Dagur - 23.08.1996, Page 1
Tvöfaldurl. vinningur
Kjarasamningar lausir um næstu áramót:
Fullmótaðar
kröfur verða
tilbúnar í
októberbyrjun
Nýsamþykkt lög frá Alþingi
um stéttarfélög og vinnu-
deilur kosta nýjar leikreglur á
vinnumarkaðnum, nýjar áhersl-
ur og nýtt vinnulag í kjarabar-
áttu launafólks en þær kosta
töluverða lögfræðilega yfírlegu á
næstu vikum, jafnvel mánuðum.
Gert er ráð fyrir að í næsta mán-
uði muni Alþýðusamband fs-
lands (ASÍ) senda frá sér leið-
beiningar til aðildarfélaga um
það hvernig staðið skuli að
framsetningu kjarakrafna á lög-
mætan hátt og undirbúningi
verkfallsaðgerða.
Hjá ASÍ er unnið að því að meta
þær breytingar sem lög um stéttar-
félög og vinnudeilur hafa á verka-
lýðsbaráttuna og þar verður unnið í
framhaldi af því að kröfugerð.
Ymsir málsmetandi aðilar innan
verkalýðshreyfingarinnar telja að
standa ASÍ-forystan sig ekki í
þeirri vinnu muni sérsamböndin
ekki bíða boðanna og leggja fram
sínar kröfur, hvert í sínu lagi.
Aðalsteinn Baldursson, for-
maður Verkalýðsfélags Húsavíkur
og deildar fiskverkafólks _ innan
Verkamannasambands íslands
(VMSÍ), segir að sum sérsam-
böndin séu þegar farin að undir-
búa kröfugerð. Nýlega hafi verið
farið á fund ríkissáttasemjara, Þór-
is Einarssonar, til þess m.a. að fá
samræmingu í framlagningu
kjarakrafna eftir að lög um stéttar-
félög og vinnudeilur tóku gildi en
þar á bæ hafi áhrif breytinganna
ekki verið orðin fullkomlega skýr.
Aðalsteinn segir kjarasaminga
renna út um næstu áramót og til
undirbúnings kröfugerðum verði í
haust haldnir fundir með félags-
mönnum í deild fiskverkafólks
innan VMSÍ þar sem drög að
bættum kjörum verði mótuð.
Þann 5. október verður síðan
haldin ráðstefna í Reykjavík þar
sem lagðar verða fram tillögur að
kröfugerð en fundurinn muni síð-
an ganga frá fullmótaðri kröfu-
gerð. GG
Ur vöndu að ráða
Já, þegar úrval póstkorta er mikið er úr vöndu að
ráða. Þessi mynd var tekin í miðbæ Akureyrar í gær.
Líklega fer þeim dögum að fækka sem ferðamanna-
vörur eins og póstkort verða sett út, enda þungi
ferðamannatímans að fjara út.
Mynd: JHF
Er sameining fimm sveitarfélaga við Eyjafjörð í burðarliðnum?
Sveitarstjórnarmenn ræða
skýrslu Reksturs & ráðgjafar
Skýrsla ráðgjafafyrirtækisins
Reksturs & ráðgjafar í
Reykjavík um kosti og galla
þess að sameina fimm sveitarfé-
lag við utanverðan Eyjafjörð,
þ.e. Siglufjörð, Ólafsfjörð, Dal-
vík, Svarfaðardal og Árskógs-
strönd hefur verið til skoðunar
hjá sveitarstjórnarmönnum og
var á dagskrá sveitarstjórnar
Árskógshrepps í gær.
Kristján Snorrason, oddviti Ár-
Sláturhús KEA:
Slátra 29 þúsund fjár
Hefðbundin slátrun hefst í
Sláturhúsi Kaupfélags Ey-
firðinga á Akureyri þann 13.
september og að þessu sinni er
áætlað að slátra um 27 þúsund
Háskólinn á Akureyri:
Nemendur mæta
á mánudag
Háskólinn á Akureyri verður
settur á mánudaginn kemur.
Að sögn skólayfirvalda er
fjöldi nemenda svipaður og í fyrra
þrátt fyrir að í vor hafi stærsti ár-
gangur skólans útskrifast, eða 124
nemendur, en sá hópur var að
stórum hluta fyrstu kandídatar
kennaradeildar. 393 nemendur eru
skráðir til náms við Háskólann á
haustönn sem hefst í ágúst til að
ná þeim fjölda vikna sem reglu-
gerðir skólans kveða á um að
kenndar skuli á haustönn. mgh
dilkum og rúmlega 2 þúsund af
fullorðnu fé, eða samtals um 29
þúsund Qár.
Óli Valdimarsson, sláturhús-
stjóri, sagði að líkt og í fyrra þá
hefði hann viljað byrja fyrr en
bændur voru ekki tilbúnir í það.
„Ég fæ ekki nægilega marga dilka
til að byrja fyrr en þann þrett-
ánda,“ sagði Óli í samtali við Dag.
„Það vilja allir fara í göngur helg-
ina 14.-15. og það þýðir ekkert að
byrja fyrr en það má alveg búast
við að þetta verði mjög vænir
dilkar," sagði Óli.
Það þarf að bæta við um 60
manns í vinnu og alls verða milli
100 og 110 í vinnu á þessum tíma
en ekki er farið að auglýsa þau
störf ennþá. Áætlað er að slátrun
standi yfir í fimm vikur og ljúki
17. október. Ein breyting er frá
því sem áður hefur verið en ekki
má afgreiða svið öðruvísi en full-
verkuð út úr húsinu að fyrirmæl-
um yfirdýralæknis. SH
skógshrepps, segist ekki búast við
neinni niðurstöðu um málið á
næstu vikum, sveitarstjómarmenn
ætli sér góðan tíma til að skoða
kosti málsins og galla. Kristján
segir að í skýrslunni séu engar til-
lögur, heldur mat á ýmsum þátt-
um. Nefnd, skipuð fulltrúum allra
sveitarfélaganna, kom saman fyrr
f mánuðinum, en stefnt sé að því
að kynna úrdrátt úr skýrslunni
innan tíðar, jafnvel í september-
mánuði.
„Hafi grundvöllur fyrir samein-
ingu þessara sveitarfélaga verið
fyrir hendi þá hefur það ekkert
breyst, kannski er eitthvað í
skýrslunni sem hvetur menn frek-
ar en letur. Verði af þessari sam-
einingu er það að mínu mati að-
eins skref í þá átt að sameina allar
byggðir Eyjafjarðar í eitt sveitar-
félag. Nú þegar hafa sveitarfélög-
in ýmist samstarf, m.a. Hafnar-
samlag Eyjafjarðar, og hjá Ár-
skógshreppi, Dalvík og Svarfaðar-
dal er ýmislegt samstarf, m.a. reka
þau sameiginlega 10. bekk grunn-
skóla á Dalvík og standa saman að
rekstri heimilis aldraðra. Mér
finnst líklegt að haldnir verði
kynningarfundir um málið fyrir
almenning þar sem úrdráttur úr
skýrslunni verður lagður fram,“
sagði Kristján Snorrason, oddviti
Árskógshrepps. GG
Eyjafjarðarsveit:
Tvær bifreiðir ónýtar
eftir aftanákeyrslu
Síðdegis í gær varð harður
árekstur við syðri afleggjar-
ann að Kristnesspítala.
Bifreið kom framan úr firði og
hugðist beygja að Kristnesi en bíl-
stjóri bifreiðar sem á eftir kom
hefur sennilega ekki veitt því at-
hygli með þeim afleiðingum að
bifreiðin ók á töluverðri ferð aftan
áþáfremri.
Farið var með tvær konur og
4ja ára bam úr fremri bifreiðinni
til skoðunar á slysadeild Fjórð-
ungssjúkrahúsins en meiðsli þeirra
voru ekki fullkönnuð er blaðið fór
í prentun. Bifreiðamar hentust
báðar út af og eru ónýtar. GG
Husavik utflutni ngshofn?
- Eimskip með tiiraun aö breyttum siglingum til útlanda
Igangi er tilraun á vegum Eimskips með breyttar
áherslur á siglingum til útlanda. Um er að ræða
4-6 vikna tilraun með að flytja vörur beint til Evr-
ópu frá Húsavíkurhöfn. Kísilgúr er aðaluppistað-
an í útflutningnum og með þessu móti er hætt um-
skipun á kísilgúr á Akureyri eins og áður var.
I samtali við Dag sagði Garðar Jóhannsson for-
stöðumaður Eimskips á Akureyri að þegar væri búið
að fara tvær slíkar ferðir beint frá Húsavík, reyndar
með viðkomu á Eskifirði, en þar færi engin umskipun
fram. Garðar sagði að til margra ára hefði kísilgúr
verið lestaður á Húsavík og síðan siglt með hann til
Reykjavíkur og umskipaður þar í útllutningsskip.
Breyting hefði orðið á þessu fyrirkomulagi í janúar
síðastliðnum þegar farið var að umskipa á Akureyri.
Nýtt siglingakerfi er verið að taka í notkun hjá fyrir-
tækinu og liður í því er sú tilraun sem nú er í gangi
með að flytja vörur beint til Evrópu frá Húsavík. Eftir
tiltekin tíma á svo að meta það með tilliti til tímaáætl-
unar skipanna hvort tilraunin verður hagkvæm, fyrr
er ekki hægt að segja til um hvort þetta verður fram-
tíðin í flutningunum eða ekki. GKJ