Dagur - 11.07.1996, Page 3
FRETTIR
Fimmtudagur 11. júlí 1996 - DAGUR - 3
-WL R liigBME—1
Heimavist Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra:
Stækkun heimavistar brýn
Um nokkurra ára skeið hefur
ekki verið hægt að sinna eftir-
spurn eftir skólavist í Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra
sökum þess að heimavist skól-
ans er of lítil. Jón F. Hjartarson,
skólameistari, segist búast við að
á þriðja hundrað nemendur
sæki um rými á heimavist á
komandi haustönn meðan vistin
rúmar aðeins 140. Á þessu segir
hann brýnt að ráða bót sem allra
fyrst.
„Ef vel ætti að vera þyrftum
við að geta haft rúmi fyrir 350
manns á heimavist. Við höfum
tvívegis fengið fjármuni til undir-
búnings og það liggja fyrir drög
um að stækka heimavistina um
100 vistrými. Það dugar aðeins til
þess að leysa brýnasta vandann,“
sagði Jón.
Hann sagist búast við að nem-
endur skólans á næsta vetri verði á
bilinu 400 til 500, sem er svipað
og verið hefur. „Við getum ekki
stækkað skólann. Okkur er haldið
niðri með þessu mikla fargi sem
fjárskorturinn er,“ sagði Jón. HA
Húsavík:
Hvalaskoðun vinsæl
Svínavatnshreppur
með lögsögu
á Hveravöllum
- er niðurstaða umhverfisráðuneytisins
vegna kæru FÍ
Umhverfisráðuneytið hefur fellt
þann úrskurð að Hveravellir á
Kili falli innan staðarmarka
Svínavatnshrepps, að hreppur-
inn fari með stjórnsýsluvald á
Hveravöllum og sé því í fullum
rétti að fjalla um aðalskipulag á
svæðinu. Þetta var niðurstaðan í
kjölfar kæru frá Ferðafélagi ís-
lands, sem ekki vill sætta sig við
lögsögu hreppsins yfir Hvera-
völlum eða þær framkvæmdir
sem Svínavatnshreppur áformar
að ráðast í og boðaðar eru í deili-
skipulagi, sem í vinnslu er á veg-
um hreppsins.
Krafa FÍ var sú að aðalskipulag
Svínavatnshrepps er fjallar um
Hveravallasvæðið skyldi falla úr
gildi en ráðuneytið hefur nú hafn-
að þessari kröfu. Hins vegar er
tekið undir ýmislegt sem fram
kemur í kæru FÍ, m.a. að kynna
hefði mátt aðalskipulagið betur
meðan það var á mótunarstigi fyr-
ir þá aðila er málið varðar, en FI
hefur um áratugaskeið verið með
aðstöðu á Hveravöllum og rekið
þar gistiþjónustu.
Samkvæmt deiliskipulagi, sem
Svínavatnshreppur er með í
vinnslu, ætlar hreppurinn að reisa
þjónustumiðstöð á Hveravöllum
og ráðast í ýmsar aðrar fram-
kvæmdir. Gert er ráð fyrir að nýrri
skáli FÍ víki af núverandi stað og
telja Ferðafélagsmenn að hreppur-
inn sé að bola þeim burt af svæð-
inu til að geta sjálfur haft þar tekj-
ur af ferðafólki. I úrskurði ráðu-
neytisins er þeim tilmælum beint
til hreppsins að FÍ fái að vera með
aðstöðu á Hveravöllum til ársins
2012. Það sé sanngjamt, þar sem í
deiliskipulagi sé gert ráð fyrir að
Veðurstofan þurfi ekki að færa
hús sitt af sama svæði.
Skipulagsstjóri féllst á sínum
tínra ekki á tillögu að umræddu
deiliskipulagi eins og hún var lögð
fram og krafðist þess að nánari
rannsóknir færu fram á svæðinu,
sem nú eru í gangi. Einnig var
tekið frarn að á meðan Svína-
vatnshreppur hefur ekki sannað
eignarrétt sinn á svæðinu geti
sveitarfélagið ekki gefið þar út
byggingaleyfi. í svæðisskipulagi
miðhálendisins sem nú er í
vinnslu er gert ráð fyrir að fram-
kvæmd þess verði í höndum við-
komandi sveitarfélaga, þannig að
skipulag á hálendinu verði í raun
eðlilegt framhald af skipulagi í
byggð. Þar er hins vegar ekki tek-
ið á eignarréttarmálum. HA
- áætlunarferðir til Flateyjar
Tveir aðilar á Húsavík halda
uppi ferðum um Skjálfandaflóa
til hvalaskoðunar. Það eru Arn-
ar Sigurðsson, sem er með hrað-
skreiðan plastbát í ferðirnar, og
Norðursigling, sem flytur fólk á
gömlum, uppgerðum eikarbáti,
Knerrinum, um flóann.
Hvalskoðunarferðir njóta sívax-
andi vinsælda bæði meðal er-
lendra ferðamanna og ekki síður
íslendinga og tekur slík ferð
tvær til þrjár klukkustundir.
Farið er frá Húsavíkurhöfn og
siglt um Skjálfandaflóa og með-
fram Kinnarfjöllunum og sjást
hvalir undantekningarlítið í
hverri einustu ferð.
Hjá Arnari Sigurðssyni fengust
þær upplýsingar að farnar væru
þrjár áætlunarferðir á dag í
hvalaskoðun kl. 10.00, kl. 13.00
og kl. 17.00. Ennfremur væri hægt
að panta sérferðir svo sem til Flat-
eyjar og á Flateyjardal og jafnvel í
Fjörður. „Eg er t.d. núna að fara
að sækja gönguhóp sem gekk frá
Björgum í Kinn og inn á Flateyj-
ardal og sigli ég svo með hópinn
að Björgum aftur,“ segir Arnar
Sigurðsson.
Á Knerrinum varð fyrir svörum
Ámi Sigurbjarnarson og sagði
hann áætlunarferðimar í
hvalaskoðun vera þrjár á dag kl.
9.30, kl. 13.00 og kl. 20.00 og auk
þess væri Knörrinn með ferðir til
Flateyjar á föstudögum kl. 20.00
og á sunnudögum kl. 17.00. í
þessum ferðum væri klukkustund-
ar viðdvöl í Flatey. Bóka þyrfti í
Flateyjarferðirnar fyrirfram. „Þess
utan er hægt að tala við okkur um
hvaðeina í sérferðum,“ sagði Ámi
Sigurbjamarson hjá Norðursigl-
ingu. GKJ
Ólafsfjöröur:
Hitaveita fram í sveit?
Stjórn veitustofnana Ólafsfjarð-
arbæjar hefur að undanförnu
verið að fjalla um hugsanlega
stækkun á þjónustusvæði hita-
veitunnar. En að sögn Hálfdáns
Kristjánssonar, bæjarstjóra,
hafa ábúendur að Hlíð og
Burstabrekku á undanförnum
árum verið að sækja á um að fá
hitaveitu. Hefur m.a. verið
kannaður kostnaður vegna
stækkunar á þjónustusvæði veit-
unnar að Hlíð, Burstabrekku og
Hólkoti.
„Við höfurn verið með vanga-
veltur um hvort forsendur eru fyrir
að gera þetta. Við þurfum að dæla
talsvert miklu af heitu vatni þarna
fram eftir til þess að tryggja nægj-
anlega heitt vatn. Stjórn veitu-
stofnana hefur lagst gegn stækkun
á þjónustusvæðinu og er þá að
horfa til þess að þarna yrði dælt
þreföldu því magni sem yrði
keypt. Ut frá þeim forsendum tel-
ur hún þetta ekki réttlætanlegt,"
sagði Hálfdán.
„Þessu tengist að við vorum
með tilraunaboranir hér fram í
sveit og vorum að vonast til að ná
það miklu heitu vatni að það gæti
t.d. nægt sumarbúastaðabyggðinni
í Hólkoti. Tilraunaboranir hafa
ekki gefíð mikil fyrirheit en samt
er smá von og því erum við í
framhaldsrannsóknum. Okkur
þykir því ekki rétt að afgreiða
málið núna meðan endanleg nið-
urstaða liggur ekki fyrir,“ sagði
Hálfdán.
Þess má að lokum geta að
stjórn veitustofnana bókaði á
fundi sínum á dögunum að hún
vildi vekja athygli á slæmu
ástandi aðalæðar hitaveitunnar frá
borholu á Garðsdal og að tank á
Laugarengi. HA
i