Dagur - 23.08.1996, Síða 11
Föstudagur 23. ágúst 1996 - DAGUR - 11
Bing Dao og SS Byggis-mót
í KA-húsinu um helgina
23.-25. ágúst
Þátttökulið eru: FH, Haukar, KA,
Selfoss, Stjarnan og Þór
Leikirnir verða 2x20 mínútur og tíminn
ekki stoppaður vegna tafa.
Föstudagur
Föstudagur
Föstudagur
Föstudagur
Föstudagur
18.00 | Stjarnan-Haukar
19.00 KA-Selfoss
20.00 Haííkar-Þór
21.00 FH-Stjarnan
22.00 Þór-KA V
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
FH-Haukar v
Stjarnan-Selfoss
FH-Þór
Haukar-Selfoss
Stjarnan-KA
FH-Selfoss
Stjaman-Þór
KA-Haukar
Þór-Selfoss
KA-FH \
Verð miða kr. 500 fullorðnir - kr. 100 börn
Gildir allan daginn
Mætum seín fíest
og styðjum okkar lið
Stuðningsmenn KA
Hefjum sölu ársmiða um helgina
Handhafar ársmiða mætið á leikina
og endurnýið miðana
í rúmlega 70 km akstursfjarlægð
frá Egilsstöðum er Borgarfjörður
eystri sem er nyrstur hinna eigin-
legu austfjarða. Um klukkutíma
tekur að aka þangað sem krók á
hringferðalagi um landið og fæstir
þeirra sem taka þann krók sjá eftir
honum sökum einstakrar náttúru-
fegurðar sem staðurinn er þekktur
fyrir.
Þorpið Bakkagerði í Borgar-
firði eystri er byggt á landnáms-
jörðinni Bakka. Bakkagerðiskirkja
nteð sína frægu altaristöflu eftir
meistara Kjarval stendur neðst í
þorpinu en á henni má sjá Krist
flytja fjallræðuna. í Álfaborg, sem
er klettaborg við Bakkagerði, er
mikil álfabyggð og sagt er að þar
búi álfadrottning íslands og ef
haldið er inn í dalinn blasa Dyr-
fjöllin við í allri sinni dýrð.
Um 10 þúsund ferðamenn
á ári
Magnús Þorsteinsson er oddviti í
Borgarfirði eystri. Hann segir fbúa
Borgarfjarðar vera um 180 í dag
en undanfarin ár hafí þeim fækkað
vegna samdráttar í landbúnaði og
kvótavöntunar. „Hér í Borgarfirði
hafa aðalatvinnuvegirnir verið
sauðfjárrækt og trilluútgerð en
þeir hafa þó orðið illa úti undan-
farin ár. Steiniðjan Álfasteinn er
þó vaxandi fyrirtæki og nokkrir
einstaklingar starfa á iðnaðar- og
þjónustusviðinu." Magnús segir
samgöngur við Borgarfjörð hafa
verið nokkuð góðar síðustu ár og
hafi Flugfélag Austurlands flogið
reglulega til Borgarfjarðar. „Þetta
flug hefur skipt miklu ntáli fyrir
okkur og rofið þá miklu vetrarein-
angrun sem við höfurn búið við.
Flugfélagið hefur þó brugðið á
það ráð að leggja flug til Borgar-
fjarðar niður, allavegana í sumar,
en við vonumst til að eitthvað
verði flogið í vetur. Þetta kentur
ekki jafn mikið við íbúa fjarðarins
í dag og það gerði fyrir nokkrum
árum því vegasamgöngur eru betri
nú en áður. Það liggur þó ljóst fyr-
ir að leggja þarf meiri áherslu á
snjómokstur í vetur og samgöngur
gætu orðið ansi erfiðar.“
Aðspurður um ferðamanna-
straum til Borgarfjarðar segir
Magnús að hann sé mestur yfir
hásumarið. „Það eru ekki margir
sem leggja leið sína til okkar yfir
vetrartímann en sumrin hafa verið
nokkuð góð. Ferðamannastraum-
urinn hefur þó ekki aukist síðustu
tvö ár heldur staðið í stað. Hér
hefur starfað áhugahópur um
ferðamál sem m.a. gaf út bækling
um Borgarfjörð en einnig hefur
þessi hópur staðið að ýmsum
uppákomum fyrir ferðamenn yfir
sumartímann."
Borgarfjörður er vaxandi
göngusvæði
í forsvari Ferðamálahóps Borgar-
fjarðar er Helgi M. Arngnmsson,
framkvæmdastjóri steiniðjunnar
Álfasteins. Hann segir það ganga
ágætlega að fá ferðamenn til að
bregða sér út af þjóðveginunt og
heimsækja Borgarfjörð. „Hingað
koma unt 10 þúsund ferðamenn á
ári þrátt fyrir að ekki sé unnið
nógu markvisst að því að auglýsa
Borgarfjörð eystri. Um 30% þessa
hóps eru útlendingar en við leggj-
um þó aðaláhersluna á að fá hing-
að íslenska ferðamenn.“ í Álfa-
steini er rekin upplýsingamiðstöð
fyrir ferðamenn og segir Helgi
hana hafa verið rekna þar í þrjú ár.
„Við höfurn gefið upplýsingar um
svæðið í nokkur ár ásamt því að
hafa staðið að útgáfu ferðamála-
bæklings. Það er starfsfólkið
hérna í Álfasteini sem sér um það
Séð yfir þorpið Bakkagerði í Borgarfirði eystri.
Lindarbakki er gamall, fallegur, vel hirtur torfbær byggður 1899 og sannkölluð staðarprýði.
í steiniðjunni Álfasteini er rekin upplýsingamiðstöð um svæðið. Þar er opið alla virka daga ársins en yfir sumartím-
ann er einnig opið um helgar.
Bakkagerðiskirkja. Þar er að finna
hina frægu altaristöflu eftir Kjar-
val.
að veita þessar upplýsingar, enda
er talsvert ntikið spurt, og reynum
við að benda fólki á skemmtilega
ntöguleika á ferðunt um Borgar-
fjörð.“ Helgi segir að stefnt sé að
því að gera Borgarfjörð að góðu
göngusvæði og unnið sé að því að
setja upp merktar gönguleiðir.
„Við höfum uppá margt að bjóða
fyrir ferðamenn. Framtíð svæðis-
ins sem göngusvæðis er mikil
enda er náttúrufegurðin rómuð.
Álfarnir okkar í Álfaborg taka vel
á móti öllum, unga fólkið á staðn-
urn hefur tekið að sér að fara með
ferðamenn í gönguferð um bæinn,
fuglalíf er mikið og aðgengi að
fuglinum gott og svona mætti
lengi telja. En fyrst og fremst er
Borgarfjörður eystri fagur staður
og friðsæll.“ hbg