Dagur - 23.04.1996, Blaðsíða 9

Dagur - 23.04.1996, Blaðsíða 9
ENSKA KNATTSPYRNAN Þriðjudagur 23. apríl 1996 - DAGUR - 9 SÆVAR HREIÐARSSON Sálarstríð á lokakaflanum - allt í járnum á toppi og botni úrvalsdeildarinnar Ekkert var leikið í ensku úrvals- deildinni um helgina vegna und- irbúnings enska landsliðsins fyr- ir æfíngaleik gegn Króatíu á morgun. Liðin fengu því kær- komna hvfld til að undirbúa sig fyrir hasarinn á lokakaflanum. Urslitin eru enn óráðin bæði á toppi og botni deildarinnar og aðeins tvær umferðir eftir. Raunar eiga sex lið eftir frestaða leiki og hjá þeim verður stutt á milli leikja síðustu vikuna. Deildarkeppnin fer aftur af stað 27. aprfl og lýkur sunnudaginn 5. maí. Staðan í dag Man. United 36 23 7 6 65:35 76 Newcastle 35 23 4 8 63:35 73 Liverpool 35 19 9 7 67:32 66 .Aston Viila 36 18 9 9 52:33 63 Arsenal 35 16 10 9 46:30 58 Blackbum 36 17 6 13 57:44 57 Tottenham 35 15 11 945:35 56 Everton 36 15 1011 58:42 55 N. Forest 35 14 12 9 46:48 54 West Ham 3614 8 14 42:48 50 Chelsea 36 12 13 11 43:4049 Middlesbr. 36 11 10 15 35:46 43 Leeds 35 12 6 17 39:53 42 Wimbledon 36 10 10 16 55:68 40 Sheff. Wed. 36 10 9 17 45:55 39 Southampton 36 8 10 18 33:52 34 Coventry 36 7 13 16 40:60 34 Man. City 36 8 10 18 30:56 34 QPR 36 8 6 22 35:54 30 Bolton 36 8 5 23 38:68 29 • Markahrókurinn Alan Shearer er meiddur á nára og leikur ekki síðustu tvo leikina með Black- burn. • Glenn Hoddle hefur neitað að skrifa undir nýjan samning við Chelsea og er talið líklegt að hann taki við enska landshðinu. Jafnvel er búist við að Ruud Gullit verði ráðinn sem aðstoð- armaður hans. • Gianluca Vialli er með lausan samning hjá Juventus í surnar og hefur verið orðaður við Chelsea, Middlesbrough, Arsenal óg Tott- enham. Chelsea þykir líklegast til að næla í kappann. Ég veit að Chelsea er ekki neitt sérstakt lið eins og er en þar eru hlutirnir að gerast og markið er sett hátt, sagði Vialli. Ég þarf ekki að hugsa um tjárhaginn þannig að ég get farið þangað sem hjartað og hugurinn leitar, sagði Vialli. • Michael Laudrup hefur einnig verið orðaður við Middlesbro- ugh. • Tomas Brolin leikur sénni- lega ekki meira fyrir Leeds. Hann er með ákvæði í samningi sínum að hann megi yfirgefa fé- lagið í sumar ef hann er ekki ánægður með stöðu sína hjá fé- laginu. • Matthew Le Tissier hefur lýst því yfir að hann fari: senniíega frá Southampton ef liðið fellur í I. deild. • Manchester City mun ekki selja Gerogi Kinkladze þó liðið falii, sama hvað þeim býðst. Hann hefur verið orðaður við Juventus og AC Milan. • QPR er staðráðið í að halda Ray Wilkins sem framkvæmda- stjóra þó Iiðið falli. Forráða- menn félagsins hafa einnig lýst þyí yfír að Trevor Sinclair sé ekki til sölu. Manchester United er á toppn- um með 76 stig og á eftir að leika á heimavelli gegn Nottingham Forest og á útivelli gegn Middles- brough. Newcastle er með 73 stig en á eftir þrjá leiki; á útivelli gegn Leeds og Nottingham Forest og á heimavelli gegn Tottenham. Lík- legt þykir að úrslitin ráðist ekki fyrr en í síðustu umferðinni og menn eru jafnvel famir að gæla við þá hugmynd að liðin verði jöfn að stigum og með sömu marka- tölu. Ef til þess kemur verður grip- ið til aukaleiks á Wembley til að skera úr um úrslitin. Éróðlegt verður að fylgjast með lokaleikj- um félaganna þegar Man. Utd. heimsækir erkifjendur Newcastle, lærisveina Bryan Robson hjá Middlesbrough, en Newcastle fær Tottenham í heimsókn í næstu borg og Tottenham berst fyrir sæti í UEFA keppninni. Knattspymufræðingar spá nú í spilin og skiptar skoðanir eru um hverjir séu líklegastir til að fagna sigri. Flestir eru sammála um að Manchester United eigi auðveldari leiki eftir og liðið á aðeins tvo leiki eftir á meðan Newcastle á þrjá. Newcastle fær því fleiri tæki- færi til að klúðra en á móti kemur að ef bæði lið vinna þá leiki sem eftir eru fær Newcastle fleiri leiki til að bæta markahlutfall sitt. Man. Utd. er með betra markahlutfall eins og er, 30 mörk í plús en Newcastle hefur 28 mörk. Nokkuð hefur verið um meiðsl í báðum liðum og má gera ráð fyr- ir að þau geti sett strik í reikning- inn. Hjá United munar mest um fyrirliðann Steve Bruce, sem haltr- aði meiddur útaf snemma leiks gegn Leeds í síðustu viku. Líkur eru á að hann missi af lokakaflan- um og jafnvel af bikarúrslitaleikn- um gegn Liverpool. A móti kemur að enski landsliðsmiðvörðurinn Gary Pallister kom aftur inn í lið United gegn Leeds eftir langvar- andi meiðsl og stóð sig mjög vel. Þá hafa tveir af efnilegri leik- mönnum liðsins, David Beckham og Phil Neville, verið meiddir en Eric Cantona fagnar með stjóra sín- um, Alex Ferguson. Iþróttafrétta- menn völdu Cantona knattspyrnu- mann ársins og er það í fyrsta sinn síðan George Best var valinn fyrir 27 árum sem leikmaður Man. Utd. verður fyrir valinu. búist er við að þeim verði tjaslað saman fyrir lokasprettinn. Þriðji ungliðinn, Nicky Butt, verður í leikbanni þegar að United mætir Forest um næstu helgi. Meiðsl hafa einnig sagt til sín hjá Newcastle og þar á bæ eru menn fegnir hvíldinni. Markahrók- urinn Les Ferdinand og tengiliður- inn Robert Lee drógu sig út úr enska landsliðshópnum vegna meiðsla. Ferdinand er tábrotinn og hefur leikið á sterkum verkjalyfj- um síðan í byrjun aprfl en Lee er meiddur á hásin. Báðir verða þó með á lokasprettinum og sömu sögu er að segja af miðverðinum Steve Howey og kantmanninum Keith Gillespie en óttast hafði ver- ið að báðir misstu af lokaslagnum vegna meiðsla. Alex Ferguson, stjóri United, segir að það geri liði sínu erfitt fyrir hversu margir leggist á sveif með Newcastle og geri allt til þess að stöðva sigurgöngu Man Utd. Ég held að það sé rosaleg afbrýði- semi gagnvart okkur um allt land. Ég skil ekki hvers vegna þetta er því allt sem United hefur unnið til hefur áunnist með mikilli vinnu og góðum leikmönnum, segir Alex Ferguson. í augnablikinu nýtur Newcastle mikillar samúðar lands- manna, segir Ferguson. Kevin Keegan, stjóri Newcastle, hefur trú á sínum mönnum. Manchester United er enn líklegast til að vinna en það rnunar ekki miklu. Ég hef enn hug á að vinna titilinn án þess að til úrslitaleiks komi, segir Keegan. í baráttunni á botninum er ekki síður spenna og Southampton, Coventry og Manchester City eru öll jöfn með 34 stig. QPR er með 30 og Bolton 29. Southampton virðist eiga léttasta leikjaplanið eft- ir þar sem liðið mætir Bolton á úti- velli og Wimbledon á heimavelli. Coventry á að heimsækja Wim- bledon og fær síðan Leeds í heirn- sókn. Manchester City á erfiðan útileik gegn Aston Villa fyrir hönd- um og lýkur tímabilinu á heima- velli gegn Liverpool. Það gæti þó hjálpað City að andstæðingar þeirra eru öruggir með Evrópusæti og hafa í raun að engu að keppa. QPR fær nágranna sína í West Ham í heimsókn og sækir síðan Notting- ham Forest heim og Bolton endar tímabilið á útivelli gegn Arsenal. Baráttan er einnig mikil um sæti í Evrópukeppni félagsliða, UEFA bikamum, næsta vetur. UEFA ákvað fyrir skömmu að taka eitt sæti í keppninni frá enskum Coventry og QPR berjast fyrir lífi sínu í úrvalsdeildinni. Hér er gamla brýn- ið Gordon Strachan í baráttu við Kevin Gallen, framherjann efniiega hjá QPR. Strachan er orðinn 38 ára og enn í fullu fjöri. Auk þess að spila er hann aðstoðarframkvæmdastjóri Coventry og gerði í síðustu viku fjögurra ára samning við félagið. Honum er ætlað að taka við sem framkvæmdastjóri á næsta ári, þegar Ron Atkinson verður færður upp metorðastigann og fær starfsheitið stjórnandi knattspyrnumála hjá félaginu. Sunderland öruggt upp David Batty hefur breytt leik New- castle mikið síðan hann kom til liðs- ins. Hann aðstoðar vörnina vel og tekur fast á andstæðingunum en hægir jafnframt á sóknarleiknum með rólegu spili. Kevin Keegan er ánægður með strákinn og vill að hann verði valinn i enska landsliðið áný. Sunderland er öruggt með sæti í úrvalsdeildinni næsta vetur þrátt fyrir að liðið hafí aðeins gert markalaust jafntefli gegn Stoke á sunnudag. Reyndar var Sunderland tryggt með úrvals- deildarsætið á laugardag þegar að Derby náði aðeins jafntefli gegn Birmingham. Sunderland þurfti að sigra Stoke til að tryggja sér titilinn í 1. deild en Lárus Orri Sigurðsson og félagar hans í Stoke áttu svör við öllum sóknaraðgerðum toppliðsins. Sennilega byrjuðu leikmenn Sunderland að fagna strax á laug- ardagskvöld því þeir voru heillum horfnir gegn Stoke. Stoke átti meira í leiknum en tókst ekki að nýta færi sín. Sunderland var ná- lægt því að stela sigrinum í lokin þegar að unglingurinn Michael Bridges slapp í gegn en skot hans fór í utanverða stöngina. Þar var réttlætinu fullnægt því Bridges hafði greinilega brotið á Lárusi Orra með því að toga í skyrtu hans og komast þar með innfyrir vörn- ina. Tvö lið fara rakleitt upp í úr- valsdeildina en fjögur næstu lið berjast um þriðja lausa sætið í úr- slitakeppni. Derby vantar enn þrjú stig til að tryggja sér sæti í úrvals- deildinni en liðið fær Crystal Pal- ace, sem er í þriðja sæti, í heim- sókn á Baseball Ground í næstu viku. Derby náði aðeins jafntefli gegn Binningham en Palace sigr- aði Úlfana á útivelli, 2:0. Oldham lagði Millwall á úti- velli og á enn von um að bjarga sér frá falli. Þorvaldur Örlygsson hefur verið meira og minna meiddur síðan hann kom til Old- ham og hann lék ekki með um helgina. liðum fyrir næsta vetur vegna þess hversu lítinn áhuga ensk lið sýndu á forkeppni UEFA bikarsins á síð- asta ári. Englendingar hafa áfrýjað þessum dómi og verður málið tek- ið fyrir undir lok mánaðarins. Ef ekkert breytist verða aðeins fimm ensk lið í Evrópukeppni næsta vet- ur og þegar eru Man. Utd., New- castle, Liverpool og Aston Villa ömgg með sæti. Það er því aðeins eitt sæti laust og Arsenal er í væn- legri stöðu. Blackbum og Totten- ham eru skammt undan og Everton og Nottingham Forest eiga enn möguleika. Arsenal á eftir að leika gegn Blackbum, Liverpool og Bolton en Tottenham á leiki gegn Chelsea, Leeds og Newcastle og Blackbum leikur gegn Arsenal og Chelsea. Búast má við að þessi lið leggi allt í sölumar í lokaleikjun- um og eykur það á hasarinn bæði á toppi og botni. 1. deild: Úrslit Sunderland-Stoke 0:0 Derby-Birmingham 1:1 1:0 Paul Simpson (55.) 1:1 Gary Breen (74.) Grimsby-Sheff. Utd. 0:2 0:1 Andy Walker ( 7.) 0:2 Taylor (22.) Leicester-Huddersfield 2:1 1:0 Steve Walsh (40.) 1:1 Darren Bullock (47.) 2:1 Steve Claridge (62.) Luton-Watford 0:0 Rautt spjald: Alexander, Luton (90.) MiIlwall-OIdham 0:1 0:1 Richardson (57./víti) Rautt spjald: Rae, Millwall (79.) Rautt spjald: Makin, Oldham (79.) Norwich-WBA 2:2 0:1 Bob Taylor (30.) 0:2 Richard Sneekes (61.) 1:2 Jamie Cureton (78.) 2:2 Darren Eadie (84.) Port Vale-Tranmere 1:1 0:1 Liam O Brien (70.) 1:1 Ian Naylor (84.) Portsmouth-Barnsley 0:0 Reading-Charlton 0:0 Southend-Ipswich 2:1 0:1 Simon Milton ( 6.) 1:1 Keith Dublin (30.) 2:1 Mike Marsh (90.) Wolves-Crystal Palace 0:2 0:1 David Hopkin (31.) 0:2 Alex Dyer (55.) Staðan Sunderland 44 22 16 6 59:31 82 Derby 44 20 16 8 67:47 76 C.Palace 44 20 15 9 66:45 75 Stoke 43 18 13 12 56:45 67 Charlton 43 1618 9 53:43 66 Leicester 44 1714 13 62:60 65 Ipswich 4317 11 15 76:68 62 Hudderstleld 4317 11 15 60:55 62 Birmingham 44 1513 16 60:59 57 Sheff. United 4415 1316 53:53 55 Southend 44 1513 16 51:59 55 PortVale 4214141454:5955 WBA 43 15 10 18 56:65 55 Barnslev 43 1316 14 55:63 55 Tranmere 43131515 61:59 54 Norwich 44 13 15 16 57:5354 Grimsbv 43 1412 17 50:6154 Wolves 43 13 1416 55:58 53 Millwall 44 1312 1941:60 51 Reading 4311 1715 49:59 50 Portsinouth 4412 1319 60:68 49 Oldham 43 121318 50:49 49 Watford 43 8 17 17 54:6542 Luton 42 1011 20 36:57 42

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.