Dagur - 16.05.1996, Blaðsíða 8

Dagur - 16.05.1996, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 16. maí 1996 paprika, laukur, ananas, sósa og oslur 950,- 1.300,- 1.650,- 1.890,- 7. Reggio Mosarella, maribo, gráðaostur, camembert, sósa og ostur 650,- 950,- 1.200,- 1.450,- 8. Margarita Sósa og ostur 500,- 600,- 700,- 800,- 9. Etna Mikið pepperoni, sveppir, ferskur chilli, chilli krydd, sósa og ostur 800,- 1.100,- 1.400,- 1.700,- 10. Bari Skinka, pepperoni, bananar, sósa og ostur 750,- 1.000,- 1.200,- 1.500,- 11. Parma Túnfiskur, kræklingur, rækjur, laukur, sósa og ostur 850, 1.150,- 1.450,- 1.750,- 12. Como Pepperoni, ananas, sósa og ostur 650,- 850,- 1.050,- 1.250,- 13. Magenta Sveppir, paprika, laukur, tómatar, maís, sósa og ostur 700,- 950,- 1.250,- 1.450,- 14. Juventus Skinka, paprika, ananas, bananar, sósa og ostur 750,- 1.050,- 1.350,- 1.650,- 15. Torino Nautahakk, pepperoni, sveppir, svartur pipar, sósa og ostur 800,- 1.100,- 1.400,- 1.700,- 16. Padova Pepperoni, grænn pipar, gráðaostur, sósa og ostur 700,- 950,- 1.200,- 1.450,- Kjötálegg, verð pr. piz/u hver tcgund 100,- 150,- 200,- 250,- Grienmeti, verð pr. pizzu hver tegund 50,- 100,- 150,- 200,- Hvítlauksbrauð 200,- 300,- 400,- 500,- Muvtid: Kjúklingabitar, brauðstangir, hamborgarar, laukhringir eg fl. Kafifitónleikar ágítar Kristinn H. Árnason, gítarleikari, efndi til tónleika í Deiglunni í Grófargili á Akureyri sunnudag- inn 5. maí. Kristinn H. Ámason er Akur- eyringum af góðu kunnur. Hann hefur tvísvar, árin 1991 og 1995, tekið þátt í gítarhátíðum þeim, sem Örn Viðar Erlendsson á mest- an heiður af og haldnar hafa verið á Akureyri árlega undanfarin sum- ur. Þessar hátíðir hafa verið tilefni þess, að gítarleikarar í fremstu röð, jafnt innlendir sem erlendir, hafa gist Akureyri. Þeir hafa hald- ið námskeið með nemendum gít- ardeildar Tónlistarskólans á Akur- eyri og öðrum, sem til bæjarins hafa komið til þess að taka þátt í hátíðinni. Gítarhátíðirnar hafa orðið til þess að vekja athygli Akureyringa á gítamum; þessu hljóðláta en kyngimagnaða hljóðfæri. I hönd- um góðs listamanns eru fá hljóð- færi, sem hafa jafnmikið til að bera á sviði innri tjáningar og per- sónulegrar túlkunar. Jafnvel þó að gítarinn sé ekki í höndum snill- ings, er hann gjöfull sem miðill tónlistar, hvað þá, þegar á hann er leikið af tónlistarmanni sem Kristni H. Ámasyni, sem hefur í sannleika náð valdi á honum, kyngi hans og galdri. Kristinn H. Ámason er án efa á meðal allra fremstu gítarleikara hér á landi. Hann virðist vera sam- gróinn hljóðfæri sínu, þegar hann leikur á það. Það hlýðir honum svo sem rödd góðum söngvara. Kristinn hefur sem næst ótrúlega tækni til að bera. Þetta koma fram í þeim verkum, sem hann lék á tónleikunum í Deiglunni. Ekki síður er hann mjög eftirtektarverð- ur túlkandi, sem hefur mikið að gefa í persónulegri tjáningu þeirra verka, sem hann tekur til flutn- ings. Tónleikamir í Deiglunni voru stuttir, en þeir voru gjöfulir. Á efnisskrá voru meðal annarra verk eftir Augustin Barrios Mangore og Francisco Tárrega og J. S. Bach. Hverju verki og hverri tón- listargrein gerði Kristinn skil í samræmi við aldur og uppruna, gerð og tilefni auk þess sem hinn persónulegi blær þroskaðs lista- manns setti mark sitt á flutning og gerði hann dýpri og áhugaverðari. Tónleikamir í Deiglunni voru að hluta til haldnir til þess að kynna geislaplötu, sem út er kom- in með leik Kristins. Á plötunni flytur hann nokkur þeirra verka, sem hann lék á kaffitónleikunum auk fjölda annarra. Verkin eru eft- ir Augustin Barrios Mangore og Francisco Tárrega. Þau eru skemmtilega fjölbreytt að gerð og blæ í túlkun Kristins H. Ámason- ar, svo að vídd efnisins er mikil þrátt fyrir það, að höfundar þess eru einungis tveir. Platan er góð eign þeim, sem áhuga hafa á vandaðri og fag- mannlega fluttri klassískri gítar- tónlist. Hún og flytjandinn gefa plötunni gildi umfram annað. Plat- an hefur líka annað til sín, sem gerir hana að sjálfsagðri eign hvers unnanda tónlistar og ekki síst þeirra, sem áhuga hafa á ís- lenskum flytjendum. Það er það, að hún er fyrsta platan með klass- ískum gítarleik, sem út kemur á Islandi með íslenskum listamanni - og hann er sannarlega ekki af verri endanum. Haukur Ágústsson. Á hjólreiðadegi fjölskyldunnar í Gierárskóla. Hjólað var að Kvenfélagslundi þar sem farið var í leiki og grillað áður en þátttakendur héldu lengra. Frí heimsending Pizzur PMf&Mf 1. Pisa Nautahakk, sveppir, grænn pipar, sósa og ostur 2. Genova Pepperoni, laukur, ólífur, sósa og ostur 3. Napoli Skinka, ananas, sósa og ostur 4. Quatro Staccione Nautahakk, sveppir, grænn pipar, pepperoni, ólífur, túnfískur, rækjur, salami, laukur, hvítlaukur, sósa og ostur 5. Busto Salarni, laukur, ólífur, sósa og ostur 6. Milan 700,- 950,- 1.200,- 1.450,- 750,- 1.000,- 1.250,- 1.500,- 650,- 850,- 1.050,- 1.250,- 800,- 1.050,- 1.350,- 1.600,- 750,- 1.000,- 1.250,- 1.500,- Þessar dömur voru áhugasamar um bobspilamennsku við Oddeyrarskóla. TÓNLIST Vorkoman í grunnskólunum Þegar kemur fram á vorið fer að losna um skólastarfið í grunnskól- unum. Síðustu kennsludagarnir lfða og síðan taka prófin við áður en nemendurnir leggja út í sumar- ið og takast á við önnur verkefni. Foreldrastarfið í skólunum fer þá jafnframt í frí og viðeigandi er að halda með einhverjum hætti upp á vetrarlokin í skólunum. Foreldrar og nemendur hittust og skemmtu sér saman í þrernur grunnskólum á Akureyri um síðustu helgi, þ.e. á hjólreiðadegi í Glerárskóla, stjörnudegi í Síðuskóla og for- eldradegi í Oddeyrarskóla. Margt var til gamans gert, t.d. skrúðgöngur, hjólreiðar og leikir og síðan voru veitingar og margar heitar pylsurnar sem runnu ljúf- lega niður. Ljósmyndarar Dags litu við í skólunum smelltu meðfylgjandi myndum af uppá- komunum. Nemandi í Síðuskólanum í fánalitunum. Hann þáði að fá sér grillaða pylsu þegar á daginn leið. Já, það var spauglaust að bregða sér í „búning“ lögreglumannsins sem var við Oddreyrarskólann.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.