Dagur - 11.07.1996, Blaðsíða 16

Dagur - 11.07.1996, Blaðsíða 16
\ Garðyrkjustöðin Grísará, Eyjafjarðarsveit Sími 463 1129- Fax 463 1322 IMánud.'föstud. kl. 9-18 • Laugard. og sunnud. kl. I3>17 Snyrt á Þórshöfn í tilefni afmælis Unnið er hörðum höndum að því að fegra og snyrta um- hverfið á Þórshöfn til undirbúnings 150 ára verslunar- afmælis staðarins, sem haldið verður 19. og 20. júlí nk. A myndinni munda þau hrífurnar fagmannlega skammt frá félgsheimilinu Þórsveri, þau Unnur Ósk Unnsteins- dóttir, Helga Elvarsdóttir, Bára Sigurjónsdóttir og Albert Jón Hólm, en fjær er annar verkstjórinn, Anna Jenný Einarsdóttir. Mynd: GG Þórshöfn á Langanesi: Höndlað við höfnina - saga verslunar á Þórshöfn í 150 ár essa dagana er verið að und- irbúa afmælishátíð, í tilefni 150 ára verslunarafmælis á Þórshöfn á Langanesi. Þá voru mikil umsvif í verslun á staðn- um vegna erlendra sjómanna, sem sigldu á duggum sínum fyr- ir Langanesið. íbúar Þórshafnar og nágrennis ætla að minnast þessara tímamóta á næstunni með heilmikilli hátíð, sem stendur frá 19.-21. júlí. For- seti Islands, frú Vigdís Finnboga- dóttir, mun opna hátíðina, en auk hennar koma fulltrúar erlendra sendiráða og þingmenn til hátíðar- innar. Myndlistasýningar á verk- um brottfluttra Langnesinga verða opnar á meðan á hátíðinni stendur. Hátíðin verður formlega sett laug- ardaginn 20. júlí á útisviði við höfnina en ýmis dagskráratriði munu fara fram á fleiri stöðum í bænum. Gert er ráð fyrir fjölda gesta á hátíðina og verður tjald- svæði opnað á staðnum. Fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar er Már Guðlaugsson, auglýsingateiknari, en formaður afmælisnefndar er Freyja Önundardóttir, myndlistar- maður. Dagskrá hátíðarinnar verð- ur birt í blaðinu á næstunni. GKJ Tilraunarsöfnun Endurvinnslunnar á pappír að Ijúka: Hefur tekist mjög vel Undanfarna íjóra mánuði hefur Endurvinnslan hf. á Akureyri staðið fyrir tilraunar- söfnun á pappír í nokkrum hverfum í bænum. Nú er þessari tilraun að ljúka og segir Gunnar Garðarsson í Endurvinnslunni að vel hafl til tekist. „Þetta hefur mælst mjög vel fyrir og við erum afskaplega sáttir © VEÐRIÐ Næsta sólarhring má búast við SV-lægum áttum á Norðurlandi vestra, skýja- veðri, golu eða kalda. Þá er hætta á einhverjum skúrum. Hiti verður 8 til 14 stig. Á Norðurlandi eystra má bú- ast við vestlægum áttum, skýjaveðri, golu eða kalda. Hiti verður 9 til 15 stig. við hvemig þessi söfnun hefur gengið. Meirihlutinn af þeim heimilum sem tilraunasöfnunin nær yfir hefur tekið þátt. Einu kvartanimar sem við heyrum eru spumingar frá fólki um af hverju þetta tilraunaverkefni var ekki í þeirra hverfi,“ sagði Gunnar í samtali við Dag. Tilraunin hófst um mánaða- mótin febrúar-mars og þá var sér- stökum plastpokum dreift í nokkr- um hverfum á Akureyri og á hverjum laugardegi hefur verið farið um hverfin og pokar með pappír teknir og aðrir tómir skyld- ir eftir. Með þessu móti hafa safn- ast að meðaltali 2,5-3 tonn á viku. Auk þess eru pappírsgámar á nokkrum stöðum þar sem fólk get- ur losað sig við pappír. Pappírinn er notaður við framleiðslu á kubb- um í vörabretti en Endurvinnslan tók við þeirri framleiðslu í byrjun febrúar sl. af Úrvinnslunni. Land- búnaðarplast er hin megin uppi- staðan í kubbunum og hefur einnig gengið vel að útvega það hráefni. Gunnar segir að góð reynsla sé komin á framleiðsluna og ánægjulegt hvað fólk hefur tek- ið þessarri söfnunartilraun vel. Hins vegar er bylgjupappi ekki hentugur í framleiðsluna og Gunnar vildi hvetja fólk til að hætta að henda bylgjupappa í gá- mana. „Þessu tilraunaverkefni er nú að ljúka og óljóst er hvert fram- haldið verður,“ sagði Gunnar, sem telur góðan grundvöll fyrir því að halda áfram að flokka úrgang á þennan hátt en þó ekki ef tvöfalt kerfi sé í gangi í bænum. „Við er- um að keyra um 25-35 tonn af pappír frá Reykjavík í framleiðsl- una en það þyfti ekki að gera það því hægt er að taka þetta allt hér á svæðinu í svona söfnunum," sagði Gunnar. SH Rifós hf. - laxeldisstöð í Kelduhverfi: Rúmlega 15 milljóna króna hagnaður á síðasta ári - aðalfundur fyrirtækisins nýafstaðinn Fyrir fjórum árum keyptu Keldhverfingar fyrirtækið ísnó, sem starfrækt var í Keldu- hverfl og Vestmannaeyjum. ísnó fór í gjaldþrot og við kaupin fluttu Keldhverfingar kvíarnar úr Eyjum austur í Kelduhverfi og stofnuðu fyrirtækið Rifós hf. og í dag standa 96 hluthafar að fyrirtækinu. Stærsti hluthafmn er Búnaðarfélag Keldhverfínga en flestallir hluthafar eru innan- sveitarmenn. Nýlega var haldinn aðalfundur fyrirtækisins og var afkoma Rif- óss á síðasta ári mjög góð, eða rúmlega 15 milljónir í hreinan hagnað. Alls var slátrað hjá fyrir- tækinu 360 tonnum af fiski, sem er svipað magn og árið áður en líf- massinn hafði aukist frá árinu áð- ur. það er að segja að fyrirtækið á mun meira af lifandi fiski en árið áður. Að sögn Friðgeirs Þorgeirs- sonar, stjómarformanns Rifóss, eru ekki áform um að stækka fyr- irtækið, „það hefur vaxið eins og hver annar unglingur þessi fjögur ár og afkoman batnað. Hjá fyrir- tækinu em sjö fastráðnir starfs- menn en fleira fólk er þegar slátr- að er, en það er einu sinni til tvisvar í viku. Síðasta ár hefur all- ur okkar fiskur farið til vinnslu innanlands m.a. til Eðalfisks í Borgarnesi, Haraldar Böðvarsson- ar á Akranesi og til aðila sem kalla sig Íslenskt-Franskt eldhús,“ segir Friðgeir Þorgeisson, stjórn- aiformaður Rifóss hf. í Keldu- hverfi. GKJ Tilboð á innimálninqu 25% afsláttur Verð frá kr. 569 pr. lítra Tölvublöndun Þúsundir lita 0 KAUPLAND Kaupangi • Sfmi 462 3565 Maria Galland Snyrtívöru- kynning föstudaginn 12. júlí Snyrtifræðingur leiðbeinir 15%, kynningarafsláttur og kaupauki Glimmervaralitir, naglalökk og augnskuggar Bláir, rauðir og gulir hárlitir Sjáumst! SNYRTIVÖRUDEILD

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.