Dagur - 23.08.1996, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 23. ágúst 1996
FRÉTTIR
Aðsókn að Ustasumri
svipuð og undanfarin sumur
- segir Hafliði Helgason framkvæmdastjóri
Nýjasta viðbyggingin við Borgarhólsskóla, til vinstri, er önnur viðbygging
við skólann á síðustu árum, en elsti hlutinn er orðinn 36 ára gamall.
Mynd: GKJ
Borgarhólsskóli á Húsavík:
Sex nýjar kennslu-
stofur teknar í notkun
Listasumri fer að ljúka á Akur-
eyri og er síðasti formlegi dagur
þess 29. ágúst, eða afmælisdagur
Akureyrar. Aðsókn að Lista-
sumri hefur verið þokkaleg þeg-
ar á heildina er litið en hún var
minni í lok júní og byrjun júlí en
búist var við. Eftir þá lægð hefur
hins vegar allt verið á uppleið og
aðsóknin svipuð og síðustu sum-
ur.
Þeir viðburðir sem hafa verið
best sóttir þetta Listasumarið eru
jasskvöldin og segir Hafliði að á
þeim hafi verið mikil stemmning.
Það sé skemmtilegt að vita til þess
að jassinn hafi náð að skapa sér
sterkan sess í hugum bæjarbúa
sem og helstu stórjassara landsins.
Af einstökum viðburðum voru
tónleikar Huldu Bjarkar Garðars-
dóttur mjög vel sóttir og aðsóknin
á klassísku tónleikana hefur farið
vaxandi, að sögn Hafliða. Að-
spurður um aðsókn bæjarbúa á
Akureyri:
Punktar úr
bæjarráði
Viðræður við Þórsara
Bæjarráð ræddi á fundi sínum í
gær um bókun íþrótta- og tóm-
stundaráðs þar sem lagt var til að
gengið yrði til viðræðna við
Iþróttafélagið Þór um byggingu
húss fyrir knattspymumenn.
Bæjarráð samþykkti skipan við-
ræðunefndar við íþróttafélagið
Þór um byggingu hússins, en
vísaði bókun íþrótta- og tóm-
stundaráðs að öðru leyti til end-
urskoðunar þriggja ára áætlunar
bæjarsjóðs.
Aðalfundur Eyþings
Boðað er til aðalfundar Eyþings
- samtaka sveitarfélaga á Norð-
urlandi eystra - í félagsheimilinu
Laugarborg f Eyjafjarðarsveit
nk. fimmtudag og föstudag.
Tilnefning öryggis-
trúnaðarmanns
Með bréfi dags. 14. ágúst
tilkynnti Starfsmannafélag Akur-
eyrarbæjar að félagið hafi til-
nefnt Konráð Gunnarsson hjá
íþróttamiðstöð Glerárskóla ör-
yggistrúnaðarmann og í öryggis-
nefnd f staðinn fyrir Hólmkel
Hreinsson.
Veðheimild fyrir KA
Með bréfi dags. 21. ágúst sl.
óskaði aðalstjóm KA eftir heim-
ild til veðsetningar á eign sinni
við Ðalsbraut til tryggingar á
láni sem félagið hyggst taka að
upphæð 6 milljónir króna til
greiðslu á skammtímaskuldum.
Bæjarráð samþykkti veðsetning-
una að því tilskyldu að veðsetn-
ingin sé innan þeirra marka sem
bæjarstjóm hefur sett um veð-
setningu íþróttamannvirkja og
bæjarsjóður hefur tekið þátt í að
reisa.
viðburði Listasumars segir hann
að þeir mættu vera duglegri að
sækja menningarviðburði. Hins
vegar hafi innlendir ferðamenn
mikið sótt Listasumarið og
ánægjuraddir þeirra hafi heyrst
þar sem þeim þyki viðburðir sem
þessir kærkomin viðbót við dvöl á
Akureyri.
í lokaviku Listasumars að
þessu sinni verður margt
skemmtilegt á dagskránni og teng-
ist hún inn í dansk/akureyrska
menningarviku sem haldin er á
Akureyri. í kvöld, föstudagskvöld,
klukkan 21, verður heimsfrum-
sýning á hollensku dansverki í
Deiglunni. Verkið er sérsamið af
hollenskum listdansara til að
frumflytja á Listasumri. Á laugár-
dags- og sunnudagskvöld verður
sýnt Ópem-þykkni í Deiglunni.
Þetta er söngleikurinn Bí, bí og
Átta sjóstangveiðimót eru haldin
á hverju sumri sem gefa stig til
íslandsmeistaratignar sem
keppt er um á vegum Lands-
sambands sjóstangveiðifélaga,
SJÓL. í dag og á morgun, laug-
ardag, verður sjóstangveiðimót á
Eyjafirði sem er hið síðasta í
röðinni, en það er haldið af
SJÓAK, Sjóstangveiðifélagi Ak-
ureyrar.
Áðeins þrjú bestu mótin telja í
stigaútreikningum þannig að ekki
er nauðsynlegt að taka þátt í öllum
mótunum til að vera gjaldgengur.
Stigagjöfin ræðst ekki af því
hversu mörg kíló viðkomandi
veiðir heldur í hvaða sæti viðkom-
andi lendir á þeim mótum sem
telja til stiga og hvar viðkomandi
er staddur á bát, þ.e. hvort hann
hæstur á bátnum eða neðar í röð-
inni. Þátttakendur á mótinu eru 56
Tvö mál öðrum fremur verða til
umræðu á aðalfundi Landssam-
bands kúabænda sem haldinn
verður á Hallormsstað á Héraði
um aðra helgi. Að sögn Guð-
björns Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra landssambands-
ins, verður samanburður á hinu
fslenska og norska kúakyni
væntanlega til umQöllunar sem
og merkingar á nautgripum.
Einstaklingsmerkingar naut-
gripa, þannig að hægt sé að rekja
feril og uppruna viðkomandi grips
allt frá framleiðenda til viðskipta-
vina, eru nú ofarlega á baugi og
það sem koma skal, skv. Evrópu-
stöðlum. Gunnar Guðmundsson,
nautgriparæktarráðunautur
Bændasamtaka íslands, mun fjalla
um þetta mál á fundinum. Þá mun
Gunnar Ríkharðsson hjá RALA
blakan eða Á valdi kaldhæðni ör-
laganna. í menningarvikunni
verður margt um að vera, m.a.
tónieikar vísnasöngkonunnar
Anne Dorte Michaelsen, sem
verða í Deiglunni á þriðjudags-
kvöld klukkan 21. Opinber loka-
dagur Listasumars er 29. ágúst og
mega bæjarbúar sem og gestir
bæjarins búast við skemmtilegu
götulífi.
Hafliði segist sérstaklega
ánægður með það hversu margir
góðir listamenn hafi heimsótt
Listasumarið. Hér hafi m.a. verið
að spila okkar fremstu og efnileg-
ustu hljóðfæraleikarar á klassíska
sviðinu, sem sé mikilvægt fyrir
framtíð menningarlífs á Akureyri,
því góð reynsla þessa fólks af því
að koma hingað í upphafi ferils
síns geti skilað bænum mjög
miklu þegar fram í sæki. hbg
talsins frá 8 félögum og verður
farið á 15 bátum frá Dalvík út í
Eyjafjarðarál; undir Ólafsfjarðar-
múla og Hvanndalabjargi, að
Hrólfsskeri og austur að Kjálka-
nesi o.s.frv. Veitt eru verðlaun
aflahæsta einstaklingnum, afla-
hæstu sveitinni, fyrir flesta fiska,
stærsta fisk í hverri tegund,
stærsta fisk mótsins og flestar teg-
undimar. Veitt verður í dag og á
morgun og lokahóf er síðan haldið
á Hótel KEA annað kvöld þar sem
Islandsmeistarar verða krýndir.
Stigahæstir í karlaflokki fyrir
þetta mót eru Þorsteinn Jóhannes-
son SJÓSIGL á Siglufirði, núver-
andi íslandsmeistari, og Hafþór
Gunnarsson SJÓAK á Akureyri
en í kvennaflokki berjast a.m.k. 5
konur um titilinn. Núverandi Is-
landsmeistari kvenna er Sigfríð
Valdimarsdóttir SJÓAK. GG
bera íslenska kúakynið saman við
það norska. Sem kunnugt er var
mál það mjög til umræðu sl. vetur,
en Guðbjöm Ámason segir að
nauðsynlegt sé að gera það á vís-
indalegri grundvelli nú en þá.
Kjaramál bænda verða einnig
mjög til umræðu á fundinum að
sögn Guðbjöms, sem mun á fund-
inum flytja erindi um markaðsmál
mjólkur og nautakjöts.
Fundurinn verður haldinn á
Hallormsstað á Héraði og hefst
sunnudaginn 25. ágúst og stendur
fram til næsta dags. Búist er við
óbreytrri forystu landssambands-
ins, en Guðmundur Lámsson í
Stekkum í Flóa hefur verið for-
maður sambandsins sl. tíu ár.
Þessa áratugs afmælis samtakanna
verður minnst á fundinum með
veglegum hætti. -sbs.
Efsta hæð nýrrar viðbyggingar
við Borgarhólsskóla verður tekin
í notkun nú í haust. Þetta eru
sex kennslustofur og koma þær
til með að hýsa unglingadeildir
skólans á komandi vetri.
Fyrir nokkmm árum var byggt
við skólann og í þeim hluta er
bókasafn skólans, kennarastofa og
skrifstofur auk rýmis ætlað fyrir
Tónlistarskólann. Nú þegar nýj-
asta viðbyggingin verður tekin í
Stjórn Geðhjálpar hefur sent
Tryggingastofnun ríkisins bréf
þar sem mótmælt er starfsað-
ferðum Tryggingastofnunar rík-
isins við endurskoðun á frekari
uppbót á lífeyri. Auk þess mót-
mælir stjórn Geðhjálpar þeirri
skerðingu á kjörum sem nýlega
útgefin reglugerð hefúr í för með
sér fyrir lífeyrisþega.
í bréfi stjórnar Geðhjálpar segir
að á síðustu dögum hafi skapast
öryggisleysi og uppnám hjá þús-
undum lífeyrisþega vegna harka-
legra aðgerða Tryggingastofnunar.
Fram kemur að í byrjun þessa
mánaðar hafi lífeyrisþegar fengið
„torskiljanlegt“ bréf frá Trygg-
ingastofnun þar sem fram kom
hótun um að þeir yrðu sviptir upp-
bót á lífeyri vegna sjúkrakostnað-
ar ef þeir skiluðu ekki nýju vott-
gagnið, þ.e.a.s. efsta hæðin, bæt-
ast við sex kennslustofur og verð-
ur þar með hægt að einsetja skól-
ann í fyrsta sinn. Að sögn Hall-
dórs Valdemarssonar, skólastjóra
Borgarhólsskóla, er áætlað að
stofumar verði tilbúnar í lok ágúst
og hægt verði að hefja kennslu í
þeim strax í skólabyrjun. Auk
þessa er nú í sumar búið að gera
töluverðar breytingar á eldra hús-
næði skólans og má þar nefna
gerð nýs skólaeldhúss o.fl. GKJ
orði fyrir 15. ágúst. Þessi frestur
hefur nú verið framlengdur til 15.
september, „en ekki hefur verið
tilkynnt um þennan nýja frest til
lækna eða lífeyrisþega." Stjóm
Geðhjálpar bendir á að upplýsing-
ar um lyfjanotkun og annan
sjúkrakostnað flestra örorkulífeyr-
isþega liggi fyrir hjá Trygginga-
stofnun. Þegar spurt sé hvers
vegna starfsmenn Tryggingastofn-
unar fletti ekki upp í þeim gögn-
um, fáist þau svör að meira hag-
ræði sé fyrir stofnunina að fara
þessa leið, það er að krefjast nýrra
vottorða af lífeyrisþegum. „Það
skýtur skökku við,“ segir stjóm
Geðhjálpar, „að heilbrigðisyfir-
völd skapi uppnám og óöryggi hjá
þúsundum lífeyrisþega nú þegar
nánast ríkir neyðarástand í heil-
brigðismálum." óþh
Hötel
Husavik
4
Fundarboð
Aðalfundur Hótels Húsavíkur hf. fyrir árið 1995
verður haldinn á Hótel Húsavík, Ketilsbraut 22,
Húsavík, þann 30. ágúst 1996, kl. 20.30.
Dagskrá fundarins er þessi:
1. Skýrsla stjórnar félagsins.
2. Staðfesting á efnahags- og rekstrarreikningi fyrir næst-
liðið ár.
3. Ráðstöfun á tapi ársins.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning varastjórnar.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Önnur mál.
Stjórn Hótels Húsavíkur hf.
Sjóstangveiðimót SJÓAK í Eyjafirði:
íslandsmeistarar
kiýndir annað kvöld
Landbúnaður:
Kúabændur funda
á Hallormsstað
Geðhjálp mótmælir
starfsaðferðum
Tryggingastofnunar