Dagur - 10.08.1996, Blaðsíða 10

Dagur - 10.08.1996, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 10. ágúst 1996 Nýtt þjónustuhús var opnað í Vaglaskógi í vor og með því gjörbreyttist aðstaða fyrir ferðamenn er heimsækja skóg- inn. Verslun er í húsinu og hreinlætisaðstaða. Vaglaskógur - einn vinsælasti og fjölsóttasti skógur landsins Sigurður Skúlason er skógarvörður á Norðurlandi með aðsetur á Vöglum. Vaglaskógur hefur verið áning- arstaður ferðafólks um margra ára skeið og hefur staðurinn verið einn sá vinsælasti og fjöl- sóttasti á landinu af fcrðamönn- um. Sigurður Skúlason er skóg- arvörður á Norðurlandi með að- setur á Vöglum. Hann segir að- sóknina í skóginn í ár í meðal- lagi og umgengni góða hjá ferðafólki. Vaglaskógur er í landi Vagla og Háls. Friðun landsins má rekja Sími 800 70 80 Dagur-Tíminn hefur opnað grænt númer 800 70 80, sem er gjaldfrítt númer fyrir lesendur um allt land. Þjónustusími Dags-Tímans er opinn alla virka daga kl. 9-17. Hringdu núna ef þú ert með ábendingar, skoðanir eða vilt gerast áskrifandi að hinu nýja blaði. Nýjung á íslandi! Eitt númer um allt land 800 70 80 ekkert gjald, hvar sem þú ert á landinu! ®agur~®mrrat -besti tími dagsins! til þess er Kristján konungur IX samþykkti lög frá Alþingi um heimild til að kaupa lönd til skóg- friðunar og skógargræðslu og þar var heimilað að kaupa jarðirnar í Fnjóskadal er skógurinn tilheyrir. í nóvember 1904 seldi biskupinn yfir íslandi og afsalaði sér Háls- skógi til landssjóðs íslands og í maí 1905 seldi og afsalaði eigandi Vagla stjórnarráði Islands jörð sína. Mörkin milli Vagla og Háls liggja um svonefnda Merkjalág rétt norðan við gróðrarstöðina í Vaglaskógi. Skógarvörður var settur í Vagli árið 1909 og sama ár var skógurinn girtur. Sigurður Skúlason, skógar- vörður í Vaglaskógi, segir stærst- an hluta skógarins í dag vera villt- an birkiskóg og svo muni vera áfram því lítið sé plantað inn í hann. Ekkert birkiskóglendi á ís- landi hefur verið hirt jafn mark- visst og án afláts á þessari öld eins og Háls- og Vaglaskógur. Grisjun hefur verið mikilvægur þáttur frá upphafi og skógarhögg hefur ver- ið stundað árlega frá 1909. Árang- ur þessa er sá að Vaglaskógur er nú jafnvaxnasti birkiskógur á ís- landi með hæsta náttúrulega birki, 13 metra. Gróðursetningu erlendra trjátegunda var að mestu hætt í skóginum eftir 1980. Mest var Trjásafn var opnað í Vaglaskógi fyrir fjórum árum og eru þar 12 tegundir trjáplantna. gróðursett í og við svonefndan Furuhól, þar sem nú hefur verið komið upp trjásafni með 12 teg- undum trjáplantna. Aðsóknin fer eftir veðri Aðspurður um aðsókn í skóginn þetta sumarið segir Sigurður hana hafa verið í meðallagi. „Við erum með um 1900 gistinætur í júní en þetta fer auðvitað allt eftir veðr- T/7 eöiu Jpeeei etórglæeiiega Nieean Primera árg. ’92 Vélaretærð 2OOO c.c. 115 hö. Litur X Svartur Sumar-/vetrardekk X Já Tveirgangarálf. X Já Dráttarbeisli X Já Gervihnattadiskur Já X Spoiler X Já Annar Nei Nei Nei Nei Nei Til sölu og sýnis á EMlasölunni Stórholti, Óseyri, sími 462 3300.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.