Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994
5
Strandasýsla:
Stef nir í nýtt
metífall-
þunga
Guðfiimur Fimbogason, DV, Hólmavflc
Sauðöárslátrun hófst hjá Kaup-
félagi Steingrímsfjarðar á Hólma-
vík 12. september og er áætlað að
hún standi fram yfir miðjan
þennan mánuð.
Dilkar reynast í góðu meðallagi
eins og við var að búast eftir eitt
það hlýjasta sumar sem komið
hefur lengi og mikinn gróður í
úthaga. Meðalfallþungi dilka á
Hólmavík var í fyrra 16,92 kg eða
einn sá hæsti á landinu en eins
og nú horfir er útlít fyrir að Joað
met verðí slegið í ár. Ekki er það
öllum fagnaðarefni þar sem
þyngri föll eru erfiðari í sölu.
Alþingi:
Forsetar allir
endurkjörnir
Forsetar Alþíngis voru kjömir
í fyrridag. Salome Þorkelsdóttir
var endurkjörin forseti Alþíngis,
hlaut 43 atkvreði en 11 skiluðu
auðu. Valgerður S verrisdóttir var
endurkjörin fyrsti varaforseti,
Gunnlaugur Stefánsson annar,
Guðrún Helgadóttir þriðji, Sturla
Böðvarsson fiórði, Kristín Ein-
arsdóttir íimmti og Pálmi Jóns-
son sjötti varaforseti þingsins.
ísfisktogari:
Landaði
tvisvar í
sömu vikunni
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi'.
ísfiskstogarar HB hf. hafa verið
að gera það gott að undanförnu á
heimamiðum og hafa landað
tvisvar hvor á skömmum tíma.
Haraidur Böðvarsson landaði
tvisvar í síðustu viku - tæplega
120 tonnum í vikubyrjun og full-
fermi nú um helgina. Sturlaugur
H. Böðvarsson landaði 175 tonn-
um í síðustu viku og haíöi
skömmu áður landað fullfermi.
Áfengiogtóbak:
Tekjur auk-
astumöpró-
Samkvæmt íjárlagafrurnvarp-
inu 1995 eru tekjur af sölu áfeng-
is og tóbaks áætlaðar 10,4 millj-
arðar á næsta ári. Það er ríflega
11% hækkun frá áætlun fjárlaga
1994 en 8% ef miöað er við reikn-
ing 1993.
Sala áfengra drykkja jókst
fyrstu 6 mánuði þessa árs og tek-
ur áætlun um sölu á árinu 1995
míð af því. Skil ÁTVR í ríkissjóð
á næsta ári eru áætluð 6,8 millj-
arðar sem er 8% hækkun frá gild-
andi fjárlögum.
Nýr löggubíll
áólafsfirði
Helgi Jónsson, DV, Óhfefirði:
Nýr lögreglubíll er nýkominn
til Ólafsfjarðar af gerðinni
Volkswagen Caravan Syncro,
Ijórhjóladrifinn með sídrifi.
„Við vildum þýöari bíl með
meira plássi aftur í og fengum
hann,“ sagði JónKonráðsson lög-
reglustjóri.
Fréttir
Lögreglumaður kærir til dómsmálaráðuneytisins:
Áminntur fyrir að
upplýsa brugg í
frítíma sínum
„MáUð hefur verið til meðferðar
innan ráðuneytisins og það er að
vænta endanlegrar niöurstöðu innan
skamms. Tillögur þeirra starfs-
manna sem að máUnu hafa unnið
verða lagðar fyrir ráðherra íljót-
lega,“ segir Ari Edwald, aðstoðar-
maður dómsmálaráðherra, um mál
lögreglumanns sem starfaði á Breið-
holtsstöð lögreglunnar í Reykjavík.
í vor voru tveir lögreglumenn á
Breiðholtsstöð lögreglunnar áminntir
af yflrmönnum sínum fyrir að óhlýðn-
ast skipunum sem þeir höfðu fengið.
Báðir lögreglumenmrnir hafa ít-
rekað hlotið lof fyrir störf sín. Hefur
þeim meðal annars orðið vel ágengt
í að sporna gegn auknu framboði á
ólöglegu áfengi á Suðvesturlandi
með svipuðum starfsaðferðum. Nú
er svo komið að annar þeirra hefur
kært áminninguna til dómsmála-
ráðuneytisins.
í áminningunni kemur fram að lög-
reglumaðurinn hafi fengið munnleg
tilmæli um að vinna ekki að rann-
sókn ákveðins bruggmáls yfir helgi
í mars heldur koma því í hendur
vakthafandi yfirmanns rannsóknar-
deildar. Atvikin höguðu því hins veg-
ar svo að hann fór ásamt félögum
sínum, sem einnig voru í fríi, upp í
Mosfellsbæ þar sem þeir könnuðu
ábendingu um hvort starfrækt væri
bruggverksmiðja í ákveðnu húsi.
Þegar þeir komu á staðinn sáu þeir
menn að störfum í húsinu og hringdi
einn lögreglumannanna í vakthaf-
andi yflrmann á rannsóknardeild
lögreglunnar og gaf hann þeim leyfi
til að uppræta starfsemina. Það var
gert en skiptar skoðanir eru um
hvort þeir hafi einungis átt að gefa
umræddum yfirmanni upplýsingar
um máhð og láta vaktina síðan vinna
úr þeim.
Verkið var unnið utan vinnutíma,
líkt og við fjölda annarra bruggmála
sem lögreglumaðurinn hefur upplýst
ásamt félögum sínum enda ekki allt-
af fengist samþykki fyrir nægri yfir-
vinnu til að upplýsa mörg þeirra
mála sem hann hafði unnið að.
Áminningar sem þessar eru litnar
mjög alvarlegum augum innan lög-
reglunnar og geta tvær áminningar
verið brottrekstrarsök.
„Okkur finnst það harkaleg aðgerð
að mennirnir séu áminntur fyrir að
upplýsa sakamál í eigin frítíma. Það
hefði kannski verið tilhlýðilegt að
gefa umræddum mönnum tiltal en
áminning er nokkuð hörð viðbrögð.
Sérstaklega er þetta alvarlegt í ljósi
frumvarps til lögreglulaga sem nú
er til meðferðar Alþingis en þar er
ákvæði á þá leið að lögreglumenn
skuli grípa inn í ef þeir verða varir
við eitthvað ólöglegt utan vinnutíma.
Þarna er gengið þvert á þetta,“ sagði
stjórnarmaður í Landssambandi lög-
reglumanna við DV.
RAFMAGNSÞILOFNAR
EP-50 500 W 6.890,-
EP-100 1000W 7.250,-
EP-150 1500 W 8.090,-
EP-200 2000 W 9.140,-
2000 W m/blæstri 11.380,-
Bjóðum einnig nýjar geröír
olíufylltra rafmagnsofna
61221 1200 W 9.310,-
71521 1500 W 10.160,-
92021 2000 W 11.780,-
10% aukaafsláttur
við kassa
/rOniX
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
'C 03
rf-. 1(0
O cu
~o c
£ E
Q> O
(f)
o«o
° 03
2 3
!c
.. c
(U <S
E $5
«o —
Ui
U)
>-
-Q
co
~G
c
?ÖST^
o
vl>
POSTVAL
2
Skútuvogi 1 simi: 68 44 22
Nýr
pöntunarlisti
annan hvern mánuð
Komið í verslun okkar
Skútuvogi 1
(næsta hús víð IKEA)
og fáið ókeypis lista
Opið virka daga 10-18
laugardaga 10-16
SVIPTUM HULUNNIAF UM HELGINA