Dagur - 11.07.1996, Page 1
79. árg.
Akureyri, fímmtudagur 11. júlí 1996
129. tölublað
Skandia
A Lifandi samkeppni
W - lœgri iðgjöld
Geislagötu 12 • Sími 461 2222
Dilkakjötsframleiðsla:
Kjötfjallið
snarlækkar
Mér sýnist kjötQallið ætla að
snarlækka mikli ára. í
upphafí sláturtíðar í fyrra var
það um 2.200 tonn, en það verð-
ur um það bil helmingi lægra nú
- ef að líkum lætur,“ sagði Gísli
Karlsson, framkvæmdastjóri
Framleiðsluráðs landbúnaðar-
ins, í samtali við Dag.
Nýtt verðlagsár í landbúnaðar-
framleiðslu hefst 1. september og
á líðandi framleiðslutímabili er nú
í fyrsta sinn unnið eftir búvöru-
samningi, sem tók gildi 1. október
í fyrra. Samningurinn, sem gildir
Húsavík:
Upplýsingarit um
Norðausturland
komið út
Nýlega kom út blað sem nefn-
ist „Velkomin á Norð-Aust-
urland“ og er útgáfa þessa rits
einkaframtak tveggja kvenna,
sem áhuga hafa á ferðamálum.
Þetta eru þær Auður Gunnars-
dóttir á Húsavík og Sigrún Ing-
varsdóttir á Héðinshöfða á
Tjörnesi.
f ritinu er að finna upplýsingar
um Norðausturland bæði á ís-
lensku og ensku. Blaðið er allt hið
vandaðasta, prýtt fjölda litmynda
frá þessum landshluta.
„Þetta var hugmynd sem við
hrintum í framkvæmd, við viljum
með útgáfu þessari koma á fram-
færi í sérriti upplýsingum um af-
þreyingu fyrir ferðamenn sem
þennan landshluta heimsækja. í
byrjun mættum við á fundum hjá
hinum ýmsu ferðamálafélögum á
svæðinu og kynntum hugmynd-
ina, okkur var það vel tekið að rit-
ið hefur nú litið dagsins ljós og
áætlað er að vera aftur á ferðinni
með blað næsta vor. Blaðinu hefur
verið mjög vel tekið, þar sem ég
hef haft af því spumir og er ég að
sjálfsögðu mjög ánægð með það,“
segir Sigrún Ingvarsdóttir, annar
útgefandanna. Blaðið er 30 síður
prentað í Asprenti á Akureyri, um
útlit og hönnun sá prentstofan Örk
á Húsavík. Norðausturland er gef-
ið út í 5000 eintökum og er dreift
án endurgjalds. GKJ
til aldamóta, miðar að minnkandi
kindakjötsframleiðslu, eða því að
sauðfé í landinu fækki um 30.000
á samningstímabilinu og fjárbúum
um að minnsta kosti 200. Gísli
Karlsson segir þau markmið sem
samningurinn miðar að ætla að
nást. Kjötfjallað lækki stómm
milli ára, svo sem nteð útflutningi
á vegum bænda sjálfra. Sala
kindakjöts á innanlandsmarkaði
hafi einnig aukist, til dæmis með
kjaraboðum á grillkjöti.
Búvörusamningurinn gerir ekki
ráð fyrir neinni hámarkstölu slát-
urfjár, en innleggjendur þurfa að
halda sig innan kvóta ætli þeir að
njóta beingreiðslna fyrir fram-
leiðslu sína. Þær lækka svo ár frá
ári, en meginstefið í samningnum
frá liðnu hausti er að draga úr rík-
isframlögum til sauðfjárfram-
leiðslu og lækka kjötfjallið - sem
er að gerast. -sbs.
Siglt inn í sólargeislann
Fátt er fegurra um bjartar sumarnætur á Norðurlandi en dýrðleg miðnætursólin, sem glampar á Grímseyjarsundi.
Þessi mynd er tekin frá eystri munna Strákaganga við Siglufjörð við sólaruppkomu, síðla nætur, þar sem fullfermd-
ur loðnubátur siglir inní sólargeislann sem sindrar á haffletinum. Mynd: -sbs.
Um 16 þúsund notendur GSM á íslandi:
Mývatnssveit næst í samband
GSM farsímakerfið hefur ver-
ið mjög vinsælt meðal ís-
lendinga og nú eru notendur hér
á landi í kringum 16 þúsund.
Uppbygging á GSM kerfínu er í
fullum gangi þó svo hún gangi
hægar nú en hefur verið undan-
farin tvö ár. Allir stærstu
byggðakjarnar eru komnir í
samband og útbreiðslan heldur
áfram. Samkvæmt upplýsingum
frá Pósti og síma er Mývatns-
sveit ofarlega á lista yfír þá
byggðakjarna sem komast næst í
samband og hugsanlegt að af því
verði síðar í sumar.
GSM kerfið er með 30-35 km
hámarkslangdrægni frá radíómóð-
urstöð en þá er miðað við sjónlínu
og gert ráð fyrir að farsíminn sé
utanhúss. Uppsetning radíómóður-
stöðva hefur verið stöðug síðustu
tvö ár og stór hluti suð- vestur-
homsins nær GSM sambandi og
helstu byggðakjamar annars stað-
ar á landinu. Á Norðurlandi
tengdust Húsavík og Sauðár-
krókur síðasta sumar og í vetur
voru settar upp radíómóðurstöðvar
við Blönduós, Ólafsfjörð, Dalvík,
Siglufjörð og Varmahlíð.
Hvammstangi bættist við í haust
og að sögn Einars Vilhjálmssonar,
upplýsingafulltrúa fyrir farsíma-
kerfi Pósts og síma, horfa menn til
Mývatns sem næsta staðsetningar-
staðar á radíómóðurstöð á Norður-
landi. „Vonandi verður stöðin sett
upp við Mývatn í sumar en það er
svo margt í sambandi við þessa
ákvörðunartöku sem heldur aftur
af okkur,“ sagði Einar í samtali
við Dag.
Þrátt fyrir þennan fjölda not-
enda á GSM símakerfinu hafa vin-
sældir gömlu farsímanna, svokall-
aðs NMT-450 kerfis, ekki minnk-
að. „Uppbygging á NMT kerfinu
er síður en svo á undanhaldi. Það
kerfi hentar okkar landslagi mjög
vel og langdrægnin er miklu
meiri. Við emm að opna eina nýja
stöð á hálendinu, hjá Skrokköldu
á Sprengisandsleið, og næst nú
gott samband á sunnanverðri
Sprengisandsleiðinni,“ sagði Ein-
ar, en það kerfi næst á nær öllu
landinu, að hálendinu undan-
skildu. SH
Sportbátafélag Ólafsfjarðar vill fá aðstöðu við Ólafsfjarðarvatn:
Gæti orðið liður í að
efla ferðaþjónustu
Sportbátafélag Ólafsfjarðar
hefur farið þess á leit við
bæjarstjórn Ólafsfjarðar að hún
Minjasafnið á Akureyri:
Fornleifar skráðar
Minjasafnið á Akureyri mun
halda áfram að skrá forn-
minjar í Eyjafjarðarsveit og á
Akureyri í sumar en skráningin
hófst sumarið 1994.
Akureyrabær hefur samþykkt
að láta skrá allar fomleifar í landi
bæjarins á fjórum árum og á verk-
inu því að ljúka næsta sumar. Að
sögn Guðnýjar Gerðar Gunnars-
dóttur, forstöðumanns Minjasafns-
ins, er um að ræða allar mannvist-
arleifar í jörðu sem finnast en eins
er farið eftir heimildum með hjálp
svæðisskráningar sem gerð hefur
verið. „Þetta eru minjar allt fram á
þessa öld og við erum því líka að
skrá „nýlegar" rústir. í sumar
verður byrjað syðst í landi Akur-
eyrarbæjar, í landi Kjama og
Nausta og síðan verður haldið
áfram í norður.“ Guðný segir að
11. ágúst næstkomandi verði hald-
in kynning á verkefninu og hvetur
fólk til þess að mæta og kynna sér
þær fomleifar sem skráðar voru
og fundust. mgh
Miðhvammur á Húsavík:
Demantsbrúð-
kaup Jóns og
Friðriku
*
Idag, 11. júh, eiga heiðurs-
hjónin Jón Jónsson frá Mýri
í Bárðardal og Friðrika Krist-
jánsdóttir frá Fremstafelli í
Ljósavatnshreppi, demants-
brúðkaup. Þau hófu búskap á
Mýri í Bárðardal en bjuggu
síðan lengst af eða rúmlega
fimmtíu ár að Fremstafelli.
Þau eru nú til heimilis að Mið-
hvammi á Húsavík. GKJ
veiti félaginu leyfi til að fá að-
stöðu við vatnið og félagið fái að
nota nyrsta hluta vatnsins undir
starfsemi sína. Að sögn Hálf-
dáns Kristjánssonar, bæjar-
stjóra, hafa menn verið að leita
leiða til að leysa þetta mál og
m.a. átt viðræður við stjórn
Veiðifélags Ólafsfjarðarár.
Aðalfundur Veiðifélagsins hef-
ur samþykkt takmörkun umferðar
um vatnið og stjóm félagsins get-
ur ekki breytt gegn henni. Bæjar-
ráð hefur hins vegar beint því til
félagsins að aðalfundur verði
haldinn sem fyrst og er áhugsamt
um að takmörkunum á umférð unt
vatnið verði aflétt að einhverju
leyti. Sama má segja um ferða-
málaráð bæjarins sem verið hefur
að ýta á málið. Að sögn Hálfdáns
verður aðalfundur Veiðifélagsins
væntanlega haldinn undir mánaða-
mótin.
Hann segir nokkrum sinnum
hafa verið gefið leyfi helgi og
helgi til að vera með sportbáta og
sæþotur á vatninu, s.s. í kringum
afmæli bæjarins í fyrra og einnig í
tengslum við vinabæjarmótið sem
nú stendur yfir. Hann segir menn
liorfa til þess að starfsemi Sport-
bátafélagsins geti orðið til þess að
efla ferðaþjónustu í Ólafsfirði.
„En þeir sem að þessu standa
segja eðlilega að það sé erfitt
byggja upp einhvem rekstur á
meðan ekki er hægt að auglýsa
þetta upp. Ef þetta gæti orðið hluti
af því sem t.d. hótelið er að bjóða
upp á er möguleiki á að þróa þetta
á einhverju tímabili. Ég held að ef
menn t.d. fara út í að virkja hótel-
ið og vatnið saman opnist ýmsir
möguleikar, t.d. með dorginu og
vélsleðaferðum á vetuma og síðan
veiði og vatnaíþróttir á sumrin,“
sagði Hálfdán. HA