Dagur - 10.08.1996, Qupperneq 9
Laugardagur 10. ágúst 1996 - DAGUR - 9
Lennonsystur og fjölskyldur þeirra segja bestu skemmtunina felast í því að fara saman í útilegu þar sem leyfilegt er
að vera skítugur og frjáls.
Tjald þekkist í nútímamerkingu orðsins allt aftur til fornmálsins. í fornsögunum sofa menn
í tjöldum og er sá lífsstíll sem því fylgir, þannig álíka gamall byggð í landinu. En af hverju
fýsir fólk að sofa í tjöldum? Er það ævintýramennska eða er fólk einungis að hugsa um
ódýra gistingu þegar það slær upp tjaldi á ferðalögum sínum um landið? Dagur kannaði
hljóðið í nokkrum tjaldbúum á Akureyri.
Tímamismunur á
íslendingum og
öðrum þjóðum
Stefán Gunnarsson er tjaldvörður
á tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti
á Akureyri. Hann segir tjaldsvæð-
ið í A-flokki því öll aðstaða sé þar
hin besta fyrir ferðalanga. Aukn-
ing hafi orðið á ferðamönnum og
íslendingar séu í meirihluta þrátt
fyrir tiltölulega jafna skiptingu,
Þjóðverjarnir hafi þó alltaf yfir-
burði yfir aðra erlenda gesti í
heimsóknum til bæjarins. Stefán
segir að á góðri gistinótt séu að
jafnaði um 3- 400 manns á tjald-
stæðinu en það sé áberandi að út-
lendingarnir fari eftir annarri
klukku en íslendingamir. „íslend-
ingarnir koma yfirleitt á bilinu 10
til 2 á nóttunni og fara af stað
uppúr hádegi en útlendingamir
koma alltaf um 6 á daginn og fara
í bítið á morgnana."
Breyting frá heimilislífínu
Helga Söebech og Gunnar Örn
Guðmundsson voru ásamt sonum
sínum Þórði og Guðmundi á
ferðalagi um landið í vikunni sem
leið og höfðu viðkomu á Akur-
eyri. Þau eru búsett í Reykjavík og
voru að koma frá Núpi í Dýrafirði
þar sem þau höfðu verið á ættar-
móti. Frá Núpi héldu þau til ísa-
fjarðar og þaðan lá leiðin að
Bakkaflöt í Skagafirði. Þau sögð-
ust yfirleitt fara tvær helgar á
sumri í tjaldferðalag enda þætti
strákunum það spennandi en það
væri ekki sama hvert farið væri
því nauðsynlegt væri að hafa ein-
hverja alþreyingu fyrir bömin.
Tjaldlífið væri líka ákveðin breyt-
ing frá hinu hefðbundna heimilis-
lífi enda minni kröfur gerðar um
húshald.
Helga, Gunnar, Þórður og Guðmundur segja að í tjaldlífinu felist ákveðin
tilbreyting frá heimilislífinu. Myndir: mgh
Kjósum þægindi í tjaldinu
Petrína Konráðsdóttir og Rúnar
Garðarsson voru ásamt bömum
sínum þremur, Garðari, Antoni
Smára og Söru Kristínu á leið til
Reyðarfjarðar í brúðkaup með
stoppi á Akureyri. Petrína sagði
að það væri meira en að segja það
að leggja af stað í ferðalag með
þrjú böm vegna þess að gífurlega
Stefán Gunnarsson, tjaldvörður,
segir tímamismun á íslendingum og
öðrum þjóðum.
Moritz Twele frá Þýskalandi segist
njóta þess að ferðast um einn og
sofa í tjaldi.
Petrína, Rúnar, Garðar, Anton og
Sara segja gífurlegan farangur
fylgja fimm manna fjölskyldu.
landið í tvær vikur. Hann sagði að
sér líkaði vel að ferðast einn enda
þyrfti hann ekki að hugsa um ann-
að en það sem hann vildi. Tjaldlíf-
ið væri þægilegt og gaman væri
að ferðast um á hjóli þrátt fyrir að
vegimir á íslandi væm ekki alltaf
sem bestir. Moritz sagðist kvarta
undan tveimur atriðum, annars
vegar hversu erfitt væri að kynn-
ast Islendingum og hins vegar
hversu dýrt væri að kaupa í mat-
inn hér á landi. Hins vegar var
hann hrifinn af náttúrunni og
sagðist aldrei hafa séð aðra eins
fegurð.
mikill farangur fylgdi fimm
manna fjölskyldu. Þau reyndu þó
að fara að minnsta kosti einu sinni
á ári í slíkt tjaldferðalag enda væri
tjaldlífið skemmtilegt. Þegar í
slíka ferð væri haldið kysu þau að
hafa meðferðis ýmis þægindi, eins
og borð og stóla, enda annað óhjá-
kvæmilegt þegar lítil böm væru
með á ferð.
Kvartar undan tvennu
I litlum kúlutjöldum þar sem hjól
standa fyrir utan er undantekn-
ingalaust að finna útlendinga inn-
andyra. Moritz Twele frá Þýska-
landi er einn slíkra ferðalanga en
hann var að koma frá Mývatni eft-
ir að hafa hjólað víðsvegar um
Frelsi til að vera skítugur
Það eru ekki allir sem hafa þolin-
mæði í það að ferðast 17 saman.
En Lennon systur víluðu ekki fyrir
sér að leggja í tjaldferðalag með
fjölskyldum sínum. Þær búa í Ól-
afsvík, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og
Reykjavík og segja tjaldlífið eink-
ar skemmtilegt þegar svo margir
séu saman á ferð. Þær nefna líka
að frelsið sem felist í því að mega
vera skítugur sé heillandi og eins
það að vera úti í náttúrunni. Lenn-
onsystur sögðust vera á rólegheit-
ardóli um landið og vom sammála
um að fátt væri skemmtilegra en
að vera 17 saman í tjaldbúð því
alltaf væri líf og fjör í kringum
þau. hbg/mgh