. Jóhannes Sigvaldason, stjóm- arformaður KEA, segir að gengis- felling á dollara og pundi í árs- byrjun 1995 hafi haft veruleg áhrif á reksturinn og ljóst að sú gengisbreyting kom mjög illa við fiskvinnsluna en gengistapið skaðaði KEA um 50 milljónir króna. Einnig hafi frystihús KEA á Dalvík og Hrísey fengið minna af verðmeiri fisktegundum til vinnslu vegna niðurskurðar þeirra tegunda í kvóta og jafnframt varð almenn hækkun á hráefninu. „Reksturinn hefur hvergi geng- ið alveg nógu vel, en rekstur frystihúsanna var mjög slæmur, tekjur þeirra lækkuðu um 60 milljónir króna milli ára. Kaupfé- lagið á í harðri samkeppni í versl- uninni og verðlag hefur ekki hækkað en við erum „ofanjarðar" þar þó ekki sé hagnaðurinn mikill. Það voru uppi miklar efasemdir um það að við mundum halda okkar verðum eftir að Bónus fór héðan en við liöfum staðið við það. Það er hins vegar dýrara að fá vörur erlendis frá til Akureyrar Sparisjóöur Þórshafnar og nágrennis: Halldór Karl ráðinn spari- sjóösstjóri Stjóm Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis hefur ráðið Halldór Karl Hermannsson, sveitarstjóra á Suðureyri við Súgandafjörð, sparisjóðsstjóra og mun hann hefja störf um miðjan maí næst- komandi. óþh en til Reykjavíkur og að hluta til má líta á verslun Kaupfélagsins sem þjónustu. Við erum t.d. með verslanir á Grenivík, Hrísey og Grímsey sem eru ekki mjög arð- bærar og þegar rekin er verslun á Akureyri með mjög lág verð, þ.e. Nettó, verður reksturinn á þessum stöðum erfiðari. Vera kann að ein- hverjar breytingar séu fyrirhugað- ar í verslunarrekstrinum, en frá þeim verður þá skýrt á aðalfundi KEA, sem haldinn verður eftir um hálfan mánuð. Unnið er að hag- ræðingu í fyrstihúsunum á Dalvík og í Hrísey. í septembermánuði á sl. ári keyptum við hlut í Snæfellingi hf. í Olafsvík og þar með í togaranum Má, og höfum við fengið bolsfisk- inn hingað norður til vinnslu. Það ríkti nokkur bjartsýni í þjóðlífinu á síðasta ári, þjóðhagsspá góð, og við þannig aðstæður losnar um allt en hagvöxturinn í versluninni er enginn frekar en í landvinnslunni í sjávarútveginum, hann fyrirfinnst helst í tölvufyrirtækjum og einhverjum slíkum þjónustufyrir- tækjum,“ sagði Jóhannes Sig- valdason. „Það hafa verið lagðir verulegir fjármunir í vatnsútflutningsfyrir- tækið AKVA og verulegt tap á rekstrinum. Ut af því að við tók- um það stökk að fara í þennan vatnsútflutning árið 1992 þá höld- um við eitthvað áfram í þeirri von að þeir peningar sem í þetta hafa farið skili einhverjum arði. Það er mjög erfitt að komast inn á smá- sölumarkaðinn í Bandaríkjunum og það er auk þess nóg af vatni til drykkjar í Bandaríkjunum en sal- an hefur þó heldur verið að sni- glast upp á við, en gengur mun hægar en gert var ráð fyrir. Salan er á vegum hlutafélags sem KEA rekur í Bandaríkjunum og heitir AKVA-USA. Kaupfélagið er nú hætt að setja fjármagn í vatnsút- flutninginn," sagði Jóhannes Sig- valdason, stjómarformaður Kaup- félags Eyfirðinga. GG Tekin verður fyrir í dag hjá sýslumanninum á Sauðárkróki lögbannskrafa Sigurbjörns Á. Friðrikssonar á hendur forráða- mönnum Kaupfélags Skagfírð- inga fyrir notkun félagsins á vörumerkinu Arctic Grass. Merkið, bæði í letur- og mynd- formi, er skráð eign Sigurbjörns. Merkið og þekkingu við fram- leiðslu á ferskgrasi lagði Sigur- björn í púkkið þegar hann og Kaupfélagið hófu framleiðslu á þessari afurð sumarið 1992. Samstarfinu lauk á síðasta ári með uppsögn af hálfu KS, en þá hafði Sigurbjörn einnig hafið umboðssölu á graskögglum frá félaginu. Að sögn Sigurbjörns var geng- ið frá einkaleyfisskráningu hans á merkinu Arctic Grass í tvígang, fyrst 1991 og aftur síðasta vor. Hann segir að á síðasta ári hafi Kaupfélag Skagfirðinga borið ví- urnar í merki þetta og sent inn beiðni til Vörumerkjaskrár um að fá það skráð sér. Það hafi ekki gengið eftir. Hins vegar hafi þeir, án neinna leyfa, látið prenta gras- kögglapoka með skráðu mynd- merki því sem hann var réttilega eigandi að og undir var nafn Kaupfélagsins og helstu símanúm- er þess. „Þetta var í júlí á síðasta ári og ég fór þá strax til lögmanns míns og óskaði eftir því að þessir pokar yrðu ekki notaðir, þar sem ég ætti vörumerkið. Skriflegt lof- orð þar að lútandi fengum við strax frá Einari Baldurssyni, rekstrarstjóra landbúnaðarsviðs Kaupfélagsins. Fljótlega var mér sagt upp störfum hjá félaginu,“ sagði Sigurbjörn. Sigurbjöm segist ætla að halda áfram framleiðslu á ferskgrasi og sölu á graskögglum frá öðrum. Sé hann í samstarfi við aðila þar um. Hins vegar sé hann í einskonar herkví sem stendur, þar sem Kaupfélag Skagfirðinga sé með í notkun vörumerki sem hann rétti- lega eigi. Snýst lögbannskrafa Sigurbjörns um notkun Kaupfé- lagsins á þessu vörumerki, að henni verði hætt og grasköggla- pokar þess, með merkjum hans verði ekki notaðir. Pokarnir, með vörumerki Sigurbjöms, eru til í tugum þúsunda eintaka, að hans sögn. Fyrir utan lögbannskröfuna sem úrskurðað verður um í dag hefur Sigurbjöm jafnframt kært meintan stuld Kaupfélags Skag- firðinga á vörumerkinu til RLR. Jafnframt sakar hann forráðamenn félagsins um rógburð um sig og hann hafi stefnt frekari viðskipt- um sínum með ferskgras á öðrum vettvangi í hættu. Kærur þessar verða nú sendar frá RLR til ríkis- saksóknara til umfjöllunar. -sbs.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.