Dagur - 11.07.1996, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 11. júlí 1996
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1600 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 150
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir),
BLAÐAMAÐUR HÚSAVÍK - GUÐRÚN K. JÓHANNSDÓTTIR
SÍMIÁ SKRIFSTOFU 464 1585, FAX 464 2285.
HEIMASÍMI BLAÐAMANNS Á HÚSAVÍK 464 1547
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
---LEIÐARI---------------------
Skipulag á
I nyrri skýrslu verkefnisstjórnar sem dóms-
málaráðherra skipaði síðastliðinn vetur og
ætlað var að skila tillögum vegna átaks í
ávana- og fíkniefnavörnum er meðal annars
lagt til að stofnað verði hér á landi svokallað
Afbrota- og vímuvarnaráð, sem falin verði
verkefni á sviði áfengis-, fíkniefna- og tóbak-
svarna, auk þess sem stjórnun Forvarnasjóðs
færist í hendur ráðsins. Með þessu ráði er ætl-
unin að koma á skilvirku eftirliti með því að
stefnu stjórnvalda í áfengis- og fíkniefnavörn-
um hverju sinni sé framfylgt og að ráðið taki
frumkvæði í afbrota- og vímuvörnum og móti
tilögur um stefnu stjórnvalda, m.a. í ljósi upp-
lýsinga sem ráðinu er ætlað að beita sér fyrir.
Hlutverk ráðsins á einnig að vera að samhæfa
starf þeirra aðila sem starfa á sviði afbrota- og
fíkniefnavarna, t.d. félagasamtaka, mennta-
kerfis, heilsugæslu og refsivörslukerfis.
Þessum tillögum ber að fagna. Það er deg-
inum ljósara að verkefni á þessu sviði verða æ
baráttunni
fleiri í þjóðfélaginu með hverju árinu sem líð-
ur. Þeirri staðreynd verður ekki breytt þótt
margir vildu. Harkan í fíkniefnaheiminum fer
vaxandi og afbrotin verða grimmúðlegri og
ekki þarf að horfa lengra aftur í tímann en til
ránsins í söluturni í Reykjavík í fyrrakvöld, þar
sem unglingur barði afgreiðslustúlku í höfuðið
með hamri og má kallast heppni að ekki fór
verr að þessu sinni. Innan menntakerfisins,
heilbrigðiskerfisins og hjá félagasamtökum er
vilji til að berjast gegn vímuefnanotkun og af-
brotum, það sýna mörg verkefni sem unnin
hafa verið á undangengnum árum. Með
skipulegum hætti þarf því að ná þessum aðil-
um saman, ásamt öðrum, í sterkri baráttu því
verkefnið er af þeirri stærðargráðu að sam-
stöðu þarf til. Eitt það mikilsverðasta er þó að
aðili sem þessi hafi með höndum rannsóknar-
hlutverkið þannig að fylgjast megi með þró-
uninni í neyslu ungmenna á áfengi og vímu-
efnum og upplýsa þá sem sinna forvarnahlut-
verkinu hvar taka þarf á.
Forsjárdeiíur og jafhrétti
Rétt um tuttugu ára skeið hef ég
komið að forsjárdeilum á ýmsum
stigum erlendis og hér heima. Þær
hafa ævinlega verið erfiðar úr-
lausnar og því miður oft haft í för
með sér hörmungar fyrir deiluað-
ilja og ekki síst bömin, sem eru
bitbeinið. Eins og gefur að skilja
verðar slíkar deilur þrungnar til-
finningum. Annað foreldrið telur
sig iðulega hafa meira til brunns
að bera í foreldrahlutverkinu og sé
því færara um að ala bamið upp
Því miður er það svo, að forsjár-
deilur geta orðið afar illvígar og
beiniínis orðið undirrót ýmis kon-
ar ofbeldis. Komist foreldrar ekki
að staðfestu samkomulagi hjá
sýslumanni um forsjá bams, kem-
ur óhjákvæmilega til kasta dóm-
stóla eða leitað er til dómsmála-
ráðuneytis um úrskurð.
Embættismönnum er vissulega
vandi á höndum, því öðm hvoru
foreldrinu skal úrskurðuð eða
dæmd forsjáin, nema í undantekn-
ingartilvikum, þegar hvorugt
þeirra reynist foreldrahlutverki
FRÍMERKI
sínu vaxið. Dæmt skal eða úr-
skurðað með hagsmuni bamsins
að leiðarljósi. Bamið á lögum
samkvæmt rétt til samsvista við
bæði foreldri sín. Eins bjóða ís-
lensk lög og mannréttindasáttmáli
Evrópu, sem íslendingar eru aðilji
að, að hjón eigi jafnan rétt til
bamsins. Jafnrétti í forsjárdeilum
eru mannréttindi feðra og mæðra
og einn af mikilvægustu hom-
steinum jafnréttis í íslensku sam-
félagi. Hvoru hjóna um sig er
einnig tryggður réttur til óvilhallr-
ar og hlutlausrar meðferðar for-
sjármála fyrir dómi. Sömu kröfur
eru gerðar til úrskurðaraðilja.
Embættismenn vorir í stjórn-
sýslunni bera gríðarlega ábyrgð.
Akvörðun þeirra ræður miklu um,
hvemig örlagahjól hinnar sundr-
uðu fjölskyldu munu snúast. Því
þarf að vanda vel til verksins.
Einnig er mikilvæg túlkun og
framkvæmd lagannna og óhjá-
kvæmilega er spurt, hvort hún sé í
samræmi við bókstaf laganna og
almenna réttarvitund. Yfirlit yfir
tölur sem safnað hefur verið hjá
dómsmálaráðuneyti (28. mars
1996) um mál er varða böm og
unglinga eða öllu heldur meðferð
þeirra, er afar forvitnileg lesning í
þessu efni. Meðal annars em
skoðaðar lyktir forsjárdeilna hjá
Dómsmálaráðuneyti, héraðsdóm-
stólum og sýslumönnum.
Hjá Dómsmálaráðuneyti var á
þriggja ára tímabili úrskurðað í 32
forsjármálum. í þremur þeirra var
úrskurðað um skipta forsjá,
þ.e.a.s. systkinum var skipt milli
foreldra. í 29 tilvikum þurfti því
að skera úr um, hvort foreldrið
væri hæfara til að annast bamið
eða bömin. Sex feður voru úr-
skurðaðir hæfari en mæðurnar, en
23 mæður hæfari en feðurnir eða
79 af hundraði. Hlutföll dóma á
héraðsdómsstigi eru svipuð. Á
sama tímabili komu 27 forsjármál
til dóms. í 81 af hundraði tilvika
var móður dæmd forsjáin. Tvö
mál af þessu tagi komu til dóms í
Hæstarétti og í hvoru tveggja til-
vikanna var móður dæmt í hag. Á
tímabilinu l.-júlí 1992 til loka árs
Arnar Sverrisson.
1995 voru staðfestir 3.865 forsjár-
samningar hjá sýslumannsembætt-
um landins. Tæpum þriðjungi for-
eldra auðnaðist að komast að sam-
komulagi um sameiginlega forsjá.
Aðrir samningar voru á þá lund,
að mæður fengu forsjá í 94 af
hundraði tilvika.
Þessar staðreyndir hljóta að
vekja ugg í brjósti jafnréttissinna.
Og þær vekja í hugskotinu ef til
vill fleiri spumingar, en þær svara.
Skortur á jafnrétti karla og kvenna
er ótvíræður. Þetta ójafmétti geng-
ur í berhögg við lög og sáttmála.
Þar sem varla er ástæða til að
ætla, að feður í forsjárdeilu séu á
nokkurn hátt öðruvísi en gengur
og gerist um feður, mætti álykta
sem svo, að íslenskir feður séu
upp til hópa óhæfir til að ala upp
böm sín nema í skjóli mæðranna.
Að óathuguðu máli er það óásætt-
anleg niðurstaða. Sárlega átakan-
legt er til þess að hugsa, að ein-
ungis 6 af hverjum hundrað feðr-
um, sem leita ásjár sýslumanna
um samningsgerð, skuli fá forsjá
bama sinna. Umræðu er þörf og
athugana er þörf til að varpa ljósi
á svo æpandi misrétti.
Arnar Sverrisson.
Höfundur er sérfræðingur í klíniskri sálfræði,
yfirsálfræðingur á geðdeild FSA og rekur sál-
fræðistofu á Akureyri.
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON
Nýjar útgáfur í Færeyjum
Þann 7. júní sendu Færeyingar frá
sér tvær nýjar frímerkjaútgáfur.
Önnur þeirra er til að vekja athygli á
hafsbotninum kringum Færeyjar og
víðáttu landgrunnsins kringum eyj-
amar. Hin útgáfan er til að minnast
fiímerkjasýningarinnar „NORD-
ATLANTEX 96“, en það er gert
með því að gefa út blokk með þrem
bamateikningum, með myndum af
bömum að leik.
Þar sem Færeyjar, Shetland og
Rockall liggja, er gliðnum tveggja
jarðfleka, annar þeirra er frá Amer-
íkuhlutanum og hinn er Evróasískur.
Síðan gliðnaði Grænland og Labra-
dor út frá flekanum og urðu aðskilin
lönd. Það mun hafa verið fyrir um
60 milljónum ára að Grænlands og
Færeyja-Rockall svæðin tóku að
gliðna hvort frá öðru. Þá rifnaði
Mið-Atlantshafshryggurinn. Öllu
þessu fylgdi geysimikil eldvirkni.
Um það bil 70% af yfirborði
jarðar er landskorpa, sem liggur
neðansjávar. Slík landsvæði mynd-
ast í miklum gosum og djúpt í hafi
svo erfitt er að rannsaka þau. Þannig
er það sérkenni Færeyja, að þar er
hægt að virða fyrir sér hvemig
skorpan hefir gliðnað og það á þurru
landi.
Landgmnn Færeyja að 200 metra
dýpi er um það bil 25.000 ferkíló-
metrar. Sé síðan haldið út á 500
metra dýpi er það 45.000 ferkíló-
metrar. Yst á landgrunninu til aust-
urs liggja svo veiðisvæðin Nólseyj-
arbanki, Sandeyjarbanki og Suður-
eyjarbanki, á 138-160 metra dýpi.
Suðaustur af ströndinni fellur svo
botninn í 200 metra dýpi um 50
kílómetra frá ströndinni. Þá tekur
við bratti niður á 400 metra og síðan
tekur botninn að stíga upp í 200
metra, um það bil 120 kílómetra frá
ströndinni.
Þá er einnig merkileg vatns-
blöndun, sem á sér stað og straumar
yfir Atlantshafshrygginn. Heitir
straumar sunnan úr flóum við Amer-
ikustrendur, koma gegnum skörð og
upp að íslandsströndum og kringum
þær, en af þeim er Golfstraumurinn
þekktastur.
Að þessu sinni gefa Færeyingar
út tvö frímerki með landakorti eyj-
anna. Þetta eru fyrstu frímerkin í
stærri samstæðu, sem koma á út á
næstu 3-4 árum og mun þá hafa sýnt
allar þær 18 eyjar sem tilheyra Fær-
eyjum.
Það er seðlaprentsmiðja Norges
Bank, sem hefir bæði hannað frí-
Blokkin með barnateikningunum.
merkin og prentað þau í stálstungu.
Myndefnið er svo kort af Færeyjum
og umlykjandi hafsvæði ásamt hluta
af áttavitarós. Verðgildið er 10 og
16 krónur.
„NORDATLANTEX 96“
Af tilefni „NORDATLANTEX 96“
stofnaði Póstverk Fproya til smá
keppni meðal skólabama á sl. vetri.
Teikna skyldi tillögur að frímerki
með þemanu „Leikur og umferðar-
öryggi“. Þátttakan var svo góð að
um 3000 tillögur bárust. Þá var
ákveðið að nota ekki aðeins teikn-
ingamar sem myndir á frímerkin.
Þær vom einnig notaðar sem bak-
gmnnur fyrir blokkina, sem fyrsta-
dagsstimpill og loks sem prent á bol
Landgrunnsfrímerkin.
í auglýsingaskyni.
Þeir sem sigmðu í samkeppninni
vom svo þau Herborg frá Vest-
manna, sem teiknaði mynd af bíl við
gangbraut. Þar getur einnig að líta
stúlku á hjóli og vitanlega með
hjálm og svo með dúkkuna sína á
bögglaberanum.
Búgvi frá Fuglafirði teiknaði svo
ákaflega einfalda og góða mynd af
dreng sem skoppar gjörð. Með litla
prikinu sínu fær hann gjörðina til að
skoppa og stjómar ferð hennar. I
baksýn skín svo sólin björt og geisl-
andi á bláum himni.
Guðríður á Pokeri á Suðurey hef-
ir svo teknað stúlkuna, sem stendur
við umferðarmerki og umferðarljós.
Ef til vill var hún að ýta á hnappinn
til þess að fá grænt Ijós.
Bakgmnnur blokkarinnar er svo
teiknaður af John frá Skúgvoy. Á
myndinni eru vömbíll og strætis-
vagn auk þess sem þar em tveir
menn á báti og fullt af mávum.
Rúna frá Vestmanna hefir svo
teiknað fyrstadagsstimpilinn, þrjár
stúlkur sem leika sér með dúkkur í
grasinu. Þá hefir Linda María frá
Þórshöfn teiknað myndina á T-
skyrtuna, glaðlega, græna stúlku á
hjóli.
Sólin og græni liturinn er í miklu
uppáhaldi hjá færeyskum bömum.
Þau gleyma þá alveg hafþokunni og
súldinni.
Nafnverð blokkarinnar er 13,50
krónur og er hún seld án yfirverðs.
Bárður Jákupsson hefir hannað
blokkina og House of Questa prent-