Dagur - 15.03.1996, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Föstudagur 15. mars 1996
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN:
AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON,
HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGISÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir),
BLAÐAMAÐUR HÚSAVÍK- SÍMI Á SKRIFSTOFU 464 1585,
FAX 464 2285. HEIMASÍMI BLAÐAMANNS 464 3521
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
---LEIÐARI--------------------------------------------------------------
Gangur atvinnulífsíns
Víða úti á landi í smærri byggðarlögum eru eðlilega skýr tengsl milli fjárhagsstöðu sveitarfélaganna og af-
komu atvinnulífsins. Þessa má víða sjá dæmi þar sem einhæft atvinnulíf er undirstaðan. Peningakúrfan stefnir
upp og niður í takt við uppgang eða niðurgang atvinnulífsburðarásanna.
Gott dæmi um þetta er Skútustaðahreppur og Kísiliðjan, en eins og fram kom í Degi í gær er gert ráð fyrir
umtalsverðum tekjuauka sveitarfélagsins í ár miðað við sl. ár vegna uppsveiflu í rekstri Kísihðjunnar. Haft er
eftir Sigurði Rúnari Ragnarssyni, sveitarstjóra, að áætlað sé að tekjur sveitarfélagsins i ár nemi 96 milljónum
króna samanborið við 60 milljónir króna í fyrra, sem er ótrúleg tekjuaukning. Þetta sýnir svart á hvítu hversu
þýðingarmikið eitt fyrirtæki getur verið fyrir atvinnulíf í einu sveitarfélagi, en hitt er svo annað mál að fyrir
byggðaþróun úti í hinum dreifðu byggðum getur ekki verið æskileg staða að byggja atvinnulífið á einum stór-
um burðarás. En það er einmitt vandamálið víða úti á landi, að þar vantar smærri iðnfyrirtæki til að styrkja
stoðir atvinnulífsins og þau hggja ekki á lausu.
Mótmælaflóð
Miðað við það flóð símbréfa sem borist hefur ritstjóm Dags síðustu dag, má ætla að þorri opinberra starfs-
manna sé á suðupunkti vegna breytinga á ýmsum réttindum þeirra, hvað varðar Lífeyrissjóð opinberra starfs-
manna, réttindi og skyldur þeirra og sáttastörf í vinnudeilum. Fuhyrða má að mörg ár séu síðan jafn margar
mótmælaályktanir hafi verið samþykktar um aht land og vegna fmmvarpa og frumvarpsdraga ríkisstjórnarinn-
ar sem snerta áðurgreinda málaflokka.
Þetta vekur þá áleitnu spurningu hvort ríkisstjórnin fari offari í þessum málum og það hlýtur að vera gmnd-
vaharatriði að ekki sé farið fram með slík mál í algjörri andstöðu við aUa þá sem málið snerta. Það kann ekki
góðri lukku að stýra, enda hefur komið á daginn að vegna þessa máls hafa kennarasamtökin í landinu tekið
gmnnskólayfirfærsluna í gíslingu. Sá gjörningur er reyndar afskaplega umdehanlegur, en hitt er það að hann
sýnir þann þunga sem í málinu er af hálfu opinberra starfsmanna og þá kröfu verður að gera til málsaðha að
viðunandi lausn finnist strax.
Ljósagangur á suðurhimnimim
Veðurblíðan í vetur hefur fært
okkur mörg tækifæri til að njóta
fegurðar himinsins. Stundum hafa
sést litfögur glitský, og á kvöldin
skartar himinhvelfingin fögmm
norðurljósum, sem teygja sig sem
skrautborði á milli fjallabrúnanna
þvert yfir Eyjafjörðinn. Norður-
ljósin minna mig ætíð á eina af
uppáhaldsbókunum mínum úr
bamæsku. Hún heitir Selurinn
Snorri og í henni vom forkunnar-
fagrar myndir af norðurljósum,
sem ég í æsku horfði dreyminn á.
Og nú í nóvember sáum við hjón-
in í tvígang afburðaskær stjömu-
hröp, annað svo skært að Hörgár-
dalurinn ljómaði allur.
Það var á gamlárskvöld að
Brynjar í Litlu-Brekku sagði mér
frá því að hann hefði nokkmm
kvöldum fyrr séð undarleg og afar
skær ljós á fjallatoppunum frammi
í Hörgárdal. Virtust honum ljósin
hreyfast hægt til vesturs. Taldi
hann að þama hefði annað hvort
verið um vélsleða að ræða eða
flugvél með lendingarljós. Við
ræddum þetta nokkuð án þess að
komast að niðurstöðu, og tók ná-
granni okkar, Sigurður Aðal-
steinsson flugmaður, þátt í þeim
umræðum. Nokkmm kvöldum
síðar er ég var á heimieið um
klukkan sjö að kvöldi varð mér
litið fram Hörgárdalinn og sé þá
þessa sömu sýn og Brynjar hafði
lýst; skæran bjarma yfir fjöllunum
frammi í dal, og fannst mér þetta
vera á milli fjallatoppanna, rétt
vestan við Hraundranga, þannig
að í fyrstu taldi ég líklegast að
þetta væri flugvél á leið í áttina til
mín út Hörgárdalinn. Hringdi ég í
Sigurð flugmann á Björgum, sem
einnig sá þetta, og kom okkur loks
saman um að þetta væri hvorki
vélsleði né flugvél, heldur væri
þetta skær reikistjama sem færi
hægt til vesturs. Birtunnar vegna
hlaut þetta að vera Venus, svo
þama horfðum við í orðsins
fyllstu merkingu á „Ástarstjömu
yfir Hraundranga“. Síðan naut ég
þess margt kvöldið í heiðríkjunni í
vetur að sjá þessa skæm stjömu
ferðast um suðvesturhimininn, og
verð ég að segja að ég hef aldrei á
æfinni séð jafn bjarta stjömu. Hef
ég fært þetta í tal við nokkura
kunningja mína og hafa ýmsir,
einkum þeir sem búa utanbæjar,
tekið eftir þessari óvenjulegu
birtu. Það er nefnilega svo, að þeir
sem búa innan um ljósastaura-
skóginn í þéttbýlinu sjá ekki feg-
urð himinsins eins vel og við
sveitamennirnir. Hef ég lengi ætl-
að að vekja athygli á þessu opin-
berlega en ekki komið því í verk
fyrr en nú. Nú er Venus kominn
hærra á himininn og ekki eins
áberandi og hann var í janúar.
Mér þótti þessi birta Venusar
ekki einleikin og velti fyrir mér
hvort eitthvað væri að gerast í
„Ástæðan fyrir
því að við Norð-
lendingar höfum
notið ástar-
stjörnunnar sér-
staklega undan-
farið er sú að í
bjartviðrinu í
vetur hafa engin
næturský skýlt
henni.“
himinhvolfinu sem ylli þessari
ótrúlegu birtu. Fyrst datt mér í hug
að stjaman sendi geisla sína gegn-
um gatið á ósonlaginu, eða að
mengunin í heiminum væri ástæð-
an. Eða gat verið að ég með aldr-
inum væri farinn að sjá betur það
sem í fjarlægð er? Loks hringdi ég
í Þorstein Sæmundsson stjömu-
fræðing og leitaði álits hans. Hann
staðfesti að um Venus væri að
ræða, bjartasta stjaman á himin-
hvolfinu og er hún frekar björt nú
í vetur, en björtust verður hún
fyrst í maí. Birtan ræðst af afstöð-
unni til sólar, sem upplýsir stjöm-
una, og nú í vetur er afstaðan hag-
stæð. Þetta stemmir allt við Al-
Bjarni E.Guðleifsson
manak Þjóðvinafélagsins. Þá
sagði Þorsteinn mér að í Morgun-
blaðinu á Þorláksmessu hefði ver-
ið greint frá því að torkennilegt
ljós hefði sést í suðvestri frá
Blönduósi, og taldi hann að þar
hefði líklega verið um Venus að
ræða auk þess sem þar hefði
sennilega einnig verið flugvél
með lendingarljós á ferðinni. Ég
leitaði uppi greinina í Morgun-
blaðinu og segist sjónarvottur líkt
og við „hafa haldið að flugvél
væri að koma inn til lendingar“.
Þetta er eflaust sama loftsjónin og
við Hörgdælingar sáum um ára-
mótin og margir fleiri hafa eflaust
séð.
Jónas Hallgrímsson orti:
„Ástarstjörnu
yfir Hraundranga
skýla nœturský. “
Ástæðan fyrir því að við Norð-
lendingar höfum notið ástarstjöm-
unnar sérstaklega undanfarið er sú
að í bjartviðrinu í vetur hafa engin
næturský skýlt henni. Og úr því ég
er að minnast á Jónas og loftsjónir
og Húnvetninga þá fer vel að enda
með því að birta glefsur úr lýsingu
Jónasar á norðurljósunum á
Grímstunguheiði 26. ágúst 1837:
„Fljótlega hófust hinir tindrandi
sveipir sem venjulegir eru. Ljós-
megnið óx skyndilega líkt og þeg-
ar kveikt er á gasi og stóð norður-
himininn að stómm hluta í ljósum
logum. Ég hef reyndar oft séð
mikilfenglegri norðurljós, en vart
nokkur jafn fögur svo ég muni.
Léttar, glóandi bylgjumar flugu í
ýmsar áttir um himininn með öll-
um litbrigðum logans, grænum,
eldgulum og rauðum.“
Sköpunarverkið er fagurt og
stórkostlegt, sérstaklega ef við
gefum okkur tíma til að njóta
þess.
Bjarni E. Guðleifsson.
Höfundur býr á Möðruvöllum í Hörgárdal.
St. Georgsgildið á Akureyri styrkir ýmis sérverkefni skáta:
Þátttakendur á Landsmótið fá ferðastyrk
St. Georgsgildin eru alþjóðlegur
félagsskapur fyrrverandi skáta
og velunnara skátahreyfingar-
innar. St. Georgsgildið á Akur-
eyri hefur frá stofnun þess fyrir
35 árum stutt eftir mætti skáta-
starf á Akureyri. Helsta tekju-
lind þess er leiðalýsing í Akur-
eyrarkirkjugarði um jól og ára-
mót.
Nýlega afhenti St. Georgsgild-
ið á Ákureyri styrki til ýmissa sér-
verkefna sem skátar á Akureyri
Pétur Torfason, forseti St. Georgs-
gildisins á Akureyri, í hópi skáta
◄ sem veittu styrkjunum mót-
töku.
hafa sjálfir valið og var styrkupp-
hæðin liðlega 700 þúsund krónur.
Endanleg styrkupphæð ræðst af
þátttöku akureyrskra skáta á
Landsmótið að Úlfljótsvatni dag-
ana 21. til 28. júlí í sumar en St.
Georgsgildið styrkir hvem þátt-
takanda um 3.000 krónur. Meðal
styrkverkefna má nefna tækjakaup
til vetrarskátunar, varðelda-
skikkjugerð, gönguferðir á fjöll og
útilegu fyrir yngstu skátana.
Styrkveitingunum fylgja óskir um
velfamað í starfi.
Fundir í St. Georgsgildinu á
Akureyri eru haldnir fyrsta mánu-
dag hvers mánaðar yfir vetrartím-
ann í skátaheimilinu Hvammi
klukkan 20.30, og eru nýir félagar
velkontnir. GG