Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994
9
dv Stuttar fréttir
Útlönd
Leggið niður vcpn
Leiðtogi ægilegustu vopnuðu
sveitar óbreyttra á Haíti hvatti
menn sina til að leggja niður
vopnin.
Löggustjóri f lúínn
Lögreglustjórinn í Port-au-
Prince, höfuðborg Haítí, er flúinn
yfir til Dóminíkanska lýöveldis-
ins.
Útlegðsennáenda
Jean-Bertr-
and Aristide,
lýðræðislega
kjörinn forseti
Haítí, var
kampakátur
þegar hann
sagði á fundi
hjá SÞ að
þriggja ára útlegð hans mundi
Ijúka 15. október.
RættviðSerba
Fulltrúi SÞ ætlar að reyna að
fá Bosniu-Serba til að hætta að
trufla hjálparaðgeröir.
Slakað á klónni
Slakað verður á refsiaðgeröum
gegn Serbíu og Svaitfjallalandi í
dag.
Þingidag
Rússneska þingið kemur aftur
saman í dag og vonast menn eftir
að það verði ekki stormasamt.
Clinton Bandaríkjaforseti bauð
Mandela, forseta Suður-Afríku,
velkominn í Hvíta húsið og lofaði
stuðningi.
Ekkirefsaðiengur
Warren Chri- |"pP“! '
stopher, utan- r
ríkisráðherra )
Bandaríkjanna, <<£■
segir að við- ■:f
skiptaþvingun-
um á Kínverja *
vegna sölu fc.. í&mÁ
peirra a eiu-
flaugatækni til Pakistans verði
aflétt.
Snurða á þráðinn
Snurða hljóp á þráðinn í við-
ræðum ísraels og PLO um kosn-
ingar Palestinumanna vegna
þátttöku róttæklinga.
Horfttiiausturs
Evrópusambandið hefur sam-
þykkt áætlun um nánari sam-
vinnu við sex Austur-Evrópuríki
Póiitíkogdóp
í Mexíkó er rannsakað hvort
stjórnmál og eiturlyfjasala séu
ástæður fyrir morðinu á leiðtoga
stjómarflokksins.
Hersveitir til eftirlits
Bandaríkjamenn mundu ihuga
að senda hersveitir til að fylgjast
með friðarsamnningi ísraels og
Sýrlands.
Groívanda
Gro Harlem
Brundtland,
forsætisráð-
herra Noregs,
og rikisstjórn
hennar munu
eiga erfitt verk
fyrír höndum
að koma íjár-
lögum næsta árs í gegnum Stór-
þingiö.
Baliaduraðiinast
Balladur, forsætsráðherra
Frakklands, linaðist í andstöðu
sinni við umbætur í fjármögnun
flokkanna.
innaðmiðju
Leiðtogi breska Verkamanna-
flokksins ætlar að reyna aö
sveigja vinstri væng flokksins
innaðmiðju. Reuter.NTB
Bretar óttast að ríkisarfinn hafi skaðast af framhjáhaldi móður sinnar:
Prinsarnir horfðu á
kossana og kjassið
- ný skoðanakönnun sýnir að 72% Breta styðja Díönu og 71% hatar Karl prins
„Þau léku sér öll fjögur saman í
lauginni. James bar prinsana á há-
hesti, kaffræði þá og elti á sundinu
milli þess sem hann lét vel aö Dí-
önu,“ skrifar Anna Pastemak í bók
sína um ástarlíf Díönu prinsessu og
James Hewitts majors.
Það eru lýsingar sem þessar sem
fara verst í Breta. Þeir vilja vita hvort
ríkisarflnn Vilhjálmur og Hinrik,
bróöir hans, hafi beðið tjón á sálu
sinni við að horfa upp á framhjáhald
móður sinnar.
Þetta er sérlega mikilvægt þar sem æ
fleiri Bretar krefjast þess að gengið
verði fram hjá Karh prinsi í erfðaröð-
inni og Vilhjálmur látinn taka við kon-
ungdómi af Elísabetu ömmu sinni. í
konungshöllinni fást þau svör ein að
svona óhróður sé ekki svaraveður.
Ný skoðanakönnun sýnir að yfir-
gnæfandi meirihluti Breta vill ekki
áfellast Díönu fyrir að hafa haldið
fram hjá manni sínum. Könnunin
sýndi að 72% aðspurðra vilja fyrir-
gefa Díönu en 71% áfellist Karl fyrir
aö hafa vanrækt hana.
Ástarleikir í lauginni
Svokallaöir „sundlagarkaflar" í
bókinni Ástfangin prinsessa hafa far-
ið fyrir brjóstið á Bretum og þykja
ganga óþarflega nærri Díönu. Þar
skrifar Anna Pastemak:
„Sumrin voru best. Þá gátu þau
leikið sér saman í sundlauginni.
Díana hafði alltaf haft ástríðu til að
synda, alltaf liðið vel í vatninu. í raun
og vem var sundið henni nautn. Allt-
af þegar hún var spennt og óróleg fór
hún út að lauginni, stakk sér og fann
hvemig spennan hjaðnaði með
hveiju sundtaki.
Hún var ömgg í lauginni, velti sér
á allar hhðar og smaug tígulega í
gegnum vatnið. Á eftir settist hún
róleg á laugarbarminn, grannur
brjóstkassinn og viðkvæm bijóstin
risu og hnigu. Hún roönaði og fannst
hún loksins hrein.“
Pastemak þykir og hafa gengið of
langt þegar hún skrifar:
„Hann hafði leikið við hana alla
nóttina, örfað hana kynferðislega
þegar hún vildi, hætt þegar hún vildi,
rétt eins og hann hafði gert árin tvö
sem þau höfðu notið ásta.“
Dfana prinsessa hefur reynt að láta sem ekkert sé þótt nákvæmar lýsingar á ástarlífi hennar hafi komið út á bók.
Hún getur huggað sig við að landar hennar vilja fyrirgefa henni og skilja að það var áhugleysi Karls um líkamleg-
ar þarfir hennar sem leiddi hana út í framhjáhald. Símamynd Reuter
Ferjur í Svíþjóö og Finnlandi:
Stafnhlerarnir
logsoðnir f astir
Stjómvöld í Svíþjóö og Finnlandi
hafa fyrirskipað eigendum bílferja
eins og þeirrar sem fórst með rúm-
lega 900 manns í Eystrasalti fyrir
viku að logsjóða stafnhlera þeirra
fasta. í öðrum Evrópulöndum, þar á
meðal Danmörku og Frakklandi, er
feijueigendum gert að kanna örygg-
isþætti skipanna, einkum stafnhler-
anna sem taldir era eiga sökina á því
aö feijan Eistland sökk.
Leitarskip em nú byrjuð að leita
að stafnhlera Eistlands á hafsbotnin-
um en hann rifnaði af og hleypti sjó
óhindrað inn á bílaþilfariö. Fullkom-
in sónartæki verða notuð við leitina.
Finnskir leitarmenn sögðu að það
gæti tekið marga daga að fmna stafn-
hlerann, sem vegur sextíu tonn, en
hann ætti að geta geflð mönnum
ákveðnar vísbendingar um hvers
vegna lokunarbúnaöur hans brást.
Sten Andersson frá sænsku sigl-
ingamálastofnuninni sagöi aö ef
stafnhlerinn fyndist langt frá flaki
ferjunnar kynni skipið að hafa siglt
dágóða stund án hans.
Hann sagði að mikilvægt væri að
komast að því hversu hratt ferjan
sigldi þegar slysið varð. Sumir sér-
fræöingar segja að mikill hraði og
þungur sjór hafi hugsanlega átt þátt
í því að svo fór sem fór.
Feijan Stena Saga fékk ekki að
sigla úr höfn í Frederikshavn í Dan-
mörku í gærmorgun áleiðis til Óslóar
eftir að sænskir eftirlitsmenn fundu
lítilsháttar galla á stafnhlera hennar.
Sjö hundruð farþegar sem voru um
borð þurftu aö fara með öðrum skip-
um.
Reuter, NTB
íslendingar á kjörskrá í Danmörku: Danir hættir við að ógilda kosningarnar
„Lg man ekkert ettir hvort þau spurðu um kosningarétt sinn eða ekki,“ segir Chirstian Weiersöe, kjörstjórnarmaður í Viborg í Dan- mörku. Hann hefur verið krafmn svara um hvort hann hafi heimilað Hilmari Gunnlaugssyni og Stef- aníu Valdemarsdóttur að kjósa við þingkosningarnar þann 21. sept- ember. Mál þeirra hefur vakiö mikla at- hygli í Danmörku þar sem um tíma var óttast að ógilda þyrfti kosning-
arnar í Viborg. Nú hefur kjörstjóm farið nákvæmlega yfir „svindMð“ hegningu kjörstjómin verður að gangast undir. Hilmar og Stefanía
og niðurstaðan er að kosmngarnar skuli standa óhaggaðar. Atkvæði þeirra tveggja breyta engu um úr- eru laus allra mála því þau reyndu ekki að svindla í kosningunum; nýttu sér aðeins réttinn sem kjör-
MJ.IXU pVJ cl ciVJtVl UUUl CtbutJUd. IU að gera meira í máhnu. Danska þingið veröur þó að afgreiða máhð formlega. Allt er enn óráðið um hvaða syurrun iidioi geuo pGini. Ole Larsen, formaður kjörstjórn- ar, verður væntanlega kallaður fyrir og látinn skýra mál sitt. Ritzau