Dagur - 23.08.1996, Síða 5
Föstudagur 23. ágúst 1996 - DAGUR - 5
- kjörinn staður fyrir heilsusetur
Folaldagúllas og snitsel
kr. 848 kg
Londonlamb kr. 888 kg
Útsala í kjallara
Síðasti dagur útsölu
laugardagur 24. ágúst
Allt að 70% afsláttur
Að sögn Ásu er Lundur stórkostlegasti staður á jörðinni og hefur hún þó ferðast víða.
Tilboð
Vínber blá, rauð og græn
kr. 335 kg
Avaxtahringur kr. 278
Pizzur fra Kjarnafæði
4 stk. í pk. kr. 489
eða 4 stk. pizzur +
2 I Coca Cola kr. 599
Ása Jóhannesdóttir nuddari er
þessa dagana að leggja grunn að
opnun heilsuseturs og heilsuskóla
í Lundi í Öxarfirði. Hún segir
næsta vetur fara í undirbúning en
ætlar engu að síður að byrja strax
og halda nokkur námskeið um
helgina. Geta menn komið og
kynnt sér fyrirhugað heilsusetur
og tekið þátt í námskeiðunum.
Ása hefur starfað að ferðaþjón-
ustu í mörg ár og segir að heilsu-
setrið muni mæta þörf sem hefur
verið vanrækt hérlendis og á þar
við heilsuþáttinn í þjónustu við
ferðamenn. Hún telur að ferða-
mannaiðnaðurinn sem verið hefur
alls ráðandi á íslandi sé að ganga
sér til húðar og að Island verði að
skapa sér sérstöðu.
„Á þeim tíma sem ég tók
ákvörðun um að opna heilsusetur
hafði Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti, hvatt íslensk
stjómvöld til að styrkja einmitt
þennan anga ferðaþjónustunnar og
nýta þannig möguleikann á að
selja Island sem ferðamannaland
sem byði upp á bætta heilsu. Ég
hugsaði með mér að auðvitað væri
þetta málið því það þarf að búa til
sérstöðu. Þessi „túrismi" á rútun-
um þar sem fólk hendist í gegnum
landið á ekki eftir að lifa lengi því
fólk getur allt eins keypt sér póst-
kort.“
„Ég ætla að kynna þetta
vel erlendis“
Eftir dálitla leit fann Ása kjömar
aðstæður fyrir heilsusetrið í Lundi
í Öxarfirði. Hún skrifaði sveitar-
stjóminni sem tók vel í áformin
og nú stendur undirbúningurinn
yfir. „Ég er núna að gera upp
gamla skólahúsið og kynna mér
aðstæður. í september hefst síðan
markaðssetningin og vinnan með
ferðamála- og atvinnufulltrúum
staðarins. Þetta er mikið umstang
því ég ætla að kynna þetta vel er-
lendis. Ég hef hins vegar fulla trú
á að þetta geti gengið þar sem
staðurinn hefur upp á allt að
bjóða.“
Ása segir húsakynni í Lundi
góð. Á staðnum er heimavist sem
er ekki lengur notuð fyrir skóla-
böm. Sundlaug og íþróttahús eru
þar prýðileg og fyrsta flokks eld-
unar- og gistiaðstaða auk þess
sem Ása segir náttúruna ekki geta
verið stórkostlegri. „Hér eru foss-
ar, fjöll, haf, strönd og eldur undir
jörðinni og Jökulsárgljúfrin sem
eru náttúruundur. Gróður er hér
meiri en víða annars staðar og
eins em margar tegundir af jurtum
og t.a.m. mjög mikið af sveppum
og berjum.“
Svitahof, jóga, nudd
og heilsufæði
„Ef fólk hefur áhuga á að vera í
náttúrunni og byggja sig upp á sál
og líkama er þetta staðurinn. Hér
verður boðið upp á heilsufæði,
nudd, gufu, jóga, dans og skipu-
lagðar náttúruferðir. Síðan verð-
um við með námskeið þar sem
fólki verður kennt að nýta hrein-
leikann og kraftinn í náttúrunni til
þess að byggja sig upp.“
í framtíðinni hefur Ása hugsað
sér að fólk dvelji ekki skemur en
yfir langa helgi, 3-4 daga, en eins
getur fólk komið og verið á
heilsusetrinu allt sumarið ef því er
að skipta.
Kynningardagana 23. -31.
ágúst verður Kolbrún Bjömsdóttir
með námskeið í íslenskum jurta-
lækningum þar sem kennt verður
að þekkja jurtirnar, búa til olíur,
smyrsl, te og seyði. „Við munum
á sama tíma vera með slökun og
líkamshreyfingar þar sem streitan
er hrist úr líkamanum.“ Auk Kol-
brúnar verður Öm Jónsson, sér-
fræðingur í kínverskum náttúru-
lækningum og svæðanuddi, með
námskeið um helgina. Öm er einn
af frumkvöðlunum í náttúrulækn-
ingum og ætlar hann ásamt konu
sinni Olgu Lísu Garðarsdóttur að
kenna mönnum að efla vitundina
og meðvitund um sjálfa sig og
umhverfið sitt. „Þegar fólk er orð-
ið stressað getur það ekki nýtt
orkuna með fullum mætti, nám-
skeiðið felst í því að losa um þess-
ar stíflur sem hlaðist hafa upp og
er það gert með sérstökum líkams-
æfingum, öndun, dansi og tján-
ingu auk fræðsl,“ segir Ása. Ása
segir að ætlunin sé að byggja
svitahof sem er gufubað án þess
að hafa heitt vatn. Hér getur fólk í
framtíðinni komið í nudd og lík-
amsæfingar, dans og slökun, kyrrð
og náttúmskoðun og meðfram
Asa Johannesdóttir meö Hafrafellið í baksýn.
þessu getur það sóttu námskeið og
neytt heilsufæðis."
Heitur svartur sandur
„Þetta er mikil nátturuperla hérna
í Lundi og mér finnst ég vera á
stórkostlegasta stað á jörðinni og
hef þó ferðast víða. Héma megin
við Jökulsárbrúna er svartur sand-
ur og fjara og það er hiti í sandin-
um vegna jarðsprungunnar sem
liggur hér í gegn.“
Ása Jóhannesdóttir er Reykvík-
ingur og hefur starfað mikið í
ferðaþjónustu. Hún hóf útgáfu á
bæklingnum „What’s on in
Reykjavík“ árið 1982 og gaf út í 7
ár en seldi síðan fyrirtækið til þess
að geta lært nudd og stofnað
heilsusetur. „Mig langaði að
breyta til og fór í nuddnám.
Kveikjan að því var sú sæla sem
ég fann þegar ég fór í tyrkneskt
kvennabað í París. Ég lærði nudd í
2 ár héma heima en fór síðan í
framhaldsnám til Colorado í
Bandaríkjunum og tók m.a.
áfanga í líkamssálarfræði og Jung-
ískri sálarfræði og var með einka-
kennara í hinu og þessu sem teng-
ist því að víkka meðvitundina. Ég
var alltaf ákveðin í því að eftir
námið myndi ég stofna heilsusetur
og það er ég að gera í Lundi í Öx-
arfirði í dag.“ mgh
HRISALUNDUR
- fyrir þig!
Óclýmra en þig grunar