Dagur - 16.05.1996, Page 11
IÞROTTIR
Fimmtudagur 16. maí 1996 - DAGUR - 11
FROSTI EIÐSSON
Handbolti:
KA-menn vinna í að
fá erlendan leikmann
Fred Williams, bandaríski leikmaðurinn sem lék með Pór sl. vetur.
Karfa:
Williams líklega
áfram hjá Þór
Flest bendir til þess að Fred
Williams, bandaríski leikmaður-
inn sem lék með úrvalsdeildar-
liði Þórs á síðasta keppnistíma-
bili, muni verða aftur með liðinu
næsta vetur.
Stjómarmönnum körfuknatt-
leiksdeildarinnar hefur gengið illa
að ná í Williams í síma, þar sem
hann var á keppnisferðalagi um
Bandaríkin, en það tókst í fyrra-
dag og lýsti Williams yfir miklum
áhuga á að koma aftur. Hins vegar
á enn eftir að ganga frá samning-
um.
Williams var einn þeirra sem
Þórsarar höfðu hug á að fá sem
Karfa:
Sigur gegn
Norðmönnum
fslenska landsliðið í körfuknatt-
leik sigraði það norska í fyrri
vináttuleik þjóðanna í Laugar-
dalshöllinni. Lokatölur urðu
78:72 eftir að Norðmenn höfðu
leitt með tíu stigum í leikhléi,
32:42.
Stig íslands: Teitur Örlygsson
28, Guðmundur Bragason 16,
Helgi Jónas Guðfinnsson 15, Her-
mann Hauksson 10, Hjörtur Harð-
arson 6, Jón Amar Ingvarsson 2,
Herbert Amarsson 1.
Handbolti:
Valdimar til
Stjörnunnar
Valdimar Grímsson hefur verið
ráðinn þjálfari 1. deildarliðs
Stjörnunnar í handknattleik og
tekur við stöðunni af Viggó Sig-
urðssyni.
Valdimar sem hætti sem þjálf-
ari Selfossliðsins fyrir nokkrum
dögum, skrifaði undir tveggja ára
samning við Garðabæjarliðið.
Knattspyrna - U18:
írar áfram á EM
ísland og írland skildu jöfn, 1:1, í
viðureign U-18 ára liða þjóðanna
á Laugardalsvellinum í fyrra-
kvöld. írar sigruðu 2:1 í fyrri
leiknum í Dublin og tryggðu sér
þar með réttinn til að leika í sex-
tán liða lokakeppni Evrópumóts
landsliða, sem fram fer í Frakk-
landi í sumar. Desmond Baker
skoraði fyrsta mark leiksins á 10.
mínútu fyrir íra en Þorbjöm Atli
Sveinsson, leikmaður Fram, jafn-
aði metin fyrir íslenska liðið á 62.
mínútu.
þjálfara fyrir næsta vetur, en
Bandaríkjamaðurinn hafði ekki
áhuga á þjálfun. Þór hefur verið á
höttunum eftir þjálfara, sem leikið
gæti með liðinu, en nú bendir flest
til þess að svo verði ekki.
Búast má við því að litlar
breytingar verði á leikmannahópn-
um frá því í fyrra, en flestir leik-
mennimir munu vera ákveðnir í
að vera áfram.
Knattspyrnudómarar þurfa á
hverju ári að gangast undir þol-
próf og standast skriflegt próf til
þess að fá skírteinið. Landsdóm-
arar sátu ráðstefnu á Laugar-
vatni 26. til 28. aprfl og þreyttu
þar sitt þolpróf.
Til að standast þolprófið þurfa
dómarar að hlaupa 50 metra í tví-
gang á skemmri tíma en 7,5 sek-
úndum, 200 metra hlaup tvisvar á
skemmri tíma en 35 sekúndum og
loks að hlaupa í 12 mínútur og
komast á þeim tíma a.m.k. 2.600
metra. Ymsar breytingar verða á
knattspymulögunum fyrir sumar-
ið, m.a. á hagnaðarreglunni þann-
ig að dómari skal forðast að dæma
þegar hann er sannfærður um að
með því veiti hann hinu brotlega
liði hagnað. Starfsheitið línuvörð-
ur hverfur alveg úr lögunum og í
stað þess kemur aðstoðardómari.
Minnt er á að rangstaða er ekki
alltaf refsiverð, leikmanni skal að-
eins refsað að hann taki virkan
Handknattleiksdeild KA vinnur
nú að því að fá erlendan leik-
manna til félagsins. Sem kunn-
ugt er má aðeins einn erlendur
leikmaður leika í hverju liði, en
Julian Duranona, erlendi leik-
maður KA sl. vetur, fær
væntanlega íslenskan ríkisborg-
ararétt eftir nokkrar vikur.
Hann var á lista þeim sem alls-
herjarnefnd alþingis mælti með
að fengi íslenskan ríkisborgara-
rétt. Alls mælti nefndin með 132
einstaklingum og búist var við
því að Alþingi tæki fyrir frum-
varpið um veitingu ríkisborgara-
réttar í gær. Það frumvarp öðl-
ast síðan gildi með birtingu í
stjórnartíðindum í næsta mán-
uði.
„Þetta eru mjög góð tíðindi fyr-
ir okkur og við getum farið að
vinna í okkar málum. Við emm
með ákveðna menn í huga, en ég
vil ekkert gefa upp meira um þá á
þessari stundu," sagði Alfreð
Gíslason, þjálfari KA. Alfreð
sagði jafnframt að margt benti til
þess að Þorvaldur Þorvaldsson,
þátt í leiknum að mati dómara,
þ.e. hafi áhrif á leikinn, hafi áhrif
á mótherja eða hafi hagnað af
staðsetningu sinni.
17 norðlenskir dómarar verða
með flautuna upp í sér í sumar.
Það eru þeir Bragi Bergmann, Ár-
roðanum, sem dæmir í 1. deild,
Rúnar Steingrímsson, Þór, sem
dæmir í 2. deild og Jóhannes Val-
geirsson, KA, sem dæmir í 3. og í
4. deild og aðstoðardómarar í efri
deildum þeir Ámi Arason, KA,
Bergsteinn Helgi Helgason, HSÞ,
Guðmundur Jónsson, Dalvík,
Helgi Indriðason, Dalvík, Jóhann
Örn Amarson, Hvöt, Jón Þór
Ágústsson, Þór, Kristján Blöndal,
Tindastóli, Kristján Tryggvi Sig-
urðsson, Reyni, Pálmi Sighvats-
son, Tindastóli, Róbert Óttarsson,
Tindastóli, Stefán Aðalsteinsson,
KA, Sveinn Rúnar Arason, Völs-
ungi, Sverrir Gunnar Pálmason,
KA og Þorsteinn Ámason, Þór. GG
Julian Duranona, slapp inn á lista
allsherjarnefndar.
sem leikið hefur með danska lið-
inu Fredericia, muni koma heim
og leika með KA næsta vetur.
KA-menn hafa einnig verið að
leita fyrir sér að markverði, en
Ijóst er að varamarkvörður liðsins
í fyrra, Bjöm Bjömsson, fer í
skóla til Danmerkur í haust. Þá
MOTIÐ HEFST
ANNAÐ KVÖLD
Fyrstu leikir íslandsmótsins fara
fram annað kvöld, en þá verða þrír
leikir háðir í 4. deild. ÍA og KR
leika í Meistarakeppninni KSÍ á
laugardaginn og Mizunodeildin, -
1. deild kvenna - fer síðan af stað
á sunnudaginn. Kvennalið ÍBA og
3. deildarlið Dalvíkur verða fyrstu
norðlensku liðin til að hefja leik á
mótinu. ÍBA mætir Aftureldingu í
Mosfellsbænum á sunnudaginn kl.
14 og á sama tíma hefst leikur
Ægis og Dalvíkur.
Keppni í 2. deild karla hefst á
mánudagskvöld, með viðureign
Þróttar og Fram, en kvöldið eftir
fara fram fjórir leikir í deildinni,
þar af er viðureign KA og Víkings
á Akureyrarvellinum. Keppni í 1.
deild karla - Sjóvá almennra
deildinni - hefst næsta fimmtudag,
- eftir viku.
_______________________á&i
Þorvaldur Þorvaldsson er líklega á
heimleið.
mun Helgi Þór Arason fara í skóla
í Bergen í Noregi og hann mun
líklega leika með liði ytra. Ólafur
Bjöm Ólafsson, homamaður, sem
kom inná í nokkrum leikjum liðs-
ins sl. vetur, fer suður og lfklegt er
að hann leiki með nýliðum Fram í
1. deildinni næsta vetur.
Knattspyrna:
Völsungur
mætir KA
Síðasti leikurinn í JMJ-mótinu,
vormóti Knattspyrnuráðs Akur-
eyrar, verður háður í dag, á
gamla grasvellinum á Húsavík.
Völsungur tekur á móti KA og
hefst leikurinn klukkan 15:30,
þar sem ekki reyndist unnt að
útvega dómara á áður auglýst-
um tíma.
Leikur liðanna sker úr um það
hvort liðið stendur uppi sem sigur-
vegari í mótinu. Fjögur lið af
fimm í mótinu eru með sex stig og
sigurliðið stendur því uppi sem
meistari. Lykti leiknum með jafn-
tefli, þá stendur Völsungur uppi
sem sigurvegari, þar sem liðið
hefur skorað fleiri mörk á mótinu
heldur en KA.
Knattspyrna:
Martin með KA
Dean Martin, Englendingurinn
sem valinn var besti leikmaður
meistaraflokks KA sl. sumar og
leikið hefur með enska 2. deild-
arliðinu Brentford í vetur, er
væntanlegur til landsins í dag.
Hann hefur gefið munnlegt
samþykki fyrir því að hann
muni leika með KA-liðinu í 2.
deildinni í sumar.
Martin er væntanlegur til Ak-
ureyrar á morgun og reiknað er
með að hann gangi endanlega frá
samningum við KA um helgina.
Hann gæti því verið í liði KA á
þriðjudaginn, þegar liðið mætir
Víkingi í fyrsta deildarleiknum.
Félagaskipti erlendra leik-
manna, sem koma hingað til
lands, ganga yfirleitt mjög fljótt
fyrir sig. Knattspyrnusambandið
þarf þó að fá staðfestingu hjá
Brentford áður en Martin fær
heimild til að leika með Akureyr-
arliðinu.
Dean Martin.
Knattspyrna - íslandsmótið hefst annaö kvöld:
Nokkrar breytingar á knatt-
spyrnulögunum fvrir sumarið
Leiðrétting
Anna Rún Kristjánsdóttir, fötluð
sundkona úr Óðni, byrjaði ekki að
æfa sund á síðasta ári, eins og sagt
var í Degi í gær. Hún byrjaði að
æfa hjá Óðni á síðasta ári, en
hafði æft sund í Danmörku, þar
sem hún bjó áður, frá átta ára
aldri.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080