Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994 i MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994
25
Iþróttir
Iþróttir
Norðmenn
í skýjunum
- Steinar Hoen vann gull 1 hástökki
Norömenn eru í sjöunda himni
með gullverðlaunin sem Steinar Ho-
en vann í hástökki á Evrópumótinu
í frjálsum íþróttum í Helsinki í gær-
kvöldi. Hoen stökk 2,35 metra en
jafnir í öðru til þriðja sæti urðu Art-
ur Partyka, Póllandi, og Steve Smith,
báðir stukku þeir 2,33. í fjóröa sæti
kom svo Hakon Saernblom, Noregi,
með 2,31 metra.
Mikill uppgangur norskra frjáls-
íþróttamanna hefur komið verulega
á óvart á mótinu en Norðmenn unnu
silfurverðlaun í 100 metra hlaupi í
fyrrakvöld.
Finnar fögnuðu sínum fyrstu gull-
verðlaunum á mótinu þegar Sari
Essayah kom fyrst í mark í 10 km
göngu kvenna. Anna Rita Sidoti frá
Italíu var lengi vel í fyrsta sæti en
Essayah seig fram úr á lokasprettin-
um, vel hvött áfram af löndum sín-
um. Yelena Nikolayeva frá Rússlandi
hafnaði í þriðja sætinu.
Essayah gekk vegalengdina á 42.37
mínútum en Sidoti og Nikolayeva
komu jafnar í mark á 42.43 mínútum.
Fyrrum heimsmeistari í 100 metra
grindahlaupi, Yordanka Donkova,
varð að láta sér nægja fjórða sætið í
gær í úrslitahlaupinu. Landa hennar,
Svetla Dimitrova, bar heiður Búlgar-
íu uppi og sigraði glæsilega. Dim-
itrova hljóp á 12,60 sekúndum en
rússneska stúlkan kom önnur á 12,78
sek. og Julie Baumann frá Sviss kom
á óvart og hirti bronsverðlaunin.
Baumann hljóp á 12,82 sek.
Spánveijar unnu bæði gull- og silf-
urverðlaun í 1500 metra hlaupi karla.
Ólympíumeistarinn Fermin Cacho
vann gullið þegar hann hljóp á tim-
anum 3:35,27 mínútum. Landi hans
Isaac Viciosa krækti í silfurverðlaun
á tímanum 3:36,01 mín. og Branco
Zorko frá Króatíu varð þriðji á 3:37,44
mín.
Sabine Braun frá Þýskalandi vann
sjöþraut kvenna, hlaut samtals 6.419
stig. Rita Inancsi frá Ungveijalandi
varð önnur með 6.404 stig og Pole
Ursula, PóUandi, með 6.322 stig í
þriðja sæti.
Steinar Hoen stekkur yfir 2.35 i hástökkinu í Helsinki í gær.
Evrópukeppnin í handbolta:
Löng f erðalög hjá
íslensku félögunum
í gær var dregið í 1. umferð á Evr-
ópumótum félagsliöa í handknattleik
og fór drátturinn fram í Vínarborg.
Fjögur íslensk lið voru í hattinum í
karlaílokki og sami íjöldi íslenskra
Uða í kvennaflokki.
íslandsmeistarar Vals drógust á
móti dönsku meisturunum í Evrópu-
keppni meistarahða og eiga Vals-
menn að leika fyrri leikinn í Dan-
mörku.
FH leikur í Evrópukeppni bikar-
hafa og verða mótheijar þess sló-
venska liðið Prevent. Þar eiga FH-
ingar einnig fyrri leikinn ytra.
I Evrópukeppni félagsUöa drógust
Selfyssingar gegn Gorache frá Slóve-
níu og leika Selfyssingar fyrri leikinn
á heimavelU.
í borgakeppni Evrópu eiga Haukar
fyrri leikinn á heimavelli gegn
OUmpic frá Úkraínu.
Fyrri leikimir verða dagana 8.-10.
október og síðari viðureignirnar
15.-16. október.
í Evrópukeppni meistaraliða í
kvennaflokki leika Víkingar gegn
Spor frá Tyrklandi. ÍBV leikur gegn
franska Uðinu Gagny í Evrópu-
keppni bikarhafa. I Evrópukeppni
félagsliða leikur Fram gegn Baku frá
Aserbaídsjan og í borgakeppni Evr-
ópu leikur Stjarnan gegn Lublin frá
Póllandi.
Firma- og hópakeppni
í knattspyrnu
Firma- og hópakeppni Knattspyrnufélags Þróttar
í knattspyrnu verður haldin helgina 20.-21. ágúst
1994.
Stórglæsileg verðlaun
1. verðlaun: Ferð fyrir 6 með Flugleiðum, gullverð-
laun, farandbikar og bikar til eignar.
2. verðlaun: Matur fyrir 8 á Veitingahúsinu Lauga-
ási, Laugarásvegi, og silfurverðlaun.
3. verðlaun: Bronsverðlaun.
Upplýsingar í síma/fax: 812817.
Greyerkemurekki
Steve Greyer, sem lék með Ak-
urnesingum í úrvalsdeildinni í
körfubolta á síöasta vetri, hefur
gefiö Skagamönnum afsvar um
að hann komi til íslands aö nýju.
Greyer tók frekar tilboði frá liði
í Portúgai. Skagamenn eru þegar
farnir að iíta eftir erlendum leik-
manni í stað Greyers.
KStapaðifyrirHvöt
Hvöt sigraði KS í 4. deildinní í
gærkvöldi, 3-1. Sveinbjörn Ás-
grimsson, Kristiim Guðmunds-
son og Gísli Gunnarsson skoruðu
fyrir Hvöt. Steingrímur Eiðsson
skoraði fyrir KS. Þá vann Kor-
mákur lið SM, 2-0, með mörkum
þeirra Grétars Eggertssonar og
Guðbjörns Konráðssonar.
Effenberg til Gladbach
Stefan Effenberg gekk í raðir
þýska liðsins Borussia
Munchengladbach í gær. Fiorent-
ina mun leigja kappann til eins
árs. Þess má geta að Effenberg
byrjaði feril sinn hiá Gladbach,
síðan hjá Bayern áöur en hann
fór til Ítalíu.
Ljubidcíbann
Zoran Ljubicic, sem leikur með
ÍBV í 1. deild, var í gær af aga-
nefnd KSÍ dæmdur í eins leiks
bann og leikur því ekki meö ÍBV
gegn KR á laugardaginn kemur.
Valgeir Baldursson hjá Stjörn-
inni fékk einnig eins leiks bann.
Valurleikurheima
Valsmenn hafa horfið frá því
að leika heimaleik sinn gegn
Fram á Laugardalsvellinum á
sunnudaginn kemur. Leikurinn
veröur á Hlíðarenda og hefst
klukkan 19. Leikir Þórs-ÍA og
KR-ÍBV hafa verið færðir til
laugardagsins kl. 14.
ÚrsRt á Evrópumótinu
Úrslit leikja í forkeppni Evr-
ópumótsins í knattspyrnu í gær-
kvöldi urðu þessi, um er aö ræða
fyrri leiki liðanna, lönd liðamia í
sviga:
Teueta(AIb.)-Limasol(Kýp.) ..1-4
Romar (Lit.) - Solna (Svíþ.).0-2
Slavia (Tékk.) - Cork (írl.).2-0
Sofia (Bul.) - Ararat (Arm.).3-0
Minsk (H-Rúss.) - Hibs (Malt.) ..3-1
Tiblisí (Georg.) - Craiova
(Rum)2-0
Fenerb. (Tyrk) - Touran (Azer).S-O
Riga (Lettl.) - Aberdeen (Skotl.)O-O
Honved (Ung.) - Zimbru (Mold.)
Inter(Tékk.j - Anjalan(FinnÍ.j.0 3
Kaupmh.(Danm.) - Jazz
(Finnl.)0-1
Odense (Danm.) - Flora (Eistl.)3-0
Valletta (Malt) - Rapid (Rúm.) ..2-6
Famagust (Kýp.) - Shumen (Búl.)
Aarau(Sviss)- Mura(Slóv.).1-0
Aris (Grikk.) - Hapoel (fsrael)...3-l
Götu (Færey.) - Trelleb.(Svíþ.). .0-1
Inter (Wales)-Katowice (Pól.)0-2
Portadown (N-ír) - Slovan (Sló) 0-2
Mothw. (Skot) - Havnar (Fær,) .3-0
Gornik (Pól.)-Rovers (írl.)7-0
Greven.(Lúx) - Rosenb. (Nor) ...1-2
Drazen Podunavac leikur hér á leikmann Linfield sem reynir að stöðva hann með ólöglegum hætti. Á innfelldu myndinni fagnar Hörður Magnússon marki sinu
úr vítaspyrnu ásamt félaga sínum, Andra Marteinssyni.
DV-myndir ÞÖK
Forkeppni Evrópumóts félagsliða í knattspymu:
Nægir FH eitt mark?
- Linfield mátti þakka fyrir að sleppa úr Krikanum með 1-0 ósigur
jón Kristján Sigurðsson skrifen
FH-ingar unnu sinn fyrsta leik í Evr-
ópukeppni í þriðju tilraun frá upphafi
þegar Uðið sigraði norður-írska liðið
Linfield á heimavellinum sínum í
Kaplakrika í gærkvöldi. Eftir leikinn
er þeirri spurningu ósvarað, sem ekki
verður svarað fyrr en eftir síðari leik-
inn í Belfast, hvort 1-0 sigur nægi. Þess-
ari spumingu veltu margir fyrir sér
eftir leikinn í gærkvöldi en hætt er við
að viðure jgnin í Belfast verði FH-ingum
öllu erfiðari.
Sveiflur á milli heima- og útileikja í
Evrópukeppni geta verið ótrúlega mikl-
ar en með skynsamlegum leik eiga
FH-ingar jafna möguleika og Linfield
að komast áfram í 1. umferð. FH-ingar
sýndu gestunum enga miskunn í gær-
kvöldi og áttu nánast leikinn frá upp-
hafi til enda. írska liðið var komið hing-
að til lands með því hugarfari að verj-
ast enda bar leikur þess svo sannarlega
merki.
Fyrir vikið fengu FH-ingar stór svæði
úti á vellinum en þegar nær dró marki
andstæðingsins voru flest svæði lokuð
og áttu FH-ingar í mesta basli að finna
glufur. Nokkrum sinnum skall hurð þó
nærri hælum og máttu gestimir teljast
heppnir að fá ekki á sig mark í fyrri
hálfleik. Hörður Magnússon, Andri
Marteinsson og Drazen Podunavac
voru allir nálægt því að skora en smá-
heppni skorti til að boltinn rataði í net-
ið.
FH-ingar héldu uppteknum hætti í
síðari hálfleik og jókst sóknarþungi
þeirra töluvert. Aður en markið kom
varði markvörður írska liðsins meist-
aralega skot frá Podunavac í horn. Á
65. mínútu í fyrirgjöf fyrir írska markið
var ýtt á bakið á Andra Marteinssyni í
skaUaeinvígi og dæmdi dómarinn um-
svifalaust vítaspymu. Úr henni skoraði
Hörður Magnússon með fóstu skoti en
ekki munaði miklu samt að markvörð-
urinn hefði hendur á boltanum.
Leikmenn Linfield sýndu nokkra
hörku og var tveimur leikmönnum hðs-
Fyrsti útisigur í A
- í E vrópukeppninni þegar liðið lagði Bangor, 1-2
Guðmundur Hilmarsson, DV, Bangor:
íslandsmeistarar ÍA em nánast
komnir með annan fótinn í 1. umferð
UEFA-keppninnar í knattspyrnu eft-
ir 1-2 sigur á welska hðinu Bangor
City í fyrri leik hðanna í forkeppni
UEFA-keppninnar í Wales í gær-
kvöldi. Með sigrinum brutu Skaga-
menn blað í sögu félagsins á Evrópu-
mótunum en þetta var fyrsti sigur
liðsins á útivelli í Evrópukeppni frá
upphafi.
Skagamenn voru meira með knött-
inn í fyrri hálíleik og héldu honum
oft vel en leikmenn Bangor byggðu
leik sinn á háum og löngum sending-
um fram á sóknarmenn sína. Þessi
leikaðferð welska liðsins gekk ágæt-
lega upp til að byrja með og áttu stóm
miðverðirnir Zoran Miljokovic og
Ólafur Adolfsson í erfiðleikum með
fljóta framherja Bangor í fyrri hálf-
leik.
Fyrsta marktækifærið sem eitt-
hvað kvað að áttu leikmenn Bangor
en þrumuskot frá einum leikmanna
hðsins beint úr aukaspymu af um
25 metra færi lenti í markslánni. Síð-
ar í fyrri hálfleik átti Bangor aðra
slíka aukaspyrnu en Þórður Þórðar-
son gerði vel að verja skotið í horn.
Á 42. mínútu kom fyrsta mark
leiksins og var hinn ungi Kári Steinn
Reynisson þar að verki. Hann fékk
góða sendingu frá Ólafi Þórðarsyni,
lék á einn varnarmann Bangor og
skoraði með góðu vinstrifótarskoti
af stuttu færi. Þetta var um leið
fyrsta mark Kára fyrir meistaraflokk
ÍA.
Skagamenn hófu síðari hálfleikinn
með látum og strax á 2. mínútu lá
knötturinn í netinu. Eftir að mark-
vörður Bangor hafði varið gott skot
Ólafs Þórðarsonar í horn tók Harald-
ur Ingólfsson homspymuna. Boltinn
barst fyrir fætur Sigurðar Jónssonar
í vítateignum sem hafði allan tíma
til að taka boltann niður og skora
með hnitmiðuðu vinstrifótarskoti.
Tíu mínútum síðar minnkaði Bangor
muninn. Eftir snöggt upphlaup liðs-
ins barst sending inn í vítateig
Skagamanna frá hægri og þar náði
Frank Mottram að reka hausinn í
boltann og þaðan fór hann í netið,
1-2.
Skagamenn létu þetta mark ekki
slá sig út af laginu. Þeir léku af yfir-
vegun og skynsemi og maður hafði
það á tilfinningunni að þeir gætu
skipt um gír að vild. Þrátt fyrir
nokkra pressu Bangorliðsins síðustu
mínúturnar vom það leikmenn ÍA
sem gátu bætt við marki eða mörk-
um. Bjarki Pétursson kom frískur
inn á sem varamaður og hann var í
tvígang nálægt því að skora áður en
portúgalski dómarinn flautaði til
leiksloka.
Lið ÍA sýndi á köflum ágæta takta
í leiknum en einhvem veginn fannst
manni það ekki leika á fuliri ferð.
Liðið saknaði greinilega Sigursteins
Gíslasonar og Alexander Högnason-
ar, sem voru í leikbanni. Ólafur
Þórðarson og Sigurður Jónsson, sem
léku nú í fyrsta sinn saman í byrjun-
arhðinu í sumar, vom bestu menn
liðsins. Sigurður lék af yfirvegun og
öryggi allan tímann og Ólafur var
duglegur að skapa sér og öðrum
marktækifæri. Vörnin var ótraust í
byijun en fann sig ágætlega í síðari
hálfleik. Haraldur Ingólfsson átti
margar góöar rispur á kantinum og
þeir Pálmi Haraldsson og Kári Steinn
stóðu fyrir sínu. Skagamenn geta vel
við unað eftir þennan leik þrátt fyrir
að meira búi í liðinu. Leikir á útivöll-
um í Evrópukeppni era erfitt verk-
efni en Skagamenn leystu það vel og
em með góða stöðu fyrir síðari leik-
inn uppi á Skaga.
Erekki búið
„Ég get ekki verið annað en ánægður
með mína menn. Við eram að byrja
okkar keppnistímabil og því átti ég
alveg von á að við lentum í einhverj-
um vandræðum. Mörkin sem við
fengum á okkur voru af ódýrari gerð-
inni og það kostaði okkur tapiö. Mér
fannst leikurinn í jafnvægi og ég hef
alls ekki gefið upp alla von um að
komast áfram,“ sagði Niegel Atkins,
markvörður og þjálfari Bangor, við
DV eftir leikinn.
Verst að fá spjöldin
„Ég er fyrst og fremst ánægöur með
sigur á útivelh í Evrópukeppni. Leik-
urinn var köflóttur. Við fórum var-
lega þar sem við vissum lítið um
þetta lið og sluppum tvisvar með
skrekkinn í fyrri hálfleik. Fyrir utan
mörkin sem við skoruðum fengum
við 3-4 mjög góð marktækifæri. Það
versta var að fá tvö gul spjöld
(Miljkovic og Ólafur Adolfsson) og
hleypa þeim inn í leikinn að nýju.
Þessi sigur er gott veganesti í síðari
leikinn," sagði Hörður Helgason,
þjálfari ÍA, eftir leikinn.
Getum meira
„Þetta voru góð úrslit á útivelli en
við spiluðum samt leikinn ekkert
ofsalega vel og getum meira. Við vor-
um of ragir enda fórum við út í hann
alveg án vitneskju um þeirra lið sem
var mjög slæmt. Framherjar þeirra
voru að stríða okkur í fyrri hálfleik
enda spiluðum við vitlaust á móti
þeim, leyfðum þeim að snúa sér og
komast fram fyrir okkur. Auðvitað
var slæmt að vera með tvo lykilmenn
út úr liðinu en í síðari leiknum koma
þeir inn og þá getum viö vonandi
sýnt okkar bestu hliðar og unniö
góðan og öruggan sigur,“ sagði Sig-
urður Jónsson við DV eftir leikinn.
ins vikið af leikvell, fyrst Raymond
Cambell og síðan undir lokin Gary Hay-
lock. Þessir tveir leikmenn eru í hópi
sterkustu manna liðsins og verða ekki
með í leiknum í Belfast. Vonir FH-inga
ættu að vænkast nokkuð við brotthvarf
þeirra.
FH-ingar komust næst því að bæta
við marki þegar Þorsteinn Halidórsson
átti hörkskot fyrir utan vítateiginn en
skot hans hafnaði í stöng. FH-ingar léku
mjög vel úti á velhnum og hefðu með
smáheppni átt að skora 2-3 mörk til
viðbótar.
Andri Marteinsson, Ólafur Kristjáns-
son og Hallsteinn Arnarson voru bestir
FH-inga í annars jöfnu Uði.
Ólafur Þórðarson, fyrirliði IA, var
drjúgur fyrir sina menn og átti þátt
í báðum mörkum liðsins. Skaga-
menn unnu góðan sigur og eiga
væntanlega nokkuð greiða leið í 1.
umferð UEFA-keppninnar.
ÍSLAND - SVÍÞJÓÐ
Einn besti kylfingur heims telur sig hafa sigrast á krabbameini:
„Hætti aldrei að hugsa um golfið“
Einn frægasti og besti kylfingur
heims, Bandaríkjamaðurinn Paul Azin-
ger, hefur greinst með krabbamein og
þessi snjalh kylfingur hefur svo sannar-
lega ekki átt sjö dagana sæla undanf-
ama níu mánuði.
Hann greindist með krabbamein í
hægri öxlinni. í kjölfariö fylgdi hefð-
bundin geislameöferð sem haföi slæm
áhrif á Azinger. Gífurleg ógleði og hár-
missir ásamt ýmsum öðram fylgifisk-
um geröu honum lífiö leitt en nú eru
bjartari tímar framundan. Hann segist
hafa sigrast á sjúkdómnum og þaö sem
sé næst á dagskrá sé að taka upp þráð-
inn og vinna sigur á golfmótum.
Paul Azinger var mjög sigursæll í
fyrra, vann þá meðal annars þrjá sigra
á stórmótum. Síðan gerði krabbameinið
vart við sig og framtíðardraumar kylf-
ingsins voru í óvissu. Azinger segir aö
hann hafi notið gífurlegs stuðnings vina
sinna og nefnir þar kylfinga eins og
Nick Faldo frá Bretlandi og Severiano
Ballesteros frá Spáni. „Þeir skrifuðu
mér báðir og sögðust vonast til að sjá
mig aftur á golfvelhnum sem fyrst. Þeir
sögðu að þeim líkaði vel að leika gegn
mér og það er erfitt fyrir annan en mig
að trúa því hve mikil upplyfting þessi
bréf voru. Ég gaf aldrei upp vonina og
hætti aldrei að hugsa um golfiö," segir
Azinger.
í lok hðinnar viku keppti Azinger á
stórmóti atvinnumanna í Bandaríkjun-
um og var það fyrsta mót hans í 9 mán-
uði. Hann lék fyrsta hring á 76 höggum
og annan á 70 höggum, tveimur undir
pari, og sýndi þá aö hann hefur engu
gleymt og verður án efa kominn í
fremstu röð innan skamms.
Paul Azinger.
il
„Ég var ánægður með leikinn hjá
strákunum. Auðvitað hefði ég viij-
að sjá 2-3 mörk til viðbótar. írska
liöiö hugsaði fyrst og fremst um
það að verjast. Við reyndum að
draga þá framar á vellinum en það
gekk ekki alveg nógu vel eftir. Ég
hef innst inni trú á því að þetta
mark nægi okkur en síðari leíkur-
inn verður mjög eríiður," sagði
Hörður Hilmarsson, þjálíari FH,
við DV effir leikinn.
„Viö fengum svo sannarlega
tækifæri til að skora fleiri mörk,
eitt mark í viðbót hefði gert mögu-
leika þeirra að engu. Linfield er
mun veikara en ég átti von á. Þeir
veröa örugglega sterkari á heima-
velli í Belfast og við komum til með
að beijast vel í þeim leik,“ sagði
Andri Marteinsson FH-ingur eftir
leikinn.
„Liðið lék eins og fyrir það var
lagt. Við getum mun betur en þetta
og það munum við sýna í síðari
leiknum. í öllu falli verðum við
ekki lengi að vinna upp 1-0 ósigur
héma. FH-liðið var hvorki betra
né verra en ég átti von á,“ sagði
Trevor Anderson, þjálfari Linfield.