Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994
3
Fréttir
Sigurður T. Sigurðsson, formaður Verkamannafélagsins Hlííar:
Eg vil sjá umtalsverða
hækkun lægstu launanna
- höfum rætt um að hækka lægsta taxta Hlífar um 10 þúsund krónur á mánuði
„Fyrst af öllu vil ég taka fram að
ég vil sjá umtalsverða hækkun
lægstu launa í næstu kjarasamning-
um. Það sem við í stjórn Hlífar höfum
verið að ræða óformlega um okkar á
milli, án þess að um mótaðar kröfur
sé að ræða, er að lægsti taxti Hlífar,
sem er 43 þúsund krónur á mánuði,
hækki í 53 þúsund krónur. Mér er
alveg sama hvort menn tala þar um
25 prósenta hækkun eða 10 þúsund
krónur á mánuði. Síðan vil ég að
sett verði ákvæði í samninga verka-
lýðsfélaganna um að ef aðrir hærra
launaðir hópar í þjóðfélaginu fá
meiri launahækkun þá komi hún
líka, og til viðbótar, til hinna lægst
launuðu," sagði Sigurður T. Sigurðs-
son, formaður Verkamannafélagsins
Hlífar í Hafnarfirði, í samtali við DV.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, sagði að þar
á bæ væri verið að vinna að kröfu-
gerð. Meðan svo væri vildi hann ekki
nefna neinar tölur varðandi launa-
kröfur. Hann sagðist aftur á móti
vera svolítið skotinn í því að setja
vinnslusal Rækjuvers hf. þar sem verið er að vinna hörpuskel.
DV-mynd ÞÖK
Rækjuver hf. á Bíldudal:
Elsta starfandi
rækjuverksmiðjan
-18 manns vinna við fyrirtækið
„Eg held að þetta sé örugglega elsta
starfandi rækjuverksmiöja á landinu
þar sem sömu eigendur hafa verið
allan timann. Þetta félag er 24 ára
gamalt og ég veit ekki betur en aö
þetta hafi verið rekið án styrkja allan
þennan tíma,“ segir Ævar Guð-
mundsson, verksmiðjustjóri í verk-
smiðju Rækjuvers hf. á Bíldudal.
í verksmiðjunni er unnin hörpu-
skel á tímabilinu 15. ágúst til 15. okt-
óber. Þá tekur við vinnsla á innfjarð-
arrækju sem stendur út marsmánuð.
Meðaltalsrækjukvóti í Amarfiröi
hefur verið um 850 tonn en skelkvót-
inn um 300 tonn. Gagnstætt því sem
er með frystihúsið á staðnum hefur
Rækjuver verið í stöðugum rekstri.
„Það em hugmyndir um að auka
verkefni verksmiðjunnar og þá er
horft til heilsársvinnslu," segir Æv-
ar.
Akureyri:
Atvinnulaus-
um fækkar
Tala atvinnulausra hjá Vinnu-
miðlunarskrifstofu Akureyrar-
bæjar í lok síðasta mánaðar var
375 og var um að ræða 122 karla
og 195 konur.
Þetta er talsvert minna at-
vinnuleysi en á sama tíma á síö-
asta ári en þá voru 403 skráðir
atvinnulausir í lok ágúst og 377 i
lok september. Þessa dagana eru
margir í tímabundinni vinnu, s.s.
í Sláturhúsi KEA, og einnig hefur
nokkur fjöidi atvinnulausra feng-
iö vinnu við ígulkeravinnslu sem
nýlega er hafin.
Lögregiurann-
sókn lokið
Mál mannsins, sem ráðinn var
leiðbeinandi viö grunnskólann á
Sauðárkróki, en var látinn íára
fyrr í mánuðinum eftir að fram
komu upplýsingar þess efnis að
hann væri grunaður um kynferð-
islega misnotkun á eigin bömum,
er til meðferðar hjá ríkissaksókn-
ara í Noregi. Vænta má niður-
stöðu frá honum í vikunni.
• Lögregluyfirvöld í Noregi hafa
lokið afskiptum af málinu og var
þvi rangt með farið í DV þann 16.
september að málið væri enn í
rannsókn. Er viðkomandi beðinn
velvirðingar á því.
Lögmaður mannsins í Noregi
hefur sent DV yfirlýsingu þess
efnis að engar upplýsingar hafi
komið fram við rannsóknina sem
bendi til saknæms athæfis. Þetta
fékkst hins vegar hvorlci staöfest
hjá lögreglu né saksóknara.
Dagsprent á Akureyri 1 greiðslustöðvun:
Sala útgáf unnar
einn möguleikinn
- getum ekki valið leiðir eða hafnað þeim, segir framkvæmdastjórinn
„Það má segja að allt sé falt,
hvort sem um er að ræða útgáfuna
sjálfa, fasteignir eða tæki. Við emm
því miður í þeirri stöðu að geta ekki
valið neinar leiðir eða hafnað þeim,“
segir Hörður Blöndal, framkvæmda-
stjóri Dagsprents hf. á Akureyri sem
er útgáfufélag dagblaösins Dags.
Dagsprent hefur fengið greiðslu-
stöðvim til 24. október og segir Hörð-
ur að á greiðslustöðvunartímanum
verði afiar leiðir kannaðar en
höfðuáhersla verður lögð á að finna
samstarfsaðila eða að skoða eigna-
sölu.
Hörður segir að þegar fyrirtækið
fékk greiðslustöðvun árið 1990 hafi
verið gengið í það mál að selja eign-
ir. Hins vegar hafi liðið þijú ár þar
til tókst að selja stóm fasteignina viö
Strandgötu Sem byggð var upp úr
miðjum síðasta áratug og á meðan
hafi skuldir hlaðist upp. „Þegar okk-
ur tókst loksins að selja á síðasta ári
hafði fasteignaverð fallið svo að við
fengum ekki einu sinni kostnaðar-
verð fyrir húsið og við bættist að þá
var einnig tap á rekstrinum. Eftir
uppstokkun í rekstrinum, sem gerð
hefur verið, ber fyrirtækið einhverj-
ar skuldir, en ekki þær sem á því
hvíla í dag,“ segir Hörður.
Kaupfélag Eyfirðinga er aðaleig-
andi Dagsprents með um 60% eignar-
hlut, Framsóknarfélögin í Eyjafirði
og á Akureyri eiga 29%, Kaffi-
brennsla Akureyrar 4% og um 100
aðilar aðrir eiga samtals 7%.
fram kröfu um lágmarkslaun í land-
inu. Hve há þau ættu að vera væri
hann ekki tilbúinn til að segja um
strax.
Björn Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambandsins, sagðist
heldur ekki tilbúinn til að nefna töl-
ur. Hann sagðist hafa heyrt menn
tala um allt að 25 prósenta launa-
hækkun en vildi engan dóm þar á
leggja.
„Það er hins vegar alveg ljóst að
farið verður fram á umtalsverða
launahækkun í næstu kjarasamn-
ingum, auk kröfu um kaupmáttar-
aukningu,“ sagði Björn Grétar.
BOSCH
Allt á sama stað
Handverkfæri Bílavarahlutir
Opið
laugardaga
frákl. 10-14.
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF
Lágmúla 9 - Sími 38825
Ath. Ekið inn frá Háaléitisbraut.
Dagana 30. september til 8. október verðum vlð i
hátíðarskapl og bjóðum viðskiptavinum okkar
C
aUt að
afslátt af flestum vörum verslunarinnar. Bn á
afmœlisdögunum má jafnvel flnna vörur
með
Hr. Herkúles mætir í
verslanlmar aftnælis-
dagana og sýnlr Ilstlr
sínar og skorar á
viðskiptavlnlíaflrauna-
keppni og veltir
þátttakendum verðlaun.
afslætti
Hum veröur í bnSumim Km hér segir.
Akranesi: 30/9 frá kl. 14.00-18.00
Akurcyri: l/10Hkl. 11.00-14.00
Rcykjavik: Mctró i Mjódd 7/10 frá kl. 14.00 ■ 18.00
ísafirðl: 8/10 frá kl. 11.00 -14.00
m
M
METRÓ
-miðstöð heimilanna
Mjúdd 09 lynghás) 10 Furuvölum 1 Stillbolti16 Mjaftargötu 1
Reykjavk Akureyrt Akranasl kafirðl
I
f