Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994
Fréttir
Skoðanakönnun DV um bensíngjald og vegaframkvæmdir:
Þorri kjósenda and-
vígur tillögu Davíðs
- einungis bórðungur sjálfstæðismanna styður tillögu formannsins
Niðurstaða skoðanakönnunar DV
Spurt var: „Ertu fylgjandi eða andvígur því að
hækka verð á bensíni til að fjármagna
sérstakar vegaframkvæmdir?“
Fylgjandi Andvígir Óákveðnir Svaraekki
Höfuðborgarsvæðið 21,0% 70,7% 7,7% 0,7%
Landsbyggðin 20,3% 67,0% 11,7% 1,0%
Landiðallt 20,7% 68,8% 9,7% 0,8%
Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda er
andvígur þeirri tillögu Davíös Odds-
sonar forsætisráðherra að hækka
verð á bensíni til að fjármagna sér-
stakar vegaframkvæmdir. Þetta er
niöurstaða skoðanakönnunar sem
DV framkvæmdi um síðustu helgi.
Niðurstöður könnunarinnar urðu
á þann veg að á landinu öllu reynd-
ust 20,7 prósent aöspurðra fylgjandi
því að verð á bensíni yrði hækkað
til að fjármagna sérstakar vegafram-
kvæmdir en andvígir því eru 68,8
prósent. Hlutfall óákveðinna reynd-
ist 9,7 prósent og 0,8 prósent neituðu
að gefa upp afstöðu sína. Sé einungis
tekiö mið af svörum þeirra sem af-
stöðu tóku í könnuninni reyndust
23,1 prósent fylgjandi tillögunni en
76,9 prósent andvíg.
Urtakið í könnuninni var 600
manns. Jafnt var skipt á milh kynja
og eins á milh landsbyggöar og höf-
uöborgarsvæðisins. Spurt var: „Ertu
fylgjandi eða andvigur því að hækka
verð á bensíni til að fjármagna sér-
stakar vegaframkvæmdir?"
Óverulegur munur reyndist á af-
stöðu þeirra kjósenda sem búa á
landsbyggöinni og þeirra sem búa á
höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggð-
inni reyndust 23,3 prósent þeirra sem
afstöðu tóku vera fylgjandi tillögu
forsætisráðherra en andvíg reyndust
76,7 prósent. Á höfuðborgarsvæðinu
reyndust 22,9 prósent þeirra sem af-
stöðu tóku vera fylgjandi tillögunni
en 77,1 prósent andvig.
DV greindi sérstaklega afstöðu
stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks-
ins til tillögu flokksformannsins,
Davíðs Oddssonar. í ljós kom að tæp-
lega fjóröungur sjálfstæðismanna
styður tillögu Davíðs, eða 24,8 pró-
sent. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra
er andvígur tillögimni, eða 65,7 pró-
sent, og 9,5 prósent eru óákveðin eða
neita að gefa upp afstöðu sína.
Jón Baldvin í Washington:
Hittir ekki Pevry
Jón Baldvin Hannibalsson, utan- rikjanna, í dag en að sögn Róberts
rfkisráðherraogformaðurAlþýðu- Trausta Ámasonar, ráðuneytis-
flokksins, tók ekki þátt í stjórn- stjóra utanríkisráöuneytisins, mun
málaumræðunum um stefnuræðu ekki geta orðið af þvf en þess í stað
forsætisráðherra í gærkveldi þar kemur aðstoöarmaður ráðherrans
sem hann er staddur í óopinberri til fundar við Jón Baldvin til al-
heimsókn í Washington. Hann fór mennra umræöna.
vestur til að taka þátt í hátíðahöld- Á fóstudag hittir forseti íslands,
urn íslenska sendiráðsins og ræðis- Vigdís Finnbogadóttir, Clinton
manna íslands í Bandaríkjunum Bandarikjaforseta í Hvíta húsinu í
vegna 50 ára afmælis fslenska lýö- Washington og mun Jón Baldvin
veldisins. verða viðstaddur. Hann er væntan-
Til stóð að Jón Baldvin hitti legur heim á sunnudag.
Perry, landvarnaráðherra Banda-
Bensíngjaldið
- afstaða kjósenda til hækkunar
bensínverös til sérstakra
vegaframkvæmda -
76,9%
Ummælifólksí
könnuninni
„Skattheimtan er of mikií nú
þegar og ekki á hana bætandi,"
sagði miðaldra karl í Reykjavík.
„Mér finnst allt í lagi aö borga
meira fyrir bensínið ef viö fá'um
betri vegi,“ sagði eldri kona á
höfuðborgarsvæðinu. „Ef þaö á
aö hjálpa þessu landsbyggðar-
fólki meira þá væri nær aö sefja
vegatolla þannig að þeir borgi
fyrir þjónustuna sem notfæra sér
hana," sagöi karl á Reykjanesi.
„Þessir bensínskattar hafa aldrei
skilað sér í vegaframkvæmdir
sagði karl á Austurlandi. „Ég á
engan bíl og veit ekkert um
þetta,“ sagði konaá Norðurlandi.
„Neysluskattar væru ágætir ef
þeir kæmuístaðtekjuskatts. Sem
viðbótarskattar eru þeir afleitir,"
sagði karl i Reykjavík. „Það er
ekki hægt að taka afstöðu til
þessa fyrr en maður veit hverjar
vegaffamkvæmdirnar verða,“
sagði karl á Norðurlandi. Karl á
Vestfjörðum sagði að álögurnar á
bifreiöaeigendur væru nú þegar
orðnar allt of háar. „Áður en ég
samþykki aukna skattheimtu vil
ég sjá þau gjöld, sem núna eru
innheimt meö bensíninu, skila
sér að fullu til vegamála," sagði
kona á Norðurlandi. „Ef það
kemur að einhverju gagni að
hækka bensínverðið þá er ég
fylgjandi því,“ sagði kona á Vest-
urlandi.
Bensíngjaldið
- afstaða stuöningsm.
Sjálfstæöisfl. til hækkunar
bensínverös til sérstakra
vegaframkvæmda -
í dag mælir Dagfari
Ástfangin prinsessa
Konungsíj ölskyldan í Bretlandi
hefur átt undir högg að sækja.
Þegnar hennar hátignar eru ekki
lengur eins hollir krúnunni og áður
og sífelldar umræður eru í gangi
um að nú eigi að leggja konungs-
veldiö niöur. Það sé of dýrt að halda
uppi mörgum ætthðum af konung-
bornu fólki.
Þaö er að vísu rétt að drottningin
hefur ekki mikil völd og konungs-
fiölskyldan stækkar og stækkar og
er frek til fjárins. Langlífi er líka
vandamál í þessari fjölskyldu sem
veldur því að prinsar og prinsessur
eru komin á gamals aldur þegar
röðin kemur að þeim.
Konungsfjölskyldan hefur séð
sitt óvænna og gripið til nýstár-
legra og nútímalegra aðgerða til að
halda þegnum sínum viö efnið.
Ekki með því að sölsa undir sig
völd eða drepa mann og annan,
eins og kóngar gerðu í gamla daga.
Nei, konungsfj ölskyldan í Bret-
landi kann önnur ráð sem eru í því
fólgin að koma sér í fréttimar með
öðrum hætti. Það er gert með því
að giftast og skifja á víxl, halda
fram hjá í kynlífinu, láta mynda sig
nakin og vera sem sagt stöðugt til
taks þegar slúðurblöðin skortir
efhi til að örva söluna.
Díana prinsessa og fyrrum eigin-
kona Karls Bretaprins hefur að
þessu leyti verið til ómetanlegs
gagns fyrir framgang konungsfjöl-
skyldunnar. Veslings Díana, eins
og hún er nú falleg. Saga hennar í
konungshöllinni bresku er þymum
stráð og hver harmleikurinn rekur
annan.
Fyrst giftist Díana Karli erfða-
prinsi með mestu viðhöfn sem um
getur í brúðkaupsveislum síðustu
alda. Ung gekk hún Kalla á hönd
og virtist una hag sínum vel. Ó1
honum meira að segja tvö böm sem
eftir á að hyggja heftir verið afrek
út af fyrir sig, ef marka má frásagn-
ir af fábrotnu ástarlífi þeirra hjóna.
Svo kom að því að þau hjóna-
kornin fjarlægðust hvort annað.
Díana stundaði tískusýningar í
London meöan KaUi veiddi lax á
íslandi. Karl Bretaprins var þar aö
auki sagöur eiga viðhald og Díana
lenti í anorexíu af áhyggjum. Um
tíma var ástandið þannig að bæði
hjónin láku slúðri og gróusögum
um hvort annað í fjölmiðla og end-
irinn varð óumflýjanlegur. Þau
skildu að borði og sæng. Allir vor-
kenndu Díönu og allir sökuðu Karl
um karlrembu og framhjáhald.
Eftir því sem heimspressan hefur
upplýst hefur Díana það helst fyrir
stafni að stunda líkamsrækt og
dularfullar símhringingar til
stráka sem hún er skotin í. Einhver
lak þeirri sögu að Díana keypti föt
og skartgripi fyrir mihjónir á ári
og Elísabet Englandsdrottning
hafði ekki undan að bera th baka
slúðursögur um athafnir og ástar-
sambönd sona sinna og fyrrverandi
tengdadætra.
Nú hefur keyrt um þverbak í
skrautlegri atburðarás konungs-
ættarinnar. Ut er komin bók i Eng-
landi þar sem segir frá því hvemig
Díana dró ástmann sinn á tálar.
Bókin rennur út og er metsölubók-
in í ár. Höfundurinn er major í
breska hemum, James Hewitt að
nafni, og verður honum drjúgur
drátturinn með Díönu því reiknað
er með að hann hagnist um nær
fjögur hundruð milljónir íslenskra
króna á bókinni.
Majórinn er sagöur subbulegur
og kaldrifjaður glaumgosi og upp-
skafningur sem aldrei hafi dýft
hendinni í kalt vatn. Díana gat ekki
Vcdið sér betra viðhald ef það vakti
fyrir henni á annað borð að koma
kynlífsgetu sinni á framfæri. Það
hefði að sjálfsögðu verið útilokað
að nokkur heiðvirður maður með
sómatilfinningu léti sig hafa þaö
að birta bók um ástarlífssenur með
prinsessunni og þess vegna sniðg-
ekk Díana alla slíka menn til að
vera fullviss um aö bókin yrði
skrifuð.
Herbragðið hefur heppnast fuh-
komlega og nú er Díana komin í
raðir kynþokkafyhstu og kynrík-
ustu kvenna Bretaveldis og orðstír
hennar fer um allan heim. Henni
hefur um leið tekist að efla alla
umræðu um bresku konungsfjöl-
skylduna og nú má heita öruggt að
ekki einn einasti maður í gjörvöllu
Englandi láti sér þaö th hugar
koma að leggja niður konungs-
dæmiö. Hver vih missa af klámsög-
um úr höllinni? Hver vhl fóma
þessari yndislegu fjölskyldu og
auglýsingunni sem hún færir Bret-
um?
Það er mál th komið að Díana
verði drottning.
Dagfari