Dagur - 23.04.1996, Blaðsíða 14

Dagur - 23.04.1996, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 23. apríl 1996 VELSOPAR Til sölu notaðir götu- og gangstéttasópar ásamt gangstéttaþvottabíl. Gott verð. Nánari upplýsingar í síma 567 7090. MINNINC rF Funafélagar athugið! Hittumst á Melgerðismelum kl. 14 á sumardaginn fyrsta og fáum okkur kaffi, spjöllum saman og tökum lagið. Áður auglýstu íþróttamóti er aflýst vegna framkvæmda á staðnum. Mótanefnd Funa. MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ Barnamenningarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði barnamenningar. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna. Á yfirstandandi ári hefur sjóðurinn 900.000 kr. til ráð- stöfunar. Umsóknir skulu berast Barnamenningarsjóði, mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. júní 1996. Stjórn Barnamenningarsjóðs, 18. april 1996. FELAGSMALARAÐUNEYTIÐ Styrkir til atvinnumála kvenna Félagsmálaráðuneytið hefur á þessu ári 20 milljónir króna til ráðstöfunar til atvinnumála kvenna. Við ráðstöfun fjárins er einkum tekið mið af þróunarverkefnum sem þykja líkleg til að fjölga atvinnutækifærum kvenna á viðkomandi atvinnusvæð- um. Sérstök áhersla er lögð á að efla ráðgjöf til kvenna sem eru í atvinnurekstri eða hyggjast fara út á þá braut. Við skipt- ingu fjárins eru eftirfarandi atriði höfð til hliðsjónar: • Verkefnin skulu vera vel skilgreind og fyrir liggja fram- kvæmda- og kostnaðaráætlun. • Ekki verða veittir beinir stofn- eða rekstrarstyrkir til ein- stakra fyrirtækja nema sérstakar ástæður mæli með. • Verkefnið skal koma sem flestum konum að notum. • Að öðru jöfnum skal fjármögnun af hálfu ríkisins ekki nema meir en 50% af kostnaði við verkefnið. • Ekki eru veittir styrkir til starfsemi, ef fyrir liggur að hún er í beinni samkeppni við aðra aðila á sama vettvangi. • Að öðru jöfnu eru ekki veittir styrkir til sama verkefnis oftar en tvisvar í senn. Umsóknareyðublöð fást í félagsmálaráðuneyti, Hafnarhúsi v/Tryggvagötu, Reykjavík og hjá atvinnu- og iðnráðgjöfum á landsbyggðinni. Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. Félagsmálaráðuneytið. ORÐ DAGSINS 462 1840 Bjðrn Pálsson Fæddur 25. febrúar 1905 - Dáinn 11. apríl 1996 Deyr fé, deyja frœndur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur Við brottför samferðamanna eða ástvina héðan af heimi getur þakklæti fyrir liðin kynni eða ein- ungis það að hafa fengið að vera samtfðarmaður hins horfna vegið |ryngra en harmur og eftirsjá. Svo hygg ég að flestum sé nú farið, þegar héraðshöfðinginn Björn á Löngumýri er allur, en hann varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að lifa langa og viðburðaríka ævi, oftast nær sér til gamans-. Við sjá- um nú á bak manni, sem sleit bamsskónum og mótaðist fyrir tæpri öld og varðveitti sjálfstæði sitt og sjálfsvirðingu hvern einasta dag síns níutíu og eina aldursárs. Dæmi hans er hollt okkur, sem lifum í nútímanum, sem hefur til- hneigingu til að hygla þeim, sem fúsir eru að selja sig og fórna sér- kennum sínum. Fyrir það ber hon- um heiður og þökk. Björn átti engan sinn líka. Hann fékk stóru hlutverki úthlutað og reis undir því. Þótt hann væri ekki maður gallalaus, fléttuðust gallar hans þó flestir saman við kostina með einhverjum hætti. Kröfur hans til sinna nánustu voru angi af kröfuhörku hans við sjálf- an sig og ofurkappi við draga björg í bú, ná markmiðum sínum og vinna þau verk í almannaþágu, sem honum var til trúað. Stríðni hans og hrekkir voru hluti af lífs- orku hans og glaðværð, sem ávallt mörkuðu samskipti hans við aðra og létti þeim líðandi stund. Hann setti svip sinn á umhverfi sitt, hvar sem hann kom, og hann var maður þeirrar stærðar og gerðar, að gall- ar urðu að algjöru aukaatriði í samanburði við kostina. Hann var í eðli sínu kappsfullur baráttuinað- ur, sem fagnaði verðugum and- stæðingi til að heyja við íþrótt sína og leik. Björn á Löngumýri var allt í senn ntargfróður og víðförull heimsmaður, djarfhuga athafna- maður, sem hvergi fór troðnar slóðir, gróðamaður tneð gott hjartalag, hugmyndaríkur braut- ryðjandi og glöggskyggn foringi, málsnjall sveitarhöfðingi og litrík- ur þingmaður auk þess sem hann var bæði félagshyggju- og ein- staklingshyggjumaður. En fyrst og síðast var hann bóndi að eðli og uppruna, sem naut þess að fylgjast með og hlú að margbreytilegu líft. Hann naut samvistanna við náttúr- una og landið. Af jörðu var hann kominn og á vordegi hverfur hann í gróandi faðm jarðar, þar sem hann átti æskuheimili sitt. Pétur Pétursson. Ragnar Jónsson Fæddur 5. maí 1919 - Dáinn 14. apríl 1996 Kveðja frá börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum Hljóð og klökk og hlý er okkar lund hugitr ristur sárri tregans und. Komin hinsta kveðjustundin er. Kallið Itljómar: Leiðir skilja hér. Skilning sýndir, umhyggju og ást. Aldrei hjálp né fórnarvilji brást. Velferð okkarfyrir brjósti barst, blíður, trúr og ráðhollurþú varst. Faðir og afi okkur hugumkœr frá innstu rótum þakkarrósin grœr. Lýsa mun um lífs-ófarinn stig Ijúf ogfögttr minningin um þig. Höf: Haraldur Zophoníasson. Aðalfundur Sjálfsbjargar á Akureyri: Síendurteknar árásir ríkisstjómarinnar Á aðalfundi Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri og nágrenni, í síðustu viku, var samþykkt ályktun þar sem mótmælt er „sí- endurteknum og áframhaldandi árásum núverandi ríkisstjórnar á kjör og afkomuöryggi fatlaðs fólks og öryrkja," eins og orðrétt Skilafrestur auglýsingo í biaðið á fimmtudag, sumardaginn fyrsta, er til kl. 14 á þriðjudag. í laugardagsblaðið til kl. 10 föstudaginn 26. apríl. mm auglýsingadeild, sími 462 4222, fax 462 2087 Opið frá kl. 08.00-17.00 segir í ályktuninni. Minnt er á að með samþykkt fjárlaga hafi. ríkisstjómarflokkamir ákveðið margháttaðar skerðingar á kjörum fallaðra. Lífeyrislaun hafi með reglugerð ekki hækkað jafn mikið um áramót og almennt gerð- ist, sérstök lífeyrisuppbót hafi ver- ið lækkuð auk jtess að með reglu- gerð hafi réttur fatlaðra til bif- reiðakaupastyrkja verið skertur umtalsvert og styrkþegum í lægri flokki fækkað um tæpan helming. Aðalfundur Sjálfsbjargar beinir því til öryrkja og lífeyrislaunaþega að minnast „þessara árása og skerðinga og telur að vilji þeir reyna að verja og eða bæta kjör sín og afkomumöguleika, þá eigi þeir sjálfir þá einu möguleika að liætta að kjósa þá flokka sem þannig ráð- ast að og skerði kjör þeirra." Aðalfundurinn tekur undir mót- mæli verkalýðs- og stéttarfélaga vegna frumvarpa um stéttarfélög og vinnudeilur og væntir þess „að samtök þessara félaga minnist þess í komandi kjarasamningum, að þau eru eina haldreipi öryrkja og lífeyrislaunþega, sem geta tryggt þeim mannsæmandi framfærslu- laun og félagslegt öryggi.“ óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.