Dagur


Dagur - 10.08.1996, Qupperneq 5

Dagur - 10.08.1996, Qupperneq 5
Laugardagur 10. ágúst 1996 - DAGUR - 5 Hin síðari ár er orðið æ algengara að sjá konur í þeim störfum er á ár- um áður voru hin hefð- bundnu karlastörf. Ekki var til sá maður fyrir 1960 er ímyndaði sér að konur færu inn á þau svið er karlar voru einráðir á og eflaust hefði það komið við sterkt karlmannshjart- að á þeim árum að sjá konur keyra stóra bfla, hvað þá að hugsa til þess að þær ættu eftir að halda uppi lögum og reglu. Helga Birgisdóttir strætisvagnabflstjóri. Myndir: BG Konur í karlastörfum? ir. Svona er þetta meðal hins al- menna borgara. Sóley: Oft er fólk hins vegar hissa þegar það sér okkur og er eins og spumingamerki í framan. Helga: Það er þannig hjá mér að þrátt fyrir að konur séu í auknum mæli farnar að keyra stóra bfla þá verð ég samt sem áður vör við und- arleg viðbrögð hjá mörgum sem sjá konu við stýrið. Ekki farþegunum sjálfum, heldur frekar þeim sem ég mæti á götu þegar ég er að keyra. Það er alls ekki þannig að fólk hrökklist út þegar það er komið upp í vagninn. Hjördís: Það sem mér fannst svolítið skrítið var að vera í lög- reglubúningnum en það vandist fljótt. Fyrsti dagurinn var erfiðastur. Sóley: Ég var svolítið óörugg til að byrja með og leið hálf undarlega þegar ég var allt í einu komin í lög- reglubúning en það lagaðist allt og vandist smám saman. Hjördís: Það er samt miklu betra fyrir okkur að klæðast þessum búningum og vera eins og karlarnir heldur en að vera í einhverjum kvenlegri búningi. Ég segði nei takk ef mér væri boðinn slíkur bún- ingur. Sóley: Ég sæi okkur ekki í anda í pilsi í vinnunni. Það á að halda þessum búningum eins fyrir bæði kynin. Ef við hefðum vanist því að konur væru í öðruvísi búningum, til dæmis með kvenlegri hatt, þá væri það allt í lagi. Framtíðarstarf ? Helga: Ég hef hugsað mér að vera áfram í starfi strætisvagnabflstjóra. því þetta starf á vel við mig. Hjördís: Það að vera lögreglu- þjónn hentar mér vel og gæti gert það áfram því ég er í kennaranámi Lögregluþjónarnir Hjördís Ýr Skúladóttir, til vinstri, og Sóley Jónasdóttir. En í dag eru breyttir tímar og röskun hefur orðið á hinum hefð- bundnu karla- og kvennastörfum. Það þykir ekkert tiltökumál að sjá kvenmann keyra strætó hvað þá að sjá konur ganga um í lögreglubún- ingi á götum bæjarins. Helga Birg- isdóttir, Hjördís Ýr Skúladóttir og Sóley Jónasdóttir eru konur í hinum „gömlu, hefðbundnu karlastörfum". Þær ræða saman um störf sín og hvernig það er að vera kona í karla- starfi. Hvaða störf og hvers vegna? Helga: Ég hef starfað sem strætis- vagnabflstjóri hjá Strætisvögnum Akureyrar í nokkra mánuði. Ástæða þess að ég sótti um það starf þegar það var auglýst á sínum tíma var að mig langaði til að breyta til og vinna við eitthvað allt annað en ég hafði verið að vinna við áður. Hjördís: í sumar lét ég loks verða af því að sækja um sumarst- arf hjá lögreglunni. Ég hef alltaf haft áhuga á því að prófa það starf og ákvað að láta reyna á það að sækja um og var svo heppin að fá starfið. Sóley: Ég er í lögreglunni eins og Hjördís og segi það sama og hún því ég hafði alltaf hugsað um hvemig það væri að vera í lögg- unni. Ég hafði hins vegar aldrei sagt neinum frá þessum áhuga mín- um á starfinu en ákvað að sækja um og sjá hvað kæmi út úr því. Hjördís: Það var ekki búningur- inn eða handjámin sem heilluðu mig í upphafi við lögreglustarfið heldur frekar hversu fjölbreytt það er og reynir á margar hliðar hjá manni. Sú reynsla sem við fáum út úr þessu á einnig eftir að reynast manni vel á mörgum sviðum. Helga: Fyrir mér er það að keyra strætó eins og hvert annað starf. Það blundaði ekki í mér þörf fyrir það að brjóta upp eitthvað hefðbundið karlamynstur. Af hverju er þetta karlastarf frekar en eitthvað annað sem karlar gegna? Sóley: Ég er sammála því. Mig vantaði vinnu og lögreglustarfið var það sem mig langaði til að prófa. Það stoppaði mig ekki að þetta væri eitthvert karlastarf. Hjördís: Það var ekki rauð- sokkuandinn sem vakti fyrir mér þegar ég ákvað að drífa mig í að reyna lögreglustarfið. Konur í karlastörfum? Helga: Mér líður alls ekki þannig að ég sé kona í karlastarfi. Það er ekkert í starfi strætisvagnabflstjóra sem kvenmaður getur ekki sinnt. Hjördís:Viðhorfið er samt það að þessi störf séu karlastörf. Það kemur fólki á óvart að konur sæki í lögguna. Það endurspeglast best í því þegar spurt er hvað maður geri ef maður lendi í slagsmálum. Karl- amir á stöðinni segja líka alltaf „komið strákar mínir“ við okkur Sóleyju, það er erfitt fyrir þá að melta það að það séu komnar konur í hópinn. Helga: Það er allt í lagi þó að það sé sagt strákar mínir. Érekar vinalegt en hitt. Sóley: Já, það er satt og þó það gerist þá líður mér alls ckki eins og ég sé í einhverju karlastarfi. Karl- amir á stöðinni hafa tekið okkur afar vel, verið mjög hjálpsamir og ótrúlega þolinmóðir gagnvart okkur þó við séum alltaf að spyrja að því sama. Þrátt fyrir að margir kalli starf lögregluþjóns karlastarf verður samt sem áður alls ekki vart við karlrembu á stöðinni. Helga: Mér finnst miklu betra að vinna eingöngu með karlmönn- um, heldur en kvenfólki. Það er allt annar andi meðal þeirra. Hjördís: Já, ég held það sé vegna þess að strákarnir taka ekki vandamálin að heiman með sér í vinnuna eins og er algengt að konur geri. Ég er líka sammála Sóleyju varðandi karlrembuna. Það er alls ekki hægt að tala um einhverja karl- rembu á stöðinni. Maður verður bara að sætta sig við það að þetta er gamalt karlaveldi og karlamir eru óvanir því að það séu allt í einu ein- hverjar konur komnar inn til þeirra. Það er hægt að líkja þessu við það að karlmanni væri hent inn í rótgró- inn saumaklúbb gamalla vinkvenna. Sóley: Eigum við að líkja körl- unum okkar við saumaklúbb? Eru þeir ekki bara fegnir að fá okkur? Helga: Þetta er örugglega allt annað hjá ykkur en hjá mér. Þið vinnið miklu meira með körlunum heldur en ég. Ég er alltaf ein að keyra en þau samskipti sem ég hef við karlana eru mjög góð og þeir hafa tekið mér vel. Lögregluþjónar og strætisvagnabflstjóri? Hjördís: Mér þykir ofsalega fínt að vera í þessu starfi. Það er mjög krefjandi og maður öðlast mikla reynslu. Sóley: Ég verð alltaf ánægðari og ánægðari. Eftir því sem maður lærir meira því betra. Það er auðvit- að heilmargt sem maður þarf að komast inn f. Við þurftum að fara í gegnum ákveðið ferli áður en við byrjuðum að vinna á stöðinni. Þeg- ar við sóttum um starfið þurftum við að byrja á því að taka inntöku- próf og við sem komumst áfram fórum síðan á námskeið í júní. Það námskeið tók tæpa viku og hingað kom meðal annars kennari frá Lög- regluskólanum. Þar lærðum við ýmislegt nytsamlegt eins og í sam- bandi við skýrslugerð og sjálfsvöm en einnig þurfti að fara vel yfir um- ferðarreglumar. Auk þess lærðum við margt fróðlegt um ávana- og fíkniefni, leit að þeim og hegðun fíkniefnaneytenda. Helga: Já, ég kann vel við mig sem strætisvagnabílstjóri. Ég er með meirapróf á bfl þannig að ég þurfti ekki að taka próf í tengslum við vinnuna sjálfa og einnig hafði ég keyrt skólabfl á Stóru-Tjörnum í þrjá vetur þannig að þetta starf voru engin sérstök viðbrigði fyrir mig. Hjördís: I sambandi við vinn- una þá kom mér á óvart hversu vel manni er tekið þegar birtast konur í útköllum. Það kemur fyrir að tekið er í hendina á manni og þakkað fyr- og hef hugsað mér að verða kenn- ari. Að vinna sem kennari á vet- urna og vera í lögreglunni á sumr- in er alveg kjörið. Eg gæti jafnvel hugsað mér eftir þessi fyrstu kynni mín af lögreglustarfinu að fara í Lögregluskólann. Sóley: Eg veít ekki með mig því það er svo margt sem mig langar til að gera. Ég er í líffræði í Háskóla íslands og hef hugsað mér að verða líffræðingur en ég er mjög ánægð í lögreglunni. Ég sé bara til hvað gerist. Viðtal: Halla Bára Gestsdóttir. HYRNA ehf BYGGINGAVERKTAKI . TRÉSMIÐJA Dalsbraut 1 • 600 Akureyri • Sími 461 2603 • Fax 461 2604 Smíðum fataskápa, baiméttingar, eldhúsmétlingar og innihurðir Teiknum og gerum föst verðtilboð, þér oð kostnaðarlausu. Greiðsluskilmálar við allra hæfi.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.