Dagur - 16.05.1996, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 16. maí 1996 - DAGUR - 9
Hreiðar Eiríksson, rannsóknarlögreglumaður á Akureyri, undirbýr sig fyrir öryggisstörf
á Ólympíuleikunum í Atlanta í sumar:
„Tækifærí sem ekki
var hægt að sleppa“
Vildu fá lögreglumenn í
öryggisvörsluna
„Upphafið að þessu ævintýri
var í apríl í fyrra þegar dóms-
málaráðuneytið auglýsti eftir
sjálfboðaliðum til að starfa sem
öryggisverðir á Olympíuleikun-
um í Atlanta í Bandaríkjunum.
Þegar ég sá þessa auglýsingu þá
hugsaði ég með mér að svona
tækifæri gæti ekki boðist mér
nema einu sinni á ævinni og því
gæti ég ekki réttlætt að sækja
ekki um. Ég gat ekki sleppt
tækifæri til að öðlast svona dýr-
mæta reynslu,“ segir Hreiðar
Eiríksson, rannsóknarlögreglu-
maður á Akureyri, sem situr
þessa dagana yfir fræðsluefni í
bókum og á myndbandsspólum
þar sem farið er yfir ýmislegt
sem varðar öryggis- og löggæslu
á Olympíuleikunum í sumar.
Hreiðar á í vændum ævintýra-
legt sumar þar sem hann mun
starfa, ásamt 22 öðrum lög-
reglumönnum frá Islandi, við
öryggisvörslu á OL í Atlanta.
Líkast til verður þó íslenski
hópurinn ansi smár meðal
þeirra þúsunda sem vinna við
öryggis- og löggæsluinál í Atl-
anta meðan á þessum risavaxna
viðburði stendur og raunar
inniheldur dvölin í Atlanta
meira en störf meðan á leikun-
um stendur því öryggisverðirnir
þurfa að sækja hálfs mánaðar
námskeið fyrir leikana og að
þeim loknum þurfa þeir að
starfa meðan á frágangi stend-
ur. Samfleytt dvelst hópurinn
því í fimm vikur í Atlanta.
Ættir Þingeyinga:
Fimmta
bindið
kemur út í
sumar
Fimmta bindið í ritröðinni Ætt-
ir Þingeyinga í samantekt
Brynjars Halldórssonar í Gil-
haga við Öxarfjörð kemur út á
næstunni. Þetta er framhald
þeirra rita sem Indriði Indriða-
son frá Fjalli í Aðaldal setti
saman og komu út fyrir margt
löngu. Nú hafa nýjar upplýsing-
ar bæst við og eru þær efniviður
hins væntanlega bindis.
„Ég hef unnið að þessari útgáfu
síðasta eina og hálfa árið, en
reyndar hef ég verið í ættfræði-
grúski mun lengur. Það hjálpar
mér við að taka upp þráðinn í
þessu verkefni," sagði Brynjar
Halldórsson í samtali við Dag.
Hann hefur undir höndum ýmis
gögn Indriða frá Fjalli og vinnur
úr þeim, auk þess sem nýrra upp-
lýsinga er aflað. í fyrri bindum
voru ættir Þingeyinga ekki raktar
nema fram til 1950, en nú er reynt
að fara alveg fram til nútíðar.
Héraðsnefndir Suður- og Norð-
ur-Þingeyjarsýslna gefa rit þetta
út. Það er nú í prentvinnslu hjá
Asprenti - POB á Akureyri og
segir Brynjar Halldórsson að
vænta megi þess að ritið komi út í
júní eða júlí í sumar. -sbs.
„Við förum ekki út sem lögreglu-
menn heldur sem öryggisverðir.
Það var óskað eftir sjálfboðaliðum
sem væru starfandi lögreglumenn
í heimalandi sínu og hefðu yfir
málakunnáttu að ráða. Þegar við
komum út förum við á námskeið í
mannfjöldastýringu, gæslu á
íþróttaleikum og námskeið fyrir
stjómendur en við höfum núna
fengið kennslubók og myndbands-
spólu þar sem farið er yfir ýmis
smærri atriði sem við þurfum að
hafa kynnt okkur áður en nám-
skeiðin hefjast," segir Hreiðar, en
hópurinn heldur til Atlanta þann
2. júlí næstkomandi og kemur til
baka um miðjan ágústmánuð.
Yrði spennandi að vinna á
íþróttaleikvöngunum
Hreiðar segist ekki vita hvar hann
eigi að starfa og því síður um
verkefnin. Þau geti falist í gæslu á
keppendum, á leiðum keppenda
eða jafnvel inni á leikvöngunum
sjálfum. Þetta atriði segir hann
ekki verða upplýst fyrr en komið
verði á staðinn. Hreiðar viður-
kennir að það gæti orðið mjög
spennandi að upplifa það að vera
á leikvöngunum sjálfum.
„Okkur var sagt það þegar við
sóttum um að þeir sem yrðu allan
tímann, þ.e. gætu sótt námskeiðin,
hefðu meiri möguleika á að kom-
ast ijin á sjálfa keppnisleikvang-
ana. Persónulega finnst mér það
mest spennandi, t.d. að geta séð
frjálsíþróttakeppni en það verður
að koma í ljóst hvort sá draumur
rætist."
Hreiðar segir að það taki óneit-
anlega á að vita af þessu verkefni í
nánd. „Jú, að því leyti til að maður
veit ekki hvað það innifelur ná-
kvæmlega og líka hitt að þama er
ég í landi sem ég hef aldrei komið
til áður. Auk þess veit ég ekkert
um kostnaðinn en ég reikna með
að fyrir hvert okkar kosti þetta um
200 þúsund krónur. Það er ætlast
til að við sjáum um okkur sjálf á
staðinn en okkur er lagt til hús-
næði og fullt fæði, auk þess sem
við fáum einkennisbúninga og
slikt sem við fáum að taka með
okkur og eiga til minja um leik-
ana.“
Gæti orðið dýrmæt reynsla
Nokkur munur er á að starfa í um-
hverfi eins og á Akureyri eða í
stórborg á við Atlanta. Aðspurður
um ótta af skotvopnum sem eru
algeng á götunum í Bandaríkjun-
um segir Hreiðar að öryggisverð-
imir þurfi ekki að bera vopn og Is-
lendingarnir komi ekki til með að
starfa í framverði löggæslunnar.
„Við hljótum því að vera varðir
og hafa styrk af vopnaðri lögreglu
og mér finnst ekki líklegt að við
séum í meiri hættu þama en hver
annar sem kemur á leikana. Þetta
er þó ekki atriði sem ég hef neitt
velt fyrir mér og hef engar
áhyggjur af.
Af því efni sem ég er búinn að
fá frá Bandaríkjunum þá finnst
mér mikið til koma hve öryggis-
málin eru skipulögð í kringum
leikana. Bandaríkjamenn hafa nýtt
sér vel reynslu fyrri leika en þetta
er allt miklu stærra um sig en
maður gerir sér í fljótu bragði í
hugarlund. Þetta er allt mjög agað
og mikil hugsun að baki starfinu.
Fagmennskan er greinilega mikil
og byggð á gríðarlega mikilli
reynslu af fjöldasamkomum á
borð við ÓL.
Mér finnst líka mikils virði að
taka þátt í svona stóru verkefni
eins og Ólympíuleikamir eru og
vera á staðnum. Þegar ég sá aug-
lýsinguna fyrst þá fannst mér
ófært að sleppa þessu vegna þess
að þama öðlast maður þekkingu á
gæslustörfum á íþróttaviðburðum
og það gæti átt eftir að nýtast þeg-
ar heim kemur. Þó ekkert jafnist á
við Ólympíuleikana þá eru okkar
íþróttaviðburðir að verða stærri og
stærri og reglulega koma hér upp
viðburðir sem fólk sækir víðar að
en frá íslandi. Þar má t.d. benda á
HM í handknattleik í fyrra og
landsmót hestamanna á Melgerð-
ismelum sem er framundan árið
1998 og verður líklega eitt hið
stærsta sem haldið hefur verið.
Öryggis- og löggæsla á viðburð-
um sem þessum þarf að vera vel
skipulögð og þekkinguna á þess-
um hlutum er best að sækja er-
lendis.“
Mikið álag meðan á stendur
Hreiðar segist nú þegar hafa feng-
ið að vita að hann muni vinna á
dagvöktum, átta tíma ströngum
vöktum og vafalítið muni þetta
verkefni taka talsvert á. „Mér sýn-
ist af því sem ég hef séð af upp-
lýsingunum að þó svo að farið sé í
sumarfríinu frá störfum hér heima
þá veiti ekki af að taka frí þegar
heim verður komið þvt' álagið
verður mikið. Vinnutap getur því
bæst við útlagðan kostnað."
Þessi sérstaka Olympíusveit ís-
lenskra öryggisvarða hefur haft
nokkuð samband sín í milli en
kemur til með að hittast í heild
þegar haldið verður utan í júlíbyrj-
un. Hreiðar er eini fulltrúinn frá
Akureyri en einn lögreglumaður
fer frá Blönduósi, annar frá Ísa-
firði, einn frá Vestmannaeyjum og
aðrir koma af höfuðborgarsvæð-
inu.
- Átt þú þér einhverja óska-
stöðu á leikunum?
„Já, ég vildi auðvitað helst
upplifa það að komast inn á
íþróttaleikvangana. Þar gæti mað-
ur komist í nálægð við íþróttavið-
burðina sjálfa og sjá keppnina.
Hins vegar geri ég mér engar
grillur um að verða svo heppinn,“
svarar Hreiðar. JÓH
öntusala
Plöntusalan er hafin
Úrval af skógarplöntum, garðplöntum,
runnum, rósum og hnausaplöntum.
Opið daglega frá kl. 8-17.30
og um helgar frá 10-16.
ikógrækt ríkisins Vöglumog
Laugabrekku Skagafirði.
Bandaríkjamenn hafa skipulagt vel allt öryggis- og löggæslustarf í kringum
Olympíuleikana í Atlanta og hér heldur Hreiðar á fyrsta hluta af því
kennsluefni sem öryggisveröirnir á leikunum þurfa að kynna sér áður en
þeir koina á námskeið í Bandaríkjunum fyrir leikana. Mynd: BG