Dagur - 23.04.1996, Síða 7
Þriðjudagur 23. apríl 1996 - DAGUR - 7
Knattspyrna:
Brassi á
leið til KA
Brasilíumaðurinn Wellington
Bernandez, mun að öllum lík-
indum koma hingað til lands í
byrjun næsta mánaðar, til að
kíkja á aðstæður hjá KA-liðinu í
knattspyrnu. Hann er 24 ára
gamall og hefur leikið sem
miðju- og sóknarmaður.
Bemandez hafði samband við
knattspymudeild KA að fyrra
bragði og lýsti yfir áhuga á að
leika með liðinu. KA-menn sögðu
að honum væri velkomið að koma
en það á eftir að koma í ljós hvað
hann kann fyrir sér í knattspyrnu.
Ekki er neitt nýtt að frétta af
Dean Martin, sem leikið hefur
með enska liðinu Brentford. Hann
hefur lýst yfir áhuga á að leika
með KA, fyrirætlanir hans gætu
breyst ef hann kemst á samning
hjá öðru félagi ytra.
Leikið í Akureyrarmóti
Fjölmargir leikir voru háðir í Akurcyrarmótinu í handknattleik á laug-
ardaginn, en fyrirhugað er að síðustu leikir mótsins fari fram um næstu
helgi. Á myndinn má sjá leikmann Þórs í fjórða flokki karla reyna skot
að marki KA. Mynd: BG
Handbolti:
• •
Leó Orn verður
áfram hjá KA
- Helgi Þór og Óli Björn á förum?
Leó Örn Þorleifsson hefur
ákveðið að leika áfram með KA-
liðinu. Hann gekk frá samningi
við handknattleiksdeild KA á
föstudaginn. Eins og greint hafði
verið frá áður var Leó ekki bú-
inn að gera það upp við sig
hvort hann færi í Háskólann á
Akureyri eða fyrir sunnan, en
það varð ofan á að vera áfram á
Akureyri.
KA-menn höfðu þegar rætt við
annan línumann, ef svo færi að
Leó Öm færi suður.
Flest bendir til þess að tveir af
varamönnum KA-liðsins í vetur
verði ekki með liðinu næsta vetur.
Það eru þeir Helgi Þór Arason og
Óli Bjöm Ólafsson. Báðir hyggja
á nám, Helgi erlendis eða í
Reykjavík og Óli Björn í Reykja-
vík.
Leó Örn Þorleifsson.
Júdó - íslandsmótið:
Júdómenn úr KA hrepptu
fjöglir gull af sjö í karlaflokki
Júdómenn úr KA hrepptu ijög-
ur af sjö gullverðlaunum í
karlaflokki í júdó um síðustu
helgi og hefur uppskeran aldrei
verið svo góð á Islandsmóti áð-
ur. Mótið var haldið í fþrótta-
húsinu í Austurbergi og reyndist
baráttan eins og svo oft áður
standa á milli keppenda frá KA
og Ármanni.
Vemharð Þorleifsson úr KA
hefur verið í stöðugri framför og
hann sýndi það eftirminnilega á
mótinu. Hann reyndist einu kflói
of þungur til að keppa í 95 kg
flokknum og keppti því í yfirvigt
og lagði Sigurð Bergmann úr
Grindavík í úrslitaglímu. Vem-
harð sótti stíft að Sigurði allan
tímann og Sigurður fékk á sig
nokkur refsistig fyrir sóknarleysi,
undir lok glímunnar náði Vem-
harð að skella Sigurði og hljóta
fullnaðarsigur.
Vemharð hreppti síðan önnur
gullverðlaun sín með sigri á
Bjama Friðrikssyni úr Ármanni á
Þorvaldur Blöndal úr KA reyndist
sterkastur í -86 kg flokknum.
dómaraúrskurði. Engin stig vom
skomð í glímunni, en Vemharð
glímdi betur að mati dómara og
uppskar sigur. Gísli Jón Magnús-
son úr KA og Sigurður Bergmann
fengu bronsverðlaun.
Freyr Gauti Sigmundsson
keppti ekki á síðasta Islandsmóti
vegna meiðsla, en átti glæsilega
endurkomu. Hann sigraði í -78 kg
flokki þrátt fyrir tap gegn Bjama
Skúlasyni í riðlakeppninni. „Þetta
var mikill klaufaskapur hjá mér og
ég kastaði mér í raun sjálfur. Eg
ætlaði að beita bragði, en það mis-
tókst og ég lenti á bakinu og hann
náði stjórninni," sagði Freyr Gauti
sem tapaði glímunni. Hann lagði
hins vegar Karel Halldórsson úr
Ármanni að velli og sigraði síðan
í úrslitaglímunni vð Bjama Skúla-
son á ippon.
Þorvaldur Blöndal úr KA varð
íslandsmeistari í -86 kg flokki.
Hann sigraði Baldur Pálsson frá
Selfossi ömgglega á ippon. Jón
Þór Þorvaldsson og Friðrik Blön-
dal skiptu með sér bronsverðlaun-
unum en báðir komu á óvart á
mótinu fyrir vasklega framgöngu.
Jón Þór glímdi til að mynda um
Knattspyrna - Deildarbikarkeppnin:
ÍBA-stúlkur töpuðu fyrir
íslandsmeisturunum
ÍBA tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í Deildarbikarkeppn-
inni í knattspyrnu, sem fram fóru á gervigrasinu í Hafnarfirði um
síðustu helgi. Fyrri andstæðingarnir voru íslandsmeistarar
Breiðabliks, sem höfðu sigur 3:0 á laugardaginn og daginn eftir
mátti ÍBA þola 1:0 tap fyrir Aftureldingu, þar sem Mosfellsbæ-
ingar skoruðu sigurmarkið þegar tíu mínútur voru til leiksloka.
„Miðað við þessa leiki, þá líst mér ágætlega á sumarið. Bilið fer
greinilega minnkandi á milli þessara liða og við vorum nokkuð
ánægðar með leikinn gegn Breiðabliki. Við erum hins vegar ekki
með breiðan hóp og samkeppnin um stöður er þar af leiðandi ekki
mikil. Sjálfstraustið gæti líka verið meira og við vorum mjög
óheppnar gegn Aftureldingu, því við fengum ein sex færi, einar á
móti markverði" sagði RagnheiðurPálsdóttir, leikmaður ÍBA.
Staðan í leikhléi gegn UBK var 1:0 og ÍBA-stúlkurnar þurftu að
leika einum færri síðustu tuttugu mínúturnar eftir að Harpa Frí-
mannsdóttir fékk að sjá rauða spjaldið fyrir sína aðra bókun.
Þrír aðrir leikir fóru fram um helgina. ÍA sigraði Stjörnuna 3:0,
KR sigraði Aftureldingu 5:1 og Valur Hauka 8:1.
Karfa - Úrvalsdeild:
Þórsarar ræddu við
Jón Kr. og Guðmund
Körfuknattleiksdeild Þórs hefur ekki enn ráðið þjálfara fyrir
næsta keppnistímabil. Þeir áttu í viðræðum við landsliðsþjálfar-
ann, Jón Kr. Gíslason og Guðmund Bragason, landsliðsmann úr
Grindavík, að leika með liðinu og jafnframt sjá um þjálfun þess.
Þeir gáfu báðir afsvar um helgina.
Jón Kr. lýsti því yfir eftir úrslitakeppnina að hann yrði ekki áfram
þjálfari hjá Keflavík. Hann hafði áhuga á að koma norður en fékk sig
ekki lausan.
Körfuknattleiksdeildin ræddi einnig við Birgi Mikaelsson hjá
Breiðabliki en ekkert kom út úr þeim viðræðum. Þórsarar eiga nú í
viðræðum við tvo menn og vonast þeir eftir að þjálfaramálin komist
á hreint fljótlega. Jón Guðmundsson var þjálfari Þórs sl. vetur.
Freyr Gauti Sigmundsson og Vernharð Þorleifsson á góðri stund. Þeir
hrepptu báðir íslandsmeistaratitla um helgina.
bronsið í opna flokknum en varð
að láta í minni pokann fyrir Gísla
Jóni.
Höskuldur Einarsson úr Ár-
manni varð íslandsmeistari í -65
kg flokki og félagi hans Eiríkur
Kristinsson í -71 kg flokki eftir
sigur á Sævari Sigursteinssyni úr
KA. Þá sigraði Bjami Friðriksson
Ármanni í -95 kg flokki og Gígja
Gunnarsdóttir úr Ármanni sigraði
í eina kvennaflokknum, -66 kg
flokki.
Ellefu keppendur fóru á mótið
frá Júdódeild KA og komu heim
með ellefu verðlaunapeninga.
Ótalin eru bronsverðlaun Rúnars
Snælands í -65 kg flokki og Sig-
urðar Jóhannessonar í -71 kg
flokknum.