Dagur - 11.07.1996, Síða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 11. júlí 1996
Gunnlaugur Kristinsson og Sigurður Jónsson velta sýningunum fyrir sér.
Haraldur Ingi Haraldsson, forstöðumaður Listasafnsins, ræðir hér við þær
Rósu Júlíusdóttur og Sólveigu Hrafnsdóttur.
Listasafnið á Akureyri:
Opnun sýninga verka Gunnlaugs og Serrano
Listalífið á Akureyri hefur eflaust borið á góma í samtali þeirra Haraldar
Inga, forstöðumanns Listasafnsins, og Alfreðs Gíslasonar, forinanns menn-
ingarmálanefndar Akureyrarbæjar.
Þær Elma Óladóttir, gítarleikari, og
Sigríður Rut Franzdóttir, þver-
flautuleikari, léku fyrir gesti á opn-
uninni.
TÓNLIST
Ljóð Jónasar,
lög Atla Heimis
Þriðjudaginn 9. júlí var boðið til
tónleika í Grundarkirkju í Eyjafjað-
arsveit. A efnisskránni voru lög
Atla Heimis Sveinssonar, tón-
skálds, við sautján ljóð eftir þjóð-
skáldið Jónas Hallgrímsson. Lög
þessi eru ný af nálinni að heita má
og voru fyrst flutt í Reykjavík á
þessu ári. Með tónleikunum 7. júlí
lauk tónleikaröð í tveim kirkjum á
Norðurlandi auk Grundarkirkju, en
þær voru Húsavíkurkirkja, þar sem
tónleikamir voru haldnir sunnudag-
inn 7. júlí, og Bakkakirkja í Öxna-
dal, þar sem efnisskrá tónleikanna
var flutt mánudaginn 8. júlí.
Flytjendur á tónleikunum voru
fjórir hljóðfæraleikarar og sópran-
söngkonan Signý Sæmundsdóttir.
Það er hafið yfir allan vafa, að Sig-
ný er ein af bestu söngkonunum,
sem starfa hér á landi nú á dögum.
Rödd hennar er tjáningarrík og
mikil. Hún liggur vel og vald Sig-
nýjar á henni er skemmtilega mikið.
I öllum lögunum fór Signý á kost-
um. Flutningur hennar gaf lögunum
lit og líf og í túlkun sinni dró hún
fram efni ljóðanna svo sem kostur
var. A stundum er lagferð og andi
laganna ekki í svo góðu samræmi
við efni Ijóðsins og skyldi, en Signý
náði tíðast vel að yfirstíga slíkar
hindranir.
Mikilvægur þáttur í flutningi
laga Atla Heimis Sveinssonar var
hlutur undirleikaranna, en þeir voru
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðluleik-
ari, Sigurður Ingvi Snorrason, klar-
inettleikari, Hávarður Tryggvason,
kontrabassaleikari, og Anna Guðný
Guðmundsdóttir, píanóleikari.
Þama var valinn maður í hverju
rúmi og var hljóðfæraleikur allur
fínlega unninn, svo að tæplega bar
skugga á. Einungis í fáein skipti
gætti þess, að klarinettan væri held-
ur sterk miðað við önnur hljóðfæri,
en í heild var samhæfing í hinu
besta lagi.
Hljóðfæraútsetningar Atla
Heimis á lögunum sautján em víða
Margt fólk mætti til opnunar á
nýjum sýningum í Listasafninu á
Akureyri síðastliðinn laugardag.
Annars vegar er þar um að ræða
sýningu á verkum Bandaríkja-
mannsins Andreas Serrano, þar
sem sýndar eru litljósmyndir sem
Serrano tók fyrir fjórunt ámm í
líkhúsunt í New York. Þessu til
viðbótar eru einnig í Listasafninu
sýnd verk eftir Gunnlaug Schev-
ing en hann er þekktastur fyrir
risastór málverk af sjó og sjó-
mennsku. Sýningamar standa báð-
artil 1. september næstkomandi.
Bjöm Gíslason leit inn í Lista-
safnið við opnun sýninganna og
tók meðfylgjandi myndir af sýn-
ingargestum. JOH
mjög skemmtilega og fagmannlega
unnar. Fyrir kemur, að þær séu einn
helsti styrkur laganna, sem sum eru
afar einföld í lagferð sinni og jafn-
vel einhæf. Atli Heimir kann greini-
lega til verka á þessu sviði og nýtir
hljóðfærin á fjölbreyttan hátt til
þess að ná fram blæbriðgum af
ýmsu tagi. Þau lyftu lögunum, gáfu
hljóðfæraleikurunum góð tækifæri
til þess að njóta sín og studdu vel
að túlkun söngkonunnar.
Ljóðin sautján, sem Atli Heimir
hefur samið lög sín við eru: Úr
Hulduljóðum, Heiðlóarkvæði,
Ferðalok, Óhræsið, Vorvísa, Nætur-
kyrrð, Festingin, Ég á þessi föt, Á
gömlu leiði, Um hana systur mína,
Vorvísur, La Belle, Grátittlingur-
inn, Illur lækur, Móðurást, Dalvísa
og íslandsminni. í lögunum slær
Atli Heimir á ýmsa strengi og á
greinilega á stundum við nokkum
vanda að etja. Nokkur laganna eru
stirðleg, svo sem lögin við Festing-
una og La Belle. Önnur falla ekki
svo að efni ljóðanna, sem skyldi,
svo sem lögin við Óhræsið og Vor-
vísur. Víðast hefur þó vel til tekist,
svo sem í lögunum við Úr Huldu-
ljóðum, Ferðalok, Næturkyrrð, Á
gömlu leiði, Grátittlingurinn og III-
ur lækur.
Halldór Blöndal, samgönguráð-
herra, flutti inngangserindi og lagði
fagurlega og af innsæi ljóðaunnand-
ans út af ljóðinu Alsnjóa. Halldór
mun vera helsti hvatamaður þess,
að tónleikaferðin var farin og á
hann þakkir skyldar fyrir það. Sig-
urður Ingvi Stefánsson ræddi um
Jónas Hallgrímsson og fléttaði lip-
urlega inn í umræðu sína nokkur at-
riði um tónskáldið Schubert, sem
var samtíðarmaður Jónasar. Til
áréttingar þessu lék Anna Guðný
Guðmundsdóttir nokkra valsa
Schuberts á píanóið.
Þetta voru einkar ánægjulegir
tónleikar og eiga allir lof skilið,
sem að þeim stóðu. Styrktaraðili
þeirra er Landsbanki íslands og var
aðgangur ókeypis. Gott er til þess
að vita, að þessi bankastofnun skuli
leggja fé til menningaratburðar af
þessu tagi. Upplýst var á tónleikun-
um, að til stæði að fara víðar með
þá efnisskrá, sem flutt var. Fleiri
landsmenn en þeir, sem nutu í þess-
ari lotu, eiga því góða stund í vænd-
um.
Haukur Ágústsson.
Baldvin Kr. Baldvinsson og
Torfunesskvartettinn
Sunnudaginn 7. júlí efndi Baldvin
Kr. Baldvinsson til tónleika í Akur-
eyrarkirkju. Ásamt honum kom
fram Torfunesskvartettinn, en hann
er skipaður Martin Frewer, sem
leikur á fyrstu fiðlu, Maríu Weiss,
sem leikur á aðra fiðlu, Ásdísi Hildi
Runólfsdóttur, víóluleikara, og
Stefáni Emi Amarsyni, sellóleikara.
Baldvin Kr. Baldvinsson hefur
gefið sig að einsöng í vaxandi mæli
hin síðari árin. Undanfarin ár hefur
Baldvin lagt stund á söngnám. Það
hefur vissulega skilað árangri. Vald
Baldvins á röddinni hefur farið vax-
andi. Hún er mikil og vel breið.
Vídd hennar er einnig góð og ræður
Baldvin vel við tóna efst á radd-
sviði sínu. Þó hendir, að langir,
liggjandi tónar ofarlega verða nokk-
uð flatir, svo sem í laginu I dag eftir
Sigfús Halldórsson við ljóð Sigurð-
ar Sigurðssonar, sem að öðru leyti
fór vel og náði verulegum hita. I líf-
legum tónagangi hendir þetta ekki.
Lágir tónar eiga það til að verða
nokkuð þróttlitlir. Svo var til dæmis
í laginu Haustkvöld, ljóð og lag eft-
ir Steingrím Sigfússon. Þetta lag
hefði væntanlega að skaðlausu mátt
vera í hærri tóntegund.
Baldvin var í heild tekið í góðu
formi á tónleikunum í Akureyrar-
kirkju. Honum lætur vel að túlka í
söng sínum. Þetta nýtti hann fallega
í hinu Ijúfa lagi Rósin eftir Friðrik
Jónsson við ljóð eftir Guðmund
Halldórsson, sem og í Vöggukvæði
Emils Thoroddsens við ljóð eftir
Jón Thoroddsen. Á nokkuð aðra
strengi sló Baldvin í laginu Sprett-
ur, þar sem hann nýtti þrótt raddar
sinnar skemmtilega. Loks má nefna
lag úr Kátu ekkjunni, sem Baldvin
flutti fallega - ekki síst fyrra erind-
ið.
Torfunesskvartettinn lék nokkur
smáverk einn. Tóntak var jafnan ör-
uggt, en út af brá í þessu efni til
dæmis í Shön Rosmarin. Þá var
samhæfni einnig almennt í góðu
lagi. Inntónun hefði á stundum mátt
vera heldur betri og þýðari einkum í
fiðlum. Hún var til dæmis í harðara
lagi í fyrsta laginu, sem kvartettinn
lék, en það var Þú ert eftir Þórarinn
Guðmundsson, og í Við Vatnsmýr-
ina eftir Sigfús Halldórsson við ljóð
Tómasar Guðmundssonar. Víða var
hins vegar vel gert, svo sem í Syrpu
úr Dimmalimm eftir Atla Heimi
Sveinsson og Dagný eftir Steingrím
Sigfússon. í Czarsas eftir V. Monti,
sem var fjörlega leikið, áttu fiðlur
fallegar strófur og náðu talsvert sí-
gaunískum blæ.
í undirleik gerði kvartettinn víð-
ast vel, einkum, þegar undirleikur
var að fullu eða að mestu sjálfstæð-
ur. Söngvarinn náði þá að njóta sín.
Þar sem hins vegar til dæmis fyrsta
fiðla fylgdi laglínu með söngvaran-
um var nokkuð títt að undirleikur
væri heldur sterkur og sem næst
yfirgnæfði einsöngvarann á stund-
um. Þessa gætti hvað mest fyrir hlé
og lýtti flutning á til dæmis Vöggu-
kvæði Emils Thoroddsens og í dag.
Af lögum eftir hlé, þar sem draga
hefði mátt úr styrk undirleiks, má
nefna Ódauðlega Vín eftir R.
Sieczynski.
Tónleikar einsöngvara og
strengjakvartetts eru óvenjulegir að
minnsta kosti hér um slóðir. Þetta
atriði gerði tónleikana forvitnilega.
I heild fór samsetningin mjög vel
og ánægjulega, þó að enn betur
hefði mátt gera með nokkuð meiri
natni og pússun. Vonandi leggja fé-
lagarnir í kvartettinum og Baldvin
Kr. Baldvinsson ekki af samvinnu
sína, heldur þróa tónlistarflutning
sinn áfram. Nokkuð víst má telja,
að geri þeir það, má vænta veru-
legra góðra hluta.
Haukur Ágústsson.
Myndlistaskólinn á
Akureyri:
Siunarnám
skeið að hefjast
Þann 17. þessa mánaðar hefj-
ast námskeið hjá Myndlista-
skólanum á Akureyri og verða
þau í tveimur hálfs mánaðar
hlutum. í fyrri hlutanum
verður aðeins kennsla fyrir
fullorðna en í þeim síðari
verður bæði kennsla fyrir
börn og fullorðna.
Á námskeiðinu fyrir full-
orðna dagana 17.-30. júlí verð-
ur kennd hutateikning, módel-
teikning, skrift, andlitsteiknun,
gerð heintasíðna á Intemetinu
fyrir listamenn og leturgerð og
á öllunt þessum námskeiðunt
verður kennt frá kl. 18.15 á
kvöldin.
Síðara kennslutímabilið
verður frá 6. til 19. ágúst og þar
verður boðið upp á eftirtalin
námskeið fyrir fullorðna: graf-
ík/einþrykk, umhverfi/vatnslitir
og tölvugrafík.
Á námskeiði fyrir börnin
verður kennt dagíega, yngri
bömum milli 10 og 12 á
morgnana og þeim eldri milli
kl. 16 og 18. Kennari verður
Rósa Kristín Júlíusdóttir. Á
námskeiðinu munu bömin
skapa myndlist, horfa á og ræða
um myndlist, læra um á hvaða
hátt list hefur verið sköpuð og
velta fyrir sér mikilvægum
spumingum um eðli listar.
Skákfélag Akureyrar:
Stefntá útiskák-
mót á morgun
Skákfélag Akureyrar hefur und-
anfarin ár staðið fyrir útiskákmót-
um í göngugötunni og er stefnt að
því að á morgun verði mótið hald-
ið en það er þó undir veðurguðun-
um komið. Þetta árlega mót
nefndist Göngugötumótið.
Á Göngugötumótinu er keppt um
farandbikar, sem Bókaverslun Jón-
asar gaf fyrir nokkrum ámm. Mótið
hefst ekki síðar en kl. 16 og jafnvel
fyrr ef vel viðrar. Verði veðurguð-
imir ekki hliðhollir að þessu sinni
verður mótið flutt yfir á næsta föstu-
dag og önnur tilraun gerð þá.
Starfsemi Skákfélags Akureyrar
er í lágmarki á þessum tíma árs en
samt sem áður em nokkur mót hald-
in yfir sumartímann. Júníhraðskák-
mótinu lauk með sigri Gylfa Þór-
hallssonar, sem fékk 12,5 vinninga
af 16, í öðm sæti varð Þór Valtýs-
son með 12,5 vinninga og Magnús
Teitsson í þriðja sæti með 12 vinn-
inga. Keppnin var mjög jöfn og
hörð eins og sjá má af vinningum
efstu manna en Gylfi hafði sigur eft-
ir að hafa unnið Þór í einvígi, 2:0.
Hið árlega útiskákmót Borgar-
sölunnar sf. fyrir böm og unglinga
fór fram í göngugötunni föstudaginn
28. júní síðastliðinn. Keppt er um
farandbikar og verðlaunapeninga og
varð Stefán Bergsson sigurvegari,
Halldór B. Halldórsson í öðru sæti
og Jón Áki Jensson í þriðja sæti.
JÓH
Manchester Utd.
búningur glataðist
í síðustu viku hvarf í Sundlaug
Akureyrar íþróttabúningur í eigu
9 ára stráks, sem honum er mjög
kær.
Um er að ræða svartan Man-
chester United íþróttabúning, stutt-
ermabol og stuttbuxur. Er hann
merktur Jóni. Þeir sem hugsanlega
hafa rekist á gallann geta haft sam-
band við Sundlaug Akureyrar eða
Jón Baldvin í síma 557-8177 eða
Amþrúði í síma 566-8123.