Dagur - 15.03.1996, Síða 5
Föstudagur 15. mars 1996 - DAGUR - 5
Dómsmálaráðherra með frumvarp um helgidagafrið á Alþingi:
Ýmislegt er ekki kirkjunni að skapi
- prestar viðurkenna þó hagsmuni ferðaþjónustunnar
Séra Svavar Alferð Jónsson segir að í frumvapi til
breyttra laga um friðhelgi á stórhátíðum séu
ákvæði, sem kirkjunnar menn treysti sér ekki til
að eiga frumkvæði að. Páll Pór Jónsson, hótel-
stjóri á Húsavík, segir að öll löggjöf um þetta efni
verði að vera sem rýmst. Ragnar Sverrisson í
JMJ, formaður Kaupmannafélags Akureyrar, seg-
ist styðja allt það sem til framfara horfí.
Verulegar breytingar verða á
lögum um friðhelgi á stórhátíð-
um, samkvæmt frumvarpi
dómsmálaráðherra, sem nú ligg-
ur fyrir Alþingi og er til umfjöll-
unar þar. Rauði þráðurinn í
frumvarpinu er að heimildir ým-
iskonar samkomuhalds á helgi-
dögum verði rýmri en nú er. Nú-
gildandi lög um þetta efni eru
frá árinu 1926 og hafa þau þótt
þröng og ekki í samræmi við að-
stæður nútímans. Skiptar skoð-
anir éru þó um þetta efni. Séra
Svavar Alferð Jónsson, aðstoð-
arprestur við Akureyrarkirkju,
segir að í frumvarpinu séu ýms-
ar hugmyndir, sem kirkjunnar
menn treysti sér ekki til að eiga
frumkvæði að. Hann viðurkenn-
ir þó að hagsmunir ferðaþjón-
ustunnar séu að opnunartími sé
sem rýmstur.
„Löggjöf um helgidaga og
helgidagahald á langa sögu að
baki... Löggjöfin hefur lengstum
verið af trúarlegum toga spunnin.
Ýmis önnur sjónarmið hafa þó
tengst löggjöfinni. í því efni hafa
á síðari árum tengst málefninu
vinnuvemdarsjómarmið, í þeirri
viðleitni að tryggja fólki frí frá
vinnu á helgidögum... Á undan-
fömum árum og áratugum hefur
orið veruleg breyting á þjóðfé-
lagsháttum hér á landi. í því efni
má t.d. nefna rúman opnunartíma
verslana, skemmtanahald fer í
vaxandi mæli fram í tengslum við
helgidaga svo og íþróttakeppnir
ýmiskonar... Nokkur umræða hef-
ur einnig skapast um að veitinga-
staðir séu lokaðir á tilteknum
helgidögum þjóðkirkjunnar, eink-
um um páska og hvítasunnu. Hef-
ur það m.a. verið tengt þeirri við-
leitni að markaðssetja fsland í
auknum mæli sem ferðamanna-
land og þetta verið talið því fjötur
um fót,“ segir í greinargerð með
frumvarpi þessu. Það lagði Þor-
steinn Pálsson, dómsmálaráð-
herra, fram fyrir skemmstu og er
það nú til umfjöllunar á Alþingi.
Stefnt er að því að frumvarpið fái
afgreiðslu fyrir vorið.
Ýmis nýmæli
í frumvarpinu eru ýmis nýmæli.
Þar er lagt til að áfram verði gild-
andi almennt bann við samkomu-
haldi, íþrótta- og útvistarstarfsemi
og opnun verslana eftir kl. 18 á
aðfangadegi jóla og fram til kl. 6
að morgni annars dags jóla. Hins
vegar er lagt til að veita megi und-
anþágur frá þessu ákvæði ef nauð-
synlegt reynist. Svo hefur ekki
verið til þessa.
Föstudagurinn langi verður
áfram helgur dagur, en dansleikja-
hald verður hins vegar heimilt
fram til kl. 3 aðfaranótt þess dags.
Frá þeim tímapunkti og fram til
kl. 6 að morgni laugardags fyrir
páska verður samkomuhald og
opnun verslana óheimil, nema
með undanþágum. Hið sama gildir
um páskadag, en dansleikjahald
verður þó heimilt fram til kl. 3 að-
faranótt páskadagsins.
Til þessa hefur verið lagt bann
við skemmtanahaldi fram til kl. 15
á sunnudögum. Verslanir hafa á
þeim dögum ekki mátt vera opnar
með undanþágum og almennar
takmarkanir hafa verið með vinnu.
Frumvarpið gerir hins vegar ráð
fyrir því að þessar takmarkanir
verði úr gildi numdar. Hið sama
yrði á öðrum degi jóla, nýjársdegi,
skírdegi, öðrum degi páska og
hvítasunnu, hvítasunnudegi og
laugardaginn fyrir hana, sem og á
uppstigningardegi. Alla þessa
daga yrði öll almenn starfsemi
heimil, skv. frumvarpi dómsmála-
ráðherra.
Hvað er helgidögum
sæmandi?
„Þetta frumvarp var lagt fram til
kynningar á Kirkjuþingi sl. haust,
en í því er að finna nokkrar hug-
myndir sem kirkjan treysti sér
ekki til að eiga frumkvæði að.
Engu að síður gera rnargir innan
kirkjunnar sér fulla grein fyrir af-
stöðu og hagsmunum þeirra sem
starfa við þjónustu ferðamanna,"
sagði sr. Svavar Alfreð Jónsson,
aðstoðarprestur við Akureyrar-
kirkju, aðspurður um lagafrum-
varp þetta.
Hann sagði að virðing manna
fyrir því hvað sæmandi væri á
helgidögum hefði breyst. Hins
vegar yrði því ekki breytt með
lagaboðum heldur þyrfti þar ann-
að að koma til. „Hinn ytri laga-
rammi um hver opnunartími þjón-
ustufyrirtækja megi vera á helgi-
dögum skiptir vissulega máli um
hvaða virðing er fyrir þeim borin.
Ég er þó ekki endilega að segja að
hann hafi úrslitaþýðingu, þetta
verður að koma innanfrá,“ sagði
sr. Svavar.
Þyrnir í augum
„Okkur hefur til dæmis verið
þymir í augum það ákvæði í frum-
varpinu að heimila megi dansleiki
allt til kl. þrjú, aðfaranótt föstu-
dagsins langa. Við hljótum að
vilja halda í gömul og góð lög um
opnunartíma á þessum dögum.
Einnig höfum við kirkjunnar
menn átt samherja í þessum efn-
um í verkalýðshreyfingunni, sem
vill halda í sem flesta daga sinna
félagsmanna,“ sagði Svavar.
Sr. Svavar Álfreð sagði að
kirkju- og safnaðarstarf dagsins í
dag væri komið í farveg almenns
tómstundastarfs. „Ég veit ekki
hvort það er eðlileg staða sem við
emm að því leyti komin í. Að fólk
leggi að jöfnu það tómstundagam-
an um páska að fara á skíði og í
messu. Sumir hafa leyst þetta mál
með því að messa í skíðabrekkum,
en ég veit ekki hvort rétti ramm-
inn um helgihald getur verið í
brekkum í Hlíðarfjalli. Ég hef
ekki á móti slíku, en það er spurn-
ing hvort aðstæðumar eru beinlín-
is heppilegar. Svo ég tali fyrir
sjálfan mig er ég ekki í hugleið-
ingum um helgihald þegar ég fer á
skíði, en mér finnst afar gaman að
renna mér í brekkunum," sagði sr.
Svavar Alfreð.
Svo langt sem það nær...
„Ég er hlynntur þeirn breytingum
á lögum sem frumvarpið gerir ráð
fyrir, svo langt sem þær ná. Öll
löggjöf um þetta efni þarf að vera
nógu rúm og takmarkanir sem
minnstar. Ný lög um þetta efni
mega ekki seinni vera og hags-
munir eru í húfi,“ sagði Páll Þór
Jónsson, hótelstjóri á Hótel Húsa-
vík.
Páll segir að Hótel Húsavík
hafi misst viðskipti út á þessi
þröngu lagaákvæði. Fyrir nokkr-
uin ámm hafi staðið til að halda á
Húsavík lokahóf ráðstefnu og það
átti að standa fram á aðfaranótt
hvítasunnudags. En slíkt er bann-
að og því féll ráðstefnan og allt
sem tilheyrði niður. Málið féll um
sjálft sig. „Við verðum að horfa á
það sem er að gerast í ferðaþjón-
ustunni. Opnunartími er að rýmk-
ast víða og ferðamenn vilja koma
hingað um jól og áramót. Þessu
fólki verður að sinna. Nei, það
hefur ekkert reynt á það að fá fólk
til vinnu um hátíðar af skiljanleg-
um ástæðum. En við verðum að
gera fleira en það sem er
skemmtilegt - og margir til dæmis
í heilbrigðisþjónustunni og lög-
reglumenn vinna á þessum tíma,“
sagði Páll.
Er hlynntur framförum
Ragnar Sverrisson, kaupmaður í
Herradeild JMJ, er formaður
Kaupmannafélags Akureyrar.
Hann sagði að frumvarp þetta
hefði ekki komið með beinum
hætti til umræðu hjá félaginu. „Ég
er hlynntur öllu því sem er til
framfara,“ sagði Ragnar. Hann
sagðist telja að ýmis ákvæði í
frumvarpinu væru fyrst og fremst
viðurkenning á orðnum hlut, svo
sem almennri opnun verslana á
laugardögum. Núverandi lög
kveða á um almennt bann við
opnun verslana á sunnudögum, en
slíkt er þó aðeins á borði. Þannig
væru stóru matvöruverslanimar,
KEA Nettó og Hagkaup á Akur-
eyri, opnar á sunnudögum og
ýmsar fleiri verslanir. -sbs.
Afsláttur af öllum AEG vörum í verslunum okkar!
IIWIildí.VlllíllllV.TaHillllllll
V42[9(íni 94 pffnuj \fEG Aninuj I Aeufnuni
KEA, Lónsbakka, Akureyri. KEA SiglufirSi, ÓlafsfirSi og Dalvík.
SkagfirSingabúð, Sauðárkróki. KH, Byggingavörur, Blönduósi.
KÞ. Smiðjan, Húsavík. Kf.V. -Húnvetninga, Hvammstanga.