Dagur - 16.05.1996, Blaðsíða 6

Dagur - 16.05.1996, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 16. maí 1996 HVAÐ ER Af> OERA5T? SSSól og Keflavíkurnætur í Sjallanum SSSól sér um að skemmta gestum Sjallans á Akureyri annað kvöld, föstudagskvöld. A laugardagskvöldið verður síðan skemmti- dagskráin Keflavíkurnætur, þar sem gaml- ir, landsþekktir tónlistarmenn frá Keflavík skemmta gestum með eftirminnilegum ballöðum úr Keflavík. Að skemmtidag- skránni lokinni skemmtir hljómsveitin Keflavík, sem samanstendur af tónlistar- mönnunum sem koma fram í skemmtidag- skránni. Verð aðgöngumiða á dansleikinn er kr. 500 og verður húsið opnað á mið- nætti fyrir aðra en matargesti. Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri Hin árlega vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri verður opnuð í dag, fimmtudag- inn 16. maí kl. 14 í húsakynnum skólans að Kaupvangsstræti 16. Að þessu sinni verður lögð áhersla á að kynna hið yftrgripsmikla starf sem unnið er í skólanum, í dagdeild- unum þremur og á margvíslegum nám- skeiðum. í vetur stunduð 38 nemendur nám í dagdeildum, fomámsdeild, málundardeild og grafískri hönnun. Námskeið skólans voru fjölsótt í vetur og lætur nærri að 400 nemendur á ólíkum aldri hafi tekið þátt í námskeiðum skólans í haust- og vorönn. Þrettán nemendur ljúka eins árs námi í fomámsdeild og fjórir þriggja ára námi í sémámsdeildum, tveir úr málunardeild, þ.e. þau og Sölvi Hrafn Ingimundarson og Guðrún Fjóla Hallgrímsdóttir og tveir úr grafískri hönnun, þ.e. þær Margrét Kröyer og Hafdís Jónsdóttir. Nemendur útskrifast úr sémámsdeildum eftir þriggja ára nám með því að vinna lokaverkefni innan sér- greinarinnar. Allir em boðnir velkomnir á sýninguna til að kynna sér starfsemi Myndlistaskólans á Akureyri og njóta þess að skoða úrval þeirra verka sem nemendur skólans hafa unnið í vetur. Vorsýningin stendur til 19. maí og er opin kl. 14 tii 18 alla sýningar- dagana Nemendasýning hjá Erni Inga Nemendasýning verður hjá Emi Inga að Klettagerði 6 á laugardag milli kl. 14 og 18. Þar verða sýnd verk nemenda sem ver- ið hafa á myndlistamámskeiði hjá Emi og verða sýnd verk unnin með olíulitum, akrýllitum, pastellitum og leirverk eftir böm og fullorðna. Léttar veitingar verða í boði. Alls eru um 60 verk á sýningunni en um 30-40 manns hafa sótt þessi námskeið á önninni sem er að ljúka. Kennt var tvisvar í viku, þ.e. á þriðjudagskvöldum og laugar- dagseftirmiðdögum. Gunnar Straumland í Galleríi + og Listasafninu Um helgina er opin sýning Gunnars J. Straumlands í Galleríi + í Brekkugötu 35, inngangur í húsið að sunnan. Opnunartími sýningarinnar er frá kl. 14 til 18 á laugar- dag og sunnudag. Sýningunni lýkur 26. maí. Gunnar sýnir þama veggmálningu og innsetningu unna útfrá hugmyndinni um krossa og plúsa. Auk sýningarinnar í Galleríi + sýnir Gunnar verk sín fram til 26. maí í Lista- safninu á Akureyri. Hugmyndin (conceptið) á bakvið verk Gunnars er trúin og eru titlar flestra verk- anna í Listasafninu ritningargreinar í 1. Mósebók. I bæklingi sem fylgir með sýn- ingunni í Listasafninu segir Gunnar orðrétt: „Myndlistin hefur í gegnum aldirnar ásamt öðrum listgreinum þjónað og brugðist við trúarþörf mannsins. Verið notuð (misnot- uð) af stofnunum sem kenna sig við kristna trú. Oftar en ekki í hreinum „trúarpólitísk- um“ tilgangi, sem tæki til að halda fram „réttum" túlkunum vaidhafa kirkjunnar á Guðs orði. En hún hefur líka átt sínar góðu stundir þar sem tekist hefur að nálgast hreinleika og sannleika í kjama boðskaps heilagrar ritningar. Og það hefur, merkilegt nokk, ekki einungis gerst fyrr á öldum þeg- ar trúarhiti manna var meiri og nær öll myndlist í vestrænni menningu var gerð í nafni kristinnar trúar og á vegum stofnana hennar, heldur má og finna glæsileg dæmi um slíkt í myndiist þessarar aldar.“ Síðar í sama bæklingi segir Gunnar: „Sumir hinna svokölluðu „Abstract Expressionista" am- erískra, t.d. þeir Marko Rothko og Barnett Newman, vom meðvituð í sínum verkum að vinna að því sama marki; að beina sjón- um og tilfmningum áhorfandans að návist guðdómsins. Og þá ekki síst þeim sem í manninum býr. Hefur réttilega verið bent á tengsl þeirra við hina norrænu „róman- tísku“ málara 19. aldar sem höfðu það m.a. að markmiði að „hlutgera hið yfimáttúru- lega og guðdómlega". Auðvitað tókst þeim það ekki en það sem mest er um vert að þeir reyndu, - og þegar sú löngun, sú þrá, skilar sér til áhorfandans í gegnum myndir þeirra getur það óneitanlega orðið til þess að hann fari að íhuga nánar stöðu sína og tilfinningar gagnvart Guði, (- á sama hátt og ef spurt væri; „hver er tilgangur lífs- ins?“, þá yrði svarið; - að spyrja þessarar spumingar.“)“ Fyrmefndir málarar, Rothko og New- man, svo og fjölmargir aðrir jöfrar í menn- ingarsögu 20. aldar, svo sem Mondrian og Gunnar og Júlíus á Oddvitanum Gamlir kunningjar gesta Odd- vitans skemmta unt helgina. Þetta eru þeir Gunnar Tryggvason, hljómborðsleik- ari, og Júlíus Guðmundsson, söngvari. Þeir félagarnir munu skemmta annað kvöld og á laugardagskvöldið. Kandinsky, voru knúnir áfram af þessum eilífðarspumingum og þörf fyrir að nálgast guðdóminn (og hjálpa öðrum að sama marki), með fulltingi myndgerðar sinnar. I leiðinni tókst þeim rækilega að útvíkka sjóndeildarhring manna og hugmyndir þeirra um það á hvem hátt myndlistin gæti haft áhrif á það með hvaða augum hægt sé að líta veröldina í kringum sig og í sér sjálfum. Kannski tókst þeim með því að hjálpa mönnum að nálgast Guð. Á sýningu Gunnars í Galleríi + er áfram unnið með hugmyndina og tilfinn- ingar tengdar trúnni og tákni Kristinnar trúar, krossinum. Þar er veggmálning, mál- verk og innsetning unnin með krossa/plúsa. Sú sýning er forvitnilegt framhald af sýn- ingunni í Listasafninu. Vortónleikar söngdeildar TA Vortónleikar söngdeildar Tónlistarskólans á Akureyri verða á morgun, föstudag, á sal Gagnfræðaskólans á Akureyri. Fyrri tón- leikamir verða kl. 18 og þeir síðari kl. 20. Á tónleikunum kl. 18 koma fram fímm nemendur Más Magnússonar og Richard Simm er við píanóið. Á síðari tónleikunum koma fram sjö nemendur Hólmfríðar Bene- diktsdóttur og Michael Jóns Clarke. Með þeim leika Daníel Þorsteinsson og Guðrún A. Kristinsdóttir. Efnisskráin er fjölbreytt; íslensk lög, þýsk ljóð, ítalskar og þýskar aríur, gamlar og nýjar. Þess má geta að föstudaginn 24. maí nk. verða tónleikar Erlu Ingólfsdóttur, en hún er að taka lokapróf úr söngdeild Tón- listarskólans á Akureyri. Á þeim tónleikum koma einnig fram flautuleikarinn Hlíf ís- aksdóttir og trompetleikarinn Magnús Magnússon. Flóamarkaður Hjálpræðishersins Flóamarkaður Hjálpræðishersins verður á Hvannavöllum 10 á Akureyri á morgun, föstudag, k. 10-17. Tekið er á móti fatnaði og munum alla daga vikunnar á sama stað. Karlakórinn Stefnir á Dalvík og Akureyri Karlakórinn Stefnir úr Mosfellsbæ verður með tónleika í Dalvíkurkirkju annað kvöld, föstudagskvöld, kl. 21 og í Glerárkirkju á Akureyri nk. laugardag kl. 17. Aðaleinsöngvari á þessum tónleikum er Veiðisýning í Iþrótta- höllinni Skotfélag Akurcyrar heldur veiðisýningu í anddyri íþrótta- hallarinnar á Akureyri um næstu helgi þar sern kynntar verða vörur sem tengjast skot- veiði og stangveiði, auk þess sem uppstopparar og safnarar sýna á staðnum. Tilraun var gerð með sýn- ingu af þessu tagi í fyrra og þótti sú tilraun takast vel þann- ig að sýningin í ár verður viða- meiri og meira í hana lagt. Meðal sýnenda verða Hiað sf., Byssusmiðja Agnars, verslunin Veiðisport, Sportvörudeild KEA, Lindin við Leiruveg, Veiðistjóraembættið, Skóvinnustofa Harðar, Ámi Logi Sigurbjömsson og fleiri. Opið verður á sýningunni á iaugardag milli kl. 12 og 18 og á sunnudag milli kl. 10 og 17. Anna Vilhjálms á Pollinum Á veitingastaðnum Við Pollinn á Akureyri verður um helgina í fyrsta skipti hin rómaða hljóm- sveit Önnu Vilhjálms. Hún mun skemmta annað kvöid og á laugardagskvöldið. Ágúst Ólafsson, liðlega tvítugur bassa- baritón söngvari. Þá munu tveir félagar í kómum syngja einsöng; Stefán Jónsson, Birgir Hólm Ólafsson. Á efnisskránni er fjöldi þekktra karla- kórslaga, negrasálmar og hluti af sálu- messu eftir Liszt. I sálumessunni er leikið undir á orgel og Lárus Sveinsson mun taka eitt lag á trompetið með undirleik orgels- ins. Stjómandi Karlakórsins Stefnis, en í honum eru um 50 söngmenn, er Láms Sveinsson, undirleikari er Sigurður Mar- teinsson og Jóhann Baldvinsson, organisti Glerárkirkju, leikur á orgelið. Gas sýnt á Húsavík og í Ólafsfirði Islenska myndin Gas, sem Sævar Guð- mundsson leikstýrir, verður tekin til sýn- inga á Húsavík í kvöld, fímmtudag, kl. 21 og 22.30. Þá verður myndin sýnd í Ólafs- ftrði nk. sunndagskvöld kl. 21. Sýningum á Gasi er lokið á Akureyri en þar sáu myndina 2100 manns. Þá hafa um 700 manns séð Gas í Reykjavík. Síðar verður Gas.sýnd á Sauðárkróki, Siglufirði, Selfossi og Keflavík og þar á eftir á Aust- og Vestfjörðum. Handavinnusýning og kaffisala í Hlíð Handavinnusýning heimilis- og dagvistar- fólks á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri verður nk. sunnudag, 19. maí, kl. 14-18. Söluhorn verður með handavinnu auk kaffisölu í borðstofu. Síðasta 15 mínútna mótið Skákfélag Akureyrar verður með sitt síð- asta 15 mínútna mót í vetrardagskránni nk. sunnudag, 19. maí, kl. 14 í skákheimilinu við Þingvallastræti. Með hækkandi sól fer að hægjast um í starfi Skákféiagsins og sumarbragur færist yfir það. Skíðaganga á Reykjaheiði Næstkomandi laugardag, 18. maí, stendur Ferðafélag Akureyrar fyrir skíðapönguferð á Reykjaheiði milli Dalvíkur og Ólafsfjarð- ar. Lagt verður af stað frá skrifstofunni Strandgötu 23 kl. 8. Skráning fer fram á skrifstofu Ferðafélagsins föstudag kl. 17.30-19. Síminn er 4622720. Rjúpan á Torginu Hljómsveitin Rjúpan mun skemmta á veit- ingahúsinu Torginu á Akureyri í kvöld, uppstigningardag, og verður þar m.a. frum- flutt brot úr óperu sem Rjúpan er með í smíðum. kV/ íifl Pöstudag og laugardag: Gunnar Tryggva og Júlíus Guðmundsson í sumarsHapi Munið snyrtilegan Klæðnað 20 ára aldurstakmark OMKVUOfötö Strandgötu 53 • 5ími 462 6020 Akureyrarbær - Verkalýðsfélagið Eining: Vel heppnað námskeið Þann 16. apríl sl. hófst sérstakt verkefni á vegum fræðslufulltrúa Akureyrarbæjar og Verkalýðsfé- lagsins Einingar sem kallast Skiptivinna-nám. Um er að ræða skiptiverkefni fyrir ófaglært starfs- fólk hjá Akureyrarbæ og ófaglært starfsfólk á atvinnuleysisskrá - sem er fjölmennasti hópurinn á at- vinnuleysiskrá. Námskeiðinu lauk sl. miðvikudag og þá var meðfylgjandi hópmynd af þátttak- endum og aðstandendum nám- skeiðisins tekin. Ragnhildur Vigfúsdóttir, fræðslufulltrúi Akureyrarbæjar, segir að nítján einstaklingar af at- vinnuleysisskrá hafi setið nám- skeiðið í þrjár vikur, fengið fræðslu um Ákureyrarbæ, hlutverk hans og starfsemi, hlýtt á fræðslu- erindi um siðfræði vinnustaðarins, fengið starfskynningu á leikskóla- deild eða öldrunardeild í rúmar tvær vikur, sest á skólabekk á ný og fengið fræðslu um atvinnuleys- istryggingar, gert áhugasviðskönn- un og farið í grundvallaratriði um gerð atvinnuumsókna. Ragnhildur segist vera mjög ánægð með námskeiðið. Hún nefndi að af þeim nítján sem komu í starfsþjálfun séu að minnsta kosti fimm búnir að fá afleysingavinnu í sumar. Ragnhildur sagði að því miður verði að segjast alveg eins og er að fræðsla fyrir atvinnulausa sé af skomum skammti á Akureyri. Þó sé vert að geta um Menntasmiðju kvenna, en þar komist að 40 konur á ári, og skóla Menningar- og fræðslusambands alþýðu, sem hef- ur verið starfræktur í bænum frá því í janúar og starfinu lauk form- lega í gær. Ragnhildur segir að skortur á starfsreynslu hái mörg- um atvinnulausum einstaklingum, einkum þó af yngri kynslóðinni. Þá gat Ragnhildur þess að um- sókn hennar um styrk úr Atvinnu- leysistryggingasjóði hafi verið hafnað og því allur kostnaður fall- ið á Akureyrarbæ. Reyndar sagði hún að búið væri að óska eftir að málið verði tekið upp að nýju. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.